Morgunblaðið - 03.12.2002, Síða 2
ÁRAKRAR ehf., sem er félag sex
byggingarfyrirtækja, og Bygging-
arfélagið Arnarnes, sem er í eigu
Jóns Ólafssonar, stjórnarformanns
Norðurljósa, hafa undirritað samn-
ing um kaup byggingarfyrirtækj-
anna á eignarlóðum undir 275
íbúðir í landi Arnarness í Garða-
bæ.
Kaupverð lóðanna er 455 millj-
ónir króna.
Kaupendurnir hafa stofnað
hlutafélagið Árakra ehf. um kaupin
en þeir verktakar sem standa á
bak við kaupin eru Sigurður og
Júlíus ehf., Kristjánssynir ehf.,
Byggingafélagið Óskar og Árni
ehf., Sérverk ehf., Markholt ehf.
og Harri ehf.
Að sögn Gísla R. Rafnssonar,
framkvæmdastjóra Árakra, er
reiknað með að framkvæmdir hefj-
ist næsta sumar en viðræður um
uppbyggingu á landinu standa yfir
um þessar mundir við bæjaryfir-
völd í Garðabæ.
Kaupsamningurinn felur í sér
kaup á öllum þeim lóðum á Arn-
arneslandi sem skipulagðar hafa
verið undir rað-, par- og fjölbýlis-
hús eða samtals um 275 íbúðir.
Allar einbýlishúsalóðir á svæð-
inu, eða samtals 141 eignarlóð, og
norðurhluti Arnarneslands, sem er
óskipulagt land um 7,3 hektarar,
verða hins vegar áfram í eigu
Byggingarfélagsins Arnarness.
Jón Ólafsson keypti Arnarnesland-
ið í ársbyrjun 1999 fyrir tæpar 700
milljónir króna. Hann seldi fljót-
lega hluta landsins fyrir 200 millj-
ónir króna. Samkvæmt upplýsing-
um sem fengust í gær verða
einbýlishúsalóðirnar boðnar til
sölu til einstaklinga í framhaldi af
þessum samningi.
Vænlegt byggingarland
Að mati forsvarsmanna Árakra
eru eignarlóðir í Arnarneslandi
eitt vænlegasta byggingarland sem
völ er á á höfuðborgarsvæðinu í
dag og benda þeir á að áætlað er
að um 1.500 Garðbæingar muni
eiga þar heima í framtíðinni. Arn-
arneslandið var skipulagt af Ingi-
mundi Sveinssyni arkitekt árið
1997 og er gert ráð fyrir a.m.k. 416
heimilum í skipulaginu í suður-
hluta Arnarneslands.
Árakrar ehf. kaupa hluta af Arnarneslandi af fyrirtæki Jóns Ólafssonar
Kaupverðið 455 milljónir
fyrir lóðir undir 275 íbúðir
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAG UM FASTEIGNIR
Íslandsbanki hefur haft frum-
kvæði að viðræðum við sveitarfélög
á höfuðborgarsvæðinu og fleiri aðila
um stofnun nýs fasteignafélags um
eignir sveitarfélaganna.
Krafa um fjárfestingar
Percy Westerlund, fulltrúi Evr-
ópusambandsins, segir að heimildir
borgara frá ríkjum sambandsins til
að fjárfesta í einhverjum mæli í ís-
lenskum sjávarútvegi séu ófrávíkj-
anlegt skilyrði fyrir því að Íslend-
ingar fái aukna fríverslun með fisk í
aðildarlöndunum.
Samið verði við N-Kóreu
Forsetar Rússlands og Kína,
Vladímír Pútín og Jiang Zemin,
hvetja til þess að deilur um gereyð-
ingarvopn N-Kóreumanna verði
leystar með viðræðum. Pútín og
Jiang ákváðu að berjast í samein-
ingu gegn aðskilnaðarsinnum úr
röðum múslíma í ríkjunum tveimur.
Á móti árás að fyrrabragði
Grannþjóðir Ástrala gagnrýndu
harkalega í gær þau ummæli Johns
Howards forsætisráðherra að hann
myndi ef þörf krefði gera árás að
fyrrabragði á hryðjuverkamenn ef
þeir ráðgerðu árás á Ástralíu.
