Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 23 Skráning í Kauphöll Söfnunartímabil 11. - 18. nóvember 2003 kl. 18.00 Áskriftartímabil 19. - 20. nóvember 2003 Lágmarksfjárhæð áskriftar 5.000.000 kr. að kaupverði Greiðsla áskrifta Eigi síðar en 25. nóvember 2003 Útboðs- og skráningarlýsingu má nálgast hjá umsjónaraðila, söluaðila og útgefanda Útgefandi Umsjónaraðili Söluaðili Stjórn Kauphallar Íslands hf. hefur samþykkt að skrá allt hlutafé Medcare Flögu hf. á Aðallista. Félagið uppfyllir nú þegar skilyrði skráningar. Dagsetning skráningar verður tilkynnt í fréttakerfi Kauphallar Íslands hf. að loknu fyrirhuguðu útboði, en stefnt er að skráningu í vikunni eftir að útboði lýkur. ISIN auðkenni bréfanna er IS0000008753. Auðkenni hlutabréfa félagsins verður MED í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands hf. Söfnunarbók stendur opin (e. book-building period) frá og með þriðjudeginum 11. nóvember 2003 til klukkan 18.00 þriðjudaginn 18. nóvember 2003. Á þeim tíma er tekið við viljayfirlýsingum fjárfesta um þátttöku í útboðinu. Form viljayfirlýsinga er ekki staðlað. Útgefanda er mikilvægt að fá í hlutahafahópinn aðila sem hafa burði og vilja til að styðja við félagið í framtíðinni. Þess vegna áskilur útgefandi sér rétt til að samþykkja eða hafna þeim viljayfirlýsingum sem fást á söfnunartímabilinu, að öllu eða að hluta, án þess að gefa sérstaka skýringu þar á, eða tilkynna sérstaklega. Útgefandi mun að öðru leyti leggja til grundvallar gengi og fjárhæð sem fjárfestar eru reiðubúnir að skrá sig fyrir, hversu tímanlega viljayfirlýsingar berast eftir kynningu, áreiðanleika og gæði fjárfesta og það markmið að ná fram sterkri og hæfilega dreifðri eignaraðild. Komi fram umframáhugi á söfnunartímabilinu er útgefanda heimilt að hafna hluta fjárhæða í viljayfirlýsingum eða úthluta með öðrum hætti. Útgefanda er heimilt að hætta við eða stytta söfnunartímabilið. Nýtt hlutafé að andvirði 900.000.000 kr. verður boðið á gengisbilinu frá 5,5 til 7 og nemur nafnverð þess á bilinu frá 128.571.428 til 163.636.363 kr. Stjórn félagsins er heimilt að stækka útboðið í allt að 218.181.818 kr. að nafnverði og hækkar fjárhæð útboðsins þá í allt að 1.200.000.000 kr. að andvirði. Stjórnin ákvarðar útboðsgengi 18. nóvember eftir að hafa ráðfært sig við umsjónaraðila útboðsins. Ákvörðun verður byggð á niðurstöðu söfnunarinnar (e. book-building procedure) og mati á markaðsaðstæðum. Tilkynnt verður um útboðsgengi með viðauka útboðs- og skráningarlýsingar þann 19. nóvember. Viðaukinn verður birtur í fréttakerfi Kauphallar Íslands hf. og mun fylgja útboðs- og skráningarlýsingunni eftir þann tíma. Áskriftarfjárhæðum verður úthlutað til aðila sem gefið hafa viljayfirlýsingu um þátttöku í útboðinu og ekki hefur verið hafnað af útgefanda. Umsjónaraðili mun tilkynna þeim um úthlutunina eftir klukkan 10.00 þann 19. nóvember en eigi síðar en kl. 15.00 þann 20. nóvember. Áskriftarblöðum skal skila eftir úthlutun áskriftarfjárhæðar og eigi síðar en klukkan 16.00 þann 20. nóvember 2003. Allar bindandi áskriftir skulu vera á þar til gerðum áskriftarblöðum í viðauka útboðs- og skráningarlýsingar. Útgefandi áskilur sér rétt til að krefjast tryggingar fyrir greiðslu áskrifta. Samningur um áskrift telst kominn á þegar