Morgunblaðið - 06.07.2002, Síða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNIR EFA hf. og Þróunar-
félagins hf. hafa ákveðið að taka upp
viðræður um sameiningu félaganna.
Í tilkynningu frá félögunum segir að
í framhaldi af óformlegum viðræð-
um sé gert ráð fyrir því að tekið
verði mið af skiptahlutföllunum
EFA 55% og Þróunarfélagið 45%.
Jafnframt segir að stefnt sé að því
að ljúka viðræðum sem fyrst.
Félögin hafa áður rætt um sam-
einingu félaganna, nánar tiltekið
hófust viðræður síðast 3. desember
sl., en upp úr þeim slitnaði í janúar
vegna ósamkomulags um skipta-
hlutfall.
Vonumst til að ná saman í sumar
Þorgeir Eyjólfsson, stjórnarfor-
maður Þróunarfélagsins, segir að
viðræður muni hefjast strax. Hann
sagði að meginþátturinn í viðræðun-
um liggi fyrir, þ.e. samkomulag um
skiptahlutfall í sameinuðu félagi.
„Það sem fyrir mönnum vakir er að
stofna öflugt fjárfestingarfélag sem
hefur meiri slagkraft en félögin tvö í
sitthvoru lagi.“
Aðspurður sagði hann að nokkuð
hefði borið í milli í fyrri viðræðum
varðandi skiptahlutfallið en eftir
frekari óformlegar viðræður hefði
náðst að lenda málinu. Hann segir
að allt síðan fyrri viðræður hófust
hafi verið fyrir hendi sterkur vilji
flestra stærstu eigenda beggja fé-
laga um að ná fram sameiningu.
„Ég á von á að viðræður muni
ganga hratt fyrir sig og við náum
saman í sumar,“ sagði Þorgeir.
Samanlagt markaðsverðmæti
4.527 milljónir króna
EFA og Þróunarfélag Íslands eru
fjárfestingafélög og eiga þau bæði
hluti í innlendum og erlendum fé-
lögum, auk skuldabréfa. Fjárfest-
ingar í óskráðum verðbréfum eru
stór hluti af starfsemi beggja félaga.
Hlutabréf beggja félaga eru skráð á
Aðallista Kauphallar Íslands og er
samanlagt markaðsverðmæti þeirra
áætlað um 4.527 milljónir króna.
Efnahagsreikningur EFA er
heldur stærri en Þróunarfélagsins
og starfsmenn fleiri. Stærstu hlut-
hafar í félögunum eru lífeyrissjóðir
og verkalýðsfélög.
EFA keypti 12. febrúar sl. 16,65%
hlut Straums í Þróunarfélaginu að
nafnvirði 183 milljónir króna og
varð eftir það stærsti hluthafinn í
félaginu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var Straumur
andsnúinn sameiningu félaganna og
kaupin því gerð einkum með það að
markmiði að greiða fyrir samein-
ingu.
Helstu hluthafar í Þróunarfélag-
inu eru EFA hf. með 16,65%, Líf-
eyrissjóður verzlunarmanna með
14,97% og Sameinaði lífeyrissjóður-
inn með 13,95%. Helstu hluthafar
EFA eru Sameinaði lífeyrissjóður-
inn með 13,8%, Lífeyrissjóðurinn
Lífiðn með 9,9% og Landsbankinn
fjárfesting með 7,91%.
Þróunarfélag Íslands hf. skilaði
109 milljóna króna hagnaði á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2002 en
EFA skilaði á sama tímabili 95
milljóna króna hagnaði. Bæði félög-
in voru rekin með umtalsverðu tapi í
fyrra.
EFA og Þróunarfélagið
í sameiningarviðræðum
HAGNAÐUR af rekstri Flugfélags-
ins Atlanta hf. nam 150,5 millj-
ónum króna á árinu 2001 og hagn-
aður af fyrsta ársfjórðungi ársins
2002 nam 729 milljónum króna (7,4
milljónum dollara).
Á árinu 2001 nam velta félagsins
20,5 milljörðum króna og veltufé
frá rekstri var 986 milljónir króna.