Göng undir Vesturlandsveg
Íbúar við Helgafell í Mosfellsbæ
hafa gengist fyrir undirskriftasöfn-
un þar sem þess er krafist að gerð
verði göng undir Vesturlandsveg til
að draga úr slysahættu. Hafa alls
1.238 manns ritað undir skjalið.
Deilt um dreifistöðvar
Sjónvarpsstöðvarnar og fleiri
hagsmunaaðilar deila sín í milli um
dreifistöðvar fyrir stafrænt sjón-
varp. Talið er að kosta myndi um 1,5
milljarða króna að koma slíku kerfi á
fót.
Loka leikskólum í mánuð
Leikskólar Reykjavíkur vilja fá að
loka stofnunum í einn mánuð í sum-
ar til að spara fé þar sem reksturinn
sé mjög erfiður. Talsmenn atvinnu-
rekenda vilja að sveigjanleiki verði
meiri í sumarleyfum leikskólanna.
2002 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ATLI SAKNAR Á STUNDUM SPARISJÓÐSINS / B2
ÓMAR Valdimarsson knatt-
spyrnumaður, sem leikið með
Fylkismönnum undanfarin ár,
hefur gert munnlegt samkomulag
við sitt gamla félag, Selfoss, um
að ganga til liðs við félagið og
jafnframt því að leika með liðinu
mun hann verða aðstoðarmaður
Kristins Björnssonar þjálfara.
Ómar er 32 ára gamall traust-
ur varnarmaður sem á að baki 53
leiki með Fylkismönnum í efstu
deild en hann gekk í raðir Árbæj-
arliðsins frá Selfyssingum fyrir
nokkrum árum.
Ómar verður Selfyssingum
góður liðsstyrkur í 2. deildinni á
komandi sumri en mikill hugur
er í Selfyssingum sem urðu í
fimmta sæti í deildinni á síðustu
leiktíð.
Ómar til
Selfoss
Það er mikill hugur í okkar her-búðum eftir afleitt tímabil síð-
astliðið sumar. Ég ber mikla virð-
ingu fyrir leikmönnum liðsins og
þeirri vinnu sem þeir hafa lagt á
sig síðastliðin þrjú ár. Þar af leið-
andi gat ég ekki skorast undan
þegar leitað var til mín og ég beð-
inn að taka við liðinu á nýjan leik,“
sagði Heimir, en hann þjálfaði
kvennalið ÍBV á árunum 1999–
2001.
Olga Færseth, sem er 27 ára, lét
fyrst að sér kveða með Keflavík 16
ára gömul árið 1991, skoraði 54
mörk í 12 leikjum í næstefstu
deild. Þaðan lá leið hennar til
Breiðabliks, þar sem hún skoraði
45 mörk í 37 leikjum í efstu deild
og Olga varð Íslandsmeistari með
Blikum 1992 og 1994.
Olga hefur leikið með KR frá
árinu 1995 – hefur skorað 144
mörk í 101 leik í efstu deild. Var
Íslandsmeistari með KR 1997,
1998, 1999 og 2002. Hún varð
markahæst í efstu deild 1994, 1997,
1998, 2000, 2001, og 2002 en hún er
eina knattspyrnukonan sem hefur
skorað 20 mörk í deildinni þrjú ár í
röð, 2000–2002. Olga er marka-
hæsti leikmaður efstu deildar frá
upphafi með 189 mörk í 138 leikj-
um.
Olga Færseth
semur við ÍBV
OLGA Færseth, landsliðskona í knattspyrnu, mun leika með liði ÍBV
á næstu leiktíð, en Olga hefur leikið með liði KR frá árinu 1995 og
varð m.a. Íslands- og bikarmeistari með liðinu á sl. leiktíð. Heimir
Hallgrímsson verður þjálfari Eyjaliðsins og segir hann að Pálína
Bragadóttir muni einnig leika með ÍBV á næstu leiktíð, en Pálína er
28 ára varnarmaður og hefur leikið 48 leiki með KR í efstu deild.
