Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TÍBESK mannréttindasamtök
hafa fordæmt harðlega dauða-
dóm yfir tveimur Tíbetum í
Kína en þeir voru sakaðir um
að hafa rekið áróður fyrir að-
skilnaði og staðið fyrir þremur
sprengitilræðum. Samtökin,
sem hafa aðsetur í indversku
borginni Dharamsala, hafa
hvatt Sameinuðu þjóðirnar og
erlendar ríkisstjórnir til að tala
máli mannanna og þau benda á,
að þótt dauðadæmdir menn í
Kína geti áfrýjað dómnum, þá
hafi það aldrei borið árangur.
IKEA beitt
fjárkúgun
HOLLENSKA dagblaðið De
Telegraaf sagði í gær, að
sprengjurnar, sem fundust í
tveimur IKEA-verslunum í
Hollandi, væru tengdar til-
raunum glæpamanna til að
kúga fé út úr fyrirtækinu. Tals-
maður þess vildi þó ekki við það
kannast en sagði, að það væri
ekkert nýtt, að því bærust alls
kyns hótanir. Í blaðinu sagði,
að glæpamennirnir hefðu hótað
IKEA nokkrum sinnum áður
en þeir komu sprengjunum fyr-
ir. Átta af tíu IKEA-verslunum
í Hollandi voru opnar í gær en
hins vegar var annarri af
tveimur IKEA-verslunum í
Búdapest í Ungverjalandi lok-
að vegna sprengjuhótunar.
Reyndist hún vera gabb.
Ne Win látinn
NE Win, fyrrverandi einræð-
isherra í Burma eða Myanmar,
lést í gær en
hann stjórn-
aði landi
sínu með
harðri hendi
í aldarfjórð-
ung og
skildi við
það gjald-
þrota. Hafði
hann verið í
stofufangelsi síðan tengdason-
ur hans og þrír dóttursynir
voru handteknir í mars síðast-
liðnum en þeir voru sakaðir um
að ætla að steypa herforingja-
stjórninni í landinu. Voru þeir
dæmdir til dauða í september.
Sangatte-búð-
um lokað
FJÖRUTÍU íraskir Kúrdar og
Afganar komu í gær til Bret-
lands frá hinum umdeildu
Sangatte-búðum í Frakklandi
og von var á 1.000 manns til
viðbótar. Var um það samið er
Bretar og Frakkar urðu ásáttir
um að loka búðunum. Búist er
við, að auðvelt verði að útvega
fólkinu vinnu þar sem skortur
er á vinnuafli í hótel-, mötu-
neyta- og matvælaiðnaði í
Bretlandi. Í Sangatte-búðun-
um voru 4.800 manns og munu
Frakkar annast afganginn.
Skæruverkföll
í Þýskalandi
ÞÚSUNDIR opinberra starfs-
manna í Þýsklandi lögðu niður
vinnu um stund í gær til að
leggja áherslu á kröfur sínar
um hærri laun. Eru kröfur
stéttarfélaga þeirra þær, að
launin verði hækkuð um 3% og
búið verði að jafna launamun á
milli Vestur- og Austur-Þýska-
lands árið 2007. Búist er við
fleiri skæruverkföllum á næst-
unni.
STUTT
Dauðadóm-
ar í Kína
Ne Win
OLÍA sést hér leka úr olíuskipinu Prestige á neðansjávarmynd sem
spænska strandgæslan lét fjölmiðlum í té í gær. Olíuskipið liggur á
botni Atlantshafsins, á 3,5 km dýpi, um 130 sjómílur undan norðvest-
urströnd Spánar. Lekinn hefur valdið mikilli mengun á ströndum Gal-
isíu á Spáni og óttast er að olíubrákir frá skipinu berist einnig að
ströndum Portúgals og Frakklands.
Reuters
Olíuleki í Atlantshafi
SADDAM Hussein, forseti Íraks,
hvatti í gær þjóðina til að leggjast
ekki gegn vopnaeftirliti Sameinuðu
þjóðanna vegna þess að starf liðs-
manna þess gæfi Írökum gott tæki-
færi til að afsanna fullyrðingar
Bandaríkjamanna um að stjórn hans
réði enn yfir gereyðingavopnum.
Hann þakkaði þjóð sinni fyrir að
taka eftirlitinu með „göfugri þolin-
mæði“.
Forsetinn sagðist hafa samþykkt
eftirlitið til að „koma í veg fyrir að
þjóð okkar verði fyrir árás“ Banda-
ríkjamanna. Ummæli hans og sátt-
fýsi eru í algjörri mótsögn við orð
varaforseta Íraks, Taha Yassin
Ramadan, á miðvikudag sem sakaði
eftirlitsmennina um að vera njósn-
ara á vegum Bandaríkjamanna og
Ísraela. Sagði hann að sú ákvörðun
eftirlitsmanna að rannsaka eina af
höllum Saddams hefði verið ögrun
og markmiðið að fá Íraka til að neita
þeim um aðgang og þá hefði verið
fengin tylliástæða fyrir hernaðar-
árás. Í ályktun SÞ um vopnaeftirlit
er tekið fram að hallirnar, sem eru
margar geysistórar, séu ekki undan-
skildar. Ramadan er þekktur fyrir
að vera hvassyrtur þegar hann gagn-
rýnir andstæðinga stjórnar Sadd-
ams.
