Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Járnasett Betra ver›
Ozone járnasett, 3-pw 14.000
MacGregor DX, 3-pw 17.900
MacGregor MT 3-pw 29.900
MacGregor VIP 3-pw 54.900
Trékylfur
PING driver 29.900
Titleist 975J driver 42.500
Ozone 7-tré /grafít 4.000
Pútterar
PING pútter, standard 8.900
PING pútter, Isophur 13.900
Ozone pútter 1.500
Pokar og kerrur
Fer›apoki 3.990
Fer›apoki á hjólum 4.990
Kerrupoki 9" 5.000
Bur›arpoki-lítill 3.000
Unglingapokar 1.500
Ál-kerra 4.900
Anna›
FootJoy kvennaskór 9.900
Púttbraut 6.5 fet 3.900
Unglingasett m.poka 12.900
Unglingakylfur 1.500
Flís-vindvesti 7.990
Golf boltar/ 15 stk 1.500
Vei›arar 15´ 2.500
Langar flig a› prufa!
• D‡rasta (75.000) driverinn?
• D‡rasta (33.000) pútterinn?
• Stærsta (500cc) kylfuhausinn?
MIKIÐ ÚRVAL
JÓLAGJAFA
Öllum f
rjáls þá
tttaka
í golfle
ik Golfb
úðarin
nar
Spenna
ndi ver
ðlaun
Sími: 565 1402 / Gsm: 898 6324
Netfang: golfbudin@golfbudin.is
S T R A N D G Ö T U , H A F N A R F I R ‹ I
OP I Ð : 1 1 - 1 9
Jó
lal
eiku
r
G
ra
fí
sk
a
vi
n
n
u
st
o
fa
n
Buxur
Laugavegi 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 63
Í HAUST hafa Bræðurnir Ormsson
auglýst loftbóludekk frá Bridge-
stone undir fyrirsögninni: „Algjör-
lega sambærileg
nagladekkjum í
snjó og hálku.“ Í
fyrra voru þau
auglýst betri en
nagladekk í hálku
en sú auglýsing
var bönnuð af
samkeppnisstofn-
un. Það er dapur-
legt til þess að
vita að fyrirtæki
leggist svona lágt í markaðssetningu
að blekkja fólk þegar eitt mesta ör-
yggistæki bílsins að vetrarlagi á í
hlut. Í auglýsingunni frá Bræðrun-
um Ormsson er vitnað í íslenska
könnun sem var gerð á vetrardekkj-
um. Í inngangi könnunarinnar er
tekið fram að hún sé mjög takmörk-
uð og því megi ekki draga almennar
ályktanir af henni. Í þessari könnun
var aðeins prófað að hemla á ís en
ekki var prófað grip dekkjanna við
hraðaaukningu og hliðarskrið eða
við önnur akstursskilyrði. Sem
dæmi má nefna að bíll með ABS-
hemla og loftbóludekk mældist
stöðvast á 105,35 m í einni mæling-
unni en 78,4 m í annarri mælingu við
nákvæmlega sömu aðstæður. Þarna
munar heilum 27 m við nákvæmlega
sömu aðstæður, þetta sýnir að ná-
kvæmni mælinganna í þessari könn-
un var ábótavant. Einnig rýrir það
áreiðanleika könnunarinnar að tveir
helstu kostendur hennar eru
Reykjavíkurborg og Vegagerðin
sem eru helstu andstæðingar nagla-
dekkjanna. Í erlendum könnunum
kemur fram að ennþá er mikill mun-
ur á negldum og ónegldum dekkjum
í hálku og snjó. Í stærsta dekkja-
prófi sem gert er árlega á Norður-
löndum, af stærstu bílablöðunum,
kemur mjög skýrt fram að yfirburð-
ir nagladekkjanna eru algjörir. Í
keilubrautinni og í hringakstri á ís
reyndust öll nagladekkin betri en
bestu naglalausu dekkin og munaði
þar ótrúlega miklu. Sem dæmi þá
tók það besta nagladekkið 7,1 sek.
að ná hraðanum 30 km/klst. en loft-
bóludekkið var 14,2 sek. eða helm-
ingi lengur. Hemlunarmælingarnar
á ísnum leiddu það ljós að nagladekk
voru í sex efstu sætunum. Besta
nagladekkið stöðvaði tæpum 14
metrum fyrr en besta naglalausa
dekkið (sem var ekki loftbóludekk!).
