Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Einar Hallssonfæddist að Hall- kelsstaðahlíð hinn 14. júlí 1927 og hefði því orðið 75 ára á morgun. Hann lést á Landspítala hinn 30. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru þau Hallur Magnússon bóndi í Hallkels- staðahlíð, f. 1. desem- ber 1899, d. 21. maí 1945, og Hrafnhildur Einarsdóttir hús- freyja, f. 28. október 1906, d. 14. nóvem- ber 1991. Systkini Einars eru: Sig- ríður Herdís, f. 23. ágúst 1928; Anna Júlía, f. 3. febrúar 1930; Sig- fríður Erna, f. 5. maí 1931; Ragn- ar, f. 27. júlí 1933: Margrét Erla, f. 27. febrúar 1935, maki Páll Torfa- son, f. 27. september 1928, d. 2. september 1995; Guðrún, f. 6. júní 1936, maki Rögnvaldur Guð- brandsson, f. 7. ágúst 1933; Magn- ús, f. 24. september 1938, d. 29. septem- ber 1991, maki Guð- leif Hrefna Vigfús- dóttir, f. 3. mars 1944; Sveinbjörn, f. 11. apríl 1940; Elísa- bet Hildur, f. 17. október 1941; Svan- dís, f. 25. febrúar 1943, maki Sverrir Úlfsson, f. 10. nóv- ember 1937; og Hall- dís, f. 13. mars 1945, maki Jóel Jónasson 26. október 1944. Einar bjó með móður sinni og systkinum að Hall- kelsstaðahlíð frá því faðir hann lést er Einar var sautján ára. Ein- ar sótti vertíðir í Ólafsvík um langt árabil og vann einnig í slát- urhúsinu í Borgarnesi í sláturtíð- inni um áratuga skeið. Útför Einars fer fram frá Kol- beinsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. „Pabbi. Hver á þá að gefa okkur nammi í sveitinni?“ spurði Styrmir minn eftir að við höfðum velt fyrir okkur hvort Einar væri kominn upp í himininn til afa Magnúsar eftir að Einar Hallsson föðurbróðir minn hafði skilið við eftir nokkurra vikna banalegu hér fyrir sunnan. Þessi setning er lýsandi fyrir þá stöðu sem Einar Hallsson hafði meðal þeirra fjölmörgu barna sem hann tók ástfóstri við og tóku ást- fóstri við hann í gegnum tíðina. „Má ekki bjóða þér óþekktarpillu?“ spurði hann iðulega með glettnu augnaráði og hálfglottandi. Þá lum- aði hann á Mónu súkkulaðidropum og í seinni tíð Nóakroppi sem var hæfilega stór nammiskammur fyrir börnin. Það var synd að Einar skyldi ekki kvænast og eignast hóp barna, en þess í stað nutu fjölmörg börn sem dvöldu í lengri eða skemmri tíma í Hlíð þessarar barn- gæsku hans. Einar Hallsson var enginn venju- legur maður. Hann var heljarmenni, hagyrðingur, húmoristi og hugsuð- ur. Hann var einnig mikill skapmað- ur, snöggur að reiðast, en fljótur að jafna sig og gersamlega laus við langrækni. Reyndar átti hann það til að vera tilætlunarsamur við sína nánustu og vildi að farið yrði eftir því sem hann lagði til, enda stóð hann sautján ára elstur í tólf barna föðurlausum hópi þegar afi minn féll frá langt fyrir aldur fram. Máltækið „maður er manns gam- an“ kemur fljótlega upp í hugann þegar hugsað er til baka til allra þeirra sumra sem ég var í návist Einars í Hlíð. Einar hafði yndi af því að sitja með fólki og ræða við það um allt milli himins og jarðar. Þá var stutt í einstakan hrossahlát- ur sem hafði ótrúlega smitandi áhrif á þá sem í kringum hann voru. Þetta fengu fjölmargir gestir sem heimsóttu Hlíð að upplifa. Einnig nágrannar Einars, en ég fékk oft að fljóta með í heimsóknir í Hraunholt eða að Heggsstöðum þar sem setið var yfir kaffi og spjallað af mikilli kímni um landsins gagn og nauð- synjar. Einar vann haust eftir haust í sláturhúsinu í Borgarnesi og fjöl- margar vertíðir í Ólafsvík. Ég hef á undanförnum árum hitt