Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRIÐRIK Karlsson, sem garðinn gerði frægan með Mezzoforte hér í eina tíð, hefur nú verið búsettur í Bretlandi síðan 1996. Hann á heim- ili þar í Surrey og hefur atvinnu af tónlist; annars vegar er hann eft- irsóttur lausaspilari en jafnframt hefur hann gefið út slökunartónlist sem hefur fallið vel í kramið hjá kaupendum og hafa þær allar sem ein gengið vel á markaði. Sérstakar útgáfur koma út hérlendis og fyrir stuttu kom sú sjötta út og ber hún titilinn Feng Shui. Þær sem á und- an fara heita Lífsins fljót (’97), Into the Light (’98), Hugar-Ró (’99), Máttur hugans (’00) og Morgunn/ Kvöld (’01). „Ég fór að kynna mér þessi Feng Shui-fræði,“ segir Friðrik, er hann er inntur eftir nálguninni við þessa plötu. „Þetta eru kínversk fræði og hafa með skipulag umhverfisins að gera – að það hafi áhrif á orku- flæði og líðan fólks. Í fræðunum er gert ráð fyrir að ákveðin öfl eins og vatn, eldur og viður hafi áhrif á mann og þau eigi að vera nálægt manni, það hjálpi upp á jafnvægið. Hvert lag er því tákn fyrir hvert afl.“ Friðrik segir að hann hafi sjálf- ur látið gera Feng Shui-úttekt á húsi sínu og hljóðveri. „Og ég verð að segja það að það varð alveg rosaleg breyting,“ segir hann og hlær. Friðrik rekur fyrirtæki úti í Englandi sem heitir The Feel Good Collection. Feng Shui ber undirtitilinn „Vellíðan“ sem er ís- lenska útgáfan af þessu safni. „Þetta er sjötti diskurinn og þeir seljast allir vel – og allt árið um kring þá. Enda fylgir þessi tón- list engri tísku,“ segir hann. Stór samningur Þetta fyrirtæki hans er nú orðið það næststærsta í Bretlandi og Friðrik hefur unnið sér inn gott orð í þessum „bransa“. Hann segir fólk hafa orð á því að það skynji það í gegnum tónlistina að sá sem er að semja sé greinilega að stunda þá hluti sem tengjast henni. Slíkt fylgir ekki alltaf svona sköpun. „Sumir af þessum tónlistar- mönnum eru einhverjir gamlir hasshippar sem urðu eftir,“ segir Friðrik og kímir. „Sumir gera þetta af heilindum en svo eru margir sem gera það ekki.“ Friðriki finnst það ansi skondið að diskar hans hafi ratað inn á vin- sældalista hérlendis. Og það gerist þá jafnan í janúar og febrúar. „Um það leyti greinilega sem fólk er að reyna að ná sér niður eftir jóla- stressið,“ segir Friðrik með bros á vör. Friðrik starfar einnig sem lausa- spilari og hefur spilað inn á lög með popplistamönnum eins og Boyzone, Westlife, S-Club 7, Atomic Kitten, Kate Winslet og Ronan Keating. „Á næstu vikum er ég svo að fara að gera samning við BMG- fyrirtækið (sem er ein stærsta tón- listarútgáfa í heimi) um að ég verði einn af þeirra lagasmiðum. Ég hef verið að vinna að þessu í heilt ár og loksins sé ég fyrir endann á því ferli.“ Friðrik segir að lokum að næsta slökunarplata sé þegar á áætlun. „Þeir sem nota svona tónlist, t.d. nuddarar, spila þetta náttúrlega daginn út og inn og ég veit að þeir eru alltaf mjög fegnir þegar ég kem með nýja plötu (hlær).“ Ný ró í hnappagatið Feng Shui er sjötta slökunarplata Friðriks Karlssonar. arnart@mbl.is Feng Shui er sjötta slökunarplata Friðriks Karlssonar POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 10.10. 1/2MBL Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is 8 Eddu verðlaun Yfir 54.000 áhorfendur Sýnd kl. 5.45 og 8. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10.  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV Y F I R 6 0 . 0 0 0 G E S T I R 1/2HL MBL  RadíóX Jólamynd film-undar Sýnd kl. 6, 8 og 10. H.K. DVGH. Vikan SK RadíóX SV. MBL GH. Kvimyndir.com B.Ö.S. Fréttablaðið Tónlist eftir Sigur Rós. Sýnd kl. 5 og 8 íslenskt tal. Sýnd kl. 6 og 9 enskt tal.Forsýningar laugardag og sunnudag kl. 8 Loksins, Loksins Framhald af Stellu í Orlofi, einni vinsælustu grínmynd íslendinga fyrr og síðar Komið ykkur í réttu jólastemninguna! Rekið endahnútinn á jólaundirbúninginn og skellið ykkur með alla fjölskylduna á einu sýningarnar sem haldnar verða á þessari frábæru grínmynd fyrir jól. Forsal a hafi n E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! KRINGLA ÁLFABAKKI Y F I R 6 0 . 0 0 0 G E S T I R Frumsýnd 26. des. Tryggðu þér miða í tímaFORSÝND KL. 10.10. Einnig sýnd í VIP. Vit 496 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.