Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 50
Stefanía, Berglind, Jörg og séra Bára Frið- riksdóttir leiða stundina. Kl. 14 messa allra heilagra. Þau sem misst hafa ástvin á síðasta ári eru sérstaklega hvött til að fjölmenna. Látinna verður minnst á sér- stakan hátt og kveikt á kertum í minningu þeirra og fyrir bænarefnum. Kl. 15.30 Guðsþjónusta á Ási. Látinna verður minnst. KELDNAKIRKJA á Rangárvöllum: 23. sunnudagur eftir trínitatis (allra heilagra messa), 3. nóvember 2002: Guðsþjón- usta kl. 11. Guðspjallatexti: Jesús prédik- ar um sælu (Matt. 5). Aðalsafnaðarfundur í kirkjunni að embætti loknu. Sókn- arprestur ÞYKKVABÆJARKIRKJA: 23. sunnudagur eftir trínitatis (allra heilagra messa), 3. nóvember 2002: Messa kl. 14. Guð- spjallatexti: Jesús prédikar um sælu (Matt. 5). Messuheimsókn úr Digranes- söfnuði í Kópavogi. Séra Gunnar Sig- urjónsson þjónar fyrir altari. Séra Magnús Björnsson prédikar. Kór Digraneskirkju leiðir söng. Orgelleikari Kjartan Sig- urjónsson. Kirkjukaffi í boði sókn- arnefndar Þykkvabæjarkirkju í Samkomu- húsinu að messu lokinni. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður kl. 14 sunnudag 3. nóvember. Allra heil- agra messa. Kvennakórinn Vox Feminae syngur ásamt Skálholtskórnum. Ferming- arbörn aðstoða við helgihaldið. Sókn- arprestur. ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á allra heilagra messu. Látinna minnst. BORGARPRESTAKALL: Barnaguðsþjón- usta í Borgarneskirku kl 11.15. Messa í Borgarneskirkju kl 14. Á allra heilagra messu verður flutt Missa de Angelis. Englamessa. Minnst verður látinna. Borg- arkirkja . Messa kl 16. Sóknarprestur. HNÍFSDALSKAPELLA: Messa kl. 11. Kvennakórinn syngur undir stjórn Huldu Bragadóttur. Barnastarf kl. 13. Sókn- arprestur. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Messa fyrir allt prestakallið á allra heilagra messu kl. 14. Sr. Gylfi Jónsson prédikar. Fermingarbörn selja friðarkerti til að láta á leiði ástvina fyrir messu. Messukaffi á prestssetrinu á eftir. Sóknarprestur. Mætum öll á bingóið í Hlíðarbæ laugardag 2. nóv. kl. 14 til að styrkja orgelsjóð kirkjunnar. AKUREYRARKIRKJA: ,Allra heilagra messa. Messa kl. 11. Sr. Svavar A. Jóns- son. Látinna minnst. Félagar úr Kór Ak- ureyrarkirkju syngja. Michael Jón Clarke syngur einsöng. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Sunnudagaskóli kl. 11, fyrst í kirkju en síðan í safnaðarheimili. Ingunn Björk og Laufey Brá verða með barnastarfið. Fræðsla og hressing í safn- aðarheimili eftir messu. Sr. Svavar A. Jónsson fjallar um sorg barna. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera kl. 11. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnunum. Messa verður kl. 14. Ásta Magnúsdóttir syngur einsöng. Kaffiveit- ingar verða í safnaðarsal að athöfn lok- inni. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu- dagur: Kl. 18 samvera fyrir heim- ilasambandssystur og hjálparflokk. Kl. 20 almenn samkoma. Ingibjörg Jónsdóttir talar. Allir velkomnir. Ath. heim- ilasamband mán. 4. nóv. fellur niður. STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA: Messa verð- ur í kirkjunni á sunnudag á allra heilagra messu kl. 14. HRÍSEYJARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja: Kirkjuskóli laugardag kl. 13.30. Guðs- þjónusta sunnudag kl. 14. Minnst lát- inna. Svalbarðskirkja: Kirkjuskóli laug- ardag kl. 11. Kyrrðarstund sunnudagskvöld kl. 21. Minnst látinna. Prestssetrið Laufási: Kvöldrabb yfir kaffi- bolla kl. 20.30. Umræðuefni: Dauði-sorg- minning. Allir velkomnir. Sóknarprestur. EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Unglingastarf kl. 20. 