samstarfs- fólk hans frá þessum stöðum sem einmitt hefur lýst húmornum, þess- um smitandi hlátri og vísunum sem frá honum komu. Einnig hreystinni þar sem hann vann dag eftir dag í frystiklefa eða sótti fiskinn berhent- ur í ísköld fiskikörin. Mér er sagt að þessi hreysti hafi birst í ótrúlegu hlaupaþreki Einars á unglingsárum, en mér er hug- stæðust hreystin og seiglan þegar Einar svamlaði 62 ára gamall í tvær klukkustundir í ísköldu Hlíðarvatni í byrjun júnímánaðar eftir að hafa velt bátnum sínum við netalögn. Þá barði hann frá sér hrafna tvo, lík- lega Hugin og Munin sem sendir voru til að færa Óðni skáldagáfu Einars, synti með bátinn á undan sér í land, gekk berfættur yfir stór- an skafl í Kjósinni við vatnið, rölti heim, fékk sér kaffi, rölti síðan nið- ur í hús og leysti hey fyrir féð til að fá hita aftur í kroppinn. Við Einar áttum einmitt okkar bestu samverustundir við að leggja og vitja um netin í Hlíðarvatni. Það var fátt eins gott og að róa út á spegilslétt Hlíðarvatnið snemma morguns, hlusta á fjarlægan lækj- arnið, kall lómsins og þegja með Einari Hallssyni – eða ræða málin á lágu nótunum. Það er svo miklu meira sem ég vildi segja. En ég læt staðar numið með því að segja að samvera mín með Einari frá barnsaldri hefur kennt mér mikið og gert mig ríkan. Ég þakka fyrir það. Hallur Magnússon. Hann Einar frændi minn hefur fengið hvíldina löngu, náttúran öll hér á heimaslóðum hans í nær 75 ár vottaði honum virðingu sína þann dag. Sól og blíða, en skyndilega féllu regndropar hljóðlega til jarðar eins og lítil tár sem enginn mátti sjá. Allt var svo tært og hljótt. Meira að segja silungarnir í vatninu stukku og mynduðu fallega hringi honum til heiðurs. Síðustu vikur og mánuðir höfðu verið honum afar erfiðir vegna al- varlegs heilsubrests. Það átti ekki við hann frænda minn að geta ekki tekið þátt í hinu daglega amstri. Einar var vel hagmæltur og liggja ógrynni af vísum eftir hann, vísum sem að margar hverjar voru ortar við spaugileg atvik. Maður sá alltaf hvenær vísa var að fæðast, þá þagði hann, höfuðið tifaði aðeins, augun loguðu af glettni og venju- lega kom smáhláturgusa og síðan kveðskapurinn. Áhugamál Einars voru mörg, um tíma var hann hel- tekinn af fróðleiksfýsn um ættfræði, hann notaði allar sínar stundir sem aflögu voru til að grúska og rekja saman ættir manna. Enda eru þeir ófáir sem að eiga uppskrifaðar ættir sínar langt aftur í aldir, annaðhvort komnir af biskupum eða sauðaþjóf- um. Annað áhugamál sem að hann sinnti af mikilli elju var að læra og kynna sér sem allra flest fjármörk á landinu. Safnaði hann að sér mikl- um upplýsingum í formi marka- skráa og ég veit að hann nýtti þær ekki síður til að rekja ættir og upp- runa manna. Einar hafði mikinn áhuga á sauðfé og tengdist það vel áhuga hans á mörkum. Það var því engin tilviljun að hrútasýningar voru alla tíð miklar hátíðir í huga Einars. Eins voru ferðir í hinar ýmsu réttir miklar ánægjustundir. Stjórnmál voru alltaf ofarlega í huga Einars og fylgdist hann vel með. Hann hafði afar sterkar skoð- anir lét þær óspart í ljós og gat ver- ið orðljótur ef því var að skipta í hita leiksins. Áhugi hans á stjórn- málum kom sér afar vel fyrir mig á yngri árum, við fórum gjarnan sam- an niður að Hraunholtum að sækja póstinn, þegar þangað var komið brá hann sér oft inn í kaffi og gleymdi sér í stjórnmálaumræðum við Sigurð, á meðan lék ég mér við börnin og var hæstánægð ef að mik- ið