Morgunblaðið - 27.05.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 47
Aðalfundur
Breiðabliks 2003
Aðalfundur Breiðabliks verður haldinn í
Smáranum þriðjudaginn 27. maí 2003 kl. 18.00
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Opnun nýrrar vefsíðu félagsins
Heiðursveitingar
Önnur mál
Stjórnin.
„VIÐ mættum mjög vel stemmdir í
leikinn í kvöld og það var allt annað
að sjá liðið en í leiknum gegn Val.
Ég er fyrst og fremst ósáttur við
mörkin sem við fengum á okkur,
sem voru ódýr og við hefðum hæg-
lega getað komið í veg fyrir. Síðan í
stöðunni 1:0 áttum við að fá víta-
spyrnu og ég er mjög hissa á að
Bragi Bergmann (dómari leiksins),
sem var mjög vel staðsettur þegar
atvikið varð, skyldi ekki dæma.
Þetta sýnir okkur bara að það er
ekkert að detta fyrir okkur þessa
dagana. Það var hins vegar jákvætt
að Fylkismenn sköpuðu sér ekki
neitt fyrir utan þessi mörk, sem
voru ódýr eins og áður sagði. Varn-
arleikurinn var ágætur en það
sama er ekki hægt að segja um
sóknarleikinn, sem við verðum að
fara að ráða bót á,“ sagði Bjarni Jó-
hannsson, þjálfari Grindavíkur.
Ósamræmi í dómgæslu
Lee Sharpe, miðvallarleikmaður
Grindavíkur, var niðurlútur að leik
loknum en taldi þó betri tíð í vænd-
um. „Strákarnir sýndu miklu meiri
baráttu og vilja í dag en í fyrsta
leik. Það var ekkert að gerast í leik
þeirra og mér fannst við hafa völd-
in á vellinum en þá skoruðu þeir al-
gjört draumamark. Síðan færðum
við okkur framar en þá skoruðu
þeir úr skyndisókn.“
En fannst þér ekki að þið hefðuð
átt að fá að minnsta kosti eina víta-
spyrnu?
„Mér fannst skorta samræmi í
dómgæslunni, stundum fannst mér
dómarinn vera að dæma á ein-
hverjar smáýtingar en sleppa aug-
ljósum brotum. Ég er ekkert að
segja að það hafi hallað á annað lið-
ið, en nú er ég sannfærður um að ef
við mætum með sama krafti á föstu-
dag og við gerðum í dag eigum við
eftir að ná í sigur,“ sagði Lee
Sharpe.
FINNUR Kolbeinsson, fyrirliði
Fylkis, lék í gærkvöld sinn 200.
deildaleik á ferlinum. Alla nema tvo
hefur hann leikið með Fylki. Eitt
sumar var Finnur í röðum Leifturs
en var þá úr leik vegna meiðsla eftir
aðeins tvær umferðir. Af þessum 200
leikjum hefur Finnur spilað 95 í
efstu deild en 105 í næstefstu deild.
TRYGGVI Guðmundsson lék allan
leikinn fyrir Stabæk í gærkvöld þeg-
ar liðið bar sigurorð af Bryne í
norsku úrvalsdeildinni, 2:1.
HARALDUR Ingólfsson, knatt-
spyrnumaður frá Akranesi, lék á
sunnudag sinn 300. deildaleik á ferl-
inum þegar lið hans, Raufoss, gerði
jafntefli, 2:2, við Hönefoss í norsku 1.
deildinni. Haraldur lék 191 deilda-
leik með ÍA og hefur síðan spilað 109
deildaleiki með Elfsborg og Raufoss.
HARALDUR er í 3.-5. sæti yfir
markahæstu menn norsku 1. deild-
arinnar en hann hefur skorað 4 mörk
í fyrstu 7 umferðunum. Í fyrra var
hann í hópi markahæstu leikmanna
deildarinnar með 17 mörk. Raufoss
er í fjórða sæti deildarinnar, þremur
stigum á eftir toppliðinu, HamKam.
SCOTT Ramsay, knattspyrnu-
maður, fékk í gær leikheimild með
Keflvíkingum og hann verður því
löglegur með Suðurnesjaliðinu á
laugardaginn þegar það tekur á móti
Þór í 1. deildinni.
