Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 14

Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KAUPHALLIRNAR í Helsinki í Finnlandi, Riga í Lettlandi og Tallinn í Eistlandi ætla að ganga til liðs við nor- ræna kauphallarsamstarfið NOREX frá og með næsta ári. NOREX verður þar með sjötti stærsti verðbréfamark- aður í Evrópu. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í gær. Heildarviðskipti í kauphöllunum í núverandi og tilvonandi aðildarlönd- um NOREX námu um 40 þúsund milljörðum íslenskra króna á fyrstu tíu mánuðum þessa árs. Til saman- burðar má geta þess að heildarvelta í kauphöllinni í London, sem er hin stærsta í Evrópu, var á sama tíma um sex sinnum meiri. Þegar samstarfið kemst til fram- kvæmda taka kauphallirnar í Hels- inki, Riga og Tallinn upp viðskipta- kerfið SAXESS, sem notast er við innan NOREX. Svíar og Danir hófu notkun viðskiptakerfisins árið 1999, Kauphöll Íslands bættist við í október árið 2000 og Norðmenn í maí 2002. Kauphallirnar í Riga og Tallinn litlar Í maí síðastliðnum keypti sænska kauphöllin fyrirtækið Hex, sem rekur kauphallirnar í Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að þá þegar hafi verið ljóst að ætlunin væri að fá þær inn í NOREX-sam- starfið. „Kauphöllin í Helsinki var ekki þát- takandi í neinu kauphallarsamstarfi á þessum tíma, og það var ljóst að ráð- ast yrði í gerð nýs viðskiptakerfis, sem hefði verið mjög kostnaðarsamt, segir Þórður. „Með aðild að norræna kauphallarsamstarfinu er það mál leyst. Töluverður munar um Finnland í NOREX-samstarfinu, en Þórður segir að kauphallirnar í Eistlandi og Lettlandi séu mjög litlar. „Til sam- anburðar má nefna það að kauphall- irnar í Eystrasaltsríkjunum þremur eru samtals með minni veltu en kaup- höllin á Íslandi, og hún er eins og gef- ur að skilja langminnst á Norðurlönd- um. Þórður segir að á hinn bóginn megi búast við því að kauphallirnar í Eistlandi og Lettlandi vaxi hratt á næstu árum, og viðskiptahagsmunir Norðurlanda, einkum Finna, séu mjög miklir í Eystraltsríkjunum. „Það fer að vísu ekki mjög mikið fyrir Íslendingum á þessu svæði, en þó eru íslensk fyrirtæki starfandi í öllum þremur löndunum,“ segir Þórður. Vaxtarmöguleikar í Póllandi og Litháen Hugsanlegt er kauphallarsam- starfið vaxi enn á næstu árum. Jukka Ruuska, framkvæmdastjóri HEX, segir að verið sé að vinna að einka- væðingu kauphallarinnar í Litháen, og þegar því verki sé lokið geti hún komið til greina sem aðili að NOREX. Þórður Friðjónsson segir að Pólland geti einnig orðið áhugavert fyrir nor- ræna kauphallarsamstarfið. Hann bendir á að NOREX sé í samkeppni við aðrar kauphallir í Evrópu. „Sam- keppnishæfnin byggist að hluta til á stærð og það er ein af ástæðunum fyr- ir stækkuninni núna. Þannig að það væri töluverður fengur í Póllandi. Þórður segir að skiptar skoðanir séu um það hvernig best sé að haga kaup- hallarsamstarfinu í framtíðinni. Sum- ir vilji sameina allar norrænu kaup- hallirnar í einu fyrirtæki, en aðrir, einkum Norðmenn og Íslendingar, vilji að kauphallirnar verði áfram sjálfstæðar en að unnið verði að frek- ari samræmingu innan ramma NO- REX-samstarfsins. Hann segir að sátt sé um það innan NOREX að vinna áfram að eflingu samstarfs kauphallanna á næsta ári, en eftir það geti menn farið að velta fyrir sér öðr- um lausnum ef þörf krefji. Þórður segir að aðalatriðið sé að viðskiptavinirnir upplifi Norðurlönd sem einn markað, og njóti þess ávinn- ings sem því fylgi. Hann spáir því að nánara samstarf leiði til þess að út- lendir fjárfestar verði virkari á ís- lenskum markaði, sem komi íslensk- um fyrirtækjum til góða. Þrjár kauphallir ganga til liðs við NOREX Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, sem ásamt forsvars- mönnum NOREX-kauphallanna kynnti útvíkkun NOREX-samstarfsins, segir að nánara samstarf muni koma íslenskum fyrirtækjum til góða. Þórður Friðjónsson kynnti sér starf dönsku kauphallarinnar. DÓTTURFÉLAG SH í Frakklandi, Icelandic France, hefur keypt inn- flutningsfyrirtækið Barogel í Mars- eille fyrir 2,2 milljónir evra, eða tæp- ar 200 milljónir króna, og hyggst sameina félaögin tvö. Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Icelandic France, segir að viðskiptavinir fyr- irtækisins fari stækkandi, meðal annars vegna samruna. Þeir geri æ meiri kröfur um afhendingu og gæði og séu leynt og ljóst að fækka birgj- um sínum. Með kaupunum á Barogel sé hægt að bjóða fleiri vörutegundir og hér eftir verði hægt að sjá við- skiptavinunum fyrir nánast öllum frystum sjávarafurðum sem styrki stöðu Icelandic France á markaðn- um. Magnús segir að samlegðaráhrif séu mjög mikil og felist bæði í því að fyrirtækin bjóði ólíkar vörur og hafi ólíka viðskiptavini. Hann segir Ice- landic France langmest hafa verið í flökuðum fiski, en Barogel hafi sér- hæft sig í skelfiski. Icelandic France hafi einbeitt sér að smásölu og veit- ingaþjónustu en Barogel hafi ein- beitt sér meira að iðnaðarnotendum og smærri dreifingaraðilum. Vaxtarmöguleikar voru orðnir takmarkaðir Icelandic France hefur að sögn Magnúsar vaxið hratt undanfarin ár og það hafi gerst með því að fyrir- tækið hafi einbeitt sér að ákveðnum hlutum markaðarins. Vaxtarmögu- leikar þar hafi verið orðnir takmark- aðir eða mjög kostnaðarsamir og þess vegna hafi verið ákveðið að renna þessari nýju stoð undir rekst- urinn til að ná fram auknum vexti. Barogel veltir um 22 milljónum evra, um 2 milljörðum króna, sem er um helmingur af veltu Icelandic France. Fyrirtækið er staðsett í Marseille og er með tíu starfsmenn. Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á starfsmannahaldi og framkvæmda- stjóri Barogel mun starfa áfram hjá sameinuðu félagi og stjórna starf- semi þess í Marseille. Barogel hefur verið rekið með hagnaði mörg undanfarin ár og hefur hagnaður fyrir skatta yfirleitt numið 1-2% af veltu. Magnús segir að það teljist gott hjá fyrirtæki í þessari grein og Barogel sé vel rekið fyrir- tæki með langa og farsæla sögu. Hann segir ímynd þess á markaðn- um mjög sterka, sem fari saman við ímynd Icelandic France. Vörumerki Icelandic France hafi góða stöðu á markaðnum og þess vegna hafi verið mikilvægt að fá fyrirtæki sem væri þekkt fyrir svipuð gæði. Aðspurður segir Magnús að frum- kvæði kaupanna hafi komið frá Ice- landic France. Hann hafi fengið veð- ur af því að fyrirtækið væri hugsanlega til sölu og hafi í fram- haldi af því sett sig í samband við eig- endur þess fyrr á þessu ári. Á síðustu mánuðum hafi verið unnið að und- irbúningi kaupanna og þeim hafi lok- ið með undirritun samninga í gær. Dótturfélag SH kaupir franskt inn- flutningsfyrirtæki ORKUVEITA Reykjavíkur,OR, hef- ur eignast 21,3% hlut í Metan hf. eftir að hlutafé var aukið í félaginu um 15 milljónir króna. Sorpa, stærsti hlut- hafi félagsins, tók einnig þátt í aukn- ingunni og á nú 49,8% hlut en átti 57,5% fyrir. Aðrir hluthafar eru Olíu- félagið hf. með 14,9% og Nýsköpunar- sjóður með 14% hlut. Metan hf. var stofnað árið 1999 til að safna hauggasi sem myndast við rotnum lífrænna úrgangsefna á urð- unarstað Sorpu í Álfsnesi og eftir fremsta megni að nýta það, eins og það er orðað á heimasíðu félagsins. Í fréttatilkynningu frá Metani seg- ir að Sorpa hafi leyst til sín hreinsi- stöðina í Álfsnesi en frá 1. september sl. hefur Sorpa séð um hreinsun á gasi til notkunar á ökutæki. „Metan hf. mun hér eftir einbeita sér að því að auka hlut metans sem ökutækjaelds- neytis jafnframt því að þróa og stækka aðra markaði fyrir metan,“ segir í tilkynningu Metan. Þá segir í tilkynningunni að Orku- veitan hafi í rúmt ár framleitt raforku úr metangasi í Álfsnesi. Orkuveitan eignast fimmtung í Metan hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.