Morgunblaðið/Golli
Valsmenn fögnuðu auðveldum sigri á ÍR-ingum í toppbaráttu 1. deildar í handknattleik í Austurbergi á laugardaginn, 31:19. Myndin
hér að ofan var tekin í leik FH og Stjörnunnar í Kaplakrika, þar sem liðin skildu jöfn á sunnudagskvöld, 25:25. FH-ingar undirbúa sig
undir að taka aukakast fyrir framan varnarmúr Stjörnunnar. Allt um leiki helgarinnar á B6, B7, B8, B9 og B10.
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Þriðjudagur
3. desember 2002
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað C
Kaupþing býður þér persónulega ráðgjöf um skipulag
lífeyrissparnaðar. Bankinn hefur í vörslu sinni fjölbreytt
úrval lífeyris- og séreignarsjóða. Kaupþing er því sann-
kallaður stórmarkaður í lífeyrismálum. Þar færð þú allt
á einum stað: viðbótarlífeyrissparnað, fjölbreyttar fjár-
festingarleiðir, sérfræðiráðgjöf og persónulega þjónustu.
Hafðu samband í síma 515 1500 eða komdu við í Ármúla 13
og kynntu þér víðtæka þjónustu okkar á sviði lífeyris-
mála. Einnig getur þú fengið ráðgjafa heim þegar þér
hentar.
Stórmarkaður
í lífeyrismálum
– fyrir þína hönd
Mengun
fyrritíma
Reykspúandi
katlar 6
Áberandihúsvið
Hverfisgötu
VellirviðÁstjörn
Hús
gasstöðvar-
stjórans 10
Mikil
uppbygging
hafin 26
!
! " # $
%
"
&'
(
#) *
!" # $
%
& " ' ( ' "
! #
' ' " " $$ & " % (
! #& ' ' " " $
&" % (
)
*
'
*
+,- .
+,- .
" % ' ( ' " " ! # $
&
/
/
! (
+
,
--. -/. , -00-
01*2 *
# 2
'3
456
-27
8
3
,
9
#
:*;
'
:*;
(*1
:*;
'
:*;
1
" # $
%
-. % *
=
2 . >>>
= 2? @<< A
!/
!/
"#
23
2? @ A 40/
4
5
--
45
6
0
457
-.404
489:
/
7:96
;98
<<
,( " <
, . " -5.44. 4.4-. -00-
8 *
+
%
!$ %!!
#$%
##
. .
NÚ benda flestar upplýs-
ingar til þess að sú breyting
að fara úr fullu geislunarrófi
sólarljóssins utanhúss í
slæma gervilýsingu innan-
húss sé skaðleg heilsu okkar.
Þetta kemur fram í grein
eftir Guðjón L. Sigurðsson,
rafmagnsiðnfræðing hér í
blaðinu í dag. Hann segir, að
vísbendingar hlaðist upp og
séu sannfærandi. Í ljósi laga
og reglugerða um hollustu
og heilbrigði á vinnustöðum
er ekki líklegt, að við kom-
umst upp með að sniðganga
þessar vísbendingar öllu
lengur.
Við verðum að virkja þau
áhrif, sem góð lýsing hefur á
okkur, og knýja fram breyt-
ingar á því umhverfi, sem
við lifum og hrærumst í, til
að bæta heilsu okkar og vel-
líðan. / 42
Lýsing
og heilsa
„NÝ lög um fasteignakaup tóku
gildi 1. júní sl. og þá breyttust ýmis
atriði varðandi kaup og sölu fast-
eigna. Nýuppkveðinn dómur hæsta-
réttar varðar hins vegar viðskipti
sem áttu sér stað fyrir gildistöku
nýju laganna og enn hefur enginn
dómur fallið mér vitanlega, sem
byggist á þeim. Þess vegna er ekk-
ert hægt að segja að svo stöddu,
hvernig tekið verður á svona mál-
um í framtíðinni.“
Þannig komst Guðrún Árnadótt-
ir, formaður Félags fasteignasala,
að orði, þegar hún var spurð, hvaða
áhrif það myndi hafa á starfsemi
fasteignasala almennt, að nýverið
var kveðinn upp dómur í hæstarétti
þar sem fasteignasala og seljandi
eignar voru bæði gerð bótaskyld
vegna galla á íbúð.
„Eftir þennan dóm hæstaréttar
vona ég, að sá tími færist nær, að
ástandsskýrslur verði innleiddar.
