Morgunblaðið - 08.06.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2003 25
FRANSKI organistinn Olivier
Latry verður að teljast hvalreki á
fjörur íslenskra tónlistarunnenda.
Hann er einn þriggja aðalorg-
anista við Parísarkirkjuna Notre
Dame og álitinn einn fremsti í
organisti í heiminum.
Latry byrjaði að spila á píanó
þegar hann var sjö ára og tilviljun
réði því að hann settist tólf ára við
orgelið í brúðkaupi fjölskylduvin-
ar – þar með var tónninn sleginn.
Hann varð einn af aðalorganistum
Notre Dame aðeins 23 ára eða fyr-
ir tæpum tveim áratugum. Og hef-
ur síðan ferðast til um 50 landa í
fimm heimsálfum.
„Það stóð til að ég kæmi til Ís-
lands fyrir nokkrum árum, en þá
fannst ekki hentug dagsetning,“
segir hann og bætir við brosandi:
„En nú er ég mættur.“
Hann kom til landsins á föstu-
dag með konunni sinni og verða
þau á landinu fram á þriðjudag.
Þau nota tækifærið til að ferðast
eitthvað um landið, en hún er hon-
um líka innan handar á tónleik-
unum, „því það þarf alltaf ein-
hvern til að toga í lokurnar og
stilla hljóminn á orgeltónleikum“.
En hvaða lög eru á efnis-
skránni?
„Þegar organista er boðið að
spila á tónleikum, þá fær hann
alltaf senda lýsingu á hljóðfærinu
og lokunum, sem gefur hugmynd
um hljóminn í því. Með það í huga
reyndi ég að velja saman lög sem
væru áhrifarík í flutningi og hent-
uðu hljóðfærinu. Ég reyni líka að
miðla franskri tónlist, enda er það
minn bakgrunnur sem tónlistar-
manns.“
Hann ætlar að spila verk eftir
Bach, en einnig tónverk frá 19.
öld og 20. öld, þar af tvö tónverk
sem samin voru á síðasta áratug.
Svo má ekki gleyma spunanum,
sem hefð er fyrir í franskri
kirkjutónlist.
„Já, spuninn er mikilvægur, því
messurnar eru svo margar. Sem
dæmi má nefna að í Notre Dame
eru fjórar messur á sunnudags-
morgnum. Því er mikilvægt að
ekki sé notaður meiri tími í hverja
messu en úthlutað hefur verið.
Messan má ekki vera tveimur mín-
útum of löng. Sem þýðir að ég
verð að hætta að spila hvað sem
tautar og raular og þá er miður
skemmtilegt að vera í miðju tón-
verki. Þess vegna hentar spuninn
betur, því þá er hægt að hætta á
augnablikinu.“
Í þýskri kirkjutónlist er einnig
hefð fyrir spuna, en formið er
frjálsara í Frakklandi, að sögn
Latry. En veitir það frönskum
organistum forskot þegar kemur
að því að þroska tónlistargáfuna?
„Ef þú spyrð þýskan organista
að þessu, þá er ég viss um að hann
veitir þér annað svar. En ég tel
betra að frelsið sé meira og tón-
listin spretti úr jörðinni frekar en
höfðinu.“
Hversu skyldur er spuninn
djassi og jafnvel tónsmíðum?
„Eini skyldleikinn við djass er
þessi sjálfsprottna spilamennska,
en spuninn á meira skylt við tón-
smíðar. Einu sinni ætlaði ég að
skrifa niður spunann og búa til
tónverk. En mér fannst það
tímasóun því annað bíður. Spun-
inn er áfangi í tónsmíðunum, en
líka ólíkur. Mér líkar vel að njóta
spunans í augnablikinu og vita að
þegar síðasta nótan hefur verið
slegin er augnablikið horfið.“
Latry er 41 árs og hefur fest
rætur í Notre Dame. Er hægt að
ná lengra en það? „Ég held það sé
ekki hægt að finna betri kirkju en
Notre Dame. En ég á mikið verk
eftir óunnið hvað varðar upp-
tökur. Tónverkin eru mörg sem
mig langar til að taka upp og það
er tímafrekt. Fleira bíður, t.d. tók
ég upp gömlu verkin eftir Olivier
Messiaen fyrir þremur árum og
mig langar til að skrifa bók um
tónlistina hans. Ég býst við að
ljúka henni á næstu fimm árum.“
Tónlistin spretti úr
jörðinni frekar en höfðinu
Morgunblaðið/Kristinn
Olivier Latry, organisti Notre Dame-kirkjunnar í París.
pebl@mbl.is
Venjulega spilar Olivier Latry á orgelið í
Notre Dame á sunnudögum. Í kvöld spilar
hann í Hallgrímskirkju. Pétur Blöndal tal-
aði við rómaðan organista um spuna og sitt-
hvað fleira.
UPPBOÐI á einu af málverkum
Péturs Gauts Svavarssonar í
Galleríi Landsbankans á vefnum
er lokið og hæsta boð í mál-
verkið, Uppstilling, var 83.500
kr. Pétur Gautur ánafnaði
Barnaspítala Hringsins andvirði
kaupverðsins. Það er vilji Péturs
Gauts að upphæðin verði notuð
til kaupa á afþreyingarefni fyrir
börn.
Málverk Péturs Gauts eru nú
til sýnis í húsakynnum Lands-
bankans að Laugavegi 77. Einnig
er hægt er að skoða verkin á
slóðinni www.landsbanki.is.
Pétur Gautur afhendir forsvarsmönnum Barnaspítalans gjafabréfið.
Með honum á myndinni eru f.v.: Árni S. Pétursson, markaðsdeild
Landsbankans, Helga Þórðardóttir kennari og Gróa Gunnarsdóttir
leikskólakennari.
Pétur Gautur styrkir
Barnaspítala Hringsins