áskrift hefur verið samþykkt af útgefanda. Þátttakendum í útboðinu verður tilkynnt með tölvupósti eða símbréfi eigi síðar en kl. 18.00 þann 20. nóvember hvort og þá með hvaða skilmálum áskrift þeirra hafi verið samþykkt. Útgefandi áskilur sér rétt til að hafna áskriftum að öllu leyti eða hluta ef fjárfestar skrá sig ekki fyrir þeirri áskriftarfjárhæð sem þeim hefur verið úthlutað. Útgefanda er mikilvægt að fá í hlutahafahópinn aðila sem hafa burði og vilja til að styðja við félagið í framtíðinni. Vegna þessa er útboðinu beint til stofnana- og fagfjárfesta en ekki er um almennt útboð að ræða. Medcare Flaga hf., Vesturhlíð 7, 105 Reykjavík, sími 510-2000, www.medcare.com Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings Búnaðarbanka hf.,Austurstræti 5, 155 Reykjavík, sími 525-6060 Markaðsviðskipti Kaupþings Búnaðarbanka hf., Ármúla 13, 108 Reykjavík, sími 515-1500 www.kaupthing.net, www.bi.is Fjárhæð og gengi HLUTAFJÁRÚTBOÐ AÐ UNDANGENGNU SÖFNUNARTÍMABILI VILJAYFIRLÝSINGA OG SKRÁNING Á AÐALLISTA KAUPHALLAR ÍSLANDS HF. „MITT fólk hefur aldrei átt skíði“ er yfirskrift dagskrár í tali og tónum sem haldin er í minningu Einars Kristjáns Einarssonar gítarleikara, sem lést 8. maí á síðasta ári. Dagskrá- in er haldin í Iðnó í kvöld, á fæðing- ardegi Einars, og hefst kl. 20:30. „Hugmyndin að minningartónleikun- um kviknaði með okkur vinum hans, en síðan Einar lést höfðum við verið að leita að tilefni til að koma saman og minnast hans. Í gegnum tíðina höfum við vinir hans náttúrlega oft komið saman hinn 12. nóvember til að gleðj- ast með Einari á æfmælisdegi hans. Okkur fannst því tilvalið að hittast þennan dag í ár og hafa þær Ásta og Harpa Arnardætur verið aðaldrif- fjaðrirnar í allri skipulagningu dag- skrárinnar í kvöld. Ég á von á því að þetta verði skemmtilegt kvöld og mikið hlegið, enda var hugmyndin að gera eitthvað skemmtilegt saman,“ segir Örn Magnússon píanóleikari sem er meðal þeirra sem spila í kvöld. „Annað tilefni minningartón- leikanna er að safna fyrir útgáfu geisladisks með upptökum sem Einar lét eftir sig. Við vissum af þessum upptökum, sem er eitt af því síðasta sem hann gerði áður en hann veiktist og mér skilst að þetta séu mjög fínar upptökur. Þetta er sólómúsík sem hann tók upp í ágústmánuði 2001, þá nýkominn heim af tónlistarhátíð í Skotlandi.“ Kom víða við á ferlinum Að sögn Arnar kom Einar víða við á listaferli sínum. „Einar var jafnvígur á ólíkar tónlistar- stefnur og spilaði með mjög mörg- um, enda mun dagskrá kvöldsins bera þess merki, því þar troða upp menn úr hinum aðskiljanlegustu tónlistarstefnum.“ En listafólkið sem treður upp í kvöld er úr stórum hópi vina og samstarfs- manna Einars og má þar nefna hljóm- sveitina Rússíbana sem skipuð er Guðna Franzsyni, Kristni H. Árna- syni, Tatu Kantomaa, Jóni Skugga og Matthíasi Hemstock, Örn Magnús- son, Marta G. Halldórsdóttir, Einar Jóhannesson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Guðrún S. Birgisdóttir, Martial Nar- deau, Gyrðir Elíasson, Þorsteinn Gauti Sigurðsson, Sigrún Eðvalds- dóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir, Hilm- ar Örn Hilmarsson, Sigursveinn Magnússon, Guðmundur Pétursson, Áskell Másson, Lárus Grímsson og Bráðabanar, þar sem ýmsir lista- menn stilla saman strengi