4. nóv. mán: Kyrrðarstund kl. 18. Opinn 12 spora- fundur kl. 18.30–20. Uppbyggingarstund, lofgjörð og fræðsla kl. 20. Sóknarprestur. ÁSASÓKN í Fellum: Sunnudagaskóli í Fellaskóla kl. 11. TTT-starf í Fellaskóla kl. 13. Guðsþjónusta í Áskirkju kl. 14. Fund- ur verður með fermingarbörnum og for- eldrum þeirra að lokinni guðsþjónustu og eru þau sérstaklega hvött til þess að koma til guðsþjónustunnar, en að sjálf- sögðu eru allir velkomnir. Kór Áskirkju syngur undir stjórn organistans Kristjáns Gissurarsonar. Sóknarpresturinn sr. Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt- ari. EIÐAKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta sunnudag kl. 11. Allir velkomnir. Sókn- arprestur. KIRKJUBÆJARKLAUSTURSPRESTA- KALL. Kapellan á Kirkjubæjarklaustri. (Allra heilagra messa) Messa kl. 14. Sér- staklega verður þeirra minnst sem látist hafa á árinu með fyrirbæn og þakk- argjörð. Notast verður við gregorstón við messugjörðina (altarisganga). Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta – og þakka þannig fyrir góðar gjafir, gróður jarðar og um leið eflast í trú sinni. Organisti: Kristófer Sigurðsson. Kór Prestsbakkakirkju leiðir söng. Hjúkr.- og dvalarheim. Klausturhólar. Helgistund kl. 15.15. Sr. Baldur Gautur Baldursson. KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 51 FYRSTU dagarnir í nóvember hafa um aldir verið tileinkaðir öllum heilögum, píslarvottum trúarinnar, og öllum sálum, þeim sem látist hafa á liðnu ári. Á sunnudaginn, 3. nóvember, verða messur víða helg- aðar þessu umfjöllunarefni. Í Fossvogskirkju verður vönduð tónlistardagskrá frá kl. 14–17. Þar gefst fólki kostur á að koma og hlýða á tónlistarflutning, ritning- arlestur og bæn og njóta kyrrðar kirkjunnar. Fyrst flytur mgr. Pavel Manásek, organisti, einleik á orgel, og þar næst leikur tónlistartvíeykið Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason á orgel og saxafón. Þá flytja söng sinn Hljómkórinn og fé- lagar úr kór Bústaðakirkju, ásamt organistanum Jónasi Þóri Þór- issyni. Prestarnir sr. Hreinn Há- konarson og sr. María Ágústsdóttir fara með bæn og ritningarorð. Skrifstofa Kirkjugarðanna verð- ur opin frá kl. 14–17, starfsfólk vís- ar veg í görðunum og Hjálparstarf kirkjunnar selur friðarkerti, bæði í Fossvogskirkjugarði og í Gufunesi. Verið velkomin í Fossvogskirkju á sunnudaginn. 110 ára afmæli Innra-Hólmskirkju 110 ÁRA afmælis Innra-Hólms- kirkju í Borgarfjarðarprófasts- dæmi verður minnst með messu svo og kaffiveitingum og stuttri dag- skrá í félagsheimilinu Miðgarði á sunnudaginn kemur, sem er allra heilagra messa. Messan hefst kl. 14.00 og mun sr. Örn Bárður Jónsson, prestur í Nes- kirkju prédika, en altarisþjónusta verður í höndum sóknarprestsins, sr. Kristins Jens Sigurþórssonar. Að messu lokinni verða kaffiveit- ingar í boði sóknarinnar í Miðgarði þar sem kirkjukór Saurbæj- arprestakalls undir stjórn organist- ans Zsuszönnu Budai mun flytja nokkur lög og stutt ágrip verður flutt um kirkjustaðinn Innra-Hólm, en þar hefur