Morgunblaðið - 03.12.2002, Síða 44
KVIKMYNDIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Fö 6/12 kl 20
Lau 28/12 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Lau 7/12 kl 20 ATH: Kvöldsýning
Su 8/12 kl 14,
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 5. des kl 20 - AUKASÝNING
Fi 12. des kl kl 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Forsalur
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
HERPINGUR e. Auði Haralds og
HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Lau 28/12 kl 20, Fö 10/1 kl 20
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Mi 4/12 kl 20, Su 8/12 kl 20, Má 30/12 kl 20
SÓL & MÁNI Nýr íslenskur söngleikur
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR TILBOÐSVERÐ KR. 2.800 GILDIR TIL JÓLA
Frumsýning 11. janúar
BROT AF ÞVÍ BESTA - UPPLESTUR OG
TÓNLIST
Jól í Kringlusafni og Borgarleikhúsi:
Rithöfundar lesa úr verkum sínum
Fi 5/12 kl 20, Fi 12/12 kl 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Lau 7/12 kl 20, lau 28/12 kl 20
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ - FRÁBÆR JÓLAGJÖF
"Grettissaga er stórkostleg leikhúsupplifun."
S.S og L.P. Rás 2
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
lau 7. des kl. 20, nokkur sæti, þri 17. des, uppselt, sun 29. des kl. 20, jólasýning laus sæti
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
mið 4. des, nokkur sæti, föst 6. des, örfá sæti,
mið 11. des, Félagsheimilinu Klifi, ÓLAFSVÍK, föst 13. des, LOKASÝNING FYRIR JÓL.
Sýningarnar á Sellófon hefjast kl 21.00
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Munið gjafakortin!
Fim. 5/12 kl. 21 Örfá sæti
Fös. 6/12 kl. 21 50. sýning - Uppselt
Fös. 13/12 kl. 21 Nokkur sæti,
síðasta sýning fyrir jól
Veisla í Vesturporti
Allra síðustu sýningar
í Vesturporti
fös. 6. des. kl. 21.00 örfá sæti laus
lau. 7. des. kl. 23
mið. 11. des. kl. 21
Vesturport, Vesturgata 18
Miðasala í Loftkastalanum,
Sími 552 3000 - www.senan.is
ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐIN
vestra reyndist stórmyndunum um
ævintýri Harry Potters og James
Bonds fengsæl, en þá að sjálfsögðu
á kostnað nýju myndanna.
Potter endurheimti toppinn,
marði fyrsta sætið og skipti þar
með við Bond sem færðist niður í
annað sæti í staðinn. Báðar mynd-
irnar hafa halað vel inn síðan þær
voru frumsýndar.
Fjórar nýjar myndir prýða
listann en allar líða þær nokkuð
fyrir ægiveldi áðurnefndra mynda.
Nýjasta verk Stevens Soderberghs,
hin metnaðarfulla Solaris, fær
þannig þokkalegasta skell. Soder-
bergh hefur undanfarin ár gert það
gott með myndum eins og Erin
Brockovich, Traffic og Ocean’s
Eleven, og hljóta dræmar móttökur
við nýju myndinni, sem skartar
George Clooney í aðalhlutverki, því
að valda vissum vonbrigðum. Nýj-
asta teiknimynd Disney, Treasure
Planet, og Eight Crazy Nights,
fyrsta teiknimyndin með æringjan-
um Adam Sandler í aðalhlutverki,
gera þá sömuleiðis minna en búist
var við. Hryllingsmyndin They þarf
þá sömuleiðis að lúta í gras.
Jólatíðin fer hins vegar vel með
framhaldsmyndina The Santa
Clause 2, þar sem hinn handlagni
heimilisfaðir Tim Allen bregður sér
í hlutverk sveinka.
Sætaskipti
risanna
!
"# $
%
&
'
()
(*)+
*)(
**),
*+)*
-)"
.)"
/),
/)-
/)/
++)
*+*).
**(),
*.)/
*/)*
/).
,)/
*+-).
