Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 C 7 bauð dr. Dennis Riege fram sína starfskrafta. Hann hefur dvalið hér á landi með konu sinni sem er lyfja- fræðingur og séð hefur um lyfsölu fyrir herinn undanfarið ár. Dr. Riege vildi leggja út nýjar tilraunir, skoða möguleika á jarðvinnslu, – að koma skógi á legg inni í lúpínubreiðunum, breyta þeim í skóg. Það er ekki ann- að að sjá en þær tilraunir hafi komið vel undan vetri. Niðurstöðurnar sem dr. Riege mældi í víðiklónarannsókn- unum komu okkur að nokkru leyti skemmtilega á óvart. Það er greini- lega mikill fjöldi góðra og hraðvax- inna víðiklóna sem geta þrifist þarna og raunar mikið betur en sá efnivið- ur sem við þekkjum og notum á Suð- urlandi. Um 40 til 50 víðiklón reynd- ust betur en algengustu víðiklón sem eru algengust í ræktun t.d. í Reykja- vík og á Suðurlandi um þessar mund- ir. Sérstaklega reyndist jörvavíð- irinn vel. Hann lifir vel, vex vel, eina skilyrðið er að borið sé vel á því jarð- vegurinn er sem fyrr sagði óskap- lega rýr þarna. Engin sérstök vanda- mál hafa komið upp ennþá hvað sjúkdóma snertir og til stendur að nota margar tegundir klóna til þess að draga úr áhættu á að slíkt komi upp. Reynslan af þessum tilraunum á Miðnesiheiði ætti að nýtast vel öll- um íbúum Suðurnesja og sjáv- arplássa þar sem svipuð skilyrði eru, þ.e. þar sem vindasamt er og sjáv- arrok mikið. Þarna er komið áhuga- vert efni til að vinna við frekar.“ Staðfest að leiðin til þess að rækta skóg á rýru landi er að planta þar lúpínu fyrst Dr. Dennis Riege var spurður hvort eitthvað við þessar rannsóknir og niðurstöður hefði komið honum verulega á óvart? „Þær komu mér á óvart að því leyti að lúpínurnar hafa vaxið hraðar en ég hefði átt von á. Það er í raun verið að nota lúpínur þarna sem fóstrur, annars vegar til að skýla plöntunum og hins vegar til að næra þær. Nú hefur það verið staðfest að leiðin til að fá skóga á svona svæði er að byrja á lúpínurækt,“ svaraði dr. Riege. „Lúpínan vinnur köfnunarefni úr loftinu og er því mikilvæg til að bæta vaxtarskilyrði fyrir aðrar plöntur á rýru landi. Til eru fleiri tegundir lúp- ínu en alaskalúpínan sem gætu reynst gagnlegar að þessu leyti og fleiri belgjurtir skyldar henni og svo elritegundir gætu líka verið heppi- legar til ræktunar á svona landi, þær eru skyldar birki og líkjast því. Fyrir um 6 árum var gerð tilraun til að sá birkifræi á mel einum þarna nálægt. Tveimur árum síðar var árangurinn skoðaður en ekki fundust þá nein merki um birkiplöntur. En nú í fyrrasumar sáum við að mikið er nú að koma upp af þessu birkifræi, þetta gerist hægt vegna þess að jarð- vegurinn er rýr en þetta sýnir að birki getur komist upp af fræi, það er ekki veðurlag sem hamlar því heldur miklu frekar skortur á birkifræi. Það birki sem er að komast þarna á legg gæti í framtíðinni átt eftir að sá sér víðar á þessu svæði og mynda sjálf- sprottna skóga. Nokkur munur reyndist vera á milli birkikvæma sem sem gróðursett voru í fyrr- nefndri tilraun fyrir fimm árum. Best reyndust kvæmi sem komu af sunnanverðu landinu, aðeins verr hafa hin norðlensk kvæmi reynst. Borinn var áburður á þegar gróð- ursetning fór fram en greinilegt er að birkið vex hægt vegna þess að áburð er farið að skorta í jarðveginn. Lúpínan getur þarna hjálpað upp á sakirnar. Hún er þeirrar gerðar að vaxa best þar sem skilyrði eru verst. Hún hopar hins vegar þegar annar gróður kemur í kjölfarið, þá minnkar samkeppnishæfni hennar.