Á aðalfundi félagsins sem haldinn
var í vikunni kom fram að afkoman
væri mikill varnarsigur miðað við
rekstrarniðurstöðu í flugheiminum
almennt á sl. ári.
Á fyrsta ársfjórðungi 2002 nam
velta félagsins 7,5 milljörðum
króna (75,6 milljónum dollara) og
veltufé frá rekstri var 1,4 millj-
arðar króna (13,9 milljónir dollara)
en þess er getið í tilkynningu að af-
koma félagsins sé að jafnaði best í
pílagrímaflugi, sem stendur frá
miðjum janúar fram í mars.
Atlanta hefur fengið heimild til
að færa bókhald sitt og ársreikn-
inga í starfrækslugjaldmiðli sínum,
bandaríkjadollar, frá sl. áramót-
um.
Atlanta hagnast um
730 milljónir króna
STJÓRN Kauphallar Íslands hef-
ur ákveðið að fela forstjóra að taka
ákvarðanir um beitingu viðurlaga
vegna brota á reglum hennar.
Ákvörðunin var tekin á fundi
stjórnarinnar í sl. viku í kjölfar ít-
arlegrar skoðunar á þessu efni, að
því er segir í nýjustu útgáfu Kaup-
hallartíðinda. Í samþykkt stjórn-
arinnar segir að stjórnin feli for-
stjóra að taka ákvarðanir um
beitingu viðurlaga vegna brota á
reglum Kauphallarinnar, þ.m.t. að
taka ákvörðun um févíti. „Varð-
andi brot er varða févíti skal há-
mark þeirra vera 5 milljónir króna
fyrir útgefendur og 8 milljónir fyr-
ir kauphallaraðila. Ákvarðanir um
afskráningu og niðurfellingu kaup-
hallaraðildar lúta áfram sömu
reglum og hingað til.“
Markmiðið mun vera að gera
eftirlitsstarfsemi Kauphallarinnar
skilvirkari og einfaldari í fram-
kvæmd og efla þannig traust á
markaðnum. Unnið hefur verið að
því að flokka brot eftir eðli þeirra
og fyrir liggja drög að verklags-
reglum og málsmeðferðarreglum
hvað þetta varðar.
Ásetningur til að hafa áhrif á verð
alvarlegustu brotin
„Brot sem vart teljast alvarleg
leiða til áminningar sem þó verður
ekki gerð opinber. Alvarlegri brot
fela í sér opinbera áminningu eða
févíti. Alvarlegustu brotin teljast
þau brot þar sem um ásetning er
að ræða til að hafa áhrif á verð í
hagnaðarskyni á röngum forsend-
um. Séu brotin svo alvarleg að þau
falli utan þeirra marka sem sam-
þykktin hér á undan setur kemur
til kasta stjórnarinnar,“ segir í
Kauphallartíðindum.
Kauphöll Íslands
Forstjóra falið
að refsa fyrir
brot á reglum
DANSKA viðskiptablaðið Børsen
hefur opnað áskrift að vefefni
blaðsins í gegnum þráðlaus tæki,
svo sem farsíma og lófatölvur. Hug-
búnaðurinn sem gerir þetta kleift
er frá íslenska fyrirtækinu Dímoni
hugbúnaðarhúsi.
Dímon hannar og selur hugbún-
aðarlausnir á sviði þráðlausra fjar-
skipta, skeytamiðlunar og sam-
tengikerfa. Með miðlara frá Dímoni
(Dimon Mobile Server) er hægt að
færa upplýsingar úr gagna-
grunnum, vefþjónum og ýmsum
öðrum gagnaveitum yfir á þráðlaus
tæki, hvort sem er farsíma eða lófa-
tölvur. Miðlarinn gefur notendum
einnig færi á að nálgast t.d. tölvu-
póstinn sinn í gegnum farsíma.
Miðlarinn styður alla helstu far-
síma og lófatölvur og getur unnið
bæði með Wap og iMode kerfunum.