„Ómerkileg harðstjórn“
í Washington
Ummæli Íraksforseta féllu í ræðu
sem hann hélt á fundi með forystu-
mönnum Baath-flokksins og íraska
hersins í upphafi þriggja daga
trúarhátíðar, Eid al-Fitr. Hann
sagði að stjórnvöld í Washington
stæðu fyrir „óréttlátri, hrokafullri og
ómerkilegri bandarískri harðstjórn“.
Saddam segir
eftirlit gott
&'()
*+,+)--./
'
((
)*
)
+
'
*
(
-./
0122
78%
/-
75% 7
9
:
8%
5%
$
;<
7
$% #%
0! 34
Íraksforseti kemur á óvart
Bagdad. AP, AFP.
FÓLKI sem ferðast til Rúss-
lands stendur nú til boða að
upplifa „sovézka stemmningu“
með því að gista í gúlag-fanga-
búðum frá Stalíns-tímanum,
eftir því sem rússneska dag-
blaðið Kommersant greinir
frá.
Rússar fá enn flestir hroll
er þeir heyra minnzt á Perm-
þrælkunarbúðirnar í Úralfjöll-
um, en nú geta ferðamenn val-
ið að gista eina nótt eða fleiri í
búðunum, borða þar fangamat
og lifa sig inn í hlutskipti póli-
tískra fanga í Sovétríkjunum
sálugu.
Perm-þrælkunarbúðirnar
voru teknar í notkun árið
1946.
Meðal manna sem þar var
haldið föngnum – og lifðu
vistina af – fram að lokun búð-
anna árið 1987 voru mannrétt-
indafrömuðurinn Sergei Kov-
alev og Nahtan Sharanský,
núverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra Ísraels.
Ferða-
menn í
gúlagið
Moskvu. AFP.
HÁLFGERT neyðarástand er í
Noregi vegna orkuskorts og hafa
stjórnvöld beðið landsmenn að
spara rafmagnið, sem verður sí-
fellt dýrara, með öllu móti. Ástæð-
an er óvenjulítil úrkoma og staðan
að því leyti verri nú en í raf-
orkukreppunni í landinu 1996.
Kom þetta fram í Aftenposten og
öðrum norskum fjölmiðlum í fyrra-
dag.
„Slökkvið ljósin og lækkið hit-
ann í herbergjum, sem ekki er ver-
ið í. Þeir, sem það geta, eiga að
kynda upp með eldivið og á verk-
stæðum og í mörgum iðnfyrirtækj-
um er best að nota olíukyndingu í
stað rafmagns. Á skrifstofum verð-
ur að slökkva öll ljós á nóttunni.“
Þannig er boðskapurinn frá Einari
Steensnæs orkuráðherra og hann
segir, að áætlanir um rafmagns-
skömmtun liggi fyrir í ráðuneyt-
inu. Til þeirra verði þó ekki gripið
fyrr en í síðustu lög. Noregur er
þriðja mesta olíuútflutningsland í
heimi en raforkuframleiðslan fer
að langmestu leyti fram í vatns-
orkuverum. Vatnsstaðan hjá þeim
er nú 20% verri en í meðalári og
fátt bendir til þess í svipinn, að
hún muni skána á næstunni.
Allt að 45% verð-
hækkun á næstunni
Orkuskorturinn veldur því, að
raforkuverðið hefur hækkað upp
úr öllu valdi og og í síðustu samn-
ingum orkuveitna við framleiðend-
ur er gert ráð fyrir allt að 45%
verðhækkun á næstu vikum.
Eini vonarneistinn er sá, að
Norðmenn, sem eru sagðir ein-
hverjir mestu raforkubruðlarar í
heimi, sjái að sér og hætti óþarfa
orkueyðslu. Það gæti breytt
ástandinu á skömmum tíma og
orðið til að lækka verðið.
Mikill raforku-
skortur í Noregi
Áætlanir um skömmtun liggja fyrir
SAEB Erekat, aðalsamningamaður
Palestínumanna, hafnar tillögu Ar-
iels Sharons, forsætisráðherra Ísr-
aels, um stofnun sjálfstæðs Palest-
ínuríkis á innan við helmingi lands á
Vesturbakkanum og þrem fjórðu
Gaza-svæðisins. „Palestínumenn
vilja frið, en ekki sama hvað það
kostar,“ sagði Erekat.
Sharon lagði tillögu sína fram á
miðvikudaginn og var hún í sam-
ræmi við tillögur Bandaríkjastjórnar
um frið í Miðausturlöndum. En
Sharon gerði það að skilyrði að Yass-
er Arafat Palestínuleiðtogi léti af
völdum.
„Kosningabrella“
Bæði ísraelski Verkamannaflokk-
urinn og hægriöfgamenn höfnuðu til-
lögu Sharons. Sagði Amram Mitzna,
formaður Verkamannaflokksins, að
tillagan væri kosningabrella af hálfu
Sharons. Hægrimaðurinn Effi Eit-
am, sem er ráðherra án ráðuneytis í
ríkisstjórn Sharons, sagði að tillagan
„jafngilti uppgjöf fyrir hryðjuverka-
mönnum“.
Hafna
tillögu
Sharons
Jerúsalem. AFP.