Morgunblaðið - 03.12.2002, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 41
alltaf á föstudögum
Klapparstíg 27, sími 552 2522
Kerrupokar
Svefnpokar
Bílstólapokar
Mikið
úrval
Afar og ömmur,
mömmur og pabbar,
synir og dætur!
Vinsælu
gjafakortin
okkar eiga vel við núna.
Barnamyndir
Fermingarmyndir
Stúdentamyndir
Fjölskyldumyndir
Ömmu- og afamyndir
Grensásvegi 11,
sími 568 0150.
w
w
w
.h
m
.is
Kr.
9.8
50
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ
Litir:
Kamel
Dökkbrún
Stærðir:
34-46
Ullarkápur
með kashmir
Sími 5 88 44 22
Samtökin Litlir englar, samtök fyr-
ir fólk sem hefur misst börn í móð-
urkviði, í fæðingu og stuttu eftir
fæðingu ætla ásamt Braga Skúla-
syni sjúkrahúspresti að standa fyrir
minningarathöfn á morgun, mið-
vikudaginn 4. desember, kl. 16 í
bænahúsi Fossvogskirkju. Athöfnin
er haldin til að minnast litlu engl-
anna okkar. Allir velkomnir.
Viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands efnir til málstofu mið-
vikudaginn 4. desember kl. 16–17.30,
í húsnæði Hagfræðistofnunar að
Aragötu 14. Þar mun Friðrik Már
Baldursson doktor flytja erindið:
Grænn raforkumarkaður.
Á MORGUN
Morgunverðarfundur Jafnrétt-
isráðs verður haldinn þriðjudaginn
3. desember í fundarsalnum Dal,
Grand Hótel Reykjavík, kl. 8–10.
Morgunverðarhlaðborð er á 990 kr.
Elín R. Líndal, formaður Jafnrétt-
isráðs, ávarpar fundinn og síðan mun
Þorgerður Einarsdóttir lektor kynna
meginniðurstöður ESB-verkefnisins
Towards a Closing of the Gender Pay
Gap (Lokum launagjánni) og einkum
íslenska hluta þess. Að lokinni kynn-
ingu Þorgerðar gefst færi á fyr-
irspurnum og umræðum um næstu
skref. Heimasíða verkefnisins er,
http://www.likestilling.no/gender-
paygap/ Allir velkomnir.
Jólaskemmtun Krafts, stuðnings-
félags fyrir ungt fólk sem greinst hef-
ur með krabbamein og aðstand-
endur, verður haldin á Kaffi
Reykjavík, í dag, þriðjudaginn 3. des-
ember kl. 20. Söngur, töfrar, grín og
glens er meðal þess sem boðið verður
upp á. Skemmtunin er fyrir alla fjöl-
skylduna.
Fræðslufundur um akrýlamíð
Manneldisfélag Íslands boðar til
fræðslufundar í Norræna húsinu,
þriðjudaginn 3. desember kl. 16.30.
Elín Guðmundsdóttir, forstöðumaður
matvælasviðs Hollustuverndar rík-
isins, mun halda fyrirlestur um hinn
nýja vágest í matvælum, akrýlamíð.
Síðastliðið vor greindi Livsmedels-
verket í Svíþjóð frá því að ýmis al-
geng matvæli gætu eftir hita-
meðhöndlun innihaldið töluvert
magn akrýlamíðs, sem er krabba-
meinsvaldandi efni. Fjölmargar
rannsóknir hafa síðan verið gerðar og
eru nú í gangi víða um heim. Hér á
landi fylgist Hollustuvernd ríkisins
grannt með stöðu mála, og er byrjuð
að skoða magn akrýlamíðs í íslensk-
um matvælum. Um þetta og fleira
varðandi akrýlamíð mun Elín Guð-
mundsdóttir fræða fundargesti í
Norræna húsinu þriðjudaginn 3. des-
ember kl. 16.30. Allir eru velkomnir.
Opið hús hjá Samhjálp kvenna
Samhjálp kvenna, hópur til stuðnings
konum sem greinast með brjósta-
krabbamein, verður með opið hús í
Skógarhlíð 8 í Reykjavík, húsi
Krabbameinsfélagsins, þriðjudaginn
3. desember kl. 20. Gunnar Eyjólfs-
son leikari les upp. Unglingakór
Digraneskirkju flytur jólalög undir
stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur.