Hönnun á veflausn Børsen (Bør-
sen Mobil) var unnin í samstarfi
Børsen, Nokia og Dímons. Meðal
samstarfsaðila og viðskiptavina
Dímons eru, auk Børsen, Sun
Microsystems, Nokia, Eimskip og
VÍS, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Með veflausn Børsen er hægt að
nálgast gagnasafn blaðsins og
fréttir sem birtast jafnóðum á
fréttavef þess, að því er fram kem-
ur í frétt blaðsins um veflausnina.
Þar kemur einnig fram að lesendur
Børsen standa framarlega þegar
kemur að nýrri fjölmiðlatækni, eins
og segir í fréttinni. 73% lesendanna
nota tölvupóst, níu af hverjum tíu
eiga farsíma og annar hver fer á
Netið á hverjum degi.
Børsen með
hugbúnað
frá Dímoni
Vægi evru
aukið í
gengisskrán-
ingarvog
SEÐLABANKI Íslands hefur end-
urskoðað gengisskráningarvog ís-
lensku krónunnar í ljósi utanríkis-
viðskipta ársins 2001.
Helstu breytingar frá fyrri vog
eru að vægi evru eykst um 5,4% og
er nú 37,1%. Er það einkum á kostn-
að vægis Bandaríkjadals, sem
minnkar um 2,2% í 24,8%, og bresks
punds, sem minnkar um 2,0% í
12,8%. Aukið vægi evrunnar er í til-
kynningu sagt skýrast af auknu vægi
hennar í þjónustuviðskiptum. Þróun
síðustu ára hafi því snúist við, en á
árunum 1997–2001 jókst vægi
Bandaríkjadals í gengisskráningar-
vog krónunnar úr 22,4% í 27,0%.
Nýja vogin tók gildi eftir gengis-
skráningu í gær, 5. júlí, og verður
notuð við útreikning gengisvísitöl-
unnar þar til næsta endurskoðun fer
fram um svipað leyti að ári, að því er
segir í tilkynningu.
Hafís hamlar
loðnuveiðum
HAFÍS hefur lagzt yfir loðnumiðin
norður af Horni og hamlar nú veið-
um. Vegna þess hefur lítið verið að
gerast þar síðustu dægrin. Íslenzku
skipin eru búin að landa um 25.000
tonnum og þau norsku eru að klára
kvóta sinn sem er tæp 50.000 tonn.
Víkingur AK hefur landað þrisvar
á vertíðinni. Í gær var hann á leið á
miðin eftir að hafa landað ríflega
1.360 tonnum í heimahöfn á Akra-
nesi. Ægir Sveinsson, stýrimaður,
sagði að þeir kæmu á miðin um
kvöldið og byrjuðu strax að leita.
Hvernig gengi færi eftir aðstæðum,
einkum ísnum. Hann segir að loðnan
haldi sig nú vestar en í fyrra, því nú
hafi ekkert fengizt fyrir austan.
Hann segir ennfremur að mikil áta
sé í loðnunni og því vigti hún illa.
Hún verði bara að gumsi og því tap-
ist töluvert við löndunina.
Samkvæmt upplýsingum Samtaka
fiskvinnslustöðva hafa íslenzk skip
landað ríflega 25.000 tonnum frá ver-
tíðarbyrjun. Erlend skip hafa landað
12.000 tonnum og því hafa innlendar
fiskimjölsverksmiðjur tekið á móti
um 37.000 tonnum.
Mestu hefur verið landað hjá Gná í
Bolungarvík, tæplega 6.200 tonnum.
Ríflega 5.000 tonn hafa borizt á land
á Krossanesi, 4.500 tonn hjá HB á
Akranesi, 3.700 hjá SR Mjöli í Siglu-
firði og 3.500 hjá Tanga á Vopnafirði.
Athyglivert er að þar hafa aðeins er-
lend skip landað.
Amadeus
kaupir Smart
af SAS
SAS-flugfélagið hefur selt 95% eign-
arhlut sinn í fyrirtækinu Scandinav-
ian Multi Access Systems (Smart) til
Amadeus fyrir einn milljarð sænskra
króna eða um 9,2 milljarða ísl. króna.
