Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 13 www.islandia.is/~heilsuhorn Í dagsins önn Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum og C-vítamíni í jurtabelgjum PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 1 85 90 p 0 8/ 20 02 Gó› gjöf 6 hlutir í tösku! Ef þú kaupir tvo hluti eða fleiri frá Clinique, er þessi gjöf þín:* • Long Pretty Lashes Mascara, 4 g. • Dramatically Different Moisturizing Lotion, 15 ml. • 7 Day Scrub Cream Rinse-Off Formula, 30 ml. • High Impact Eye Shadow Duo, 1,1 g. • Different Lipstick Rasperry Glace, 4 g. • Healthy Shine Serum for Hair, 15ml. • Snyrtitaska með rennilás fyrir förðunarvörur og aðrar nauðsynjar. • Verðgildi gjafarinnar er kr. 6.990. Kaupauki! Nýtt! Long Pretty Lashes Mascara w w w .c lin iq ue .c om Ofnæmisprófað 100% ilmefnalaust Clinique ráðgjafi veitir fría húðgreiningu og aðstoð við val á förðunarvörum. * á meðan birgðir endast. GAMLI Sléttbakur EA, sem áður var í eigu Útgerðarfélags Akur- eyringa hf., hefur nú fengið nafn- ið Akureyrin EA 110, auk þess sem skipt hefur verið um lit á skipinu. Samherji keypti Sléttbak fyrr í sumar og er ráðgert að skipið haldi til veiða á vegum fyr- irtæksins í næsta mánuði. Unnið hefur verið að endurbótum á skip- inu að undanförnu í Slippstöðinni á Akureyri og það m.a. verið mál- að hátt og lágt í Samherjalit- unum. Skipið er rúmlega 900 brúttólestir að stærð, smíðað í Noregi 1968. Skipið var lengt og því breytt í frystiskip árið 1987. Það er 69 metra langt, með 3.000 hestafla aðalvél og búið til flaka- vinnslu og heilfrystingar á karfa og grálúðu. Gamla Akureyrin EA hefur í staðinn verið seld til Onward Fishing Company, dótturfélags Samherja í Bretlandi og verður skipið afhent í næsta mánuði. Gamla Akureyrin EA, sem er 882 brúttólesta skip var smíðað í Pól- landi á árinu 1974. Það var fyrsta skip í eigu Samherja og hefur verið gert út sem frystitogari frá árinu 1983. Akureyrin hefur verið afar farsælt skip og frá upphafi verið meðal aflahæstu fiskiskipa landsins ár hvert. Morgunblaðið/Kristján Sléttbakur verður Akureyrin EA 110 VEIÐIFÉLAG Fnjóskár og Stanga- veiðifélagið Flúðir Akureyri bjóða öllum börnum félagsmanna og vin- um þeirra að veiða í Fnjóská laug- ardaginn 31. ágúst og sunnudaginn 1. september nk. Þátttakendur eiga að mæta í veiði- hús kl. 10, skrá sig í gestabók og taka við leiðbeiningum. Um kl. 13.00 verð- ur boðið upp á pylsur og svaladrykki en svo haldið aftur til veiða kl. 14.30 og er hægt að veiða til kl. 20.00 báða dagana. Veiðidagar við Fnjóská MIKILL áhugi er fyrir starfi sem Orkustofnun auglýsti laust til umsóknar á Akureyri nýlega en alls bárust rúmlga 50 um- sóknir um stöðuna. Að sögn Árna Ragnarssonar, deildar- stjóra orkubúskapardeildar Orkustofnunar, eru þetta mun fleiri umsóknir en hann hafði reiknað með. Hann sagði að verið væri að vinna úr umsókn- unum og að stefnt væri að því að ráða í stöðuna sem allra fyrst. Hér er um nýtt starf að ræða á orkumálasviði stofnunarinnar og felst í að sinna þeim verk- efnum sviðsins sem tengjast landsbyggðinni. Í byrjun verð- ur starfið einkum helgað verk- efnum sem Orkustofnun eru falin í nýjum lögum um niður- greiðslu húshitunarkostnaðar, eftirliti með framkvæmd lag- anna, gagnaskráningu, af- greiðslu umsókna um niður- greiðslu og samskiptum við dreifiveitur raforku. Tveir starfsmenn á rann- sóknarsviði Orkustofnunar starfa