ARNAR Þór Viðarsson, fyrirliði
Lokeren, var í gærkvöld útnefndur
leikmaður ársins hjá félaginu og þá
var Rúnar Kristinsson verðlaunaður
fyrir fallegasta markið.
KICKER hefur valið lið ársins í
þýsku Bundesligunni. Liðið er þann-
ig skipað: Van Duijnhoven (Boch-
um) - Lucio (Leverkusen), Rein-
hardt (Bielefeld), Münch (Gladbach)
- Ernst (Bremen), Ballack (Bayern),
Marcelinho (Hertha), Micoud
(Bremen) - Giovane Elber (Bayern),
Bobic (Hannover), Ailton (Bremen).
FÓLK
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fylkismenn fagna í Árbænum í gær. Gunnar Þór Pétursson og Haukur Ingi Guðnason eru í
„nettum“ faðmlögum fremst á myndinni en þeir skoruðu mörk Fylkismanna.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eitt sinn samherjar en nú mótherjar. Haukur Ingi Guðnason brunar í átt að marki Grindvíkinga en
Eysteinn Húni Hauksson reynir að fylgja honum eftir.
GUNNAR Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke City, segist bíða
svara frá Brynjari Birni Gunnars-
syni. Stoke er tilbúið með nýjan
tveggja ára samning handa Brynj-
ari, sem hefur undanfarna daga
dvalið í Portúgal við æfingar hjá
portúgalska fyrstudeildarliðinu
Braga sem bauð honum að koma
út og líta á aðstæður hjá sér.
„Við höfum ekkert heyrt frá
Brynjari en mér er kunnugt um að
hann er í Portúgal. Við höfum
gert honum tilboð sem hann á að
vera búinn að fá í hendur og núna
bíðum við bara eftir viðbrögðum
hans,“ sagði Gunnar Þór í samtali
við Morgunblaðið.
Stoke gekk í gær frá kaupum á
Noel-Gifton Williams, 23 ára
sóknarmanni frá Watford, og seg-
ir Gunnar stefnt að því að fá fjóra
til fimm nýja leikmenn í sumar.
Spurður hvort einhverjir ís-
lenskir leikmenn séu inni í mynd-
inni hjá Stoke segir Gunnar: „Það
er aldrei að vita. Það eru leikmenn
hér heima sem menn vilja skoða
en það verður bara að koma í ljós
hvað gerist í þeim efnum. Auðvit-
að væri gaman að geta haft fleiri
Íslendinga í okkar herbúðum,“
segir Gunnar.
Varnarmaðurinn Pétur Hafliði
Marteinsson á eitt ár eftir af
samningi sínum við Stoke en
Bjarni Guðjónsson er sem kunnugt
er farinn frá félaginu og búinn að
semja við þýska liðið Bochum til
þriggja ára.
Stoke City bíður svara
frá Brynjari Birni
Sverrir stóð í ströngu
SVERRIR Sverrisson, miðjumaðurinn öflugi
hjá Fylki, lék ekki með Árbæjarliðinu í leikn-
um við Grindavík í gær en hann hafði öðrum
hnöppum að hneppa að þessu sinni. Sverrir
lék með í fyrsta leik Íslandsmótsins þar sem
Fylkismenn lögðu Framara, 3:1, en í gær var
miðvallarleikmaðurinn staddur á fæðing-
ardeildinni og kom frumburðurinn, drengur, í
heiminn rétt undir lok fyrri hálfleiks eins og
forsvarsmenn félagsins orðuðu það, eða rétt
um kl. 20. Stöðu Sverris á miðjunni tók Hrafn-
kell Helgason.
Sverrir
Sverrisson
GUNNAR Þór Pétursson skoraði
sitt fyrsta mark í efstu deild þegar
hann kom Fylki í forystu gegn
Grindvíkingum á Fylkisvellinum í
gærkvöl. Þetta var 73. leikur Gunn-
ars í efstu deild fyrir Fylkismenn og
biðin eftir marki því orðin ansi löng
hjá þessum sterka varnarmanni.
Markinu gleymir Gunnar varla í
bráð því það var stórglæsilegt –
þrumufleygur efst í markhornið.
Fyrsta mark
Gunnars
„Ódýr mörk urðu
okkur að falli“