Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 39 hversu nýjungagjörn hún var í öllu, ef einhver ný uppskrift kom t.d. í matar- eða kökugerð þá bað hún um uppskrift alveg fram á síðasta dag sem hún gat haldið heimili. Eins var það með fatnað, þar fylgdist hún vel með og hafði næmt auga fyrir efn- um og sniðum. Ég hef verið svo lánsöm að upp- lifa með nánu sambandi við tengda- foreldra mín gildi þess fyrir börn okkar hjóna að hafa fengið að njóta nærveru afa og ömmu í uppeldinu. Það fór alltaf vel á með okkur Ellu, og mín upplifun með henni gegnum árin var að ekkert var of gott fyrir mig og mína fjölskyldu – meira er ekki hægt að biðja um og þakka ég það af heilum hug. Á Garðvangi naut Elísabet mik- illar umhyggju, bæði andlega og lík- amlega, og á starfsfólk þar bestu þakkir skildar. Ég vil að lokum tileinka tengda- móður minni ljóð eftir Davíð Stef- ánsson, sem var m.a. eitt af hennar eftirlætisskáldum: Snert hörpu mína, himinborna dís svo hlusti englar Guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré sem fann ég út við sjó ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumur perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar Guðs í Paradís. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir Aðalheiður Valgeirsdóttir. Nú hefur amma okkar fengið kallið sitt og er horfin á braut á vit nýrra starfa á nýjum stað. Þó að við vitum öll að hvert og eitt okkar verður að hlýða sínu kalli þegar það kemur er alltaf jafn sárt að kveðja þá sem við elskum. Við vitum að amma er nú komin í faðm afa Bjarna og að þau eru nú sameinuð á ný. Amma missti mikið þegar afi Bjarni kvaddi þennan heim en aldr- ei lét hún það í ljós. Hún stóð alltaf eins og klettur þegar erfiðleikar steðjuðu að og hún var ekki að bera tilfinningar sínar á torg og aldrei kvartaði hún. Amma var yndisleg kona, opnir armar hennar tóku allt- af á móti okkur systrum þegar við komum suður í Garðinn til ömmu og afa, fyrst í Víkina og svo í Eyjaholt- ið. Það var alltaf jafnmikill spenn- ingur í okkur að fara til ömmu og afa í heimsókn. Þá voru afi og amma alltaf búin að undirbúa komu okkar til að við mættum njóta dvalarinnar sem best og snúist var í kringum okkur allan tímann sem við vorum hjá þeim. Og ekki getum við gleymt pönnukökubakstrinum hennar ömmu á sunnudagsmorgnum, en á meðan amma hafði heilsu bakaði hún pönnukökur á sunnudags- morgnum og þær voru ófáar pönnu- kökurnar sem runnu ofan í okkur meðan amma stóð í bakstrinum. Margar minningar koma í hugann þegar við hugsum um ömmu en þeg- ar við hugsum um hana hugsum við líka um afa af því að afi og amma voru svo samrýnd og hugsuðu svo vel hvort um annað. Væntumþykja og góðmennska hennar standa efst upp úr þeim minningum sem við eigum. Amma var afar þolinmóð kona og kom sú þolinmæði vel fram þegar hún var að kenna einni systra okkar að prjóna og þá sagði hún að alltaf ætti að líta á frumraun sína í því sem við værum að gera sem meistarastykki og lýsir það vel ljúf- mennsku hennar. Ófáar stundir átt- um við með ömmu við að spila rommý en amma hafði afskaplega gaman af því að spila. Mynd af ömmu kemur í hugann þar sem hún situr og prjónar á barnabörnin eða barnabarnabörnin og eru þeir ófáir vettlingarnir og sokkarnir sem við eigum og eins sem við fengum handa börnum okkar. Mikill spenn- ingur var í okkur systrum þegar von var á þeim í heimsókn til okkar á Húsavík. Alltaf komu þau færandi hendi og svo eru ógleymanlegar ferðirnar sem farnar voru í berjamó og þá voru tínd nokkur kílóin af berjum. Við vitum að amma er hvíldinni fegin, hún var búin að ljúka sínum störfum hér hjá okkur. Við söknum hennar sárt en eigum yndislegar minningar sem við geymum í hjörtum okkar. Elsku Sibba og Jói, mamma og pabbi, Helgi og Heiða, við vitum að sökn- uður ykkar er mikill og við sendum ykkur samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Hér hvílir væn og göfug grein af gömlum sterkum hlyni. Hún lokaði augunum hugarhrein með hvarm móti sólarskini. Hún dæmdi ei hart, hún vildi vel, í vinskap ætt og kynning. hún bar það hlýja og holla þel sem hverfur ekki úr minning. (Einar Ben.) Þínar ömmustelpur Lára S. Sigurðardóttir, Elísabet Sigurðardóttir, Guðríður Sigurðardóttir, Sóley Sigurðardóttir. Elsku amma. Nú er komið að leið- arlokum, tími til að kveðja, við vit- um að afi tekur vel á móti þér og þú varst tilbúin að kveðja þennan heim. Þrátt fyrir það fannst okkur erfitt að kveðja þig þegar kallið kom. Við erum mikið þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér síðustu stundirnar þínar. Við vorum svo lánsöm að búa í götunni fyrir ofan afa og ömmu í Garðinum alla okkar barnæsku og lögðum því daglega leið okkar til þeirra. Heimili þeirra var uppfullt af ástúð og væntumþykju sem við fengum óspart að njóta. Þegar við hugsum til baka rifjast upp margar góðar minningar. Amma var einstök kona sem tók alltaf vel á móti öllum og hafði þann hæfileika að taka á öllum málum með miklu jafnaðar- geði. Amma hafði alltaf nóg að gera og áhugamálin mörg, s.s. handa- vinna, bóklestur og spilamennska var henni kær. Hún kenndi okkur að leggja kapal, spilaði mikið við okkur, og einkum þá rommí. Handa- vinna var henni mikils virði alla tíð og kom það vel í ljós að þrátt fyrir fötlun sína vegna veikinda var hún alltaf með eitthvað milli handanna sem tengdist handavinnu meðan heilsa leyfði. Eftir að við fjölskyldum fluttum úr Garðinum unnum við systkinin á unglingsárum þar við fiskvinnslu á sumrin og höfðum því alltaf öruggt athvarf hjá ömmu og afa, m.a. í há- degismat. Amma sá alltaf til þess að elda eitthvað sem okkur fannst gott og er efst í huga okkar karmellu- búðingur, rjómi og súkkulaðispænir sem við fengum ætíð í eftirrétt. Eftir að amma veiktist breyttist líf hennar mikið og náði hún aldrei sömu heilsu eftir það, og dvaldi á sjúkrastofnunum. Nú síðustu árin var hún á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Við vissum að amma var ánægð á Garðvangi og þar var vel hugsað um hana og metum við það mikils. Við viljum að lokum tileinka ömmu okkar eftirfarandi erindi: Hrein í máli, hlý í svörum, hugljúf orð af þínum vörum Góðvild þína í anda örum alltaf mátti heyra og sjá. Gott var þér að gista hjá (G.J.) Hvíl í friði, elsku amma. Linda Helgadóttir, Bjarni Helgason. „Þú ert svo heppinn að eiga svona ekta ömmu.“ Þetta eru orð sem eru mér minnisstæð, en þau heyrði ég fyrir nokkrum árum frá vini okkar hjóna. Þó svo að margir líti á það sem sjálfsagðan hlut þá eru ekki allir sem verða þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera samferða og njóta slíkrar umhyggju og velvildar sem þið afi hafið veitt okkur barnabörn- unum á lífsleiðinni, elsku amma mín. Mér er það svo sérstaklega minn- isstætt þegar við bjuggum öll í ein- um hnapp, þið afi, mamma og pabbi, Helgi og Heiða, Steini og Bjarni og seinna Magga og Þórhallur. Þetta var skemmtilegur tími og alltaf nóg um að vera, alltaf gat maður fundið sér eitthvað að gera og alltaf var einhver tilbúinn að taka á móti manni. Þú varst alltaf mikil félagsman- neskja og leið best í návist fólksins þíns þar sem þú blómstraðir. Lík- legast má rekja þá samheldni og samkennd sem er ríkjandi hjá fjöl- skyldunni til þeirra viðhorfa sem þið afi höfðuð um gildi fjölskyldunnar. Þú bjóst yfir skemmtilegum húm- or og ég minnist með bros á vör hnyttinna svara frá þér yfir hlutum sem þér fannst ekki vera eins og þeir áttu að vera. Við barnabörnin vorum oft dregin að spilaborði þar sem að spilað var rommí og yfirleitt var spilað í nokkra tíma. Kappið var mikið og oft var ekki hætt fyrr en staðan var jöfn eða að þú hafðir betur, niður- staðan skipti kannski ekki öllu máli enda naut maður sín í góðu yfirlæti þar sem dekrað var við mann með guðdómlegum veigum allan tímann. Endalausar góðar minningar streyma um hugann á þessari kveðjustund en mín von er sú að þú og afi hafið sameinast á ný, laus við þá sjúkdóma sem hrjáðu ykkur síð- ustu ár ævi ykkar. Takk, elsku amma mín, fyrir sam- fylgdina, hún hefur verið gefandi, fræðandi og umfram allt full af kær- leik og væntumþykju frá fyrstu tíð til þeirrar síðustu. Kveðja Hlynur, Þórhildur og fjölskylda. Með örfáum orðum langar mig að minnast Elísabetar Þórhallsdóttur eða Ellu ömmu sem ég kynntist fyrst þegar ég kom með Þórhalli til þeirra Ellu og Bjarna á annan í jól- um árið 1985. Ella amma var hlý og yndisleg kona sem tók mér eins og öðrum með opnum örmum, heimili þeirra heiðurshjóna var öllum opið og þá ekki síst börnum því amma var mik- il barnagæla. Þegar hún var um sjö- tugt tók hún að sér að gæta lang- ömmubarns, það var Kristófer, þá þriggja mánaða, og henni fannst það lítið mál. Ella amma sagði oft: „Það á að svara börnum þegar þau spyrja,“ og hún var óþreytandi við að spjalla við börnin, kenna þeim að spila og þess háttar. Það sem ég man helst eftir í fari Ellu var hjartahlýja og gott skap. Ég sá hana aldrei skipta skapi og aldrei kvartaði hún yfir neinu. Hún hafði frekar áhyggjur af öðrum. Hún var ótrúlega nýjungagjörn. Þegar hún var u.þ.b. 75 ára vildi hún endilega að ég kenndi henni að baka pizzu og það sama ár kenndi Þórhallur þeim hjónum að grilla á kolagrilli. Árið 1996 fóru Ella amma og Bjarni afi með okkur hjónum og strákunum í sumarbústað í Hraun- borgum í heila viku. Það er okkur ógleymanlegt. Minningarnar um þau Ellu og Bjarna ylja mörgum um hjartaræt- ur. Ég man eftir þeim alltaf saman heima í Eyjaholti, saman í göngu- ferð í bláu kuldagöllunum eða sam- an á hvíta Skódanum. Ég er ríkari manneskja eftir að hafa kynnst Ellu ömmu og er hún mér mikil fyrirmynd. Elsku Ella amma, nú hefur þú fengið hvíldina sem þú þráðir og væntanlega hitt Bjarna afa og Bjarna, barnabarn þitt. Ég þakka þér samveruna og fyrir allt það sem þú kenndir mér og mínum. Margrét Marísdóttir. Miðvikudaginn 26. febrúar síðast- liðinn fékk ég þær fréttir að hún Ella frænka væri dáin. En Ella frænka eins og við kölluðum hana var mér og bræðrum mínum mjög kær. Hún Ella var búin að eiga við veikindi að stríða í nokkur ár. Þegar við fjölskyldan fluttum suður í Garð í nágrenni við Ellu og Bjarna gátum við systkinin alltaf komið til þeirra í Víkina hvenær sem var og alltaf var einhverju góðgæti stungið að okkur. Ég hélt oft á tíðum eins mikið til uppi í Vík hjá Ellu og heima. Ella var alveg einstaklega geðgóð og hlý manneskja, traust og jafnframt allt- af kát og sannur vinur vina sinna. Aldrei féll henni verk úr hendi og eiga börnin mín nokkrar flíkurnar frá Ellu frænku sem þeim fannst mikið vænt um. Hún saumaði, prjónaði, heklaði eða málaði. Allt lék í höndunum á henni. Ella var lærð saumakona og hafa margir notið góðs af því. Hún lét ekki deig- an síga eftir að hún lamaðist, hún hélt áfram að mála og sauma og það voru alveg einstaklega fallegir mun- ir sem hún var að sýna mér þegar ég kom í heimsókn til hennar á Garðvang. Alltaf fylgdist hún með okkur systkinunum og síðan börn- um okkar og barnabörnum og var hún alltaf að spyrja eftir krökkun- um. Henni fannst hún vera eins konar amma okkar. En hún var elst í stóra systkinahópnum, en mamma aftur yngst. Nú eru þrjú af systkinunum frá Litlu-Brekku fallin frá, þau Ella, Bjössi og Dísa. Ég er viss um að mikið er hlegið og skrafað á himn- um núna, því alltaf var kátt á hjalla þegar systkinin komu saman. Elsku Ella mín, nú hefur Guð tek- ið þig til sín og þú ert laus við allar þrautir og hefur hitt manninn þinn hann Bjarna og dóttursoninn Bjarna. Elsku Ella mín, þakka þér fyrir allt á liðnum árum. Megi góður Guð vaka yfir þér. Elsku Sibba, Dísa, Helgi og fjöl- skyldur, Guð veri með ykkur og styrki í sorginni. Helga, Ævar, Guðrún og Hilmar Þór. Nýja Glæsibæ, sími 533 6129 • Smáratorgi, sími 544 4031 Hafnarfirði, sími 565 0480 • Reykjanesbæ, sími 421 1501 Heiðrum minningu látinna Blómalagerinn • beint frá bóndanum Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, UNNUR ÞÓRARINSDÓTTIR frá Miðbæ, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði fimmtu- daginn 27. febrúar. Jarðsett verður frá Þingeyrarkirkju laugar- daginn 8. mars kl. 14. Katrín J. Gunnarsdóttir, Guðrún Ó. Gunnarsdóttir, Una H. Gunnarsdóttir, Ingibjörg Ó. Gunnarsdóttir, G. Kristján Gunnarsson, Erka Ebba Gunnarsdóttir, Jónína S. Gunnarsdóttir, Einar G. Gunnarsson, Guðbjörg Ó. Gunnarsdóttir, Sigurður Þ. Gunnarsson, Höskuldur B. Gunnarsson, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskulegur faðir okkar, sonur og bróðir, HANNES H. GARÐARSSON, Gaukshólum 2 Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 5. mars. Gunnar Örn Hannesson, Garðar Sveinn Hannesson, Edda Hrönn Hannesdóttir, Garðar Sölvason, Edda Hrönn Hannesdóttir, Guðbjörg María Garðarsdóttir, Elín Inga Garðarsdóttir, Ríkey Garðarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.