Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Vakri Hin frækna sveit Íslands sem skilaði vel viðunandi árangri í harðri keppni enda fóru allir glaðir heim. HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í Hern- ing hefur í fjölmiðlum og samræðum milli manna verið rómað á flesta lund. Íslendingar eru mjög sáttir við árang- ur íslenska liðsins enda hefur mörg- um þótt nóg um hinn mikla gull- mokstur mót eftir mót þar sem fáar aðrar þjóðir komist þar að. Hafa spakir menn bent á að með tilliti til út- breiðslu íslenskra hrossa sé það ekki vænlegt að við Íslendingar vinnum öll gullin en leyfum svo smælingjunum að slást um silfur og brons og þaðan af ómerkari verðlaun. Það var sem sagt gott að fá þessi þrjú gull í keppni hinna fullorðnu og ekki síðra að aðrir væru um hituna. Það hagar því þannig til nú að óvenju- margir sigurvegarar komu glaðir heim af heimsmeistaramótinu. Eins og til dæmis Stian Pedersen frá Nor- egi sem sagði það hafa verið sín gull- verðlaun að fá silfur í töltinu á Jarli frá Miðkrika, það hafi hins vegar ver- ið eigin klaufaskapur að vinna ekki al- vörugull í fjórgangi. „Einbeitingin var ekki rétt hjá mér, ég keppti fyrir áhorfendur í stað þess að einbeita mér að sjálfum mér og hestinum og því fór sem fór,“ sagði þessi geðþekki Norðmaður og Íslandsvinur að loknu móti. „Hvað var ég ekki búinn að segja?“ Ein af stóru spurningunum fyrir hvert mót og ekki hvað síst nú hefur verið sú hvort Sigurður Sæmundsson landsliðseinvaldur hafi valið rétta menn og rétta hesta. Á síðustu mót- um hefur val hans verið með ólíkind- um vel heppnað og hefur hann hlotið fyrir mikið lof og aðdáun. Nú má hins vegar heyra „spekinga“ segja: „Hvað var ég ekki búinn að segja?“ Nú þeg- ar menn leggja mat á það hversu út- sjónarsamur og forspár einvaldurinn er verður að taka tillit til þess að aldr- ei fyrr hafa jafnmargir liðsmenn verið valdir af einvaldi án tillits til frammi- stöðu í sjálfu úrtökumótinu. Að þessu sinni tippaði Sigurður rétt á tvo knapa, þá Jóhann R. Skúlason sem keppti á Snarpi frá Kjartansstöðum og Eyjólf Þorsteinsson á Súlu frá Hóli. Jóhann vann töltið sem er mik- ilvægasti sigurinn en Eyjólfur stóð sig best ungmenna í fimmgangi og hlaut HM-titil ungmenna í greininni. Daníel Ingi Smárason vann sig inn í liðið í úrtökunni á Tyson frá Búlandi og urðu þeir heimsmeistarar ung- menna í fjórgangi. Aðal Sigurðar í starfi sínu sem landsliðseinvaldur hefur verið óvænt útspil í vali og þá gjarnan á síðustu stundu. Ekki brá hann út af venjunni nú og gerði eitt- hvað sem enginn gat séð fyrir eða lát- ið sér detta í hug. Hér er átt við valið á Karenu Líndal þar sem Sigurður leiddi saman knapa sem aldrei hafði riðið og ekki séð Náttfaradís frá Wreda, hryssuna sem valin var. En dæmið gekk bara upp að hálfu leyti; Sigurði tókst að koma öllum á óvart en dæmið gekk engan veginn upp þegar á völlinn var komið. Hryssan var greinilega mjög erfið, afar viljug og jafnvel spennt svo verkefnið sem hann fól Karenu var býsna vanda- samt og tæpast við hana að sakast. Sjálf hefur hún marg sýnt og sannað að hún er knapi í fremstu röð en það var Sigurður sem tók áhættuna. Karen sagði eftir mót að vissulega hefði þetta verið erfitt verkefni. „Mér var boðið þetta með mjög skömmum fyrirvara og þurfti ég að svara já eða nei. Þetta var vissulega spennandi tækifæri og hver hefði ekki slegið til?