Morgunblaðið - 03.12.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í STARFS- og fjárhagsáætlun
Leikskóla Reykjavíkur er gert ráð
fyrir að allir leikskólar í Reykjavík
verði lokaðir í einn mánuð í sumar.
Áætlunin, sem þegar hefur verið
samþykkt í borgarráði, verður
lögð fyrir borgarstjórn á fimmtu-
dag. Að sögn Bergs Felixsonar,
framkvæmdastjóra Leikskóla
Reykjavíkur, er enn ekki búið að
útfæra hugmyndirnar að fullu og
því óvíst hvort um framtíðarfyr-
irkomulag yrði að ræða og hvort
allir skólarnir í borginni yrðu lok-
aðir á sama tíma. Þá er einnig
óvíst á hvaða tímabili skólunum
yrði lokað. Að mati Samtaka at-
vinnulífsins er sveigjanleiki innan
tímarammans æskilegastur.
„Börn hafa alltaf haft 11 mánaða
dvöl á leikskólum á ári, öll þurfa
þau að fara í mánaðarfrí,“ segir
Bergur Felixson. „Breytingin sem
tillögurnar boða felst í því að börn-
in taki fríið sitt öll á sama tíma og
á meðan fari engin starfsemi fram
á leikskólunum. Við höfum reynt
að vera sveigjanlegri við foreldra,
en getum ekki verið jafnsveigj-
anleg núna, einfaldlega vegna þess
að við þurfum að spara, draga úr
rekstrarkostnaði til að falla inn í
þann fjárhagsramma sem okkur er
gert að vera innan.“
Bergur sagðist gera ráð fyrir að
með þessum aðgerðum myndu
sparast að minnsta kosti 12 millj-
ónir króna. Hann sagðist þó gera
ráð fyrir ennfrekari sparnaðarað-
gerðum. „Það er óhagsætt fyrir
okkur að hafa leikskólana opna all-
an ársins hring. Við sitjum við
sama borð og aðrar stofnanir
borgarinnar. Við höfum aðeins úr
ákveðnu fé að spila. Þetta eru nýir
stjórnsýsluhættir. En við fengum
ekki eins mikið fé og við hefðum
viljað og þurfum því að spara.“
Þar sem tillögurnar hafa ekki
verið samþykktar í borgarstjórn
hafa foreldrum og starfsfólki leik-
skóla ekki verið kynntar hug-
myndirnar.
Bergur sagðist ekki hafa orðið
fundið fyrir óánægju frá foreldrum
eftir að málið komst í hámæli í
fjölmiðlum um helgina, en að
starfsfólk hefði hins vegar lýst
ánægju með hugmyndirnar. „Við
vitum að leikskólastjórar og
starfsfólk er flest á því að það sé
betra fyrir starfsemina faglega séð
að loka skólunum í vissan tíma, að
skólinn hafi ákveðið upphaf og
endi líkt og grunnskólinn.“
Bergur benti á að önnur stór
sveitarfélög höguðu málum þegar
þannig að allir leikskólarnir væru
lokaðir á sama tíma.
Gæti komið niður
á atvinnulífinu
„Þjónusta leikskólanna er mjög
mikilvæg fyrir atvinnulífið og
röskun sem kemur niður á for-
eldrum og börnum kemur einnig
óneitanlega niður á atvinnulífinu,“
sagði Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, við
Morgunblaðið í gær. „Meiri sam-
ræming á því hvenær skólunum er
lokað þarf þó ekki að vera af því
slæma. En ég held að það myndi
nýtast öllum ef ákveðinn sveigj-
anleiki væri fyrir foreldra innan
tiltölulega þröngs tímaramma. Það
er virðingarvert af leikskólum að
stefna að því að halda sig innan
þess fjárhagsramma sem þeim er
sniðinn. En það hefur ekki verið
kynnt opinberlega hvaða hagræði
er af því að loka öllum skólum í
ákveðinn tíma frekar en að draga
verulega úr starfsemi á þröngu
tímabili. Það gæti dregið mikið úr
röskuninni sem hlýst af þessum
lokunum ef hægt er að hafa ein-
hvern sveigjanleika í framkvæmd-
inni.“
Leikskólar Reykjavíkur vilja loka öllum leikskólum borgarinnar í einn mánuð
Atvinnurekendur telja
sveigjanleika æskilegan
Morgunblaðið/Ómar
Börnin á Tjarnarborg bíða í röð eftir að komast í seinna kaffið einn rigningardaginn.