Rannsóknastofa vega og samgangna
í Svíþjóð (Väg- och transportfor-
skningsinstitut) hefur komist að því
að hætta á slysi minnkar um 40%
með því að aka á nagladekkjum,
miðað við sumardekk, en minkar um
25% með því að aka á nagalausum
vetrardekkjum. Allar vandaðri
kannanir sýna að nagladekkin eru
ótvírætt mun öruggari í vetrarakstri
en naglalaus dekk. Val á vetrar-
dekkjum getur skilið á milli lífs og
dauða og því er það ótrúlegt að fyr-
irtæki skuli komast upp með það að
bera svona ósannindi á borð fyrir
landsmenn.
BJARNI ANTONSSON,
Hvammsdal 13, 190 Vogum.
Loftbóludekkin eru ekki
sambærileg nagladekkjum
Bjarni Antonsson skrifar:
Bjarni Antonsson
Í TILEFNI af þingsályktun Páls
Magnússonar, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, um afnám virð-
isaukaskatts af fötum og skófatn-
aði barna vill Félag einstæðra
foreldra þakka Páli fyrir það frum-
kvæði sem hann hefur sýnt með
þessari ályktun. Og hvetjum við
ríkisstjórnina til að skoða þessi
mál með hagsmuni barnafólks í
fyrirrúmi en ekki tekjumissi ríkis-
sjóðs.
Þetta er afar brýnt efni, og
kemur einstæðum foreldrum og
barnmörgum fjölskyldum einkum
vel. Rekstur barna er kostnaðar-
samur og er klæðnaður þar afar
stór hluti. Börn vaxa misjafnlega
hratt og kann það að heyra til
undantekninga ef ekki þarf að
endurnýja fatnað og þá sérstak-
lega útiföt og skófatnað barnanna
oftar en einu sinni á ári. Bæði
vegna vaxtar barna og slits á fatn-
aði.
INGIMUNDUR SVEINN
PÉTURSSON,
stjórnarmaður í Félagi
einstæðra foreldra.
Barnaföt
Frá Ingimundi Sveini Péturssyni:
ÞAÐ er ljóst eftir prófkjör Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík og víð-
ar, að svonefnd alþýðubandalags-
klíka hefur náð verulegum tökum á
flokknum. Það eru því áreiðanlega
fleiri en Gísli S. Einarsson sem eru
byrjaðir að fá martröð af þeim sök-
um. En til að ná þessum völdum
hafa fyrrverandi hentistefnu-alla-
ballar orðið að ganga inn á þá
braut að gerast meiri kratar en all-
ir aðrir. Nú er svo komið að þeir
eru orðnir kratar kratanna. En
gömlu hægri kratarnir úr Alþýðu-
flokknum sáluga fórna samt hönd-
um og sjá sér kannski fátt annað
til bjargar núorðið en að kjósa
íhaldið, eins og þeir gerðu raunar
af og til í gamla daga. Þeim hugn-
ast ekki að kjósa Össur, Bryndísi,
Jóa Ársæls, Möggu Frímanns,
Mörð og Helga Hjörvar, Einar
Karl og þeirra líka. Jafnvel ekki
þótt umrætt fólk sé orðið að svo
miklum krötum, að Stefán Jóhann
og Emil myndu sennilega um-
faðma það í bak og fyrir ef þeir
væru ennþá ofan moldar.
Það er að sumra mati kannski
ekki svo mikil breyting, að hverfa
frá því að vera sósíalisti og gerast
sósíaldemókrati. Enn minni er
breytingin auðvitað þegar þeir sem
í hlut eiga hafa aldrei verið raun-
verulegir sósíalistar heldur aðeins
pólitískir ráðleysingjar og tæki-
færissinnar. Slíkir einstaklingar
eyðilögðu Alþýðubandalagið á sín-
um tíma innanfrá. Þeir skilgreina
sig víst núorðið sem félagskrata
sem aðhyllast markaðskerfi með
lýðræðisstjórn.
Og í þeim litförótta hópi má sjá
gamla Þjóðviljaritstjóra sem muna
ekki lengur neitt af því sem þeir
skrifuðu í gamla daga, því nú eru
þeir orðnir kratar kratanna. Það
er sannara en flest annað að veru-
leikinn tekur fram öllum skáld-
skap. Ég vil leyfa mér að óska
gömlum alþýðuflokksmönnum
hjartanlega til hamingju með það
upplitaða allaballalið sem nú
hreiðrar um sig á framboðslistum
Samfylkingarinnar. Það er nátt-
úrulega kaldhæðnislegt að sjálf-
dauðir sósíalistar skuli birtast þar
sem afturgöngur í sósíaldemókra-
tískum sviðsbúningum, en slíkum
trúðum á Samfylkingarsirkusinn
þó umfram allt að veita brautar-
gengi. Það er áreiðanlega það
minnsta sem kratar kratanna eiga
skilið!
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, 545 Skagaströnd.
Kratar
kratanna
Frá Rúnari Kristjánssyni:
mbl.is
STJÖRNUSPÁ
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn