Morgunblaðið - 18.05.2002, Page 59

Morgunblaðið - 18.05.2002, Page 59
MESSUR Á MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 59 upsmessa kl. 10.30. Söfnun fyrir landið helga. Mánudaginn 20. maí: Annar í hvíta- sunnu – Messa kl. 10.30 (engin messa kl. 18!) Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaginn 19. maí kl. 15: Messa á pólsku. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16. Miðvikudaga: Messa kl. 20. Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Skriftir kl. 17.30. Messa kl. 18.30. Laugardaga í maí: Messa kl. 18.30. Maímánuður er settur sérstaklega undir vernd heilagrar Maríu meyjar og tileinkaður henni. Haldin verður bænastund á hverjum miðvikudegi og laugardegi fyrir kvöldmessu kl. 18. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaga: skriftir kl. 19.30. Bæna- stund kl. 20. Akranes, spítali: Hvítasunnudaginn messa kl. 15. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Grundarfjörður og Ólafsvík: Nánari upp- lýsingar hjá Fransiskussystrum í Stykkis- hólmi (438 1070). Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 16 á ensku og kl. 18 á pólsku. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. FÆREYSKA sjómannaheimilið: Sam- koma á morgun kl. 16. Góðir gestir frá Færeyjum tala og syngja. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 14. Fermingarmessa. Sjá nöfn ferming- arbarnanna á öðrum stað í blaðinu. Allir eru hjartanlega velkomnir í þessa sameig- inlegu messu safnaðarins. Kl. 16. List- vinafélag Vestmannaeyja stendur fyrir tónleikum Gunnars Gunnarssonar og Sig- urðar Flosasonar í Landakirkju. Djössuð sálmalög. Tónleikarnir eru helgaðir minn- ingu Eyjólfs Pálssonar, sem hefði orðið 70 ára nú annan í hvítasunnu. Annar í hvítasunnu, mánud. 20. maí: Kl. 20.30. Poppmessa með hljómsveitinni „Kristni- boðarnir í Kína“ (Made in China). Ný og gömul poppmessulög. Leiðtogar í Æsku- lýðsfélagi Landakirkju – KFUM&K lesa úr ritningunni og sr. Kristján Björnsson legg- ur út af guðsorðinu í spjallræðu kvölds- ins. Kaffi og appelsínudjús á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Hátíðarmessa kl. 11. Gunnar Kristjáns- son sóknarprestur. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: Hátíðar- messa kl. 14. Gunnar Kristjánsson sókn- arprestur. LÁGAFELLSKIRKJA: Hátíðarguðsþjón- usta kl. 11. Fiðluleikur: Jónas Þórir Dag- bjartsson. Kirkjukór Lágafellssóknar, org- anisti Jónas Þórir. Kirkjukaffi í skrúðhússalnum. Jón Þorsteinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Org- anisti Natalía Chow. Félagar úr kór Hafn- arfjarðarkirkju leiða söng. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 11. Kirkjukór Víð- istaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngur Sigurður Skagfjörð. Allir velkomnir. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Hátíðar- og fermingarguðsþjónusta kl.11. Í guðsþjón- ustunni verða fermd fjórtán ungmenni. Organisti er Þóra Guðmundsdóttir og kór- stjóri Örn Arnarson. Prestar Einar Eyjólfs- son og Sigríður Kristín Helgadóttir. VÍDALÍNSKIRKJA: Messa með altaris- göngu í Vídalínskirkju kl. 11 á hvítasunnu- dag. Sameinaðir kórar Garða- og Bessa- staðasóknar (Kór Vídalínskirkju og Álftaneskórinn) leiða almennan safnaðar- söng og syngja saman messukafla úr Missa brevis eftir W.A. Mozart. Stjórnend- ur kóranna og organistar eru Jóhann Bald- vinsson og Hrönn Helgadóttir. Við mess- una þjóna báðir prestarnir, sr. Hans Markús Hafsteinsson og sr. Friðik J. Hjart- ar. Eftir messuna verður boðið upp á veit- ingar í safnaðarheimilinu og þar mun kór Vídalínskirkju syngja létta vor- og sum- arefnisskrá, m.a. þjóðlög frá öllum Norð- urlöndunum og íslensk og erlend kórlög. Allir eru velkomnir