Síðan verður jólaföndur. Boðið verð-
ur upp á kaffi, heitt súkkulaði og pip-
arkökur.
Í DAG
Steinsteypufélag Íslands stendur
fyrir opinni námstefnu um sprungur
í mannvirkjum föstudaginn 6. desem-
ber kl. 13–17, í tilefni 30 ára afmælis
félagsins. Námstefnan verður haldin
á Scandic Hótel Loftleiðum. Á nám-
stefnunni verður m.a. komið inn á
eftirfarandi þætti: Sprungumyndun í
steypu á fyrstu sólarhringum hörðn-
unar, Undirstöðuatriði rýrnunar,
ytri áhrif s.s. vegna vatns og vinds,
áhrif steypuþekju og yfirlagna o.fl.
Erindi halda: Bruce Perry frá Grace
Construction Products, Torfi Sig-
urðsson, verkfræðingur hjá verk-
fræðistofunni Hönnun hf., Thor Arne
Hammer frá Sintef, rannsókn-
arstofnunni í Noregi, og Ólafur
Wallevik og Hreinn Jónsson, verk-
fræðingar hjá Rb. Skráning fer fram
hjá Steinsteypufélaginu í síma eða
tölvupósti til steinsteypufelag-
@steinsteypufelag.is.
Á NÆSTUNNI
EINS og undanfarin ár gefa
Barnaheill, Save the Children á Ís-
landi, út jólakort til styrktar starfi
samtakanna í þágu barna. Mark-
mið samtakanna er að vera mál-
svari allra barna og hafa frum-
kvæði að málum er varða réttindi
þeirra og velferð. Sex ný kort eru í
boði í ár. Öll kortin eru með gyll-
ingu eða silfuráferð og þeim fylgja
umslög.
Hægt er að fá jólakort Barna-
heilla á skrifstofu samtakanna á
Laugavegi 7, 3. hæð, panta í síma
eða með tölvupósti á netfangið
barnaheill@barnaheill.is. Auk þess
er hægt að skoða kortin og nálgast
pöntunarblað á vef samtakanna,
www.barnaheill.is.
Jólakort
Barnaheilla
Röng slóð
Slóð Tungumálamiðstöðvarinnar í
Graz er www.ecml.at. Slóðin var
röng í blaðinu á sunnudag.
LEIÐRÉTT
Norðurlandameistaramót í sam-
kvæmisdansi var haldið í Stavang-
er í Noregi laugardaginn 30. nóv-
ember. Frá Íslandi tóku þátt tvö
danspör: Jónatan Arnar Örlygsson
og Hólmfríður Björnsdóttir og
Björn Ingi Pálsson og Ásta Magn-
úsdóttir, bæði frá Dansíþrótta-
félaginu Gulltoppi í Reykjavík.
Norðurlandakeppnin er haldin ár
hvert í desember og er haldin til
skiptis á Norðurlöndunum. Heiðar
Ástvaldsson danskennari var einn
af dómurum keppninnar í ár.
Keppnin er öllum opin.
Jónatan Arnar og Hólmfríður
sigruðu í aldursflokki unglinga á
mótinu og urðu þar með Norður-
landameistarar þriðja árið í röð.
Þau sigruðu í fyrra, þegar keppnin
var haldin hér á Íslandi svo og
einnig árið þar áður. Norðmenn
urðu í öðru sæti og Danir í því
þriðja. Þess má geta að á Norð-
urlandameistaramóti er keppt í
báðum keppnisgreinunum.
Sunndaginn 1. desember var
haldin opin alþjóðleg danskeppni á
sama stað þar sem keppt var í
keppnisgreinunum í sitt hvoru lagi,
þ.e. keppt var sérstaklega í suður-
amerísku dönsunum og í sígildu
dönsunum. Í þeirri keppni tóku
bæði pörin einnig þátt. Þar sigruðu
þau Jónatan og Hólmfríður í suð-
ur-amerísku dönsunum og lentu í
2. sæti í sígildu dönsunum. Norskt
par sigraði í sígildu dönsunum.
Björn Ingi og Ásta komust þar
einnig í úrslit og höfnuðu í 6. sæti.
Norðurlanda-
meistarar í sam-
kvæmisdansi