Morgunblaðið - 06.07.2002, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 45
DAGBÓK
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Herradagurinn
Þegar viljugir þína skör
þannig vér gyrðum, krónu bör,
vit þú, að höfgi varla bær
þíns vilja byrðar toppi nær,
er samanþrykkir þinni mynd,
þegar kónglega drýgir synd
eður vanbrúka vilt þá makt,
sem vér höfum þér í hendur lagt.
Svo fegins hugar sem þú vilt,
þín sæta girnd að verði fyllt
til yfirráða lýðs og lands,
leyfð undir merki tignarbands:
svo vit, að reifður völdum ert,
vilja þinn ei að fáir gert,
heldur lýðum til gagns og góðs
greiðir fram krafta lífs og blóðs.
– – –
Benedikt Gröndal
85 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 6. júlí,
er 85 ára Marta Gunnlaug
Guðmundsdóttir, Hlað-
hömrum, Mosfellsbæ. Hún
tekur á móti vinum og kunn-
ingjum að Svansbúð í Kal-
baksvík á Ströndum í dag,
afmælisdaginn.
RÚSSAR hafa á síðustu
Evrópumótum tekið sér
stöðu meðal bestu þjóða, en
áttu slæmt mót nú á Ítalíu og
enduðu í 17. sæti. Þeir
mættu Pólverjum í annarri
umferð og þá kom þetta spil
upp:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ G87
♥ ÁK873
♦ 876
♣K9
Vestur Austur
♠ Á ♠ KD106543
♥ D6 ♥ 942
♦ KG1093 ♦ 54
♣D10873 ♣4
Suður
♠ 92
♥ G105
♦ ÁD2
♣ÁG652
Vestur Norður Austur Suður
Martens Gromov Lesniew. Petrunin
– – – 1 grand
Pass 2 tíglar * 2 spaðar Pass
3 tíglar 3 grönd Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Þekktasta par Rússa,
Gromov og Petrunin, var í
NS gegn Martens og Lesn-
iewski. Eftir 12–14 punkta
grandopnun suðurs yfir-
færði norður í hjarta og
Petrunin varð síðan sagnhafi
í fjórum hjörtum eftir nokk-
ur afskipti AV af sögum.
Martens kom út með
spaðaás og skipti síðan yfir í
lítið tromp. Petrunin tók
þrisvar tromp og spilaði síð-
an laufkóng og meira laufi og
lét lítið heima þegar austur
sýndi eyðu. Martens fékk
slaginn á lauftíu, en var nú í
vondum málum. Hann spil-
aði tígulgosa og Petrunin
fékk slaginn á drottningu.
Hann trompaði lauf og tók
síðasta trompið. Staðan var
þá þessi:
Norður
♠ G8
♥ –
♦ 87
♣–
Vestur Austur
♠ – ♠ KD10
♥ – ♥ –
♦ K10 ♦ 5
♣D8 ♣–
Suður
♠ –
♥ –
♦ Á2
♣ÁG
Afköst Martens voru
þvinguð og Petrunin lauk
verkinu með því að spila tíg-
ulás og tígli. Síðustu tvo slag-
ina fékk hann á ÁG í laufi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Persóna þín er rómantísk og
hefur átt í nokkrum ást-
arsamböndum. Þá er per-
sóna þín talin búa yfir áköf-
um tilfinningum. Góður
vinskapur skiptir þig jafn-
framt miklu máli.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ekki er allt sem sýnist í
samskiptum þínum við þína
nánustu. Farðu varlega og
ekki gera neinar ráðstafanir
sem hægt er að steypa um
koll.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það kæmi sér betur fyrir
þig að leyfa öðrum að ráða
ferðinni og halda þér til
hlés um tíma. Hvíldu þig og
endurnærðu líkama og sál.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú færð ónot í magann í
samskiptum við aðra í dag,
en slíkt kann að vera merki
um að eitthvað grunsamlegt
sé á seyði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú freistast til þess að eyða
alltof miklum peningum í
einhvern sem þú berð
ábyrgð á. Slíkt er ekki
nauðsynlegt og oft hægt að
gleðja fólk með öðru móti.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samskipti þín við aðra geta
reynst ruglingsleg, en slíkt
kann að stafa af misskiln-
ingi eða orðaruglingi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver reynir að telja þér
trú um að sá hafi fórnað
öllu fyrir þig. Líklega er
viðkomandi að reyna að ná
valdi yfir þér með því að
ráðskast með tilfinningar
þínar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þessi dagur hentar ekki til
þess að hefja ný sambönd,
nauðsynlegt er að sýna
nærgætni þegar þau eru
annars vegar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki láta aðra segja þér
fyrir verkum, því stundum
getur reynst nauðsynlegt að
vera fastur fyrir í samskipt-
um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert ekki alveg eins og þú
átt að þér og þarft að vera á
varðbergi varðandi hvað þú
lætur út úr þér svo þú særir
ekki tilfinningar annarra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn hentar engan
veginn til þess að gera við-
skiptasambönd. Ef þú
kemst ekki hjá því skaltu
fara vandlega yfir alla hluti.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þrátt fyrir að þú öðlist róm-
antíska reynslu á þessum
degi er ekki sjálfgefið að
slíkt eigi sér stað alla daga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki hræðast málefni sem
snerta heilsu þína. Misskiln-
ingur kann oft að valda öðr-
um hugarangri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KIRKJUSTARF
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. b3 b6 4.