“ spyr Karen og hún heldur áfram „Það hefði vissulega verið skemmti- legra ef það hefði gengið betur en að því frátöldu þá var þetta mjög skemmtilegt og mikil reynsla að fá að taka þátt í þessu ævintýri. Eins og Náttfaradís kom mér fyrir sjónir fannst mér hún tæplega tilbúin í keppni sem þessa. Hún hefur hlotið 8,63 fyrir hæfileika í kynbótadómi og þar á meðal 9 fyrir tölt og fet, og 10 fyrir brokk svo þetta leit vel út á pappírnum. En það voru brotalamir í þessu, fetið til dæmis alveg handónýtt og eins var rýmið á töltinu knappt og stökkið ekki nógu svifmikið. Hennar aðalvandamál var hversu fljótt og auðveldlega hún gat spennt sig upp og það gerðist til dæmis á brokkinu í fjórgangnum þegar áhorfendur fóru að klappa. Þá missti ég hana upp í einni beygjunni en náði henni niður aftur. Brokkið í hryssunni er hreint frábært og var stórkostlega gaman að ríða það,“ sagði Karen að endingu. Nánegling á versta tíma En það voru fleiri hestar íslenska liðsins sem brugðust og má þar nefna hest Styrmis Árnasonar, Hamar frá Þúfu, sem hefur verið gríðarlega sterkur á mótum í Þýskalandi framan af sumri. Töldu margir að þar færi bjartasta von Íslands í fjórgangi. Að- spurður kvaðst Styrmir að sjálfsögðu ekki kátur með útkomu sína og Ham- ars á mótinu. Sagði hann klárinn ekki hafa verið sjálfum sér líkan þessa daga og kenndi hann um að hesturinn hefði verið nánegldur skömmu fyrir mót og hann því ekki getað þjálfað hann sem skyldi þessa daga og því hefði hlutur þeirra ekki orðið meiri en raun varð á. Guðmundur Einarsson var sömu- leiðis svolítið svekktur með árangur sinn og Hersis frá Hvítárholti. Voru þeir fyrirfram taldir okkar helsta von í flugskeiðinu þar sem þeir hafa náð ævintýralegum tíma í greininni fyrr í sumar. Guðmundur lenti reyndar í ótrúlegum hlutum á mótinu þegar sjálfvirka tímatakan klikkaði í fyrsta spretti og hann fékk auksprett ásamt Svanhvíti Kristjánsdóttur og Sif frá Hávarðarkoti daginn eftir. Tókst ekki betur til en svo að sjálfvirka tímatak- an klikkaði aftur í aukasprettinum og fóru nú að renna tvær grímur á mannskapinn. „Þetta er bara ekki mitt mót, það er svo einfalt,“ sagði Guðmundur í mótslok þegar hann rak raunir sína fyrir blaðamanni. Hann benti á að ef 100 metra skeiðbrautin í flugskeiðinu hefði verið fjær upphafskaflanum hefði hann að líkindum tekið þetta. „Ég fann það vel þegar við vorum komnir yfir endamark að þá var klár- inn kominn á fulla siglingu. Ég hefði þurft lengri aðdraganda áður en kom að tímatökunni,“ sagði Guðmundur. Svanhvít náði bestum árangri Ís- lendinga í skeiðgreinunum, varð þar fjórða bæði í 250 metrunum og 100 metrunum, sæti á undan Guðmundi í báðum greinum. Sveinn Ragnarsson varð sjötti og sjöundi á Skjóna frá Hofi. Þessi frammistaða vekringanna er talsvert undir væntingum. Heimsmeistarar í næstbestu málum Um frammistöðu Vignis Jónasson- ar og Klakks frá Búlandi er allt gott að segja. Ljóst var eftir forkeppnina að Klakkur væri ekki sá yfirburða- hestur sem hann var fyrir tveimur ár- um þegar þeir félagar settu ein- kunnamet í fimmgangi. Eigi að síður var klárinn mjög góður hjá Vigni og ljóst að þeir hefðu hugsanlega þurft eina viku til viðbótar saman til að „klára málið“. Það virðist alltaf mjög erfitt að taka við hestum sem menn hafa unnið frækileg afrek á tveimur árum áður. Púsla þarf hlutum saman, yfirleitt á stuttum tíma, auk þess sem væntingar verða miklar á sitjandi heimsmeistara. Hafliði Halldórsson fór aðra leið en Vignir og kom með nýtt hross í töltið, Ásdísi frá Lækjarbotnum. Ekki tókst honum frekar en Vigni að verja sinn titil þótt ekki sé annað hægt að segja en frammistaða þeirra hafi verið með ágætum. Er ekki laust við að ýmsum hafi fundist Hafliði og Ásdís fá full- lágar einkunnir, sérstaklega fyrir hægatöltið án þess þó að því sé haldið fram að þau hefðu átt að höggva nærri tilinum. Hafliði sagði fyrir mót- ið að þetta væri spurning um dags- formið í keppni þessara firnasterku töltara sem þarna háðu harða keppni. Þess má geta að Íslendingurinn Denni Hauksson hefur keypt þessa eðalhryssu af Hafliða og hyggst hann nota hana í keppni á næstu árum að sögn Hafliða. Tómas Örn Snorrason og Skörung- ur frá Bragholti, fulltrúar Íslands í slaktaumatöltinu, sigldu nokkuð lygnan sjó