Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.01.2004, Blaðsíða 48
MESSUR Á MORGUN 48 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðleg bænavika 2004 ALÞJÓÐLEG, samkirkjuleg bæna- vika verður haldin dagana 18.–24. janúar nk. Bænavikan er haldin ár- lega um þetta leyti og er þá beðið fyrir einingu kristinna manna um heim allan. Það er Alkirkjuráðið (World Council of Churches) í sam- vinnu við kaþólsku kirkjuna sem stendur að baki vikunnar um allan heim og bænarefni vikunnar kemur jafnan frá einhverjum aðild- arkirkna. Yfirskrift bænavikunnar í ár er „Minn frið gef ég yður“ (Jóh. 14:27) og kemur hugmynd að bæn- um og ritningartexta að þessu sinni frá Mið-Austurlöndum, frá borginni Aleppo í Norður-Sýrlandi, þar sem fólk úr sýrlensku rétttrún- aðarkirkjunni, kaþólsku kirkjunni og mótmælendakirkjum undirbjó efnið. Frá landsvæði sem lengi hef- ur glímt við afleiðinga átaka og stríðs berst nú bæn um frið og ein- ingu út um heiminn. Á Íslandi hefst bænavikan með útvarpsmessu í Dómkirkjunni sunnudaginn 18. janúar. Þar pre- dikar Anne Marie Reinholdtsen, forstöðukona Hjálpræðishersins á Íslandi og fulltrúar annarra kirkna lesa ritningarlestur. Á mánudag verður bænasamkoma kl. 12 í Fíla- delfíu og um kvöldið kl. 20 í Kar- melklaustri í Hafnarfirði. Þriðju- dag verður bænasamkoma kl. 12 í fríkirkjunni Veginum, á miðviku- dag verður kvöldsamkoma kl. 20 í Kristskirkju í Landakoti, á fimmtu- dag verður kvöldsamkoma hjá Hjálpræðishernum og á laugardag kvöldsamkoma kl. 20 í Íslensku Kristskirkjunni. Allar verða þessar samkomur með þátttöku fólks úr öðrum kristnum samfélögum. Á Akureyri verður samkoma á föstudagskvöldinu 23. janúar á Hjálpræðishernum. Fulltrúar frá aðventistum, Hjálpræðishernum, Hvítasunnukirkjunni, Kaþólsku kirkjunni og Þjóðkirkjunni á Ak- ureyri taka þátt í stundinni með ritningarlestri, bæn og söng. Ræðu- maður verður sr. Guðmundur Guð- mundsson, héraðsprestur. Bæna- vikunnar verður einnig minnst á kyrrðar- og bænastundum safn- aðanna í vikunni og eru allir hvattir til að taka þátt í bænagjörð fyrir friði saman og í einrúmi þessa daga. Allir eru hjartanlega vel- komnir á samkomur bænavik- unnar. Bænavikan hefur verið haldin ár- lega hér á landi frá árinu 1968. Undirbúningur bænavikunnar hér- lendis er í höndum samstarfs- nefndar kristinna trúfélaga. Aðild að nefndinni eiga: Aðventistar, Frí- kirkjan Vegurinn, Hvítasunnu- kirkjan, Hjálpræðisherinn, Íslenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan. Formaður nefndarinnar er séra María Ágústsdóttir, héraðsprestur. Auk auglýstrar dagskrár bæna- vikunnar eru prestar og for- stöðumenn safnaða hvattir til að minnast hennar á bænastundum safnaða og biðja fyrir friði og ein- ingu kristinna manna. Grafarvogskirkja – Að búa einn HINN 20. janúar nk. hefst nám- skeið í Grafarvogskirkju, sem nefn- ist „Að búa einn/ein.“ Námskeiðið er ætlað þeim sem gengið hafa í gegnum skilnað ný- lega og er markmið þess að koma til móts við þessa einstaklinga, gefa þeim vettvang og tækifæri til að vinna úr erfiðum tilfinningum sem upp koma við skilnað. Námskeiðið stendur yfir í átta vikur. Í upphafi er fluttur fyr- irlestur um skilnaðarferlið og af- leiðingar skilnaðar á tilfinningar, félagslega stöðu þeirra sem skilja og síðast en ekki síst nauðsyn þess að endurmeta og byggja upp líf sitt og tilfinningar að nýju. Næstu viku á eftir er myndaður hópur þar sem þátttakendur deila reynslu sinni, styrk og vonum, styðja hvert annað í því að tjá erfiðar tilfinningar og byggja upp líf sitt. Hópurinn hittist einu sinni í viku í átta vikur. Við lítum svo á að námskeiðið sé leið sálgæslu fyrir þennan hóp fólks, því ljóst er að skilnaður hefur afleiðingar sem geta sett mark sitt á sálir þeirra sem ganga í gegnum þá sáru reynslu. Allar nánari upplýsingar veittar í Grafarvogskirkju, sími 587 9070 Séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Samkirkjuleg guðsþjónusta í Dómkirkjunni Á MORGUN; sunnudaginn 18. jan- úar, verður samkirkjuleg guðsþjón- usta í Dómkirkjunni. Hún er liður í dagskrá árlegrar bænaviku sem helguð er einingu kristinna manna um víða veröld. Í guðsþjónustunni mun Major Anne Marie Reinholdtsen frá Hjálp- ræðishernum predika en bænir og ritningarorð flytja fulltrúar ýmissa kirkjudeilda. Fyrir altari þjóna María Ágústsdóttir héraðsprestur og sr. Hjálmar Jónsson dóm- kirkjuprestur. Verið velkomin. Dómkirkjan. Fermingarbörn aðstoða í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 18. janúar verður messa og barnastarf kl. 