Morgunblaðið - 06.07.2002, Blaðsíða 24
NEYTENDUR
24 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
BLANDARAR FYRIR
NUDDPOTTA OG
STURTUR
55
90
140
Heildsala - Smásala
L/Min fyrir 6 sturtur
L/Min fyrir 11 sturtur
L/Min fyrir 25 sturtur
www.sagamedica.com
eykur orku, þrek og
vellíðan
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
6
8
1
9
/s
ia
.i
s
Angelica
Matthías Eggertsson, ritstjóri Freys:
„Síðustu árin hefur dregið úr vinnuþreki
mínu. Mér datt því í hug að reyna
Angelicu jurtaveig. Fljótlega kom í ljós
að með því að nota hana jókst þrek
mitt áþreifanlega. Eftir nokkurn tíma
komst ég upp á lag með að nota
jurtaveigina einkum þegar mikið liggur
við að þrek mitt dugi. Slík notkun hefur
reynst mér vel.“
Angelica fæst í apótekum,
heilsuvörubúðum
og heilsuhornum matvöruverslana.
bragðtegundir4
Krydd
í grillveruna!
Veldu þitt uppáhaldsbragð!
Kryddsmjörið
er ómissandi með grillkjötinu,
bökuðu kartöflunni, grillaða
kornstönglinum og hverju því
sem þér dettur í hug ...
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
si
a
.i
s
/
N
M
0
6
6
5
2
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurð-
að að fyrirtækið EJS brjóti gegn
samkeppnislögum með því að setja
skilmála um að ábyrgð á tölvum sem
keyptar eru hjá fyrirtækinu nái ekki
yfir hugbúnað. Svonefndur EULA-
samningur sem fylgi hugbúnaði sem
EJS hf. selur brjóti í bága við lögin
en í samningnum er m.a. ákvæði um
að ekki sé hægt að skila hugbúnaði
eftir að honum hefur verið hlaðið inn
í tölvu og að allt viðhald og gallar séu
á ábyrgð neytenda. Þá komst ráðið
að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið
brjóti ekki gegn góðum viðskipta-
háttum samkvæmt samkeppnislög-
um með því að taka greiðslu fyrir
flýtiþjónustu á viðgerð tölva sem eru
í ábyrgð hjá fyrirtækinu.
EJS mun áfrýja niðurstöðunni til
úrskurðarnefndar samkeppnisráðs,
að sögn Viðars Viðarssonar, fram-
kvæmdatjóra EJS. „Af okkar hálfu
er óframkvæmanlegt að taka á okk-
ur ábyrgð á galla í hugbúnaði sem
við erum milliliðir fyrir enda er það
hvergi gert í heiminum.“
Hann segist telja niðurstöðuna
byggða á misskilningi af hálfu Sam-
keppnisstofnunar. „Hugbúnaður
sem við erum milliliðir fyrir telst
leigður út til viðskiptavina en ekki
seldur og því falla slík viðskipti ekki
undir lög um lausafjárkaup en Sam-
keppnisstofnun byggir úrskurð sinn
á þeim.“
Viðar segir að málið snerti hags-
muni allrar atvinnugreinarinnar
önnur fyrirtæki hafi sams konar skil-
mála um hugbúnað sem þau eru
milliliðir fyrir. „Við verðum að fá
þessum úrskurði hnekkt. Ég leyfi
mér að fullyrða að ekkert íslenskt
fyrirtæki hefur burði til að fara eftir
þessum úrskurði.“
Forsaga málsins er sú að Neyt-
endasamtökin lögðu fram kvörtun
við samkeppnisráð í október árið
2000 þar sem annars vegar var gerð
athugasemd við að neytendum væri
gert að greiða fyrir flýtiþjónustu og
hins vegar að fyrirtækið firrti sig
ábyrgð á tölvuhugbúnaði. Töldu
samtökin að fyrrnefnda krafan bryti
í bága við 20. gr. samkeppnislaga og
hin síðarnefnda við 20. og 24. grein-
ar.
Niðurstaða samkeppnisráðs í máli EJS
Óheimilt að
firra sig ábyrgð
á hugbúnaði KOMIÐ hefur í ljós að ein tegundsænskra dráttarkróka frá framleið-
andanum Brink AS sem seld hefur
verið með bíltegundunum Volvo,
Saab, Volkswagen og Audi er gölluð,
þannig að kerrur, hjólhýsi eða tjald-
vagnar sem festir eru við bílinn geta
losnað af þótt þau séu fest á krókinn
á réttan hátt, að því er fram kemur í
Aftenposten. Krókarnir sem um
ræðir eru af tegundinni Brink G 3.0
með svokallaðri lausri kúlu og eru
framleiddir á árunum 1998-2000 í
Svíþjóð. Í Svíþjóð og Noregi hefur
verið brugðið á það ráð að innkalla til
skoðunar alla bíla af tegundunum
fjórum sem gætu verið með gallaðan
krók eftir að óhöpp áttu sér stað í
Svíþjóð þar sem tjaldvagnar losnuðu
frá bílum á ferð.
