Morgunblaðið - 03.12.2002, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SÉRHÆFING í landbúnaði hefur
orðið til þess að færri og færri hafa
heimilishænsni. Lágt eggjaverð frá
verksmiðjubúum hefur haft ein-
hver áhrif á þessa þróun, þannig að
ekki er talið mjög arðbært að
stunda eggjaframleiðslu í smáum
stíl eins og áður var, en þó eru allt-
af einhverjir sem hafa gaman af
þessari búgrein.
Í Reykjahverfi þar sem á árum
áður voru hænsni á 15 bæjum eru
nú einungis hænur á einum bæ og
sá búskapur almennt aflagður í
sveitinni.
Á Tjörnesi eru 16 hænur á einum
bæ samkvæmt búfjárskýrslum á
þessum vetri og í Húsavíkur-
kaupstað er engin hæna á skrá, en
þar voru nokkur hænsnabú fyrir
allmörgum árum.
Í Aðaldal hefur hænsnum fækkað
eins og í öðrum sveitum en þó eru
lítil hænsnabú þar enn á nokkrum
bæjum og tveir hafa nýlega byrjað
með heimilishænsni.
Með nýjum reglugerðum um bú-
fjárhald má ekki lengur hafa
hænsni í fjósum þar sem mjólk-
urframleiðsla er, en það getur verið
ein ástæða þess að margir framleið-
endur hafa hætt með hænur. Talið
er æskilegt að hafa þær í þeim hús-
um þar sem hlýrra er, en margir
eiga ekki þannig pláss fyrir þessa
fugla.
Margir segja að hænur geti gert
gagn þar sem þær eru við útihús
því þær éta mikið af skordýralirf-
um og öðrum smádýrum sem fylgja
húsdýrahaldi. Þær eru og góðar til
endurnýtingar á matarleifum fólks
því egg koma í staðinn fyrir það
sem þær fá í sarpinn. Þá hafa börn
gaman af hænum, sérstaklega ef
koma ungar sem jafnan er
skemmtilegt að halda á og klappa.
Á móti kemur að þær eru ekki tald-
ar þrifalegar og því hafa sumir þær
í hænsnagirðingu.
Sagt er að svokölluð „sveitaegg“
eða egg úr „hamingjusömum hæn-
um“ séu almennt betri en egg úr
verksmiðjubúum auk þess sem að-
búnaður og frelsi fuglanna hefur
mikið að segja. Þrátt fyrir þetta er
ljóst að mjög mikil fækkun hefur
orðið á heimilishænsnum í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Systurnar Rut og Hrund Benediktsdætur á Hólmavaði í Aðaldal hafa gaman af hænunum sínum.
Engin hæna lengur
til heimilis á Húsavík
Heimilishænum
fækkar stöðugt
Laxamýri. Morgunblaðið.
STAFRÆNAR sjónvarpsútsend-
ingar hafa víða um heim haslað sér
völl enda notkunarmöguleikar mun
meiri en fyrirfinnast í hliðrænum út-
sendingum sem
notaðar eru hér
á landi í dag. Að
mati Póst- og
fjarskiptastofn-
unar mun kosta
um 1–1,5 millj-
arða króna að
byggja upp staf-
rænt dreifikerfi
miðað við einn sendi með fimm dag-
skrárrásum.
Nefnd samgönguráðherra vinnur
að áætlun um hvernig haga megi
flutningi úr hliðræna kerfinu yfir í
stafrænt dreifikerfi. Á nefndin að
skila tillögum í febrúar á næsta ári
og stefnt er að því að útboð vegna
dreifikerfisins verði haldið eigi síðar
en í mars.
Norðurljós og RÚV hafa sent út
efni um gervitungl í tilraunaskyni
undanfarnar vikur og mælingar
standa yfir á hagkvæmni þeirrar
dreifileiðar. Síminn hefur þegar haf-
ið stafrænar sjónvarpssendingar á
breiðbandi sínu.
Unnið að tillögum um
stafrænt sjónvarp
Kostnaður
við dreifi-
kerfi allt að
1,5 milljarðar
Hagsmunaaðilar deila/26–27
LAUN á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og
sveitarfélögum hækka um næstu áramót skv.
ákvæðum kjarasamninga, að meðtaldri 0,4% við-
bótarhækkunar launa sem samið var um í
tengslum við samkomulag aðila vinnumarkaðarins
í desember í fyrra.
Hækkanirnar eru mismunandi miklar hjá ein-
stökum félögum eftir því um hversu langt er eftir
af gildistíma kjarasamninga. Þannig hækka t.d.
laun innan Starfsgreinasambandsins um 3,15% 1.
janúar nk. en hjá iðnaðarmönnum og verslunar-
mönnum verður hækkunin 3,4%. Laun starfs-
manna hjá ríki og sveitarfélögum hækka yfirleitt
um 3% um áramót.