Bb2 Bb7 5. d3 d6 6. Be2 Rd7
7. O-O Dc7 8. Rg5 Rgf6 9. f4
h6 10. Rh3 Be7 11. c4 O-O-O
12. Rc3 a6 13. f5 d5 14. fxe6
fxe6 15. cxd5 exd5
16. Rf4 d4 17. Ra4
Bd6 18. Re6
Bxh2+ 19. Kh1
De5 20. Rxd8
Hxd8 21. Bg4 Kc7
22. Bxd7 Hxd7 23.
Hf5 Dd6 24. Df3
Be5 25. b4 c4 26.
Hc1 c3
Staðan kom upp
á EM kvenna sem
lauk fyrir skömmu
í Varna í Búlgaríu.
Ekaterina Koval-
evskaya (2482)
hafði hvítt gegn
Corina Peptan
(2480). 27. Rxc3! dxc3 28.
Hxe5! Kb8 28...Dxe5 gekk
ekki upp sökum 29. Hxc3
Kb8 30. Hc8+ og hvítur vinn-
ur drottninguna. Í framhald-
inu er svartur einnig varnar-
laus. 29. Bxc3 Dxd3 30. Dxd3
Hxd3 31. He7 Rg4 32. Hxg7
h5 33. Be1 Bxe4 34. Kg1 He3
35. Bd2 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 4.053 til styrktar
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Bjarn-
heiður og Margrét.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 1.828. Þær heita Íris
Anna Oddgeirsdóttir og Áslaug Stefánsdóttir.
Hlutavelta
Árnað heilla
Við eru að nálgast menn-
inguna, vatnið er mengað!
Morgunblaðið/Þorkell
NÚ stendur allt í blóma í náttúrunni
og við höfum notið góðs veðurs og
sumarblíðu. Upp á þetta verður
haldið í Viðeyjarkirkju á sunnudag-
inn kl. 14 með sérstakri messu. Þar
verða sungnir gleðisöngvar undir
forystu sönghóps úr Dómkórnum og
Marteins H. Friðrikssonar dómorg-
anista. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
dómkirkjuprestur leiðir guðsþjón-
ustuna og hugleiðir með kirkjugest-
um gæsku Guðs, gjafara allra góðra
hluta. Á eftir er boðið upp á léttar
veitingar, kaffiborð í Viðeyjarstofu
og leiðsögn um staðarhlaðið.
Bátsferð úr Klettsvör í Sundahöfn
kl. 13:30.
Sumardagur
í Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN kl. 11 verður
guðsþjónusta í Dómkirkjunni helg-
uð sumri og birtu. Dómkórinn og
Marteinn H. Friðriksson sjá um
glaðlega tónlist. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson leiðir guðsþjónustuna
og flytur hugleiðingu utandyra þar
sem er boðið upp á léttar veitingar.
Það er sumar í blóma við Aust-
urvöll!
Göngumessa við goslok
SUNNUDAGINN sem næstur er
goslokum hefur verið venja und-
anfarin ár að hafa göngumessu frá
Landakirkju. Sunnudaginn 7. júlí kl.
11, hefst göngumessan í Landa-
kirkju með signingu og bæn.
Gengið verður úr kirkju með
sálmasöng á vörum og lúðrahljóm í
eyrum. Gengið verður sem leið ligg-
ur frá Landakirkju að krossinum í
Eldfelli. Þar flytur prestur, séra
Bára Friðriksdóttir, fram guðs-
orðið. Söfnuðurinn tekur undir
sálmasönginn sem leiddur verður af
Kór Landakirkju undir stjórn Mich-
elle Gaskell en félagar úr Lúðra-
sveit Vestmannaeyja spila undir.
Þaðan verður gengið eftir hraun-
elfunni, staðnæmst við vörðu minn-
inganna, steinn við stein lagður í
vörðuna. Áfram er haldið eftir
hraunfarveginum niður á Skans.
Helgihaldinu lýkur í Stafkirkju með
ritningalestri, bæn og sálmasöng.
Ef veður leyfir endar gos-
lokamessan úti undir Stafkirkju-
vegg þar sem lúðrasveit og söfn-
uður sameinast um lagið Yndislega
eyjan mín. Húsmóðir Landakirkju,
María Gunnarsdóttir, ber fram kaffi
og snúða í kirkjukaffinu á kirkju-
hlaðinu.
Athygli er vakin á því að rúta
keyrir frá Landakirkju þá sem ekki
treysta sér til að ganga. Hún ekur
að krossinum í Eldfelli og síðan að
Stafkirkju. Eftir guðsþjónustuna
ekur hún að Landakirkju öllum sem
vilja. Vestmannaeyingar og gestir á
Heimaey sem unna fagurri náttúru
eða messugjörð eru hvattir að fjöl-
menna 7. júlí kl. 11 í Landakirkju,
klæddir eftir veðri.
Gospelmessa
í Digraneskirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 7. júlí kl.
20.30 verður gospelmessa í Digra-
neskirkju í Kópavogi.
Þar mun gospelbandið Upendo
leiða söng og leyfa okkur að heyra
nokkur lög. Tónlistarfólk kemur úr
röðum KFUM og K. Prestur verður
sr. Magnús Björn Björnsson.
Næstu sunnudagskvöld verða
með svipuðu sniði. Upendo mun
leika aftur, en einnig mun Gosp-
elkór Akraness undir stjórn Hann-
esar Baldurssonar og Kanga kvart-
ettinn syngja og leika síðar í
mánuðinum.
Lífsfögnuður í Viðey
Morgunblaðið/Golli
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl.
12. Jurate Bundzaite frá Litháen leikur
á orgel.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9, Kópa-
vogi. Samkoma í dag kl. 11-12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið
fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum
starfa barna- og unglingadeildir. Létt
hressing eftir samkomuna. Allir hjart-
anlega velkomnir. Biblíufræðsla alla
virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Safnaðarstarf