“ Dr. Dennis Riege gat þess og að hann og kona hans færu senn til Bandaríkjanna en hann hygðist koma hér aftur til þess að athuga m.a. hvernig gróðrinum á Mið- nesheiði reiddi af. Hann sagði jafn- framt að hann teldi ekki mikla hættu á að tegundir eins og sitkagreni myndu sá sér í gróið land hér, það sýndi ekki reynsla hans frá þeim svæðum ytra þar sem aðstæður væru að einhverju leyti svipaðar og hér. Barrtrén á höfuðborgarsvæð-inu og raunar á fleiri stöð-um hafa komið óvenjulegailla undan vetri. Þau eru brún og virðast ekki líkleg til langra lífdaga, en skyldu þau vera „dauðans matur“? Þeirri spurningu var varpað til Einars Gunnarssonar, skógrækt- arfræðings hjá Skógræktarfélagi Ís- lands. „Brúni liturinn stafar af óvenju- lega mikilli sitkalús og það að sitka- lúsastofninn nær sér svona á strik má rekja til hins milda vetrar. Frost þarf helst að fara niður fyrir 15 stig í nokkra daga til að slá verulega á stofninn.“ Hefur sitkalús verið plága hér á undanförnum árum? „Það hafa ekki komið sérleg slæm ár undanfarið en ástandið núna er sambærilegt við fyrri plágur.“ Er ástæða til að fella þessi tré? „Nei, í flestum tilvikum ekki. Það hefur sýnt sig að trén lifa þetta af en aðeins örfá drepast. Yfirleitt eru nál- ar síðasta sumars lifandi og nýjar myndast í sumar og það dugir. En þetta dregur hins vegar úr vexti trjánna næstu tvö til þrjú árin.“ Fá þau sinn græna lit aftur? „Já, það koma nýir árgangar af nálum en trén verða lengi ber inn við stofninn og kannski ekki til mikillar prýði fyrsta árið á eftir.“ Þarf ekki að grisja barrtré meira en gert er víða? „Jú, það eru orð að sönnu, grisjun þarf að setja á oddinn, rétt eins og gróðursetningu. Þetta á raunar jafnt við um laufskóga. Grisjun í ungskógi er hins vegar bara kostnaðarliður nema þar sem jólatré falla til. Skóg- rækt er að miklu leyti fjármögnuð með opinberu fé og ég hef á tilfinn- ingunni að þeir sem á því fjármagni sitja líti ekki á grisjun sem jafn sjálf- sagðan hlut og aðra ræktun. Stað- reyndin er sú að hlálegum upp- hæðum er veitt til grisjunar, en þetta kann að vera að breytast.“ Mæli með því að fólk byrji snemma að grisja „Hvenær á að grisja? „Margar kenningar eru uppi í því en ég mæli með því að fólk byrji snemma að grisja, byrji þegar trén eru 1,5 til 3 metrar á hæð. Þetta á bæði við um barrtré og lauftré.“ Er fólk of hikandi við að grisja? „Já, ég held að fólk víli um of fyrir sér að fella tré meðan þau eru þetta smá. Draga grisjunina um of á lang- inn. Margir ótvíræðir kostir fylgja því að grisja í tíma og best er að grisja oft en lítið í einu. Í nytja- skógrækt er gjarnan reynt að grisja sjaldan en mikið í einu. Það er ein- göngu gert í hagkvæmni- og hagræð- ingarskyni. Með því að grisja snemma nýtist vaxtargeta svæðisins þeim trjám sem talin eru vænleg framtíðartré, lakari trén víkja áður en samkeppni verður hamlandi fyrir heildina. Í nytjaskógrækt er yfirleitt talið að hagkvæmast sé að gróðursetja 2000 til 3000 plöntur á hektara. Í 20 metra háum skógi rúmast aðeins um 500 til 1000 tré á hektara. Mismuninn þarf að grisja og helst í nokkrum áföng- um. Ástæður þess að gróðursett er þetta þétt eru fjölmargar. Skógar- skjól myndast fyrr, hliðarskuggi dregur úr vexti greinakransa, en með því að stjórna þéttleika á hverjum tíma, má hafa áhrif á sídd og gróf- leika krónunnar og þvermálsvöxt trjástofnanna. Hvorutveggja er mjög mikilvægt varðandi viðargæði. Fáir og smáir kvistir, jafnir árhringir og langir, beinir