Morgunblaðið - 10.05.2003, Page 4

Morgunblaðið - 10.05.2003, Page 4
„ÞETTA var eina áttin sem ég gat stefnt í án þess að lenda á öðrum bíl- um. Stórslys hefði verið óumflýjan- legt ef ég hefði ekki beygt frá,“ segir Ólafur Guðmundsson bílstjóri sand- flutningabílsins sem steyptist fram af kanti á Reykjanesbrautinni á mið- vikudag og lenti ofan í aðgönguleið undirganga við Reykjanesbraut. Ólafur var að aka norður eftir Reykjanesbrautinni þegar fólksbíll úr gagnstæðri átt beygði í veg fyrir hann. Sá Ólafur engan annan kost í stöðunni en að beygja ósjálfrátt frá, þótt hann vissi að það gæti hæglega kostað hann lífið. Á flutningabílnum var 40 tonna hlass og útilokað að stöðva svo þungan bíl fyrirvaralaust. Er Ólafur ekki í vafa um að margfalt banaslys hefði hlotist af ef hann hefði ekki beygt frá. Alls staðar voru bílar í kring og eina ráðið var að fara út af. Steyptist bíllinn niður af kantinum með þeim afleiðingum að stýrishúsið gekk saman og Ólafur grófst hálfur undir sandi sem rann inn í stýrishús- ið. Atvikið varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu í Hafnarfirði. Hann segist hafa gert sér grein fyrir því að ákvörðun sín gæti orðið sér dýrkeypt, þar sem hann vissi hvað væri handan við kantinn. Sem betur fór rann hann í átt að farþegadyrunum þegar bíllinn lenti á nefinu og komst þannig hjá því að kremjast til bana við stýrið. Held að allir hefðu gert það sama „Ég held að allir hefðu gert það sama í mínum sporum, þetta er ákvörðun sem þarf að taka á sek- úndubroti. Ef það er á einhvern hátt hægt að komast hjá því að keyra yfir fjórar manneskjur, þá held ég að flestir myndu gera það, þótt það sé áhættusamt fyrir viðkomandi,“ segir hann. „En það var ágætis tilfinning að átta sig á því að maður var lif- andi,“ bætir hann við. „Ég sá símann minn ofan á sandhrúgunni og hringdi í vinnufélaga minn svo hann gæti látið viðskiptavininn, sem hafði pantað sandinn, vita að sandurinn myndi ekki skila sér.“ Þegar þetta óvenjulega símtal átti sér stað var Ólafur hins vegar ökklabrotinn, grafinn til hálfs í sandinum og klemmdur með brotinn fótinn milli ökumannssætisins og mælaborðsins. „Fljótlega kom ungur maður og byrjaði að moka sandinum frá mér af miklum krafti og björgunarlið kom rétt á eftir.“ Hann segir röð tilviljana hafa ráð- ið því að ekki fór verr í þessu tilviki. Þannig hafi það verið einstakt lán að ekki var gangandi vegfarandi við undirgöngin þegar bíllinn lenti þar fyrirvaralaust. Tilviljun réð því líka að Ólafur var að aka með sandhlass í þetta skiptið en ekki svokallað bögglaberg, hnullunga, sem hefði valdið því að tengivagninn hefði rifn- að frá bílnum og lent á honum með enn verri afleiðingum. „Þetta fór eins vel og hægt var, fyrst þetta þurfti á annað borð að gerast,“ segir hann. Ólafur vildi koma á framfæri þökkum til starfsfólks Landspítalans fyrir frábæra umönnum svo og allra þeirra sem unnu að björgun hans á vettvangi. Hætti lífi sínu til að koma í veg fyrir banaslys á Reykjanesbrautinni „Ákvörðun sem þarf að taka á sekúndubroti“ Morgunblaðið/Arnaldur Ólafur Guðmundsson slapp með ökklabrot úr slysinu og er hann kominn heim af spítalanum. Ekki þarf að velta lengi vöngum yfir því sem hefði getað gerst ef Ólafur hefði setið á sínum stað þegar stýrið gekk nánast upp í sætið. FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ „ÞAÐ var ótrúlegt að mað- urinn skyldi lifa slysið af, miðað við hvernig bíllinn var farinn,“ segir Óli Örn Jóns- son, 21 árs vegfarandi sem kom fyrst- ur að slys- inu á Reykjanes- braut. „Bíllinn var hrikalega kraminn og ég bjóst við hinu versta,“ rifjar Óli Örn upp þegar hann var að nálgast bílinn rétt eftir slys- ið. Hann var þá á leið heim úr vinnu, en stöðvaði bíl sinn þegar hann sá hvað gerst hafði. Varð hann vitni að því þegar flutningabíllinn steyptist ofan í aðgönguleið undirganga undir Reykjanes- brautina. Segir hann pall vörubílsins hafa þeyst upp í loft og sandfarminn skollið á stýrishúsinu. Stellingin gæti hafa bjargað lífi ökumanns Ökumaðurinn, Ólafur Guð- mundsson, grófst til hálfs undir sandinum og skorð- aðist með fætur milli sætis og stýris en efri hluti lík- amans lá til hliðar í átt að farþegadyrunum. Telur Óli Örn að þessi stelling hafi bjargað lífi ökumannsins því stýrishúsið gekk saman í fall- inu og hefði ökumaðurinn að öllum líkindum kramist ef hann hefði setið á sínum stað allan tímann. „Það var mikill sandur kominn inn í bílinn og ég hófst handa við að grafa frá honum og tala við hann,“ segir Óli Örn. Fljótlega kom lögregla og sjúkralið á vett- vang og tók við björg- unarstörfum. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Hefur hún stað- fest með athugun á ökurita flutningabílsins að hraði hans hafi verið eðlilegur. „Bjóst við hinu versta“ Óli Örn Jónsson TILVERA, samtök gegn ófrjó- semi, mótmæla harðlega fyrirhug- aðri sumarlokun á glasafrjóvgun- ardeild sem verður í ár lengri en verið hefur eða frá 23. júní til 11. ágúst í stað júlímánaðar og fram yfir verslunarmannahelgi. Hólm- fríður Gestsdóttir formaður Til- veru segir þessa skerðingu á þjón- ustu algjörlega óviðunandi fyrir sjúklinga glasafrjóvgunardeildar, sjúklingar þurfi nú þegar að bíða í um það bil ár eftir að komast í meðferð auk þess sem meðferð sjúklinga tekur yfirleitt í kringum sex vikur og geti lengri sumarlok- anir truflað það ferli. „Þetta er mjög lýsandi fyrir það viðhorf sem heilbrigðisyfirvöld virðast hafa gagnvart þessum hópi. Um leið og á að fara að spara er til- hneigingin að leita á þessi mið. Ástæðan er ef til vill sú að það hafa aldrei heyrst nein mótmæli þar sem þetta er svo mikið feimnismál fyrir fólk,“ segir Hólmfríður. Hefur engin áhrif á biðlista Þórður Óskarsson, yfirlæknir á tæknifrjóvgunardeild LSH, segir að lengri sumarlokun muni engin áhrif hafa á biðlista. „Þetta er í raun mjög lítil lenging, það bætist við vika fyrir og eftir hefðbundna sumarlokun, eða um hálfur mán- uður og mér finnst satt að segja verið að gera úlfalda úr mýflugu og botna eiginlega ekkert í þessu,“ segir Þórður. Hann segir að þar sem deildin loki viku fyrr en vanalega verði unnið á örlítið meiri hraða til þess að ljúka öllu sem þurfi að ljúka fyr- ir sumarlokun. „Þetta breytir nán- ast engu fyrir sjúklingana og hefur til dæmis engin áhrif á tækni- frjóvgunina,“ segir Þórður. Hann segir að ein ástæðan fyrir því að vika bætist aftan við lok- unina tengist Norðurlandaþingi fyrir glasafrjóvgunardeildir í Hels- ingør í Danmörku í ágúst. „ Þetta er nú í og með vegna þess að við viljum fylgjast með því sem er að gerast í okkar fagi á hinum Norð- urlöndunum,“ segir Þórður. Glasafrjóvgunardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss Lengingu sumar- lokunar mótmælt KÖTTURINN Moli, sem fannst í fyrradag eftir að hafa hrakist mat- arlaus á Holtavörðuheiði vikum saman, dvelur nú á Dýraspít- alanum í Víðidal þar sem Ólöf Loftsdóttir dýralæknir hlúir að honum. Ólöf segir ótrúlegt að Moli hafi komist af matarlaus í svo langan tíma. „Hann er langsoltinn og afar horaður greyið og það verður bara að koma í ljós hvernig honum vegn- ar. En hann hefur matarlyst og það er lífskraftur í honum. Núna er strákurinn á vítamíngjöf og sjúkra- fæði og verður undir eftirliti hjá mér um helgina,“ segir Ólöf. Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands, segir mikla gleði ríkja í Kattholti yfir því að Moli sé fundinn heill á húfi og vill hún koma á framfæri innilegu þakklæti til lögreglunnar í Borg- arnesi og allra þeirra sem hafa litið eftir Mola þegar þeir áttu leið yfir heiðina. Morgunblaðið/Kristinn Kötturinn Moli er nú í góðum höndum Ólafar Loftsdóttur, dýralæknis í Víðidal. Moli á spítala AÐ MINNSTA kosti sjö fánum var hnuplað af fánastöngum á Ísafirði í fyrrinótt og þóttu það nokkur tíðindi. Flestir ef ekki allir komust til skila. Fimm fánar voru teknir frá stjórnmálaflokkum; tveir frá Sjálfstæðisflokknum, jafn- margir frá Frjálslynda flokkn- um, einn frá Framsóknar- flokknum og loks var tveimur fánum hnuplað frá versluninni Samkaupum. Fánum hnuplað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.