Morgunblaðið - 06.12.2002, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16
á mánudögum!
Sérrit um bækur fylgir Morgunblaðinu
hvern miðvikudag fram að jólum.
Allir nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Meðal efnis eru viðtöl við
höfunda, fréttir og gagnrýni
um nýjar bækur.
stjóri Stýrimannaskólans, og Björg-
vin Jóhannsson, skólastjóri Vélskól-
ans, lýstu við undirritun samn-
ingsins í gær nokkrum áhyggjum
meðal starfsfólks og nemanda skól-
anna vegna breytinga á rekstri
þeirra. Þeir sögðu Menntafélagið
vera að takast á hendur vandasamt
verkefni, enda með í höndum eitt
mikilvægasta fjöregg þjóðarinnar.
Þeir sögðust báðir hafa trú á að vel
MENNTAFÉLAGIÐ efh. og
menntamálaráðuneytið undirrituðu
í gær verksamning um rekstur og
starfsemi Stýrimannaskólans í
Reykjavík og Vélskóla Íslands.
Að Menntafélaginu standa Lands-
samband íslenskra útvegsmanna,
Samband íslenskra kaupskipaút-
gerða og Samorka, samtök raforku,
hita- og vatnsveitna. Auk fulltrúa
þessara samtaka koma forystumenn
úr röðum Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands og Vélstjórafélags
Íslands að stjórn Menntafélagsins.
Samingurinn tekur gildi 1. ágúst
nk.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra sagði undirritunina
vera merkan áfanga og mikilvægt
skref í að efla menntun íslenskra
skipstjórnarmanna og vélstjóra.
Hann sagði jákvætt að samtök at-
vinnulífsins kæmu að menntun og
starfsfræðslu þessara stétta með
þessum hætti.
Guðjón Ármann Eyjólfsson, skóla-
tækist til, þjóðinni til heilla og fram-
fara.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði að mark-
mið Menntafélagsins væri að efla
það góða starf sem fyrir er unnið í
skólunum. Hann sagðist sannfærður
um að með samhentu átaki allra að-
ila næðist góður árangur sem nýttist
atvinnulífi og námsmönnum sem
best um land allt.
Mikilvægt
skref í
eflingu
menntunar
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Frá undirritun verksamnings menntamálaráðuneytisins og Menntafélags-
ins ehf. F.v. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Eiríkur Bogason,
framkvæmdastjóri Samorku, Haukur Már Stefánsson, stjórnarformaður
SÍK, og Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Menntafélagið ehf. tekur við rekstri sjómannaskólanna
BAUGUR ID, dótturfélag Baugs
Group hf. hefur keypt 20% hluta-
fjár í fasteignafélaginu Stoðum
hf. af Kaupþingi banka hf. á 1.400
m.kr. Kaupverð er annars vegar
staðgreitt með 600 milljónum
króna og hins vegar fjármagnað
með lántöku að fjárhæð 800 m.kr.
Baugur ID á eftir kaupin sam-
anlagt 44,25% hlutafjár Stoða.
Þá hefur fyrirtækið gert samn-
ing til tveggja ára við Kaupþing
um kauprétt á 21,4% hlutabréfa í
Stoðum sem eru í eigu Kaup-
þings. Áform Baugs eru að selja
þau bréf sem kaupréttur er á til
innlendra eða erlendra fjárfesta.
Bókfært verð á 44,25% hlut
Baugs í Stoðum er 2.370 m.kr.
Eigið fé Stoða er 4.200 m.kr.
Jón Scheving Thorsteinsson,
framkvæmdastjóri Baugs ID,
segir að með lækkandi vöxtum og
stöðugleika í efnahagslífinu verði
fjárfestingar í fasteignum væn-
legri kostur. Stoðir eigi atvinnu-
húsnæði á lykilstöðum á höfuð-
borgarsvæðinu og Baugur hafi
trú á arðsemi félagsins í framtíð-
inni.
Viðunandi hagnaður
Hreiðar Már Sigurðsson, að-
stoðarforstjóri Kaupþings, segir
að hagnaður félagsins á viðskipt-
unum sé viðunandi. „En þar sem
kaupverðið var trúnaðarmál á
sínum tíma get ég ekki gefið upp
nákvæman hagnað,“ segir hann.
Fyrir viðskiptin átti Kaupþing
29,6% í Stoðum og kauprétt á
11,8% í viðbót næsta vor. Ætlunin
er að nýta kaupréttinn og selja
hlutinn til Baugs ID ásamt þeim
hlutabréfum sem eftir eru.
Eign Kaupþings í Stoðum var
langstærsti eignarhlutur félags-
ins í óskráðu fyrirtæki, en fjár-
festar í Svíþjóð hafa sem kunnugt
er kvartað undan því að Kaup-
þing eigi of miklar slíkar eignir.
Baugur kaupir í Stoð-
um af Kaupþingi
KAUPÞING banki hf. hefur keypt
45,8% hlutafjár í Alþjóðalíftrygging-
arfélaginu hf. Eftir kaupin á Kaup-
þing 58% hlutafjár félagsins, en bank-
inn átti fyrir 12,2% hlut.
Frá því var greint í tilkynningu frá
Kaupþingi í gær að kaupin séu gerð
með fyrirvara um að forkaupsréttar-
ákvæðum sem í gildi eru samkvæmt
samþykktum Alþjóðalíftrygginga-
félagsins verði aflétt á hluthafafundi
þess í dag.