og lítið uppmjókkandi stofnar er það sem gildir í timb- urframleiðslu. Í grisjun eru lökustu trén felld og þannig er stuðlað að já- kvæðu úrvali. Hæfilegur þéttleiki hverju sinni er ákveðið fall af hæð trjánna. Það er mismunandi meðal annars eftir trjátegundum og vaxt- arstað. Trén sem eru ljóselsk þurfa meira rými en skuggaþolin tré og á frjósömu landi þar sem raki er hæfi- legur geta trén staðið þéttar en á rýru landi. Á norðlægum slóðum er sólin lágt á lofti og þar af leiðir að sól- arljósið kemur lengst af á hlið en ekki beint niður eins og á suðlægari slóð- um. Við fáum þess vegna hlið- arskugga í okkar skógum jafnvel þótt sólin sé í hádegisstað. Mestur getur þéttleikinn orðið á vaxtarstað sem hallar á móti suðri og þar sem jarðvatn seytlar niður hlíð- arnar. Þar eru skilyrði fyrir frjósama jörð og mikinn þéttleika og þar af leiðandi mikla uppskeru. Það er ein- mitt bein fylgni milli þéttleika og við- arvaxtar mælt í rúmmetrum á hekt- ara.“ Aðalatriði að mæla fjölda trjáa á hektara Hvernig á að meta þetta? „Aðalatriðið er að mæla fjölda trjáa á hektara. Til eru leiðbeinandi viðmiðunartöflur eða línurit sem segja til um þann trjáfjölda sem hæfi- legur er á flatareiningu útfrá yfirhæð trjánna. Í nytjaskógrækt er krónu- síddin svokallaða líka viðmið. Svo dæmi sé tekið þá á krónusídd grenis ekki að vera minni en sem nemur hálfri hæð trésins. Ljóselskari tré eins og birki og fura geta haft styttri krónu, það þýð- ir að krónusídd þeirra má vera ein- ungis einn þriðji af hæð trésins. Þetta eru þau viðmið sem notuð eru í okkar nágrannalöndum.“ Eiga þau við hér? „Ekki alveg, við þurfum að hafa krónuna heldur síðari hér vegna hlið- arskugga af því við erum svo norð- arlega á hnettinum. En það skortir hins vegar ítarlegri rannsóknir til að styðjast við hvað þetta efni snertir. Þangað til þær verða gerðar notum við viðmið um fjölda trjáa á hektara og heldur síðari krónu en hér hefur verið nefnd.“ Gildir þetta líka um grisjun í úti- vistarskógum, t.d. eins og í Heið- mörk? „Í yndisskógum eða útivist- arskógum er fátt um reglur hvernig eigi að grisja. Þar er þó sú meg- inregla að stuðla að sem mestum fjöl- breytileika svæðisins. Sé um um- fangsmikla skóga að ræða eins og t.d. í Heiðmörk eða Hallormsstað þá get- ur mesti fjölbreytileikinn verið fólg- inn í því að sérhver skógarteigur fái mismunandi meðferð. Í því getur t.d. falist að þeir teigar sem eru best til þess fallnir séu meðhöndlaðir eftir aðferðafræði nytjaskógræktar. Aðrir eru grisjaðir þannig að fjölbreytileik- inn fái sem best notið sín og að heil- brigði trjánna sé haft í fyrirrúmi. Það að sjá skóginn fyrir trjánum er eitt- hvað sem flestum fellur í geð, opinn skógur og bjartur með gróskumikl- um skógarbotni. En það útilokar ekki að dimmir skógarteigar geta líka ver- ið spennandi og dulúðlegir. Þá skiptir aldur skóganna miklu máli. Með vax- andi aldri og hæð trjánna eykst úti- vistar- og velferðargildi skóganna. Á Norðurlöndunum, þar sem skóg- arþekja er tugfalt meiri en hér eru gamlir skógar sem komnir eru af léttasta skeiði og tré farin að falla og ný að taka við.“ Vinsælustu útivistarsvæðin eru oftar en ekki ræktaðir skógar sem manna á meðal er talað um sem „Ur- skog“ eða frumskóg vegna þess að þeir hafa fengið að þróast eftir sínum eigin lögmálum í ákveðinn tíma. Af þessu getum við dregið þann lærdóm að við eigum að annast ungskóginn vel til þess að hann öðlist þann þroska að geta þróast eftir sínum lög- málum á fullorðinsárum og jafnvel æ eftir það. Þetta hljómar nú eins og verið sé að ræða um óskasamfélagið. Við höfum sem sagt ekki enn eignast yndisskóg í blóma lífsins en eigum marga unga og efnilega og það stytt- ist í það að elstu skógarnir hér á landi nái þessum þroska.