var á döfinni í stjórnmálunum. Einar var afar hreinskiptinn og maður var aldrei í vafa um hvar maður hafði hann. Ef við vorum ósammála gátum við sagt hvort öðru til syndanna á mjög skarpan hátt, en að því búnu var málið af- greitt af beggja hálfu og engin eft- irköst af því. Langrækni var ekki til. Annars voru hans verstu skammaryrði við mig og önnur börn mér mjög minnisstæð, hann sagði gjarnan þegar óþekktin var í há- marki: ,,Þið eruð nú meiri hvolp- arnir“ eða ,,ljótu ormarnir“. Þessi skammaryrði ef skammaryrði skyldi kalla segja allt um hvern hug hann bar til barna. Óþekkt í börnum læknaði hann á skammri stundu og hafði áratuga reynslu í því hann gaf þeim ,,óþekktarpillur“ í formi Mónu súkkulaðidropa, þær virkuðu ævin- lega, allavega um tíma. Samband ömmu og Einars var mjög náið og einkenndist af mikilli virðingu, virðingu hvors fyrir öðru án orðaflaums og skrums. Hugur Einars var alla tíð hér heima í Hlíð, það fann ég best nú á síðustu vikum, þegar hann fárveikur fylgdist með búskapnum í fjar- ðlægð, spurði um sprettuna, grenja- leitina og hvenær þrílemburnar hefðu nú farið út. Ég veit að hann heldur áfram að fylgjast með okkur milli þess sem hann yrkir vísur, veiðir silung og hlær hrossahlátri á æðri stöðum. Öllu því góða fólki sem að ann- aðist og reyndist Einari svo vel á þessum erfiðu stundum sendum við alúðar þakkir héðan úr Hallkels- staðahlíð. Þín frænka Sigrún Ólafsdóttir. Elsku Einar frændi, þá er komið að ferðalaginu langa.Við áttum margar góðar stundir saman sem ég gleymi aldrei. Eins og þegar ég var smápatti og við fórum saman að veiða niður í Lækjarós með gömlu netstubbana og mokveiddum eins og okkur einum var lagið, þó svo að margir hefðu ekki mikla trú á þess- um veiðiskap okkar. Þetta og margt, margt fleira gætum við rifj- að upp. Ég man alltaf eftir því þegar ég kom í heimsókn hingað í Hallkels- staðahlíð áður en ég flutti, þá tókst þú alltaf á móti mér með því að bjóða mér upp í herbergi og gá hvort það væri ekki eitthvað í poka í skúffunni. Og aldrei brást skúffan með gott- inu. Þú fylgdist líka alltaf með mér, hvert ég færi að keppa og hvernig mér gengi, ég er hér um bil viss um að þú mundir hvað ég kastaði langt á þeim mótum, sem ég keppti á, bet- ur en ég sjálfur. Þú varst alveg einstakur maður, Einar minn, og ég veit að þér verð- ur tekið opnum örmum í himnaríki, svo þér líði sem allra best. Þinn frændi Guðmundur Margeir. Við viljum með örfáum orðum minnast móðurbróður okkar, Einars Hallssonar. Einar var elstur af systkinum mömmu og leit því á sig sem afa okkar þar sem afi dó þegar Einar var aðeins unglingur. Á uppvaxt- arárum okkar var Einar alltaf á ver- tíð í Ólafsvík og kom hann þá oft í heimsókn til okkar. Þá var mikið hlegið því hann var sérstaklega hláturmildur maður og hafði marg- ar skemmtilegar sögur á taktein- unum um verbúðalífið í Ólafsvík. Alltaf hafði Einar meðferðis eitt- hvert góðgæti til að færa okkur og eru minnisstæðastar súkkulaðikúl- urnar sem hann kallaði óþekktar- kúlur. Um páskana kom hann oftast með páskaegg handa okkur eða konfektkassa. Þegar Einar kom, var taflið dregið fram og kenndi hann okkur öll helstu brögðin í tafl- mennskunni. Einnig hafði hann mikinn áhuga á ættfræði og rakti hann ættir okkar alla leið til Nor- egskonunga. Við minnumst þín, kæri frændi, fyrir hlýhuginn sem þú sýndir okk- ur alla tíð. Torfhildur, Hallur, Hrafn- hildur, Sigríður og Illugi. Eftir löng og erfið