Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 19 ÞAÐ er merki um sumarkomu þegar Öxarfjarðarheiðin á milli Þórshafnar og Húsavíkur er orðin fær öllum bíl- um en hún var opnuð í liðinni viku þótt enn sé umferð takmörkuð við fimm tonna öxulþunga bílanna. Þokuloft hefur verið á norðaustur- horninu og því betra að fara gætilega á heiðavegum en niðaþoka var á Öx- arfjarðarheiðinni þegar veghefillinn var á lokayfirferð þar. Vegurinn er þokkalegur miðað við árstíma og á venjulegum stöðum rennur ennþá vatn yfir veginn en það þekkja þeir sem vanir eru þessari leið. Það er mikið kappsmál fyrir íbúa á Þórshöfn og í nágrannasveitum að fá heilsársveg yfir Öxarfjarðarheiði en það styttir vegalengdina til Akureyr- ar um ca. 70 km og heiðin má vera mjög slæm til að það sé ekki til vinn- andi að fara yfir hana heldur en að keyra ströndina fyrir Melrakka- sléttu. Öxarfjarðar- heiðin opnuð Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn ÓVENJULÍTILL snjór er á há- lendinu sunnanlands nú á þessu vori. Búið er að opna veginn inn á Laka og í Eldgjá og það styttist í að Fjallabaksleið nyrðri verði opnuð fyrir almenna umferð. Að sögn Jóns Hjálmarssonar, starfsmanns hjá Vegagerðinni í Vík, er óvenjulegt hvað lítið vatn er í öllum ám og lækjum á þessu svæði og er það vegna þess að það er nánast enginn snjór þarna innfrá. Hann segir að sum árin þurfi að leita að veginum eftir stikum vegna þess hversu mik- ill snjór er yfir veginum. Fjallveg- irnir sunnanlands opnist jafnvel hálfum mánuði fyrr núna en í með- alári. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Það rauk af Fagrafossi í Geir- landsá á Lakagígaleið. Hálendið er að opnast Fagridalur SÍÐAN í vetur hafa verið í smíðum 4 sumarhús hjá Sniðli h/f í Mývatnssveit. Þessi hús eru byggð fyrir verkalýðsfélög á Norðurlandi og eiga að flytj- ast fram í Illugastaði í Fnjóska- dal þar sem þau munu leysa af gömul hús sem fjarlægð hafa verið af grunnum sínum. Öll húsin eru flutt á dráttarvögnum úr Mývatnssveit í Fnjóskadal, í fylgd lögreglu. Fyrirtækið Sniðill, sem bygg- ir húsin, er einn stærsti vinnu- staður í Mývatnssveit og er meira en 30 ára gamalt. Sniðill rekur trésmíðaverkstæði, steypustöð, bílaverkstæði, vinnuvélar og vöruflutninga til og frá Mývatnssveit. Þar starfa að jafnaði ekki færri en 17–20 menn en við bygginu þessara húsa hefur þurft að fjölga smið- um og verkamönnum. Sniðill annast nú einnig byggingu verslunar og eldsneytisaf- greiðslu í Reykjahlíð sem brátt verður tekin í notkun. Sumarhús á faraldsfæti Mývatnssveit PÁLL S. Brynjarsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri í Borg- arbyggð. Hann er stjórnmála- fræðingur frá HÍ og með meist- aragráðu í stjórnmálafræði frá háskólanum í Árósum. Enn fremur er hann að ljúka fram- haldsnámi í stjórnsýslu frá há- skólanum í Volda í Noregi. Sambýliskona Páls er Inga Dóra Halldórsdóttir félags- fræðingur og eiga þau tvö börn. Páll kemur til starfa í byrjun júlí. Nýr bæjar- stjóri í Borg- arbyggð Borgarnes

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.