Morgunblaðið - 06.12.2002, Side 30
LANDIÐ
30 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Kápur stuttar og síðar
Fullt af tilboðum
Ullarjakkar frá kr. 7.900
Mokkakápur frá kr. 9.990
Yfirstærðir
Komið og
skoðið úrvalið
Ný sending
frá Spáni og
Mexíkó
Mikið úrval af
fallegum gjafavörum,
einnig á gömlum
trúmyndum og
krossum.
Gjafa gallery
Frakkastíg 12,
sími 511 2760
Sendum í póstkröfu
Jólagjöfina finnið þið í
Langur laugardagur
20%
afsláttur
föstudag og
laugardag
Laugavegi 5 og Spönginni
símar 551 3383 - 577 1660
Ullaryfirhafnir
eru komnar
Hægt
að snú
a við
Tvær s
íddir
Húfurí stíl
Laugavegi 46, sími 561 4465
Villtar &
Vandlátar
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
Höldur
Eitt mesta
úrval landsins
af skápa- og skúffu-
höldum
Langur laugardagur
FRAMLEIÐSLA á hálsmixtúru úr
íslenskum fjallagrösum er hafin á
Húsavík. Það er matvælagerðin Bú-
bót ehf. sem framleiðir hana í sam-
starfi við Íslensk fjallagrös ehf. og
var samningur þessa efnis undirrit-
aður fyrir skemmstu að viðstöddum
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Val-
gerði Sverrisdóttur. Á bakvið fram-
leiðsluna standa lyfja- og heilsu-
vörufyrirtækið Líf hf. og
líftæknifyrirtækið Prokaria hf.
Að því er fram kom í máli Guð-
mundar Jónssonar framkvæmda-
stjóra Íslenskra fjallagrasa ehf. við
þetta tækifæri, er útrás fyrirtæk-
isins á þeim afurðum sem verið
hafa í vöruþróun hjá þeim sl. tíu ár
nú hafin. Fyrirtækin sem standa að
Íslenskum fjallagrösum hafa ein-
sett sér að ná öflugri markaðsstöðu
í Eystrasaltslöndunum og í fram-
haldi af því á Norðurlöndunum,
Þýskalandi, Bretlandi og Póllandi.
Sú vörulína sem lengst er komin í
markaðssetningu og sölu erlendis
eru Soprano hálstöflurnar. Þær
hefðu slegið í gegn í Eystraslats-
ríkjunun og yfir fjögur hundruð
apótek væru með þær í sölu og eft-
irspurn mikil. Fjallagrasasnapsinn
sem framleiddur er í Borgarnesi
hefði notið vinsælda sem gjafavara
og Fjallagrasahylki væru stöðugt
vinsæl. Þá væri verið að leggja
lokahönd á þróun nokkurra nýrra
vörutegunda sem færu í fram-
leiðslu á næstu vikum.
Guðmundur sagði að lyfjarann-
sóknir væru nú í gangi í samstarfi
við stórt erlent lyfjafyrirtæki og
þróunarvinna á fleiri vöruflokkum
úr íslenskum jurtum væru í vinnslu.
Nú væri verið að hefja þessa fram-
leiðslu á hálsmixtúrunni á Húsavík,
í nýjum umbúðum sem hannaðar
hefðu verið fyrir alla vörulínu Ís-
lenskra fjallagrasa. Ætlunin væri
einnig að hefja hér á staðnum fram-
leiðslu á magamixtúru, en ýmsar
rannsóknir hafa leitt í ljós jákvæð
áhrif fjallagrasanna á maga og
meltingu.
Heimamarkaður
skiptir líka máli
Að sögn Guðmundar skiptir
heimamarkaðurinn fyrirtækið
einnig afar miklu máli. Á síðasta ári
var safnað hálfu tonni af fjallagrös-
um, aðallega á Melrakkasléttu og á
Vest-fjörðum.Við söfnunina hefði
fyrirtækið notið góðs samstarfs við
fjölmarga bændur á þessum svæð-
um auk þess sem fjallagrösin voru
mulin á Bíldudal. Stefna fyrirtæk-
isins væri sú að hafa framleiðslu á
vörum sínum vítt og breitt um land-
ið. Hann sagði að góð verkkunnátta
og áhugi starfsfólks hefði gert það
einkar eftirsóttarvert fyrir Íslensk
fjallagrös ehf. að hefja þessa fram-
leiðslu á Húsavík í samvinnu við Bú-
bót ehf., ekki væru nema um þrír
mánuðir frá því byrjað var að tala
saman og framleiðslan væri hafin.