veikindi Ein- ars frænda okkar er hann kominn á nýjan stað og horfir með sínu fagra brosi á okkur hin við hlið ömmu og Magnúsar bróður síns. Okkur systkinin langar til að minnast hans með nokkrum orðum sem lýsa hon- um eins og við þekktum hann. Einar var góður og rólegur mað- ur og var alltaf góður við börn og munum við eftir óþekktarpillunum, sem voru súkkulaðistykki sem hann gaf okkur þegar við vorum óþekk og alltaf virkuðu þær á okkur. Hann gaf okkur líka óþekktarpillurnar þegar við vorum búin að vera þæg og aðstoða hann eitthvað. Stundum vorum við svona sakleysislega óþekk fyrir framan hann svo við fengjum mola. Einar var líka dýravinur mikill og þegar við sáum hann seinast í sveit- inni og vorum að kveðja þá sat hann með hvolpana tvo í fanginu skæl- brosandi og þannig munum við minnast Einars frænda okkar. Með þessum orðum um Einar kveðjum við hann og biðjum guð að blessa hann og varðveita. Hrafnhildur og Ragnar. Nú sefur jörðin sumargræn nú sér hún rætast hverja bæn og dregur andann djúpt og rótt um draumbláa júlínótt. Við ystu hafsbrún sefur sól og sofið er í hverjum hól. Í sefi blunda svanabörn og silungur í læk og tjörn. Á túni sefur bóndabær og bjarma á þil og glugga slær við móðurbrjóstið börnin fá þá bestu gjöf sem lífið á. (Davíð Stef..) Það var um draumbláa júlínótt árið 1927 að Hrafnhildur Einars- dóttir þá ung húsfreyja að Hallkels- staðahlíð í Hnappadal lagði frum- burð sinn á brjóst til að þiggja „þá bestu gjöf sem lífið á“. Þessi unga kona átti þá fyrir höndum að ala manni sínum ellefu börn til viðbótar frumburðinum. Hið yngsta var skírt við kistu föð- urins sem dó á besta aldri. Saga þessarar konu er hetjusaga því öll- um hópnum sínum kom hún glæsi- lega til manns. Við þessa hetjusögu kom auðvitað elsti sonurinn, Einar, sem var aðeins 17 ára þegar fjöl- skyldufaðirinn lést. Með móður- mjólkinni hafði frumburðurinn þeg- ið allt það sem til þurfti, bjartsýni, þolgæði, glaðværð, hagsýni, nægju- semi og elju. Nú er snillingurinn Einar Halls- son hniginn í valinn. Hans sakna fjölmargir auk fjölskyldunnar því hann var vinmargur og raunar orð- inn þjóðsagnapersóna vítt um land. Glaðværð hans og hlátur var engu lík. Hann var tryggur og góður vin- ur. Þegar ég sest við að skrifa eftir vin minn er mér vandi á höndum með að reyna að koma því til skila hve óvenjulegur maður hann var. Minningarnar þrengja sér áfram, en þær verða ekki annarra eign en mín. Þær gleðja, en um leið kemur treginn vegna þess að allt er þetta liðið og kemur aldrei aftur. Þegar systkini Einars voru vaxin úr grasi fór hann að afla heimilinu tekna með því að fara á vertíð eins og sagt var. Fyrst fór hann suður með sjó, en síðan til Ólafsvíkur. Kom hann síðan á hverja vertíð alls um fjörutíu ár. Fannst mörgum þá fyrst væri vertíðin komin í fullan gang þegar Einar birtist. Hann tók tryggð við Ólafsvík og eignaðist hér fjölda vina og kunningja. Hér hafa hundruð manna dvalist á vertíð en mér er óhætt að fullyrða að hann var vinsælastur þeirra allra og þekktastur. Fyrstu vertíðirnar gerði Einar töluvert af því að keyra skipshafnir og aðra sem á bíl þurftu að halda því bílaeign var þá ekki orðin al- menn. Fór hann oft í túra á rússa- jeppanum og oft þó færð og veður væru tvísýn. Einar drakk ekki áfengi og vegna þess að hann var á allan hátt heiðarlegur þá var hann fenginn til að vera húsvörður og naut sín vel. Hann sá til þess að allar reglur væru nokkurn veginn hafðar í heiðri en var annars sá sem mesta lífið var í kringum. Það kom fyrir að reynt var að komast inn í verbúðina á skjön við reglur. Var haft að gamni að menn reyndu það ekki oft því ekki fóru þeir svo glatt framhjá hin- um stóra og handtakagóða húsverði. Einar var liðtækur skákmaður og tefldi hvassan sóknarstíl. Hann var í Taflfélagi Ólafsvíkur og var í fremstu röð. Það var oft líf og fjör í kringum skákborðið. Þá hafði Einar mikið yndi af vísnagerð. Hann orti mikið til vinnu- félaganna, mest í glettni. Var hann jafnan kátastur væri honum svarað fullum hálsi. Einar orti lipurt og vel. Hann lét þó dægurmálin nægja sem yrkisefni og segja má að vísur þær sem flugu „áttu við á einum stað og einu sinni“. Nú hefði mátt halda að þessi glaðværi og geðgóði maður ætti það til að fara í fýlu og vera mishittur. Það var þó öðru nær. Ég held að ég hafi ekki kynnst öðrum slíkum. Eitt af því sem gat orðið okkur að gamni hin síðari ár var að rifja upp atvik þar sem tekist hafði að fá hann til að skipta skapi og brýna raustina. Það var hreint ekki ónýtt að hafa Einar við kaffiborðið í frystihúsinu þegar allir voru þreyttir og syfjaðir. Þar var líf og fjör og ekki skorti um- ræðuefnin. Þá var oftar en ekki rætt um póli- tík dagsins. Einar var harður framsóknar- maður og var illa við íhaldið en þó voru kratarnir verri. Þeir ásóttu hann í svefni og vöku og margan kratadrauminn fengum við að heyra. Ef maður vildi stríða Einari þá var ágætt að minna hann á að hann hefði nú eitt sinn kosið krat- ana. Það var í hræðslubandalags- kosningunum 1956. Þá játaði Einar fúslega að þar hefði honum orðið á. En nú kemur enn að því hve vel gerður Einar var. Hann dró nefni- lega mjög skýra línu milli persónu manna og skoðana þeirra. Það má nefna að flestir vinir hans og góð- kunningjar hér vestra eru íhalds- menn. Annað dæmi er, að þingmenn sem voru í yfirreið drukku gjarnan kaffi með okkur við verkstjóraborð- ið. Þá var Einar í essinu sínu og fór með vísur og drauma og spáði út frá þeim. Þá var enginn vinsælli hjá honum en Eiður Guðnason þing- maður kratanna. Eiður var oftast á ferðinni og marga káta stund áttum við þá við kaffiborðið. Heilsuðust þeir og kvöddust jafnan sem góð- kunningjar. Já, Einar var skemmtilegur sagnamaður og hafði mjög gott skopskyn. Hann átti til að gera óspart grín að sjálfum sér og hló hátt og lengi yrði hann fyrir glettum og hrekkjum kunningja sinna. Svo döpur og erfið sem staða ekkjunnar með stóra barnahópinn var árið 1945 þegar faðir Einars dó má með sanni segja að vel hafi greiðst úr með hag fjölskyldunnar. Þar lögðust allir á eitt, yngri sem eldri. En fórnir þurfti að færa. Að- eins allra nauðsynlegasta skóla- ganga varð að duga Einari og fleiri systkinum hans þó nógar væru gáf- ur til þess að menntast frekar. Ein- ar var hinsvegar sjálfmenntaður og athugull. Hann hafði gott vit á skepnum og búskap. Hann lagði svo til búsins allt það sem hann aflaði utan þess. Brátt sá á að bændur í Hlíð væru framsæknir og samhent- ir. Hlíðarbúið varð með þeim mynd- arlegustu í héraðinu. Gott fjárbú var og er í Hallkels- staðahlíð. Það var mjög á orði haft að þangað var keyptur verðlauna- hrúturinn Dvergur frá Innra-Leiti við verði sem áður var óþekkt á hrútum. Þetta var mjög til góðs fyr- ir Hlíðarbúið því Dvergur var mikill gripur og sterkur til kynbóta. Fjöldi lambhrúta var seldur undan honum EINAR HALLSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.