sína. En Bráðabanar eru þeir sem kallaðir eru til að spila með Rússíbönum þegar einhver þeirra forfallast. Spurður um yfirskrift tónleikanna segir Örn hana hafða eftir Einari barnungum. „Hann hafði verið að fylgjast með uppsetningu Íslands- klukkunnar hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem pabbi hans var að leika. Fljótlega var Einar búinn að læra öll hlutverkin og hafði á takteinum. Svo var það einhvern tímann að Einar var spurður hvort hann ætlaði ekki að skella sér á skíði í fallegu veðri á Ak- ureyri og þá svaraði hann: „Mitt fólk hefur aldrei átt skíði,“ sem er útlegg- ing á orðum persónu í Íslandsklukk- unni sem á einum stað segir: „Mitt fólk hefur aldrei átt tóbak.“ Þessi setning hefur síðan lifað með fjöl- skyldu og vinum Einars. Þess má geta að Einar var alla tíð mikill skáld- skaparunnandi og mjög minnugur á allt sem hann las. Hann gat kallað fram gullnar setningar og farið með þegar á þurfti að halda.“ Miðaverð dagskrárinnar í kvöld er 1.000 krónur og rennur allur ágóði í útgáfusjóð fyrrnefnds disks. Jafnvígur á ólíkar stefnur Einar Kristján Einarsson Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu í dag kl. 12.30 leika Guð- rún Sigríður Birg- isdóttir og Snorri Sigfús Birgisson á flautu og píanó verk eftir Snorra Sigfús Birgisson, Magnús Blöndal Jóhannsson og Leif Þórarinsson. Einnig eru á dag- skrá þrjú lög sem varðveitt eru í segulbandasafni Stofnunar Árna Magnússonar í út- setningum Snorra Sigfúsar. Þrjú lög að austan fyrir flautu og píanó eru lögin sem varðveitt eru í segulbandasafni Stofnunar Árna Magnússonar. Snorri Sigfús út- setti lögin og tileinkaði þau Guðrúnu Sigríði en þau Jónas Ingimundarson frumfluttu þau í Bolungarvík s.l. sum- ar á tónlistarhátíðinni. „Við Djúpið“, Divertimento í sól fyrir píanó samdi Snorri Sigfús árið 1998 og tileinkaði Þorkeli Sigurbjörnssyni sem átti sex- tugsafmæli 16. júlí það ár. Verkið er í þremur stuttum köflum sem allir byggjast á lögum úr íslenskum hand- ritum sem varðveitt eru í Landsbóka- safni Íslands – Háskólabókasafni. Höfundur frumflutti verkið í Iðnó í ágúst 1998 á Menningarnótt í Reykja- vík. Solitude fyrir flautu samdi Magn- ús Blöndal Jóhannsson fyrir Manuelu Wiesler í New York um vetur 1982. Verkið fjallar í einfaldleika sínum að einhverju leyti um einsemd mann- eskjunnar en ekki einmanakennd. Per Voi fyrir flautu og píanó eftir Leif Þórarinsson. Verkið var samið í des- ember 1975 í Kaupmannahöfn fyrir Manuelu Wiesler og Snorra Sigfús Birgisson sem frumfluttu það skömmu síðar. Íslensk verk á Háskóla- tónleikum Guðrún S. Birgisdóttir Snorri Sigfús Birgisson Árnagarður, stofa 301 kl. 12.05– 13 Gísli Pálsson mannfræðingur flytur fyrirlesturinn: Lífstykki og lausaleikur: Vettvangsferðir Vil- hjálms Stefánssonar á rabbfundi Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. Gísli mun fjalla um menningar- árekstra á norðurslóðum snemma á síðustu öld í kjölfar hval- veiða vestrænna manna, samskipti evrópskra karla og kvenna í hópi inúíta, flækjurnar sem þau höfðu stundum í för með sér og meðferð þeirra bæði heima fyrir og á vett- vangi. Meðal annars verður fjallað um einkalíf Vilhjálms Stefánssonar og ferðalög hans um norðurslóðir. Á MORGUN Gísli Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.