Bílaumboðin þrjú sem selja bílteg-
undirnar hér á landi hafa fengið upp-
lýsingar um málið en tvö þeirra,
Brimborg og Bílheimar, hafa selt
umræddan tengibúnað með bílum
sínum. Munu þau innkalla þá bíla til
skoðunar sem gætu haft gallaða
dráttarkróka. Hjá Bílheimum sem
eru með umboð fyrir Saab bíla er um
að ræða fjóra bíla hér á landi, að sögn
Kristins Jóhannessonar, þjónustu-
stjóra hjá Bílheimum. „Við höfum
selt fjögur beisli af umræddri tegund
og munu þessir viðskiptavinir verða
beðnir um að koma í skoðun svo
hægt verði að ganga úr skugga um
hvort um þessa tegund er að ræða.
Ef svo reynist vera verður búnaðin-
um skipt út þeim að kostnaðarlausu.“
Brimborg sem hefur umboð fyrir
Volvo, fékk öll gögn um málið frá
Svíþjóð í dag og er um að ræða 8
dráttarkróka á Volvo bílum hér á
landi, að sögn Sigurjóns Ólafssonar
þjónustustjóra hjá Brimborg. „Búið
er að finna flestalla eigendur þeirra
bíla og verður haft samband við þá
strax.“ Hann biður þá Volvo-eigend-
ur sem eru með dráttarkrók með
lausri kúlu, en eru ekki vissir um
hvort þeirra dráttarkrókur falli und-
ir þessa innköllun, að snúa sér án taf-
ar til Brimborgar í Reykjavík eða á
Akureyri. „Til að þekkja þessa gerð
ber að hafa í huga að á henni er
grænt handfang til að taka kúluna af,
á henni er lykillæsing til að læsa
henni og hringlaga merki sem segir
til um hvort krókur er læstur eða
ekki.“
Hekla sem hefur umboð fyrir
Volkswagen og Audi hér á landi, hef-
ur ekki selt búnað frá framleiðand-
anum sem um ræðir, að sögn Finn-
boga Eyjólfssonar, fulltrúa í Heklu.
Galli í sænskum dráttarkrókum fyrir hjólhýsi og kerrur
Bílaumboðin innkalla
bíla með krókunum
Morgunblaðið/Arnaldur
Hér sést krókur fyrir tjaldvagn eða kerru af tegundinni Brink G 3.0 en
komið hefur í ljós að þeir eru gallaðir. Krókar af sömu tegund geta þó
litið öðruvísi út en sá sem hér sést á myndinni.
Á að skræla epli og perur eða er
óhætt að borða slíka ávexti með
hýðinu á?
„Við ráðleggjum fólki að skræla
ávexti eins og epli og perur þar
sem því verður komið við,“ segir
Elín Guðmundsdóttir, forstöðu-
maður matvælasviðs hjá Hollustu-
vernd ríkisins. Hún segir leifar af
varnarefnum eins og skordýraeitri
sem úðað hefur verið á slíka ávexti
geta verið á yfirborði þeirra. „En
ef fólk er til dæmis á ferðalagi eða
börn fá epli með sér í skólann á að
vera nóg að skola þau vel með vatni
og þurrka þau.“
Hvers vegna hækkaði seðilgjald á
útsendum reikningum frá Húsa-
smiðjunni um 50% í síðasta mán-
uði?
„Gjaldið var 150 kr. en við hækk-
uðum það í 225 kr. svo við hefðum
upp í kostnaðinn sem fylgir því að
senda út reikningana,“ segir Árni
Hauksson, fjármálastjóri Húsa-
smiðjunnar. „Seðilgjaldið nú er
svipað og hjá öðrum en telst þó í
lægri kantinum.“ Árni bendir á að
vipskiptavinir Húsasmiðjunnar
geti sparað sér seðilgjaldið með því
að skrá sig í netskil sem er birt-
ingaþjónusta reikninga á Netinu
en upplýsingar um það sé að finna
á heimasíðu Húsasmiðjunnar.
SPURT OG SVARAÐ
UM NEYTENDAMÁL