Morgunblaðið - 08.01.2003, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 B 3
g mistækur og átti mörg ótíma-
skot og mörkin utan af velli
ti telja á fingrum annarrar
dar. Gústaf Bjarnason komst
na best frá leiknum en hann lék
ns fyrri hálfleikinn og skoraði 5
k, Birkir Ívar átti ágætan leik á
i stanganna en þegar öllu er á
ninn hvolft léku flestir íslensku
dsliðsmennirnir töluvert langt
ir getu. Sigfús Sigurðsson leysti
ert Sighvatsson af hólmi á lín-
i en náði engan veginn að leika
hlutverk jafnvel og Róbert
ði í leikjunum tveimur á undan.
rammistaðan í gær var von-
gði og vekur ýmsar spurningar
hvar liðið er statt núna. Rauði
ðurinn í leikjunum þremur á
i Slóvenum var slakur varnar-
ur og vinnan sem framundan er
r átökin í Portúgal verður fyrst
remst að beinast að því að bæta
n. Spilamennskan í gær var ís-
ku leikmönnunum góð áminn-
og vonandi geta þeir lært af öll-
þeim aragrúa mistaka sem þeir
ðu sig seka um. Fall er farar-
l segir einhvers staðar og von-
i á það við um íslenska lands-
.
Århus GF
vill halda
Róberti
FORRÁÐAMENN danska hand-
knattleiksliðsins Århus GF vilja ólm-
ir halda línumanninum Róberti
Gunnarssyni í sínum röðum. Hann
hefur leikið mjög vel með liðinu í
dönsku úrvalsdeildinni í vetur og
hefur verið boðinn nýr samningur.
„Róbert hefur sannað sig sem
mjög traustur línumaður og sérlega
mikilvægur hlekkur í vörn okkar.
Við viljum því endilega semja við
hann áfram,“ sagði formaður félags-
ins, Henrik M. Jacobsen, í samtali við
staðarblaðið Århus Stiftstidende í
gær.
„Við þekktum ekkert til Róberts
en það kom strax í ljós að hann væri
frábær leikmaður. Hann hefur einn-
ig reynst afar traustur á öllum svið-
um og því mikill fengur í að halda
honum,“ sagði formaðurinn.
Róbert sagði við blaðið að ekki
hefði enn náðst samkomulag um nýj-
an samning. „Ég vil gjarnan halda
áfram hjá félaginu en til þess þarf
ákveðnar breytingar. Ég hef rætt
við formanninn og hann veit hvað
hann þarf að gera til að ég leiki
áfram með Århus GF. En þessa dag-
ana einbeiti ég mér að því að komast
í íslenska landsliðið og viðræðurnar
við Århus GF verða að bíða á með-
an,“ sagði Róbert Gunnarsson.
„EINS og málin horfa í dag bendir
ekkert til þess að Duranona komi á
móts við landsliðið. Ég hef svo sem
lært það á löngum ferli að vera ekki
of yfirlýsingaglaður, en eins og
staðan lítur út er það ekki inni í
myndinni að Duranona komi. Ég
hef ekkert heyrt frá honum og mér
finnst það ansi langsótt að eitthvað
breytist úr þessu. Við þurfum fyrst
og fremst að einbeita okkur núna
að því að bæta okkar leik heldur en
að vera að leita lausnanna annars
staðar,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari við
Morgunblaðið.
Guðmundur ákveður í dag hvaða
16 leikmenn halda til Danmerkur í
fyrramálið en um helgina taka Ís-
lendingar þátt í fjögurra þjóða móti
ásamt Dönum, Pólverjum og
Egyptum.
Duranona ekki
inni í myndinni
Boðið var upp á flugeldasýningu íbyrjun þegar 8 af tíu fyrstu
skotunum komu eftir glæsileg
þriggja stiga skot.
Njarðvíkingar voru
skrefinu á undan en
þegar Keflvíkingar
snarbættu vörnina
og náðu að halda Gary Hunter frá
boltanum skilaði það þeim forystu.
Hinsvegar náðu þeir ekki að fylgja
því eftir og þegar þeir héldu að for-
ystu væri orðin nægileg og slökuðu
aðeins á klónni komu Njarðvíkingar
skokkandi og söxuðu á forskotið.
Þremur og hálfri mínútu fyrir leiks-
lok tóku gestirnir síðan forystuna.
Heimamenn gerðust þá heldur óþol-
inmóðir og ætluðu sér að jafna og
komast rækilega yfir á einni mínútu
en gestirnir voru skynsamir og héldu
út leikinn.
