Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 C 3 Störf í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2002-2003 Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. Upplýsingar veita skólastjóra og aðstoðarskólastjórar viðkomandi skóla. Umsóknir ber að senda í skólana. Nánari upplýsingar um laus störf og grunnskóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir www.grunnskolar.is Borgaskóli, sími 577 2900 Skólaliðar. Foldaskóli, sími 567 2222 Skólaliðar í ýmis störf, m.a. í mötuneyti kennara, 70% staða, starf frá 09:00 daglega. Fossvogsskóli, sími 568 0200 Starfsmaður í mötuneyti nemenda. Hamraskóli, sími 567 6300 Starfsmaður í heilsdagsskóla, hlutastarf. Starfsmaður í íþróttahús Hamraskóla um kvöld og helgar. Skólaliða vantar í hlutastörf og fólk til ræstinga seinnipart dags. Húsaskóli, sími 567 6100 Heimilisfræðikennsla í 9. og 10. bekk, eftir hádegi, 45% staða. Skólaliðar í ýmis störf, m.a. í eldhús nemenda, 75% staða. Skólaliðar í heilsdagsskóla, 50% staða. Ingunnarskóli, sími 585 0400 Forstöðumaður skóladagvistar. Skólaliðar. Skólaritari. Langholtsskóli, símar 553 3188 og 824 2288 Skólaliðar. Laugalækjarskóli, símar 588 7500 og 897 5045 Skólaliðar, 50%-100% stöður. Réttarholtsskóli, sími 553 2720 Ensku- og dönskukennsla. Sundkennsla, 12 stundir á viku. Starfsmaður skóla. Rimaskóli, símar 567 6464 og 897 9491 Starfsmaður í skóladagvist, 50% staða eftir hádegi. Seljaskóli, sími 557 7411 Íslenskukennsla á unglingastigi. Þýskukennsla í 10. bekk, 3 stundir á viku. Víkurskóli, sími 545 2700 Skólaliðar. Starfsmaður í heilsdagsskóla, 50% staða. Þroskaþjálfi. Öskjuhlíðarskóli, sími 568 9740 Stuðningsfulltrúar, 55%-60% stöður, vinnutími 12:30 - 17:00. Móttökufulltrúi/ bókhald Domino´s Pizza hyggst ráða einstakling til starfa á skrifstofu félagsins í Lóuhólum 2—6 í Reykjavík. Þekking á tölvum og bókhaldi er skilyrði. Unnið er á Navision bókhaldskerfi. Starfið gerir kröfur um öguð vinnubrögð og samskiptahæfni. Skriflegar umsóknir sendist til Domino´s Pizza, Lóuhólum 2—6, 111 Reykjavík, eða á jonmundur@dominos.is fyrir 05.09 2002. Rafvirki Stórt innflutningsfyirtæki með rafbúnað og raflagnaefni óskar að ráða rafvirka eða starfs- kraft með sambærilega þekkingur til lager- og afgreiðslustarfa. Um er að ræða framtíðarstarf fyrir duglegan og áhugasaman einstakling. Stundvísi, reglusemi og reykleysi áskilið. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. fyrir 2. september nk., merktar: „Rafvirki — 12644“. Allar umsóknir meðhöndlaðar sem trúnaðar- mál og þeim svarað. Háskóli Íslands Læknadeild Dósent í bráðalæknisfræði Laust er til umsóknar starf dósents í bráða- læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands (H.Í.). Umsækjandi skal hafa sérfræðiviður- kenningu á sviði bráðalæknisfræði eða sér- fræðiviðurkenningu í skyldri grein og mikla reynslu af bráðalækningum. Gert er ráð fyrir að starfið verði veitt eigi síðar en frá 1. febrúar 2003, að lokinni umfjöllun dómnefndar og val- nefndar. Ráðið verður í starfið til fimm ára. Um er að ræða 37%-50% starfshlutfall við H.Í. samkvæmt ákvörðun deildarráðs læknadeildar. Dósentinn mun fá starfsaðstöðu á Landspítala - háskólasjúkrahúsi (LSH), með vísan til sam- ninga LSH og H.Í. frá 10.5.2001 og 28.6.2002 (samningarnir eru aðgengilegir á háskólavefn- um, sjá: http://www.hi.is/stjorn/rektor/ - sam- ningar). Um frekari störf og starfsvettvang á LSH verður fjallað í viðtölum við umsækjendur. Bráðalæknisfræði eru nýtt fræðasvið innan læknadeildar. Á LSH eru bráðalækningar innan slysa- og bráðasviðs spítalans. Dósentinn hefur umsjón með kennslu lækna- nema í bráðalæknisfræði í samvinnu við aðra kennara deildarinnar og kennsluráð. Dósentinn skal vinna að uppbyggingu bráðalækninga og eflingu rannsókna og rannsóknatengds náms í bráðalæknisfræði í samvinnu við rannsókna- námsnefnd deildarinnar og með framhalds- menntunarráði og framkvæmdastjóra kennslu, vísinda og þróunar á LSH að málefnum er varða framhaldsmenntun í bráðalækningum og skyldum greinum. Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna fer eftir ákvæðum laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999 og reglum Háskóla Íslands nr. 458/ 2000. Um lágmarkshæfniskröfur til umsækj- enda um starfið er vísað til 12. gr. laganna um dómnefndir og til reglna læknadeildar um ráð- ningu og framgang starfsmanna með hæfnis- dóm nr. 498/2002. Þegar dómnefnd hefur lokið störfum fjallar sérstök valnefnd um umsækj- endur, sbr. reglur læknadeildar um valnefndir nr. 830/2001. Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um vísindastörf umsækj- anda, rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá), svo og yfirlit um námsferil og störf (curriculum vitae), samtals sjö eintök, og eftir atvikum vottorð og önnur áþekk gögn. Með umsókn skulu send fjögur ein- tök af birtum vísindalegum ritum, skýrslum og ritgerðum, sem umsækjandi óskar eftir að teknar verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlutdeild sinni í rann- sóknum sem lýst er í ritverkunum. Ef um er að ræða mikinn fjölda ritverka er æskilegt að ritverk sem fylgja umsókn takmarkist við 15 helstu fræðileg ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið. Æskilegt er að umsækjendur geri grein fyrir því hverjar rannsóknaniðurstöður sínar þeir telja markverðastar. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um hugmyndir umsækjanda varðandi uppbyggingu greinarinnar í H.Í. og á LSH og um þær rannsóknir sem umsækjandi vinnur að og hyggst vinna að verði honum/henni veitt starfið (rannsóknaáætlun) og þá aðstöðu sem til þarf. Umsækjandi geti um og láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á, en getur einnig bent á umsagnaraðila. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra og raðast starf dósents í launaramma C. Laun fyrir störf lækna á LSH eru í samræmi við kjarasamning fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Læknafélags Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2002 og skal umsóknum skilað til starfsmann- asviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Móttaka allra umsókna verður staðfest bréf- lega. Umsækjendum verður greint frá niður- stöðu dómnefndar og um ráðstöfun starfsins þegar sú ákvörðun liggur fyrir. Nánari upplýsingar um dósentsstarfið gefur Reynir Tómas Geirsson, forseti læknadeildar, í síma 525 4880. Upplýsingar um starfsvett- vang og væntanleg störf á háskólasjúkrahúsinu gefur Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmda- stjóri lækninga á LSH, í síma 543 1160. Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans. http://www.starf.hi.is N O N N I O G M A N N I | Y D D A / si a .i s N M 0 7 1 1 6 ap@appr. i s Brautarholt i 10 105 Reykjav ík RÁ‹GJAFI Í ALMANNATENGSLUM Starfssvið: Almenn ráðgjöf á sviði almannatengsla. Aðstoð við gerð áætlana um almannatengsl og vinna að framkvæmd þeirra í samráði við viðskiptavini. Umsjón með fréttabréfum og öðru útgefnu efni. Skipulag og umsjón með sýningum, ráðstefnum, blaðamannafundum og öðrum tilfallandi verkefnum. Hæfniskröfur: Háskólamenntun og eða góð starfsreynsla á sviði almannatengsla eða fjölmiðla. Mjög gott vald á íslensku og ensku tal- og ritmáli. Góð þekking á viðskiptalífinu sem og áhugi á þjóðmálum. Sjálfstæði, frumkvæði og færni í mannlegum samskiptum. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. AP almannatengsl ehf . er nýtt fyr i r tæki sem vei t i r e instak l ingum, fyr i r tækjum og stofnunum alh l iða ráðgjöf á sv ið i a lmannatengsla. ALMANNATENGSL Áhugasamir vinsamlegast sendið inn umsókn sem inniheldur starfsferilsskrá til: AP almannatengsl ehf. Brautarholti 10 105 Reykjavík. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir og umsóknir á póstfangið: ap@appr.is. AP almannatengs l ehf .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.