Morgunblaðið - 03.12.2002, Qupperneq 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 39
FREKAR fámennt var í
miðborginni aðfaranótt
laugardags og sunnudags,
líklega um 400 þegar flest
var hvort kvöldið. Fjórar líkams-
árásir voru kærðar og jafnmargir
fluttir á slysadeild. Meiðsl þeirra
voru ekki talin alvarleg. Í einu til-
vikinu beit maður annan í lærið. Sá
fékk óblíð viðbrögð og var barinn
ítrekað í andlitið.
Tilkynnt var um 41 umferðar-
óhapp um helgina. Alvarlegt um-
ferðarslys varð á Suðurlandsvegi
við Hólmsá síðdegis á föstudag og
um kvöldið varð umferðarslys á
brúnni yfir Vesturlandsveg við Vík-
urveg. Þarna rákust tvær bifreiðir
saman og var annar ökumaðurinn
fluttur í sjúkrabifreið á slysadeild
með höfuðmeiðsl en hinn ætlaði
sjálfur að leita sér aðstoðar á slysa-
deild. Umferðardeildin gekkst fyrir
umferðarátaki bæði á föstudags- og
laugardagskvöld. Alls voru hátt í
1.200 ökumenn stöðvaðir. Lögreglu-
menn ræddu við ökumenn og af-
hentu þeim blað með upplýsingum
um viðurlög við ölvunarakstri. Um
helgina voru tilkynnt 22 innbrot. Í
einu þeirra var farið inn í bifreið og
stolið fartölvu að verðmæti um
350.000 kr.
Brotist var inn í í kirkju og stolið
fartölvu prestsins og peningum úr
samskotabauk. Þá var tilkynnt um
13 þjófnaði, 9 skemmdarverk og
þjófnað á átta ökutækjum.
Hótuðu stúlku lífláti
Á föstudagskvöld réðust tveir
hettuklæddir menn með hníf á
stúlku í austurborginni. Annar mun
hafa slegið stúlkuna í kviðinn en
hinn hafa tekið hnífinn og strokið
honum við kinn stúlkunnar. Þá hót-
uðu þeir henni og kærasta hennar
lífláti. Við svo búið hlupu þeir í
burtu. Aðfaranótt laugardags var
tilkynnt um sofandi mann upp á
þaki veitingahúss í miðborginni. Í
ljós kom að maðurinn var mjög ölv-
aður. Fenginn var körfubíl frá
slökkviliðinu til að ná manninum
niður. Kvaðst hann hafa leitað
þarna vars, þar sem hann hafi verið
að flýja menn sem ætluðu að skaða
hann.
Ók á lögreglubíl og
bakkaði burtu
Aðfaranótt laugardags veittu lög-
reglumenn, sem eftirlit hafa með
myndavélunum í miðborginni, at-
hygli fjórum mönnum en einn þeirra
var með stóran hníf sem stóð út
undan peysu hans. Fylgdu þeir
mönnunum eftir í myndavélunum
þar til lögregla kom að þeim þar
sem þeir voru að fara inn á veit-
ingastað. Hald var lagt á hnífinn.
Í hádeginu á sunnudag var til-
kynnt um eld í verkstæði við Sæv-
arhöfða 2. Þarna hafði orðið laus
eldur í bílaþvottavél og náði eld-
urinn að læsa sig í þakklæðningu og
þurfti að rjúfa gat á þakið til að
komast að eldinum. Á sunnudaginn
þegar lögreglumenn voru að að-
stoða ökumann í miðborginni við að
koma bílnum af götunni var bifreið
ekið á lögreglubifreiðina. Bifreiðinni
var síðan bakkað og ekið á brott.
Eftir skamma eftirför tókst lög-
reglumönnunum að þvinga öku-
manninn til að stöðva bifreið sína en
ökumaðurinn reyndist mjög ölvað-
ur.
Úr dagbók lögreglu 29. nóv.–2. des.
Peningum stolið
úr samskotabauk
DREGNIR hafa verið út vinnings-
hafar í spurningaleik sem Marg-
miðlun stóð fyrir í október. Leik-
urinn fór fram á meðal gesta
Agora-fagsýningarinnar, laug-
ardaginn 12. október sl., og var gest-
um boðið að svara nokkrum lauflétt-
um spurningum og skila svarblöðum
á sýningarbás Margmiðlunar.
Verðlaunin voru þrjár ADSL-
gulláskriftir frá Margmiðlun, auk
ADSL-mótalds. Verðmæti hvers
vinnings eru tæplega 40 þúsund
krónur. Þrír þátttakendur voru
dregnir úr pottinum, þau eru: Hlédís
Guðmundsdóttir, Reykjavík, Gunnar
J. Gunnarsson, Reykjavík og Jón
Víkingur, Reykjavík.
Vinningshafar í Agora-leik
Hörður Harðarson, þjónustustjóri Margmiðlunar, Hlédís Guðmundsdóttir,
Gunnar J. Gunnarsson, Jón Víkingur og Halldór Másson markaðsstjóri.
SPURNINGASPILIÐ Ísland er
komið út. Þetta er íslenskt spil þar
sem leikmenn ferðast um landið. Í
splinu erum 2.100 spurningar, leik-
ir, ferða- og lottóvinningar. Spurn-
ingaflokkarnir eru sex, náttúru-
fræði, atvinnuhættir, íþróttir,
listir, landafræði og saga.
Í spilinu eru ekki skrifuð niður
stig heldur er greitt í peningum og
þannig er hægt að nota stigin sín
(peningana) áfram í leiknum því ef
leikmaður lendir á landvættum má
versla. Hægt er að kaupa eignir,
t.d. Kárahnjúka, og síðan inn-
heimta leigugjald ef leikmenn
lenda á eigninni.
Hönnun á spilinu annaðist Stef-
án Sturla Sigurjónsson. Útlits-
hönnun peninga og umbúða sá
Vignir Jóhannsson um. Ljósmynd-
ir eru teknar af Ragnari Th. Sig-
urðssyni og Mats Wibe Lund.
Grafík var í höndum Ólafs Th.
Ólafssonar. Spurningar sömdu
ýmsir sérfræðingar og kort eru frá
Landmælingum ríkisins. Fjöl-
skylduspilið Ísland hefur verið í
vinnslu síðastliðin þrjú ár, segir í
fréttatilkynningu.
Spurningaspilið
Ísland komið út