Spara þarf
í rekstri
leikskólanna
á næsta ári
FJÓRIR menn með pólskt ríkisfang,
eru grunaðir um innbrot í þjónustu-
miðstöðina Vegamót á Snæfellsnesi
á sunnudagskvöld. Fór lögreglan í
Snæfellsbæ fram á gæsluvarðhald
yfir þremur þeirra í gær, en dómari
við Héraðsdóm Vesturlands tók sér
frest til dagsins í dag til að taka af-
stöðu til krafnanna. Jafnframt lagði
lögregla fram beiðni um húsleit-
arheimild á dvalarstað mannanna.
Ekki var farið fram á gæsluvarðhald
yfir fjórða manninum þar sem hann
liggur á sjúkrahúsi vegna meiðsla
sem hann hlaut þegar hann kastaði
sér út úr sendibifreið skömmu áður
en lögregla stöðvaði för mannanna.
Líklegt er að lögregla muni krefjast
gæsluvarðhalds yfir honum þegar
hann útskrifast af sjúkrahúsinu.
Hann mun ekki alvarlega slasaður.
Eigandi þjónustumiðstöðvarinnar
átti leið á staðinn fyrir tilviljun um
áttaleytið í fyrrakvöld og kom þar
að mönnunum innandyra. Þeir
höfðu brotið sér leið um glugga
bakatil og voru búnir að stafla upp
ýmsum varningi sem þeir ætluðu
væntanlega að taka með sér. Eftir
að eigandinn hafði gert vart við sig
flúðu þeir á brott á hvítri Volkswag-
en Transporter-sendibifreið. Eig-
andinn gerði lögreglu þegar viðvart
og voru lögreglubílar sendir frá
Grundarfirði, Ólafsvík, Stykk-
ishólmi og Borgarnesi.
Slasaður og gegnblautur
Ólafur Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Snæfellsnesi, segir að
lögreglumenn frá Borgarnesi hafi
mætt sendibílnum við Hítará. Þeir
sneru þegar við og hófu eftirför og
fljótlega var bíllinn stöðvaður. Þá
var aðeins einn maður í bílnum en
opin hliðarhurð vakti grunsemdir
um að hinir hefðu stokkið út úr bif-
reiðinni. Lögregla fór því að svipast
um eftir hinum og fljótlega fundust
tveir þeirra ofan í skurði skammt frá
þeim stað sem bíllinn var stöðvaður.
Eftir að lögreglumenn frá Snæfells-
nesi bættust í hópinn fannst sá þriðji
en hann hafði kastast ofan í skurð og
var bæði slasaður og gegnblautur.
Hann var fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi
og kom þar í ljós að hann hafði hlot-
ið áverka á hrygg og fingurbrotnað.
Hinir þrír voru fluttir í fanga-
geymslur í Stykkishólmi. Ólafur seg-
ir að mennirnir neiti því að hafa
brotist inn á Vegamótum en hafi
ekki gefið trúverðugar skýringar á
því hvers vegna þrír þeirra stukku
út úr bifreiðinni eftir að lögregla gaf
þeim merki um að stöðva. Við yf-
irheyrslur kváðust mennirnir vera
pólskir ríkisborgarar og hafa komið
til landsins sem ferðamenn fyrir um
1½–2 mánuðum. Þeir voru skilríkja-
lausir en sögðust geyma vegabréf
sín á gistiheimili í Reykjavík. Rík-
islögreglustjóri aðstoðar við rann-
sókn málsins og kannar m.a. hvort
Pólverjarnir séu í raun þeir sem þeir
segjast vera og hvort þeir hafi kom-
ist í kast við lögin í öðrum löndum.