í úrslitin. Fyrirfram var alltaf búist við að þeir félagar ættu nokkuð tryggt sæti í A-úrslitunum en sigurinn væri hins vegar torsóttari. Tómas og Skörungur voru í þriðja sæti eftir forkeppni en gáfu heldur eftir í úrslitum og höfnuðu í fimmta sæti. Víkingar í miklum ham Annar þáttur heimsmeistaramót- anna eru hinar sívaxandi vörusýning- ar og kaupstefna. Hið víðfeðma móts- svæði í Herning bauð upp á góða möguleika enda hefur aldrei verið eins lífleg sölu- og kynningar- mennska á heimsmeistaramótum sem nú. Var afar athyglisvert að sjá hversu mikil gróska er í framleiðslu á reiðtygjum fyrir íslenska hesta. Má þar nefna hinar fjölmörgu gerðir hnakka sem framleiddir eru bæði hér á landi og í Evrópu og einn þeirra, Hrímnir, er m.a.s. framleiddur í Arg- entínu. Það ánægjulega við þetta er hversu mikil gróska er í þessari fram- leiðslu hér á landi og er umtalsverður útflutningur stundaður héðan. Nokkrir söluaðilar kynntu hestakerr- ur sem meðal annars eru sérstaklega framleiddar fyrir íslenska hesta. En það sem vakti kannski hvað mesta at- hygli var árás víkinganna inn á svæð- ið en þeir slógu þar upp fjölmörgum tjöldum og seldu þar ýmiskonar handverk og matvæli og þar á meðal víkingabrauð. Í Danmörku er mikill áhugi fyrir víkingamennsku og eru þeir talsvert margir sem lifa hálf- gerðu „víkingalífi“. En til að halda trúverðugleikanum í þessari víkingamennsku tóku þeir nokkrum sinnum rimmur með brugðnum bröndum og mátti þar sjá víkinga á ýmsum aldri kljást með sverðum og skjöldum. Hlutdeild vík- inganna setti afar skemmtilegan svip á mótsbraginn og vekur það spurn- ingar um það af hverju Danir séu með svona mikla víkingadellu en ekki Ís- lendingar eða Norðmenn? Mótsstaðurinn í Herning er afar góður staður undir mót sem þetta þótt ekki fái hann sérstök fegurðar- verðlaun. Húsakostur er mikill og nóg er rýmið enda var það svo að aldrei hefur verið boðið upp á eins rúma að- stöðu fyrir upphitun keppnishross- anna. Var lögð mikil áhersla á að halda fjarri allri utanaðkomandi trufl- un áður en hrossin fóru inn á völlinn. Þá var á þessu móti meiri einangrun keppnishrossanna en áður hefur þekkst og fengu engir utanaðkom- andi aðgang að hesthúsunum og voru engar undantekningar gerðar á því. Tjaldbúðalíf var meira áberandi á þessu mótin en áður hefur verið og var aðstaða fyrir slíkt býsna góð. Ekki spillti hið góða veður allan tím- ann fyrir góðri líðan fólks í tjaldbúð- unum. Þá vekur það athygli hversu mikið er búið flýta heimsmeistaramótunum. Í öndverðu voru þau haldin í endaðan ágúst og sköruðust jafnvel yfir á sept- ember í einstaka tilfellum. Íslending- ar börðust alltaf fyrir því að mótunum væri ekki flýtt en greinilega hefur landinn látið undan síga og ljóst er að næsta mót sem haldið verður í Sví- þjóð verður einnig um verslunar- mannahelgi eins og nú var og þykir mörgum slæmt – sérstaklega þeim sem sækja hið vinsæla Logamót í Hrísholti sem ávallt er haldið þessa helgi. Umræður í kjölfar vel heppnaðs heimsmeistaramóts í Herning í Danmörku Ekki gott að vinna of mikið gull Morgunblaðið/Vakri Vel fór um léttklædda Íslendinga í brekkunni í Herning í steikjandi hita. Víkingarnir gerðu eftirminnilega innrás á heimsmeistaramótið og voru þar mjög áberandi og atkvæðamiklir eins og vera ber. Morgunblaðið/Vakri Tómas og Skörungur stóðu sig eins og væntingar stóðu til og höfnuðu í fimmta sæti í A-úrslitum í slaktaumatölti en voru í þriðja sæti í forkeppni. Nú þegar sigurvíman er byrjuð að rjátlast af landanum eftir vel heppnaða ferð á heimsmeistaramót íslenskra hesta í Hern- ing í Danmörku þótti Valdimar Kristins- syni við hæfi að fara yfir mótið í víðu sam- hengi og skoða árangur íslenska liðsins. HESTAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2003 33

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.