Greint er frá því á fréttavef Dagens
Næringsliv að söluhagnaður SAS
nemur 800 milljónum sænskra króna
eða um 7,3 milljörðum ísl. króna.
Smart er eitt stærsta fyrirtæki í
Norður-Evrópu á sviði rafrænna bók-
unar- og ferðaupplýsingakerfa fyrir
ferðaskrifstofur og flugfélög. Ama-
deus starfar á sama sviði. Samning-
urinn var gerður með fyrirvara um
samþykki yfirvalda og búist er við að
hann taki gildi fyrir ágústlok.
SAS hefur einnig hagnast undan-
farið á veikum bandaríkjadal en
sterkri krónu þar sem kostnaður hef-
ur lækkað, en stærsti hluti útgjalda
félagsins er í bandaríkjadölum.
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Fitch Ratings hefur staðfest ein-
kunnina A fyrir skuldbindingar Ís-
landsbanka hf. til langs tíma og F-1
fyrir skuldbindingar til skamms
tíma. Sjálfstæð einkunn bankans er
C og stuðningseinkunn er 2. Horfur
lánshæfismatsins eru stöðugar að
mati Fitch.
Í frétt frá Íslandsbanka segir að í
nýrri skýrslu Fitch um Íslands-
banka kemur fram að lánshæfis-
matið sé byggt á sterkri stöðu
bankans á innlendum markaði,
auknum rekstrartekjum, góðu
kostnaðareftirliti og viðunandi eig-
infjárhlutfalli. Jafnframt taki matið
tillit til nokkurrar lækkunar í gæð-
um eigna. Fram kemur að með
sameiningu Íslandsbanka og FBA á
árinu 2000 hafi orðið til traustur
banki með styrkleika á öllum svið-
um bankastarfsemi. Árið 2000 hafi
verið erfitt, en hagnaðarhlutföll
hafi hækkað og styrkst aftur á
árinu 2001, með jákvæðri þróun
vaxtatekna og þóknana á sama tíma
og kostnaðarhagræðing vegna sam-
runa hafi komið fram. Fitch fjallar
um eignir bankans og bendir á að
meirihluti útlána sé til stórra fyr-
irtækja. Þrátt fyrir að erfiðleikar í
efnahagslífinu á árinu 2001 hafi
valdið aukningu vanskilalána og
þar með afskriftarframlaga, séu
gæði eigna Íslandsbanka fullnægj-
andi. Þó efnahagsútlitið sé enn ekki
gott og því auknar líkur á að van-
skil muni vaxa, sé bankinn nú í
betri stöðu en áður til að takast á
við það vegna bættrar áhættustýr-
ingar. Hins vegar geti hærri af-
skriftarframlög dregið nokkuð úr
hagnaði til framtíðar. Dregið hafi
úr áhættu í eigin viðskiptum með
markaðsverðbréf með breyttri fjár-
festingarstefnu og því að bankinn
skráir eignir á markaðsverði og
fylgist náið með þeim. Í skýrslunni
er bent á að Íslandsbanki byggi á
nokkrum fjármögnunarleiðum,
einkum til langs tíma. Stöðugleiki
innlána og aðgangur að skamm-
tímafjármögnun styðji viðunandi
lausafjárstöðu. Eiginfjárstaða
bankans sé traust með 12% eig-
infjárhlutfall, þar af 9% í eiginfjár-
þætti A, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Íslandsbanka.
Auk Fitch metur alþjóðlega
matsfyrirtækið Moody’s Investors
Service lánshæfi Íslandsbanka.
Einkunnir þess eru sambærilegar
við einkunnir Fitch en þær eru auð-
kenndar með A2 fyrir skuldbind-
ingar til langs tíma og P-1 fyrir
skuldbindingar til skamms tíma.
Moody’s hefur nýlega staðfest láns-
hæfismat bankans.
Fitch staðfestir
A-einkunn Íslandsbanka
♦ ♦ ♦