kirkja staðið frá því um 900 og er hann því einn elsti kirkjustaður landsins. Allir hjartanlega velkomnir. Látinna minnst í Hjallakirkju ALLRA heilagra messa í kirkjum landsins sunnudaginn 3. nóvember. Í Hjallakirkju hefst dagurinn með tónlistarmessu kl. 11 þar sem Kór Hjallakirkju flytur m.a. messu í C-dúr eftir Mozart ásamt einsöngv- urum. Síðari hluta dagsins, kl. 17, verða minningartónleikar en þá mun kammerkórinn Vox Gaudiae frum- flytja á Íslandi, ásamt einsöngv- urum og hljóðfæraleikurum, Requiem eftir Johann E. Eberlin, Laudate Dominum eftir Mozart, Allsherjar Drottinn eftir César Franck og fleiri kórverk. Aðgangur á tónleikana er ókeypis. Verið velkomin í Hjallakirkju á allra heilagra messu. Allra heilagra messa – minning látinna MINNING látinna verður heiðruð með sérstökum hætti við messu í Landakirkju sunnudaginn 3. nóv- ember kl. 14. Þá er „allra heilagra messa“ að gömlum sið en hann hefur fengið þann sess að við minnumst allra þeirra, sem andast hafa. Prestur les nöfn þeirra, sem andast hafa síð- ustu tólf mánuði og færðir hafa ver- ið til þjónustubókar Vestmanna- eyjaprestakalls. Sr. Kristján tekur við ábendingum um aðra, sem hafa verið jarðsettir annars staðar en í Eyjum, en fólk vill minnast með þessum hætti. Ástvinir geta tendrað ljós á kerti í kirkjunni til minningar um látinn ástvin, hvort sem nöfn þeirra hafa verið lesin upp eða ekki. Altarisganga verður í messunni og fermingarbörn lesa upp úr Ritning- unni. Yfirskrift messunnar er „Sæl- ir eru sorgbitnir“. Kaffispopi og spjall á eftir í safnaðarheimilinu. Athygli skal vakin á því að þriðju- dagskvöldið 5. nóvember verður fundur um sorg og viðbrögð við missi í safnaðarheimilinu og hefst hann kl. 20. Sóknarprestur flytur stutt erindi um sorgarviðbrögð og stýrir spjalli á eftir. Kaffihúsamessa í safn- aðarheimilinu KAFFIHÚSAMESSA verður í safn- aðarheimili Landakirkju sunnu- dagskvöldið 3. nóvember. Félagar úr Samkór Vestmannaeyja sjá um söng og tónlist með hópi hljóðfæra- leikara. Æskulýðsleiðtogar lesa úr Ritningunni. Sr. Kristján Björnsson þjónar og leggur út af guðspjalli dagsins, sem eru sæluboð Fjallræð- unnar. Yfirskriftin er: „Sælir eru hjartahreinir“. Kaffisopi og djús fyrir og eftir og undir söng. Ljúf stund og sæl. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum og unglingum og eiga góða stund í húsi Guðs. Æskulýðsfundurinn rennur inní kaffihúsamessuna. Allraheilagra messa í Grafarvogskirkju Á ALLRA heilagra messu nk. sunnudag verður haldin hátíðar- guðsþjónusta í Grafarvogskirkju. Eins og undanfarin ár bíður Graf- arvogssöfnuður sérstaklega þeim sem minnst hafa ástvini sína á árinu til guðsþjónustu. Þann dag er þeirra sem á undan oss eru farnir sérstaklega minnst. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Önnu Sigríði Pálsdóttur og séra Bjarna Þór Bjarnasyni. Kór Grafarvogskirkju, Barna- og unglingakór kirkjunnar syngja. Stjórnandi Oddný Þor- steinsdóttir. Organisti Hörður Bragason. Eftir guðsþjónustuna verður svo nefnt „líknarkaffi“ en framlög renna í Líknarsjóð Grafarvogs- kirkju. Prestar Grafarvogskirkju. Alda Ingibergsdóttir í Hafnarfjarðarkirkju FRÁ fornu fari hefur það verið hefð í kirkjunni að helga 1. nóvember öllum heilögum körlum og konum, Tónlistardag- skrá í Fossvogskirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.