Alþjóðalíftryggingafélagið var
stofnað árið 1966. Starfsemi þess er á
sviði persónutrygginga og söfnunar-
trygginga. Félagið hefur verið í eigu
Kaupþings banka og sparisjóðanna
frá 1996 og hjá því starfa 25 manns.
Ekki frekari kaup
Guðrún Inga Ingólfsdóttir, yfir-
maður fjárfestatengsla hjá Kaupþingi
banka, segir að kaupin séu tilkomin
vegna þess að ágætisframtíð sé í
rekstri Alþjóðalíftryggingafélagsins
og Kaupþing sjái bæði samlegðar-
áhrif og góð tækifæri í félaginu. Hún
segir að Kaupþing stefni ekki að því
að auka hlut sinn í félaginu frekar.
Um verðið vill hún ekki tjá sig.
Kaupþing kaupir
meirihluta í Alþjóða-
líftryggingafélaginu
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
auglýsir nú eftir umsóknum um sér-
stakan byggðakvóta, allt að 2.000
tonn af óslægðum botnfiski í þorsk-
ígildum talið. Þessi sérstaka úthlutun
sem nú er nýtt í fyrsta sinn er til
stuðnings byggðarlögum sem lent
hafa í vanda vegna samdráttar í sjáv-
arútvegi. Sérstakt punktakerfi er not-
að til að meta hlut hvers landsvæðis
fyrir sig og kemur mest í hlut byggða
við Húnaflóa, 16,54%, en minnst í hlut
Vestmannaeyja, 2,07%. Höfuðborgar-
svæðið, Reykjanesbær og Vatns-
leysuströnd liggja utan þess svæðis
sem kemur til greina við úthlutun. Er
þá tekið mið af tekjum, íbúafjölda,
fólksfækkun, breytinga á aflaheimild-
um, lönduðum afla og afla í vinnslu í
einstökum sjávarbyggðum.
Sjávarútvegsráðherra, Árni M.
Mathiesen, kynnti úthlutunina á
blaðamannafundi í gær, en umsóknir
um veiðiheimildir þurfa að hafa borizt
ráðuneytinu eigi síðar en 16. desem-
ber og koma þær til úthlutunar á
þessu fiskveiðiári.
Árni segir að í raun geti hver sem
er sótt um en farið verði yfir allar um-
sóknir í ráðuneytinu. Til að eiga kost
á úthlutun þarf að rökstyðja umsókn-
ir og sýna fram á að nýting aflaheim-
ildanna komi til góða í veiðum og
vinnslu á viðkomandi stað. Við
ákvörðun um úthlutun verður meðal
annars litið til eftirfarandi atriða:
Stöðu og horfa í einstökum byggð-
um með tillit til þróunar veiða, vinnslu
og atvinnuástands.
Hvort telja megi líklegt, miðað við
þær áætlanir sem fram koma í um-
sóknum um aflaheimildir, að úthlut-
unin styrki byggðina eða landsvæðið
til lengri tíma.
Hvort um sé að ræða samstarfs-
aðila í veiðum og vinnslu innan
byggða eða landsvæða.
Hvort gripið hafi verið til sértækra
aðgerða í sjávarútvegi að undanförnu
til styrkingar viðkomandi sjávar-
byggðum.
Úthlutun þessi byggist á lögum frá
1990 þar sem ráðherra hefur heimild
til úthlutunar á 1.500 tonnum af botn-
fiski í fyrrgreindum tilgangi. Fyrir
Alþingi liggur nú frumvarp til breyt-
inga á lögum, þar sem lagt er til að
heimildin á yfirstandandi fiskveiðiári
verði hækkuð í 2.000 tonn. Verði það
frumvarp samþykkt má gera ráð fyrir
því að 1.552 tonn af þorski, 477 tonn af
ýsu, 321 tonn af ufsa og 138 tonn af
steinbít komi til úthlutunar.
Auk þessa úthlutar Byggðastofnun
1.500 tonna kvóta á ári til byggða í
vanda, sérstök úthlutun er til króka-
aflamarksbáta og loks hefur verið út-
hlutað botnfiskveiðiheimildum til út-
gerða sem hafa orðið fyrir verulegri
skerðingu í öðrum fisktegundum.
Kvóti til byggða-
laga í vanda
3 $
4 5
6 +
+5
$%&"
!"
# $
% ! &
'( '
& )(
*
& #
# & +# , '-
&
./ # $
0 #
& 1
2 !
)
-
!
!
"# $
$ %
ÍSLANDSBANKI hefur tekið í notk-
un SAP X-press Mannauðslausn frá
Hugbúnaðarlausnum Nýherja. Í
fréttatilkynningu segir að markmið
Íslandsbanka með því að taka SAP í
notkun sé að auka skilvirkni mann-
auðsstjórnunar og gera launavinnslu
auðveldari.
Þá segir að markmiðið sé einnig að
auka aðgengi stjórnenda og allra
starfsmanna að upplýsingum. Hönn-
un og framkvæmd mannauðsferla
eigi að vera markvissari, hvort sem
um sé að ræða ráðningar, upplýsingar
eða ráðgjöf við starfsmenn, starfsþró-
un einstaklinga eða önnur starfs-
mannatengd mál.
„Kerfið var gangsett hjá Glitni 18.
október sl. og hafa launakeyrslur ver-
ið samkeyrðar fyrir Glitni í SAP kerf-
inu með góðum árangri. Stefnt er að
því að fyrsta launakeyrsla fyrir Ís-
landsbanka úr nýju kerfi verði eftir
áramótin,“ segir í fréttatilkynningu.
Íslandsbanki tekur upp SAP