")+
*+)+
Úr Harry Potter og leyniklefanum. Potter þiggur ráð hjá Dumbledore.
ELSKULEGAR og undraverðar?
Ég veit ekki hvort það á við mæðg-
urnar sem þessi mynd fjallar um, en
þær eru alveg ágætar og sannar
hversdagshetjur. Gætu verið vinkon-
ur manns. Þær eru taugaveiklaðar
og alltof óöruggar með sig og skilja
ekki alveg að lífshamingjan kemur
innan frá.
Móðirn Jane er vel stæð og ein-
stæð og tók að sér Annie, átta ára
svertingjastúlku, á efri árum til að
hafa eitthvað fyrir stafni. Nú er hún í
fitusogsaðgerð og á höttunum eftir
lækninum. Michelle er illa svekkt á
lífinu, á í ömurlegu hjónabandi og
tekst ekki að selja listmunina sem
hún föndrar í sífellu. Elizabeth er
leikkona sem bíður eftir stóra tæki-
færinu en sönn ástríða hennar liggur
í vandalausum hundum sem hún tínir
upp af götunni. Þetta er sérstök
mynd og eiginlega skyldusjón fyrir
allar konur. Það er ekki verið að
koma á framfæri neinum boðskap,
hvað þá að segja mikla eða merkilega
sögu, heldur verið að sýna hvernig
konur eru og einnig hlæja svolítið að
þeim ... nei, meira með þeim.
Allar eiga þær það sameiginlegt
að vera alltaf að hugsa um útlitið.
Hvaða kona þekkir það ekki? Halda
gjarna að lykilinn að lífshamingjunni
sé þar að finna og í væntanlegum
karlmönnum sem muni falla fyrir
þeim, hlutverkum sem þær muni fá
eða sjálfsöryggi sem þær muni öðl-
ast. Og auðvitað er svo Annie litla
farin að apa hegðunina eftir þeim,
komin með það á heilann að hún sé
feit og með sífellt samviskubit yfir
ofáti. Og Michelle sem þolir Annie
tæpast vonar samt að lífmóðir henn-
ar, dópistinn í ræsinu, hafi meiri
kosti en þær mæðgur, sem Annie
gæti mögulega erft.
Þetta eru ósköp klárar konur og
mann langar virkilega að tuska þær
til, sparka í rassinn á þeim. En um
leið og maður hugsar þannig, neyðist
maður til að líta í eigin barm. Það er
kannski ekki að ástæðulausu að leik-
konurnar ná allar hlutverkum sínum
mjög vel, og eru algerlega sannfær-
andi allan tímann.
Mörg atriði myndarinnar eru
skemmtilega fersk og frumleg. At-
riðið þar sem Elizabeth kemst á séns
með kvikmyndastjörnu og lætur
hann benda sér á sína líkamlegu
galla, gæti fengið hvaða konu sem er
til sökkva í sætinu. Og það er ynd-
islegt atriðið þegar Michelle lendir á
séns með stráknum, sem gæti verið
sonur hennar.
Ég var hálfhissa þegar ég var að
horfa á Lovely & Amazing. En því
meira sem ég hugsa um myndina, því
meira færast munnvikin upp á við.
Vinkona
mín … og ég
LOVELY AND AMAZING
Regnboginn, 101 bíófélag
Leikstjórn og handrit: Nicole Holofcener.
Kvikmyndat.: Harlan Bosmajian. Aðal-
hlutv.: Catherine Keener, Brenda Bleth-
yn, Emily Mortimer, Raven Goodwin,
Aunjanue Ellis, Jake Gyllenhaal og Der-
mot Mulroney. 89 mín. BNA. Good Mach-
ine 2001.
Hildur Loftsdóttir
RÓMANTÍK og sagnfræði eru
frekar óvenjulegir rekkjunautar sem
ná einkar vel saman í gamanmyndinni
Possession. Hún er á köflum framúr-
skarandi vel skrifuð og vitræn, róm-
antísk, fyndin, og döpur. Fléttar lag-
lega saman tveim tímaskeiðum og
ólíku menningarumhverfi gamla og
nýja heimsins. Bragðmikið handritið
ætti ekki að koma mjög á óvart því
það er byggt á samnefndri Bookers-
verðlaunaskáldsögu A.S. Byatts frá
1990.