Sjálf tel ég það heppilegast við sölu
á fasteignum, að fyrir liggi ástands-
skýrsla unnin af byggingarfróðum
mönnum. Það yrði án efa til bóta í
fasteignaviðskiptum,“ sagði Guðrún
ennfremur.
„Félag fasteignasala lagði á það
áherzlu, að ástandsskýrslur yrðu
lögbundnar, þegar frumvarp til
nýrra laga um fasteignakaup voru
til meðferðar hjá Alþingi í fyrravet-
ur.
Ákvæði þar að lútandi voru í
lagafrumvarpinu en náðu því miður
ekki fram að ganga.“
Jafnvægi á markaðnum
Guðrún kvað þetta ár hafa verið
mjög gott í fasteignasölu. „Það er
töluvert framboð en eftirspurn er
líka góð,“ sagði hún. „Það má segja,
að það sé jafnvægi milli framboðs
og eftirspurnar.“
Guðrún kvaðst álíta, að verð á
íbúðarhúsnæði hefði lítið breytzt og
sagði að lokum: „Verðlag á fast-
eignum var í hámarki í árslok 2000
og hefur haldið í við verðlag síðan
nema að það hefur aðeins gefið eftir
í stærri eignum.“
Ástandsskýrslur þyrftu
að vera lögbundnar
Morgunblaðið/Golli
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Viðskipti 13/14 Hestar 37
Erlent 15/17 Minningar 32/35
Höfuðborgin 18 Bréf 40/41
Akureyri 19 Dagbók 42/43
Suðurnes 20 Kvikmyndir 52
Landið 21 Fólk 44/49
Umræðan 25/31 Bíó 46/49
Listir 22/24 Ljósvakar 50/51
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
HÚN Embla Eir Kristinsdóttir,
eins árs, fór í jólaklippinguna í
gær og fylgdist grannt með starfi
hárgreiðslukonunnar í speglinum.
Ekki var verra að fá sleikjó í leið-
inni og líklega hefur bara verið
gaman að skreppa í klippingu og
vera innan um fullorðnu kon-
urnar sem fengu engan sleikjó
eins og Embla Eir.
Morgunblaðið/RAX
Í jólaklipp-
ingunni
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir sakborn-
ingi, sem handtekinn var 26. nóv-
ember vegna umfangsmikils
fíkniefnamáls.
Var sakborningurinn úrskurð-
aður í gæslu til 17. desember.
Tveir menn til viðbótar sæta
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
lögreglu á málinu, sem varðar
smygl á 900 grömmum af
amfetamíni og 1 kg af hassi til
landsins.
Gæsluvarðhald staðfest
Norskt fyr-
irtæki í stað
Skanska AS
LANDSVIRKJUN hefur sam-
þykkt að norska jarðflutningsfyr-
irtækið AS Gruppen komi inn í
verktakahóp Ístaks, Phil & Søn og
fleiri aðila í stað sænska fyrirtæk-
isins Skanska AS sem hætti við
þátttöku í útboði vegna virkjunar-
framkvæmda á Austurlandi í byrj-
un nóvember.
Að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjun-
ar, var bjóðendum í stíflugerð
Kárahnjúkavirkjunar tilkynnt í
gær að AS Gruppen uppfyllti kröf-
ur Landsvirkjunar og hefði verið
samþykkt inn í verktakahópinn.
Um lokað útboð er að ræða.
Þorsteinn segir ekki liggja fyrir
hvort AS Gruppen komi einnig í
stað Skanska AS í gangagerðartil-
boði verktakahópsins. „En tilboð
verða opnuð á föstudag svo verk-
takarnir verða að fara að flýta
sér.“
♦ ♦ ♦
ÞRIGGJA ára drengur varð fyrir
bifreið í gærkvöld þegar hann
hljóp yfir götu á Sauðárkróki.
Slysið varð laust eftir klukkan
19 og lenti drengurinn framan á
horni bifreiðarinnar með þeim af-
leiðingum að hann fékk skrámu á
höfuðið. Þess ber að geta að bif-
reiðin var á mjög lítilli ferð.
Drengurinn var fluttur á sjúkra-
hús á Sauðárkróki og stóð til að
flytja hann á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri til frekari skoð-
unar.
Drengur
varð fyrir
bifreið
Sauðárkrókur