SA og Flóabandalagsfélög
semja um viðbótarhækkun
Samtök atvinnulífsins og stéttarfélög innan
Flóabandalagsins svonefnda, þ.e. Efling – stétt-
arfélag, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur, hafa samið um viðræðuáætlun fyrir
komandi kjarasamninga. Markmið samkomulags-
ins er að færa viðræðurnar til samræmis við tíma-
setningar annarra kjarasamninga og er við það
miðað að samningsgerðinni verði lokið um miðjan
desember á næsta ári en núgildandi samningar
þessara félaga renna úr gildi um miðjan septem-
ber nk.
Samhliða þessu hafa SA og stéttarfélögin innan
Flóabandalagsins undirritað yfirlýsingu um að
laun hækki um 2,75% um næstu áramót í stað
2,25% en því til viðbótar hækka laun þessara fé-
laga eins og annarra um 0,4% 1. janúar nk. skv.
samkomulagi ASÍ og SA sem gert var í desember
2001. Alls munu því almenn laun Flóabandalags-
félaganna hækka um 3,15% um áramótin.
Kjaraviðræður skulu skv. viðræðuáætlun hefj-
ast í maí á næsta ári með undirbúningsfundi, í
október hefjast viðræður um ýmis sérmál og um
kaupliði í byrjun nóvember. Miðað er við að ljúka
samningsgerð um miðjan desember 2003.
Þrír samningar RSÍ renna að
óbreyttu út í febrúar á næsta ári
Að sögn Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA,
hafa ekki verið gerðir samningar við fleiri stétt-
arfélög eða landssambönd um viðræðuáætlanir
vegna komandi kjarasamninga en samningar
flestra landssambanda ASÍ renna ekki út fyrr en á
fyrstu mánuðum ársins 2004.
Samningar Rafiðnaðarsambandsins vegna fé-
lagsmanna hjá Stöð 2, kvikmyndahúsum og hjá
Félagi íslenskra stórkaupmanna renna hins vegar
út í febrúar á næsta ári og standa um þessar
mundir yfir viðræður um hvort þessir samningar
verða framlengdir, að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns RSÍ.
Laun hækka um 3%
til 3,4% um áramót
SA og Flóabandalagið
semja um viðræðuáætlun
vegna kjarasamninga
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær tvo
úrskurði héraðsdóms vegna síma-
hlerana lögreglu í umfangsmiklu
fíkniefnamáli sem nú er í rannsókn. Í
öðrum dómi Hæstaréttar var stað-
festur úrskurður héraðsdóms um
heimild lögreglunnar í Reykjavík til
að hlera símtöl og skoða SMS-send-
ingar í fimm tilteknum símum. Ás-
geir Karlsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn vildi ekki tjá sig um rannsókn
málsins þegar Morgunblaðið leitaði
upplýsinga um hana í gærkvöldi.
Í hinum dóminum var Tali hf., sem
kærði báða úrskurði héraðsdóms,
jafnframt gert að afhenda lögreglu
svonefnd IMEI-númer þeirra sím-
tækja, sem fimm símanúmer hafa
verið notuð í frá 1. september 2002.
Nær þessi skipun fram til 8. desem-
ber. Jafnframt er fyrirtækinu gert að
upplýsa hvaða önnur símanúmer
voru notuð í símtækjunum á um-
ræddu tímabili og hverjir séu skráðir
fyrir þeim.
Allt að 12 ára fangelsi
Fram kemur í úrskurði héraðs-
dóms um þetta, að verið sé að rann-
saka ætluð brot gegn fíkniefnalög-
gjöfinni og megi ætla að ef þau
sönnuðust myndu þau geta varðað
allt að 12 ára fangelsi. Á grundvelli
framlagðra gagna þykir vera rök-
studdur grunur um stóran þátt tiltek-
ins manns í stórfelldum innflutningi
fíkniefna til Íslands.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að lögreglan telji að sá, sem stendur
að innflutningi efnanna, sé notandi
þeirra símanúmera, sem eru tilgreind
í kröfu lögreglunnar. Sé meðal ann-
ars vísað til þess að ætluð brot hafi
lengi verið í undirbúningi.
Málin dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Gunn-
laugur Claessen og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir.
Báðir dómar Hæstaréttar voru
birtir á heimasíðu réttarins í gær, en
teknir af heimasíðunni í gærkvöld.
Lögreglu
leyft að
hlera síma
í fíkni-
efnamáli
TEKJUR ríkissjóðs árið 2003 eru
taldar hækka um 7½ milljarð króna
frá áætlun fjárlagafrumvarps ríkis-
stjórnarinnar. Útgjöld ríkissjóðs eru
hins vegar talin hækka um liðlega
6½ milljarð. Þetta kemur fram í end-
urskoðaðri þjóðhagsspá fjármála-
ráðuneytisins sem birt var í gær.
Ólafur Örn Haraldsson, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, segir að
tekjuáætlun ráðuneytisins verði lögð
fram í fjárlaganefndinni í dag. Ekk-
ert sé hægt að segja um þessar tölur
fyrr en hún hafi komið fram. Það sé
hins vegar staðföst ætlan nefndar-
innar að skila fjárlögunum réttum
megin við núllið.
Fjárlög verði
réttum meg-
in við núllið
Meiri hagvöxtur/13
♦ ♦ ♦