Jakob S. Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Búbótar ehf. var að
vonum mjög ánægður með þennan
samning sem hann sagði mik-
ilvægan fyrirtækinu. Þessi fram-
leiðsla færi vel með annarri fram-
leiðslu fyrirtækisins sem er
aðallega í sultugerð. Jakob sagði
sex manns starfa hjá Búbót og ekki
væri ætlunin að fjölga þeim, a.m.k
fyrst um sinn. Fyrirtækið er í hús-
næði sem áður hýsti Mjólkursamlag
Kaupfélags Þingeyinga, þar er
einnig til húsa fyrirtækið Sól-
brekka ehf. sem framleiðir berja-
vínið Kvöldsól úr íslenskum berj-
um, rabbabara og kryddjurtum og
er því óhætt að segja að þessi fyr-
irtæki nýti landsins gæði til sinnar
framleiðslu.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra sagði þetta
mikla gleðistund fyrir þá sem hlut
ættu að máli og lýsti yfir mikilli
ánægju með árangur Íslenskra
fjallagrasa ehf. og taldi framtíðina
bjarta þar á bæ. Hún sagði þessa
framleiðslu vera jákvæða á margan
hátt, þarna væri t.d. verið að nýta
íslenskar afurðir til að framleiða
vöru sem skapaði bæði atvinnu á
landsbyggðinni og útflutnings-
tekjur um leið. Að lokinni undir-
skrift samningsins skáluðu þau Jak-
ob, Valgerður og Guðmundur í
mixtúrunni góðu sem vel að merkja
er alkóhólfrí. Ráðherra fékk sér
reyndar annan til, sagði kosn-
ingavetur framundan og ekki veitti
sér af að hafa raddböndin í lagi.
Framleiðsla
fjallagrasa-
mixtúru
hafin hjá
Búbót ehf.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Samninginn undirrituðu Jakob S. Bjarnason hjá Búbót (l.t.v.), Valgerður
Sverrisdóttir og Guðmundur Jónsson hjá Íslenskum fjallagrösum.
Húsavík
EINAR Pétursson rekstrarfræðing-
ur verður næsti bæjarstjóri Bolvík-
inga. Gengið var frá ráðningu hans
um síðustu helgi og mun hann taka
við starfinu strax eftir áramót.
Ólafur Kristjánsson, sem verið
hefur bæjarstjóri í Bolungarvík frá
árinu 1986 og setið í sveitarstjórn
fyrir Bolvíkinga frá árinu 1966, ósk-
aði eftir því að hætta sl. vor bæði sem
bæjarfulltrúi og bæjarstjóri.
Starfssamningur Ólafs hefur verið
framlengdur til áramóta eða þar til
nýráðinn bæjarstjóri tekur við.
Einar Pétursson er þrjátíu og
þriggja ára, fæddur og uppalin Bol-
víkingur, sonur hjónanna Helgu
Aspelund og Péturs Guðna heitins
Einarssonar, en hann er sonur hins
þekkta athafnamanns Einars heitins
Guðfinnssonar.
Að loknu stúdentsprófi frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri lagði
Einar stund á flugnám og lauk einka-
flugmannsprófi og bóklegum áfanga
að atvinnuflugmannsréttindum.
Einar lauk prófi í rekstrarfræði
við Viðskiptaháskólann á Bifröst sl.
vor og hóf nám í viðskiptafræði nú í
haust. Hann áætlar að ljúka BS-prófi
í vor, þar sem hann eigi þess kost að
stunda námið að mestu í fjarnámi
eftir að hann flytur til Bolungarvíkur
til að taka við bæjarstjórastarfinu.
Einar er kvæntur Anítu Ólafsdótt-
ur frá Ísafirði og eiga þau átta ára
gamlan son.
Einar sagði í samtali við Mbl. að
starfið legðist ljómandi vel í sig og
spennandi væri að fá tækifæri til að
vinna að framtíðarverkefnum heima-
byggðar sinnar.
Hann sagði það reyndar hafa verið
áform þeirra hjóna að setjast að úti á
landi að námi loknu og ekki væri það
verra að fá tækifæri til að setjast að á
Vestfjörðum, þar sem þau ólust upp.
Tekur við starfi
bæjarstjóra
Bolungarvík
Næsti bæjarstjóri Bolvíkinga, Einar
Pétursson, mátar bæjarstjórastólinn
hjá honum stendur Ólafur Krist-
jánsson sem senn lætur af störfum,
en hann var bæjarstjóri í rúm 16 ár.
Ljósmynd/Gunnar Hallsson