“ Menn skulu minnast að það er ekki aftur tekið að fella tré Hvað með grisjun trjáa í einka- görðum og innan borgarmarka? „Í görðum þá eru frístandandi tré til mikillar prýði og þess vegna er mikilvægt að grisja snemma áður en þéttleiki trjánna fer að hamla vexti trjákrónunnar. Raunin hefur verið sú að mönnum hættir til að gróðursetja alltof þétt, of nálægt lóðarmörkum og jafnvel of nálægt húsum. Stundum er jafnvel lítil birta í herbergjum vegna mikils trjávaxtar fyrir utan gluggana. Þá verður að meta hvort fella eigi trén og þá einkum hvaða tré eigi að falla. Áður en menn taka ákvörðun í þessum efnum er rétt að huga að því að trén eru búin að vaxa í marga ára- tugi og það er ekki aftur tekið ef tré er fellt. Fyrir það fyrsta þurfa menn að þekkja hvaða trjátegund er um að ræða. Það er grundvallaratriði. Trjá- tegundir eru misjafnlega algengar og þær verða misgamlar. Það er vitan- lega meiri eftirsjá í fágætum trjám og trjám sem geta orðið mjög gömul. Dæmi um slík tré er td. sitkagreni, hlynur, hrossakartaníur, heggur, álmur, silfurreynir og lerki, þessi verða mjög gömul og eru mörg fágæt hér landi. Ilmreynir sem algengur er hér í görðum verður aftur ekki mikið meira en 60 til 100 ára, aspir eru fljót- vaxnar en geta orðið býsna gamlar, ef krónan fær að vaxa nokkuð frítt geta aspir orðið mjög tignarleg og skemmtileg tré. Erlendis eru gamlar aspir mjög mikilvægar mörgum fuglategundum og dálæti höggspæt- unnar, sem er skemmtilegur fugl.“ Hvað tré laða að flesta fugla? „Sitkagreni er fuglavænt tré, eink- um á yngri árum, og glókollurinn, sem er minnsti fugl Evrópu, virðist vera orðinn staðfugl á Íslandi og nýt- ur einmitt góðs af sitkalúsafaraldr- inum núna. Birki- og víðibrum eru mikilvæg vetrarfæða fyrir rjúpuna og aukið framboð skordýra eykur fæðu á varptíma. Brandugla heldur gjarnan til í þéttum greni- og furu- skógum svo nokkur dæmi séu tekin.“ Endurnýja þarf trjágróður í gömlum görðum Er kannski eðlilegt að endurnýja trjágróður í gömlum görðum, þótt tré séu þar fyrir? „Í vissum tilvikum þar sem fyrir eru tré sem eru að verða feyskin þá er mjög hyggilegt að fara að grisja og bæta þá inn í nýjum trjám sem eiga að taka við. Þar sem oft er um að ræða vel gróin hverfi er jafnvel búið að skapa skilyrði fyrir trjátegundir sem hefðu varla þrifist þar í upphafi, eins og þau eðallauftré sem fyrr voru nefnd.“ Eru tré mikilvæg sem skjól á höf- uðborgarsvæðinu og í bæjum lands- ins? „Já, þau hafa gjörbreytt veðurfari hér í borginni og bæjum vítt og breitt um landið. En til þess að ná hámarks- skjóláhrifum er mikilvægt að hafa bæði hávaxin og lægri tré og þar sem um stakstæð tré er að ræða er best að krónan sé þétt upp úr og niður úr þannig að ekki blási undir trén. Þar gegnir hæfileg grisjun lykilhlut- verki.“ Skarphéðinn Smári Þórhallsson virðir fyrir sér brúnt sitkagreni í Öskjuhlíð. Kostur að grisja snemma Mörg bar r t ré koma brún undan þessum vet r i vegna s i tka - lúsar. Um þet ta e fn i ræði r E inar Gunn - a rsson skógrækt - a r f ræðingur, sem og um mik i l vægi g r is junar skóga og garða. Einar Gunnarsson skógræktarfræðingur. G r is jun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.