Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 31
leiða í Skandinavíu, sagði í samtali við Morgunblaðið að bæði Flug- leiðir og Stuðmenn hefðu rennt blint í sjóinn með tónleikana og ekki gert sér grein fyrir því hvort áhugi væri á því meðal Íslendinga að sjá Stuðmenn troða upp í Tívolíi: „Strax og við auglýstum tónleikana létu viðbrögðin hins vegar ekki á sér standa. Miðarnir seldust upp á nokkrum dögum og komust færri að en vildu,“ segir Halldór. Þjóðarstolt og ættjarðarást Vitandi það að verulegur meiri- hluti tónleikagesta væru Íslend- ingar spilaði hljómsveitin á þjóð- erniskennd gesta. Upphafslagið var til að mynda íslenski þjóðsöngurinn að viðstaddri fjallkonunni. Gestir risu umsvifalaust úr sætum og tóku undir fullum hálsi, og tónninn var gefinn fyrir það sem koma skyldi – það ríkti alger eining um að skemmta sér vel. „Þetta er tímamóta- viðburður. Við fyllt- umst þjóðarstolti og fengum gæsahúð þegar þjóðsöngurinn var sunginn,“ sögðu þær Ólöf og Þor- björg sem búa í Dan- mörku og kunnu vel að meta þessa heim- sókn að heiman. Tökur á nýrri kvikmynd að hefjast Það sem var ekki síður mikilvægt og átti mikinn þátt í að skapa þá frábæru stemmningu sem myndaðist var sú staðreynd að tónleikagestir voru ekki bara áhorfendur heldur líka þátttakendur. Tónleikarnir, hvar allir helstu smellir sveitarinnar voru spilaðir, mörkuðu upphafið að upptökum á nýrri kvikmynd Stuð- manna. Myndin ber vinnuheitið Í takt við tímann og er í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar. Næstu daga fara tökur fram í Kaupmanna- höfn en hugmyndin að myndinni hefur lengi verið í farvatninu. „Það er langt síðan við ákváðum að gera nýja kvikmynd og í rauninni höfum við verið að þróa hugmyndir að nokkrum kvikmyndum,“ segir Jak- ob Frímann Magnússon í samtali við Morgunblaðið. „En þegar Ágúst nálgaðist okkur með hugmynd sem var ódýrari og auðveldari í fram- kvæmd en sú hugmynd sem var komin lengst hjá okkur þá ákváðum við að skella okkur í slaginn. Tök- urnar hefjast hér í Kaupmannahöfn en munu einnig fara fram í suður- ríkjum Bandaríkjanna í janúar og á Íslandi í febrúar og mars,“ segir Jakob. Stuðmenn ásamt Eggerti Þorleifssyni eru aðalpersónur myndarinnar sem þó er ekki fram- hald af kvikmyndinni Með allt á hreinu þótt persónurnar séu þær sömu. „Þetta er alveg sjálfstæð mynd með sömu persónum við allt aðrar aðstæður,“ segir Jakob. Áhorfendur, sem voru á öllum aldri, allt frá fimm mánaða upp í áttrætt, virtust kunna vel að meta þátttöku í nýrri Stuðmannakvik- mynd og gerðu allt sem Stuðmenn báðu þá um, dilluðu sér í mjöðm- unum, risu úr sætum og sungu með af innlifun. Af þessum viðtökum að dæma þá mætti ætla að þessir fyrstu tónleikar íslenskrar stuð- sveitar í kóngsins Kaupmannahöfn verði jafnvel ekki þeir síðustu. rsj@mbl.is Morgunblaðið/Ragna Sara Stuðmenn stóðu svo sannarlega undir nafni í Tívolíi og héldu uppi stuðinu með gömlum og nýjum smellum. Morgunblaðið/Ragna Sara Ágúst Guðmundsson, leikstjóri Með allt á hreinu og nýju Stuðmannamyndarinnar Í takt við tímann, var einbeittur við upptökur meðan á tónleikunum stóð. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 31 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.Sýnd kl. 6. Með ísl. tali Tilb. 400 kr. KVIKMYNDIR.IS Skemmtilegast a spennumynd ársins er komin.. J I M C A R R E Y Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 áraSýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 10 ára Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.  ROGER EBERT  L.A. TIMES BRUCE ALMIGHTY Geggjaðar tæknibrellur og læti. Missið ekki af þessari!  BBCI Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði „Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða- markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“ Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir, Allrahanda. Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku. Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu. www.menntun.is Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 6 og 8. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Frá leikstjóra Trainspotting kemur hið magn- aða meistaraverk 28 Days Later. Missið ekki af þessum frábæra framtíðartrylli. SV MBL ZOMBIE- SKONROKK FM 90.9  HK DV  Kvikmyndir.com Einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin." Þ.Þ. FBL. Ein besta mynd ársins Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Geggjaðar tæknibrellur og læti. Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 6 og 10. spurðu fólkið HAUST- OG VETRARLITIRNIR 2003 Kaupauki þegar keypt er fyrir 2.000 kr. eða meira KYNNINGAR á haust- og vetrarlínunni 2003 kl. 14-17 Mánudag 15. sept. Lyfja Lágmúla Þriðjudag 16. sept. Lyfja Smáratorgi Miðvikudag 17. sept. Lyfja Setbergi Fimmtudag 18. sept. Lyfja Laugavegi Föstudag 20. sept. Lyfja Kringlunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.