á Akureyri og eru þeir með starfsaðstöðu í húsnæði Háskólans á Akureyri á Sól- borg. Hinn nýi starfsmaður á orkumálasviði mun hins vegar verða með aðstöðu hjá Norður- orku á Rangárvöllum. Starf hjá Orkustofn- un á Akureyri Rúmlega 50 umsóknir um stöðuna REKSTRARTEKJUR Skríns ehf. fyrstu 6 mánuði ársins námu 41 milljón króna. Veltufé frá rekstri nam 4 milljónum króna og. hagnaður var hálf milljón króna. Þetta eru mikil umskipti frá sama tíma í fyrra en þá var tap af rekstri félagsins 16 milljónir króna. Skrín, sem er tölvufyrirtæki á Ak- ureyri, er m.a. í eigu: Skýrr, Fram- takssjóðs Landsbankans, Útgerðar- félags Akureyringa, Elements hf. og fjárfestingarfélagsins Tækifæris og var stofnað í júlí 2000. Mikill árangur hefur náðst í markaðssetningu Félagið sérhæfir sig í kerfisleigu, hýsingu og gagnaflutningum. Ragn- ar Guðmundsson framkvæmdastjóri segir í fréttatilkynningu að menn séu afskaplega ánægðir með þessa nið- urstöðu. Mikill árangur hafi náðst í markaðssetningu og margir nýir við- skiptavinir hafa verið að koma í við- skipti við félagið. Horfur seinni hluta ársins eru mjög góðar en horfur eru á áframhaldandi tekjuaukningu og bata í afkomu. Uppgjör Skríns gefur til kynna traustan efnahag en eigið fé félags- ins í júnílok var 23 milljónir króna, nettóskuldir voru einungis 6 milljón- ir króna, eiginfjárhlutfall var þá 59% og veltufjárhlutfall var 0,91. Mikill við- snúningur hjá Skríni SAMEIGINLEGUR fundur félags- málanefnda Hríseyjar, Dalvíkur- byggðar, Ólafsfjarðar og Siglufjarð- ar, lýsir yfir vilja til að stofnað verði til sameiginlegrar barnaverndar- nefndar fyrir sveitarfélögin. Fund- urinn var haldinn í Ráðhúsinu á Siglufirði í vikunni. Fundinn sátu fulltrúar frá öllum nefndunum ásamt starfsmönnum og var þeim skipt upp í vinnuhópa, þar sem hver hópur fjallaði um grundvöll væntanlegs samstarfs, fyrirkomulag þess, kosti og galla. Almennt voru niðurstöður hópanna jákvæðar og var samþykkt að formenn nefndanna settu saman sameiginlega niðurstöð- ur varðandi framhald samstarfs á þessu sviði. Fram kemur í fréttatilkynningu frá málsaðilum, að ljúka þurfi und- irbúningi málsins í síðasta lagi í nóv- ember nk. Áhersla var lögð á það álit allra hópa, að með samstarfi mætti styrkja starf á sviði barnaverndar á svæðinu. Vilja sameig- inlega barna- verndarnefnd SAMKVÆMT endurskoðaðri fjár- hagsáætlun Norðurorku fyrir yfir- standandi ár, er gert ráð fyrir að hagnaður ársins verði tæpar 207 milljónir króna. Stjórn Norðurorku samþykkti endurskoðaða fjárhags- áætlun á fundi sínum í vikunni. Rekstrartekjur eru áætlaðar rúm- lega 1,2 milljarðar króna og rekstr- argjöld tæpir 1,2 milljarðar króna. Tekjur vatnsveitu eru áætlaðar 164 milljónir króna, hitaveitu rúmar 497 milljónir króna og rafveitu 563 milljónir króna. Áætlað að afskrifa 444 milljónir Almenn rekstrargjöld eru áætluð rúmar 377 milljónir króna, raforku- kaup 378 milljónir króna, afskrifaðar verða rúmar 444 milljónir króna og þá er gert ráð fyrir að fjármagnsliðir verði jákvæðir um tæpar 182 millj- ónir króna. Þá er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri nemi tæpum 404 milljónum króna, fjárfestingar um 311 milljón- um króna, afborganir af lánum nemi 250 milljónum króna og nýjar lán- tökur 125 milljónum króna. Endurskoðuð fjárhagsáætlun Norðurorku Hagnaður rúmar 200 milljónir ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.