Alls kyns munir í bílnum
Sendibílnum sem mennirnir óku
var stolið á höfuðborgarsvæðinu
fyrir nokkru. Hún hafði verið af-
skráð en var með númeraplötur af
annarri bifreið þegar lögregla
stöðvaði hana. Í bílnum fundust ýms-
ir munir sem eru taldir vera þýfi úr
innbrotum. Óskar lögregla eftir því
að sumarbústaðaeigendur og aðrir
kanni hvort brotist hafi verið inn hjá
þeim. Þeir sem hafa upplýsingar um
ferðir sendibílsins eru beðnir um að
hafa samband við lögreglu.
Erlendir ferðamenn voru
staðnir að verki við innbrot
Þrír menn köstuðu sér út úr bíl á
fullri ferð á flótta undan lögreglu
&# '()
"
)(
,
7*
=5
'
3
7
-
NOKKUÐ hefur sjatnað í Lagar-
fljóti eftir að dró úr rigningu á
Austurlandi í gær og fyrradag en
síðdegis hélt þó áfram að rigna.
Vegurinn milli Hallormsstaðar og
Egilsstaða er lokaður á nokkur
hundruð metra kafla þar sem hann
liggur næst fljótinu. Vatn hefur
sjatnað á Egilsstaðaflugvelli og hafa
flugvélar því getað ekið milli flug-
brautar og flughlaðs en aksturs-
braut þar á milli var undir vatni um
helgina.
Starfsmenn vatnamælingasviðs
Orkustofnunar hafa mælt rennsli og
vatnshæð Lagarfljóts síðustu daga.
Mesta rennslið var 950 rúmmetrar á
sekúndu á sunnudag en í gær var
það rétt rúmlega 800 rúmmetrar.
Meðalrennsli í fljótinu er 120 til 130
rúmmetrar. Vatnshæðin við Lagar-
fljótsbrúna var komin niður í 22,39
m yfir sjó kl. 15.05 í gær en mest
varð hún 22,99 metrar. Upplýsingar
um vatnshæð og rennsli má lesa á
vef Orkustofnunar, os.is.
Í rigningunum um miðjan októ-
ber mældist vatnshæðin mest 22,95
metrar yfir sjó. Er þessi vatnshæð
um þremur metrum hærri en venju-
legt má teljast á þessum árstíma.
Vatnsborð
Lagarfljóts
lækkar
lítillega
FEÐGAR, sem voru í lítilli
hópflutningabifreið sem hafn-
aði í skurði nálægt afleggjaran-
um að Gíslholti í Rangárvalla-
sýslu á Suðurlandsvegi í
fyrrinótt, gátu klifrað út um
glugga farþegamegin og fengu
skjól í bifreið vegfaranda sem
varð sjónarvottur að slysinu.
Vatn úr skurðinum lak inn í bif-
reiðina og varð hnédjúpt. Hvor-
ugur mannanna var í bílbelti.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Hvolsvelli virðist
sem ökumaðurinn, karlmaður
um fertugt, hafi misst stjórn á
bílnum í hálku stuttu eftir að
hann ók fram úr öðrum bíl. Bíll-
inn rásaði til og fór síðan út af
veginum og ofan í skurðinn en
hélst á réttum kili. Ökumaður
bílsins sem ekið var fram úr
hringdi þegar í Neyðarlínu og
var mikið lið boðað á staðinn
enda var á þeirri stundu ekki
vitað með vissu hversu margir
voru inni í bílnum. Feðgarnir
gátu smeygt sér út um rúðu
farþegamegin og sátu í bíl
mannsins þegar sjúkra- og
slökkviliðsbílar frá Hvolsvelli
komu á vettvang. Ökumaðurinn
var meiddur á upphandlegg og
höfði og var hann fluttur á
slysadeild Landspítalans í
Fossvogi.
Feðgum
tókst að
smeygja sér
út um rúðu
14 ÁRA stúlka sem slasaðist al-
varlega í bílveltu á Holtavörðu-
heiði á föstudagskvöld er á
batavegi. Í gærkvöldi var henni
þó enn haldið sofandi í öndun-
arvél á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi.
Konunni sem ók bifreið sem
hvolfdi ofan í Hólmsá síðdegis á
föstudag er enn haldið sofandi í
öndunarvél á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut.
Líðan hennar er óbreytt að
sögn vakthafandi læknis.
Enn á
gjörgæslu
eftir bílslys