„Við ætluðum að vinna leikinn á
þann hátt sem við erum bestir,
hlaupa og skjóta en það er ekki nóg
að spila vel í sjö mínútur, það dugir
ekkert annað en allur leikurinn,“
sagði Keflvíkingurinn Magnús
Gunnarsson eftir leikinn. „Við spil-
uðum ekkert síðasta korterið eins og
sást á töflunni og þó að Damon John-
son sé góður gerir hann ekki einn út
um leikinn,“ bætti Magnús við, stað-
ráðinn að nú væri nóg komið. „Það
hefur angrað okkur í vetur að eiga
svona slaka kafla í næstum hverjum
leik. Við höfum tapað tvisvar fyrir
Njarðvík og ef það eflir okkur ekki
fyrir bikarleikinn við þá getum við
hætt þessu. Þetta kemur ekki fyrir á
föstudaginn.“ Magnús og Damon
áttu góða spretti en eftir hlé skoruðu
Keflvíkingar aðeins 29 stig. Damon
og Kevin Grandberg tóku hvor sín 12
fráköstin.
Annað hljóð var í strokknum hjá
Friðriki Ragnarssyni þjálfari Njarð-
víkinga. „Ég er ánægður með seinni
hálfleik en afar ósáttur við bæði vörn
og sókn í þeim fyrri. Við stilltum illa
upp og spiluðum kerfin illa og stund-
um alls ekki. Þeir hafa menn sem
viðgetum leyft að skjóta en við lögð-
um of mikla áherslu á þá fyrir hlé því
við ætluðum frekar að stöðva skytt-
urnar þeirra. Þegar við svo bættum
úr því í síðari hálfleik var ekki spurn-
ing um hvor myndi sigra. Við höldum
alltaf áfram. Ég hef séð lið gefast
upp á móti Keflavík þegar munur er
tólf til þrettán stig en leikurinn er þá
alls ekki búinn. Þeir byggja mikið
upp á þriggja stiga skotum og ef það
er tekið frá þeim er mikið komið. Svo
erum við með Friðrik Stefánsson
undir körfunni og það skorar enginn
svo auðveldlega hjá honum,“ sagði
Friðrik og ætlar sér að fylgja sigr-
inum eftir. „Því miður telja þessir
leikir við Keflavík ekki með í bik-
arleiknum á föstudaginn en við erum
þó með sjálfstraustið í lagi og vitum
að við vinnum ef við leggjum okkur
fram. Við getum betur en þetta. Að
vísu vantaði okkur Pál svo að breidd-
in var minni en við snerum þess í
stað bökum saman.“ Gary Hunter
var sprækur með 32 stig og 13 frá-
köst í 40 mínútur en að ósekju hefði
hann mátt gefa boltann meira í opn-
um færum. Friðrik var einnig traust-
ur undir körfunni með 14 fráköst og
Teitur Örlygsson og Sigurður Ein-
arsson voru einnig góðir.
Slakir Grindvíkingar unnu Val
Þetta voru tvö stig en ekki mikiðmeira en það, það hafa verið að
hrjá okkur veikindi, meiðsl og svo
jólin,“ sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson,
þjálfari Grindvík-
inga eftir 92:79-sigur
á Valsmönnum í
gærkvöld. Það var meiri stemmning
hjá Valsmönnum en okkur og þeir
eiga hrós skilið fyrir sinn þátt í þess-
um leik. Við fengum góða kafla en
það var kannski meiri vilji hjá þeim
en okkur því við vorum langt frá okk-
ar besta.“
Það er óhætt að taka undir orð
Friðriks Inga Rúnarssonar því gest-
irnir voru tilbúnir í þennan leik en
heimamenn mestmegnis út á túni. Sá
sem hélt þeim á floti í fyrri hálfleik
var Guðlaugur Eyjólfsson og sá eini
Grindvíkinga sem sýndi eðlilegan
leik. Eftir jafnan fyrri hálfleik sigu
heimamenn fram úr en munurinn
var aldrei mikill þannig að Valsmenn
gáfust ekki upp en leiknum lauk með
öruggum sigri heimamanna 92:78.
Bestir í liði gestanna voru þeir
Ragnar Steinarsson og Gylfi Geirs-
son og þá áttu nýir leikmenn í þeirra
herbúðum Barnaby Craddock og
Jason Pryor ágætan leik og ljóst að
þeir styrkja Valsliðið verulega. Eins
og áður sagði var Guðlaugur Eyjólfs-
son sá eini sem spilaði vel þetta kvöld
en líklegast var einbeitingarleysi og
áhugaleysi meira einkennandi fyrir
leik heimamanna en nokkuð annað.
Njarðvík
fór aftur
fram úr
ENN og aftur supu Keflvíkingar seyðið af því að láta sér nægja að
spila einungis fjórðung leiks vel. Í gærkvöldi sóttu Njarðvíkingar þá
heim og biðu þolinmóðir fram að lokasprettinum – hirtu þá for-
skotið og héldu því örugglega til leiksloka í 80:77 sigri. Tap Keflvík-
inga er því verra að sama gerðist í fyrri leik liðanna, Njarðvík skaust
framúr í lokin, og liðin mætast aftur á föstudaginn í bikarkeppninni.