í messuna kl. 11, svo og í veitingar og á tónleika á eftir. Eru Garðbæingar og aðrir hvattir til að koma. Rúta frá Hleinum kl. 10.30.Vakin er at- hygli á sýningu Leifs Breiðfjörð í Vídal- ínskirkju ,,Sigur lífsins“, sem opnuð var 16. maí síðastliðinn. Hér er um að ræða fimm ný verk frá þessu ári, unnin með vatnslitum og pastellitum. Sýningin mun standa út júní og er opin alla daga kl. 10– 20. Sýningin er öllum opin og ókeypis. Prestarnir. BESSASTAÐASÓKN: Hvítasunnudagur 19. maí: Munið sameiginlega guðsþjón- ustu Garðasóknar og Bessastaðasóknar í Vídalínskirkju á hvítasunnudag 19. maí kl. 11. Kaffi og söngskemmtun á eftir. (Sjá auglýsingu frá Garðasókn.) Rúta ekur hringinn um kl. 10.30. Prestarnir. KÁLFATJARNARSÓKN: Hátíðarmessa í Kálfatjarnarkirkju kl. 14 á hvítasunnudag. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðar- söng undir stjórn organistans Franks Her- lufsen. Við athöfnina verða fermd tvö börn: Kristbjörn Hilmir Kjartansson, Ara- gerði 9, Vogum og Ásthildur Ýr Gísladóttir, Vogagerði 1, Vogum. Við athöfnina þjóna sr. Friðrik J. Hjartar og sr. Hans Markús Hafsteinsson. Prestarnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Grindavíkurkirkja. Hátíðarguðsþjónusta hvítasunnudag 19. maí kl. 11. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Organisti Örn Falkner. Kór Grindavíkur- kirkju leiðir safnaðarsöng. Minningartón- leikar um Siguróla Geirsson, organista, kl. 20 í kirkjunni. Sóknarnefnd. ÚTSKÁLAKIRKJA: Hvítasunnudagur. Há- tíðarguðsþjónusta kl. 11. Organisti: Pál- ína Fanney Skúladóttir. Kór Útskálakirkju syngur. Garðvangur, helgistund kl. 15.30. Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. HVALSNESKIRKJA: Hvítasunnudagur. Há- tíðarguðsþjónusta kl. 14. Organisti: Pál- ína Fanney Skúladóttir. Kór Hvalsnes- kirkju syngur. Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson. NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík.) Guðsþjónusta sunnudaginn 19. maí kl. 14.30. Hvítasunnudagur. Kór kirkjunnar ina. Bergþór Pálsson, Anna Sigríð- ur Helgadóttir, Birgir og Hörður Bragasynir sjá um fjölbreytta tón- list. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson leiðir og sr. Karl V. Matthíasson leiðir. Tónleikar og poppmessa í Landakirkju TVENNIR tónleikar verða í Landa- kirkju um hvítasunnuna, sígild ein- söngslög og flautuleikur á laug- ardeginum og djössuð sálmalög á hvítasunnudag. Þá verður haldin poppmessa að kvöldi annars í hvíta- sunnu. Fyrst halda þær Anna Alexandra Cwalinska, sópransöngkona, og Védís Guðmundsdóttir, flautuleik- ari, sígilda tónleika ásamt Guð- mundi H. Guðjónssyni, organista Landakirkju, sem leikur á píanó. Þessir tónleikar eru í Safn- aðarheimilinu laugardaginn 18. maí kl. 16. Á efnisskrá eru verk eft- ir meistarana Händel, Mozart, Grieg, Lehár, Rossini, Chopin, Theodorakis o.fl. Hvítasunnudag kl. 16 stendur Listvinafélag Vestmannaeyja fyrir tónleikum í Landakirkju sem haldnir eru til minningar um Eyjólf Pálsson, sem hefði orðið sjötugur annan í hvítasunnu, 20. maí. Gunn- ar Gunnarsson leikur á orgel kirkj- unnar og Sigurður Flosason á saxó- fón. Þeir flytja einstakar djassaðar útsetningar á þekktum sálmalögum eins og þeir hafa gert víða í kirkjum landsins og hvarvetna fengið lof fyrir. Að kvöldi 2. í hvítasunnu verður poppmessa í kirkjunni með ung- lingahljómsveitinni „Kristniboð- arnir í Kína“ (Made in China) og hefjast þeir kl. 20.30. Sungin verða ný og gömul poppmessulög sem oft hafa hljómað í kirkjunni og margir kunna vel. Leiðtogar í Æskulýðs- félagi Landakirkju – KFUM & K lesa úr Ritningunni og sr. Kristján Björnsson leggur út af guðsorðinu í spjallræðu kvöldsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.