Aðalsögupersónurnar eru Roland
Michell (Aaron Eckhart), bandarísk-
ur bókmenntafræðingur sem hefur
fengið styrk við rannsóknir á verkum
Randolphs Henry Ash (Jeremy
Northam), bresks 19. aldar ljóð-
skálds. Í miðju kafi rekst hann á ást-
arbréf Ash til kollega síns, skáldkon-
unnar Christabel LaMotte (Jennifer
Ehle). Michell hefur gert merkilega
uppgötvun því fræðimenn höfðu enga
hugmynd haft um kynni, hvað þá ástir
þessara góðskálda.
Michell fær prófessor Maud Bailey
(Gwyneth Paltrow), til liðs við sig í
rannsóknunum og í framvindu einkar
rómantísks verkefnis verða þau sjálf
ástfangin upp fyrir haus.
Neil LaBute, sem á meðal annars
að baki Nurse Betty, kemur á óvart
með frumlegt gamandrama með lip-
urri framvindu þótt hún flakki á milli
ólíkra persóna og tímabila. Gott hand-
rit og leikstjórn auk eftirminnilegs
leiks í nánast öllum hlutverkum,
stórum sem smáum. Eckhart brá fyr-
ir í gæðamyndinni The Pledge, sem
benti tvímælalaust til að þar færi eft-
irtektarverður leikari því Sean Penn
veit sínu viti. Hann stendur undir
væntingum sem Kaninn, utangarðs-
maðurinn í sjálfumglaðri, bresku
inteligensíunni sem hefur takmarkað
álit á töffaranum úr vestri. Paltrow
bregður fyrir sig tungutaki aðalsins
og kemst vel frá sínu, líkt og í Emmu.
Samleikur þessara ágætu leikara
og saga fellur þó í skuggann af fyr-
irferðarminna en átakanlegu ástar-
ævintýri viktorísku skáldanna Ash og
LaMotte (sem voru reyndar aldrei
til), og upplýkst með hverri mínút-
unni sem líður. Possession hefur því
ekki aðeins til að bera rómantísk,
sætsúr ástarævintýri heldur höndlar
LaBute söguefnið þannig að niður-
staðan er einnig hálfgildings njósna-
tryllir sem heldur áhorfandanum
föngnum. Sú saga, rannsóknarefnið,
nýtur jafnvel enn betri leiks North-
ams, sem hefur margsannað sig í hópi
athyglisverðari leikara Breta, og ekki
síður hinnar bandarísku Jennifer
Ehle, nafn sem vert er að leggja á
minnið. Ég veðja á að þar sé kominn
verðugur arftaki Meryl Streep, sem
tekin er að reskjast og hefur skilið
ófyllt skarð eftir sig síðasta áratug-
inn. Aukaleikararnir eru flestir góðir
og Tom Hickey framúrskarandi sem
Blackadder.
Possession er sannkallað konfekt
fyrir augu og eyru, vönduð gæða-
mynd; skynsamleg blanda af gamni
og alvöru: nútíð og fortíð.
Sæbjörn Valdimarsson
POSSESSION
Háskólabíó
Leikstjóri: Neil LaBute. Handrit: David
Henry Hwang o.fl., byggt á skáldsögu
A.S. Byatt. Kvikmyndatökustjóri: Jean
Yves Escoffier. Tónlist: Gabriel Yared. Að-
alleikendur: Gwyneth Paltrow, Aaron
Eckhart, Jeremy Northam, Jennifer Ehle,
Lena Headey, Holly Aurd. 100 mín. USA
Films. Bandaríkin 2002.
Ódauðleg
ástarbréf
Í umsögn um Possession segir að
myndin hafi ekki aðeins til að bera
rómantísk, sætsúr ástarævintýri
heldur sé hún einnig hálfgildings
njósnatryllir.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r