Í Grindavík þurftu heimamenn engan stórleik til að leggja Val að
velli, 92:79.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Garðar
Vignisson
skrifar
KRISTJÁN Helgason sigraði Dav-
id Brown Gilbert, sem er í 93. sæti
heimslistans, 5:4, í 1. umferð Eur-
opean Open-atvinnumannamótsins í
snóker sem hófst í Blackpool í Eng-
landi í gær. Í 2. umferð leikur Krist-
ján við John Read, sem er í 97. sæti
heimslistans, en sjálfur er Kristján í
66. sæti. Kristján hefur keppni á Ir-
ish Masters-mótinu á sama stað í
dag og mætir Matthew Selt, sem er
númer 113 á heimslistanum.
ALDA Leif Jónsdóttir lék í gær-
kvöldi fyrsta leik sinn á tímabilinu
fyrir ÍS í úrvalsdeild kvenna í körfu-
knattleik. Alda Leif, sem var valin
besti leikmaður deildarinnar í fyrra,
sleit krossband síðasta vor.
STEFÁN Þór Eyjólfsson, 18 ára
varnar- og miðjumaður sem leikið
hefur með knattspyrnuliði Hugins/
Hattar, er genginn til liðs við úrvals-
deildarlið Fram. Stefán þykir mikið
efni en hann lék 10 leiki með Aust-
fjarðaliðinu í 3. deildinni á síðustu
leiktíð og skoraði þrjú mörk.
HRAFNKELL Helgason hefur
framlengt samning sinn við Fylki og
gildir nýi samningurinn til ársins
2005. Hrafnkell er 24 ára gamall og
hefur leikið allan sinn feril hjá Fylki
– samtals 37 leiki í efstu deild.
MANCHESTER United og Black-
burn skildu jöfn, 1:1, í fyrri undan-
úrslitaleik liðanna í ensku deildabik-
arkeppninni á Old Trafford í
gærkvöldi. Paul Scholes kom United
yfir á 58. mínútu en þremur mínút-
um síðar jafnaði David Thompson
metin fyrir Blackburn.
PIERLUIGI Collina, knattspyrnu-
dómari frá Ítalíu, hefur verið út-
nefndur besti dómari heims af sam-
tökum knattspyrnutölfræðinga. Urs
Meier frá Sviss varð í öðru sæti og
Daninn Kim Milton Nielsen hafnaði í
því þriðja. Collina hafði yfirburði í
kjörinu. Hann dæmdi úrslitaleikinn
á heimsmeistaramótinu sl. sumar.
LEE Bowyer gekk endanlega frá
samningi við West Ham í gær eftir
að hafa gengist undir læknisskoðun.
West Ham þurfti aðeins að reiða
fram 300.000 pund, um 39 millj.
króna, fyrir Bowyer. Þegar Liver-
pool bar víurnar í Bowyer fyrir rúm-
um fjórum mánuðum var hann verð-
lagður á 8 millj. punda, rúmlega einn
milljarð króna.
STEVEN Gerrard á yfir höfði sér
allt að þriggja leikja keppnisbann
eftir að aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins taldi Gerrard
hafa gert sig sekan um grófan leik
gegn Gary Naysmith, leikmanni
Everton, 22. desember sl.
JAMIE Clapham, félagi Her-
manns Hreiðarssonar hjá Ipswich,
hefur verið seldur til Birmingham
fyrir 1,5 millj. punda, um 195 millj.
króna. Þá er Stephen Clemence,
miðvallarleikmaður Tottenham,
einnig á leið til Birmingham. Hann
er 24 ára gamall og er sonur Rays
Clemence, sem um árabil varði mark
Liverpool og enska landsliðsins.
HAKAN Yakin, miðvallarleikmað-
ur Basel, segir að Liverpool hafi
einnig sýnt sér áhuga en áður hafði
Celtic lýst yfir áhuga á að kaupa
kappann. Yakin segist ætla að gera
upp hug sinn vegna næstu leiktíðar
fyrir næsta leik Basel í Meistara-
deild Evrópu 19. febrúar.
ROY Aitken, þjálfari varaliðs
Leeds, hefur fengið leyfi félagsins til
þess að ræða við forráðamenn Brann
um að hann taki við þjálfun Björg-
vinjarliðsins af Teiti Þórðarsyni sem
sagði starfi sínu lausu rétt fyrir ára-
mótin.
STOKE hefur sett sig í samband
við belgíska miðvallarleikmanninn
Robert Bisconti. Leikmaðurinn hef-
ur verið á mála hjá skoska úrvals-
deildarliðinu Aberdeen en samning-
ur hans við félagið rennur út í sumar
og þar sem hann hefur hafnað nýjum
samningi er honum heimilt að fara til
Stoke án nokkurrar greiðslu. Bisc-
onti er 29 ára gamall.
FÓLK
Morgunblaðið/Árni Sæberg
óvenum í gær en það dugði
eik, 32:25.
sem
um
ÍÞRÓTTIR