11. Prestar safnaðarins sr. Sigurður Pálsson og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson annast þjónustuna ásamt ferming- arbörnum, sem lesa ritningarorð og bænir, en einnig munu nokkrir pilt- ar leika á hljóðfæri. Hörður Áskels- son, kantor, leikur á orgel kirkj- unnar og stjórnar söng félaga úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Fermingarfræðslan hefst með fullum krafti um þessa helgi eftir jólahlé. Öll fermingarbörnin eiga að koma í dag laugardag kl. 10.30 og upplifa það sem við köllum „langan laugardag“ við leik og fræðslu, en í sunnudagsmessuna koma svo fermingarbörnin og fjöl- skyldur þeirra sem við hvetjum ein- dregið til að koma. Þá verður barnastarfið á sínum stað undir stjórn Magneu Sverr- isdóttur, djákna. Kvöldmessa í Grensáskirkju ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið 18. janúar, verður kvöldmessa í Grensáskirkju og hefst að venju kl. 20. Áhersla er lögð á kyrrlátt en óþvingað andrúmsloft. Form mess- unnar er einfalt og sungið við pí- anóundirleik Árna Arinbjarn- arsonar organista en félagar úr kirkjukórnum leiða sönginn. Töluðu máli er stillt í hóf en áhersla lögð á bæn og lofgjörð. Alt- arisganga er í kvöldmessunni. Slíkar kvöldmessur eru í Grens- áskirkju þriðja sunnudag hvers mánaðar yfir vetrartímann. Færeyskur drengjakór og Alfa III í Neskirkju DREINGJAKÓRIÐ undir Brúnni er heiti á færeyskum kór sem syngja mun við messu í Neskirkju, sunnu- daginn 18. janúar kl. 11. Kórinn heimsækir eina drengjakór Íslands, Drengjakór Neskirkju og verður þeim vel fagnað við messu, en fé- lagar beggja kóra blanda geði að messu lokinni yfir veitingum og söng. Ennfremur verður sagt frá nýju námskeiði, Alfa III, sem haldið verður í fyrsta sinn í Neskirkju á vormisseri. Alfa III er um Fjallræð- una sem er kjarninn í kenningu Jesú. Þátttakendur af fyrri Alfa- námskeiðum munu segja frá reynslu sinni í stuttu máli. Kór Neskirkju leiðir safn- aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur séra Örn Bárður Jónsson. kirkjustarf ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Organisti Kári Þormar, gítarleikari Að- alheiður Margrét Gunnarsdóttir, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kári Þormar, Prestur sr. Þórhild- ur Ólafs. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11. Fjölbreytt tónlist. Skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór Bústaðakirkju syngja. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Heitt á könnunni eftir messu. Pálmi Matthías- son. DÓMKIRKJAN: Samkirkjuleg guðsþjón- usta kl. 11 í tilefni árlegrar bænaviku sem helguð er einingu kristinna manna um víða veröld. Í guðsþjónustunni mun major Anne Marie Reinholdtsen frá Hjálpræð- ishernum prédika en bænir og ritning- arorð flytja fulltrúar hinna ýmsu kirkju- deilda. Fyrir altari þjóna sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur og sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn H. Frið- riksson. Eftir guðsþjónustuna er fundur í safnaðarfélagi Dómkirkjunnar þar sem María Ágústsdóttir ræðir um samstarf kristinna trúfélaga á Íslandi. Æðruleys- ismessa kl. 20. Sr. Hjálmar Jónsson pré- dikar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina og sr. Karl Matthíasson leiðir fyr- irbænir. Bræðrabandið og Anna S. Helga- dóttir sjá um tónlistina. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna o.fl. Messa kl. 11. Samskot til kirkjustarfsins. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Kvöldmessa kl. 20. Einfalt form, kyrrð og hlýja. Ólafur Jó- hannsson. GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Ágúst Sigurðsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna- starf kl. 11. Prestar safnaðarins sr. Sig- urður Pálsson og sr. Jón Dalbú Hróbjarts- son annast þjónustuna ásamt fermingarbörnum, sem lesa ritningarorð og bænir. Einnig leika nokkrir piltar á hljóðfæri. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjón Magneu Sverrisdóttur. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveins- son. Barnaguðsþjónusta kl. 13. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Birgir Ásgeirsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Gra- duale Nobili syngur undir stjórn Jóns Stef- ánssonar organista. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Ágústu og Þóru. Öll börn velkomin og eru foreldrar, ömmur og afar og eldri systkini hvött til að koma með börnunum. Kaffisopi eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA: Ljósamessa kl. 11. Að þessu sinni eiga börnin kirkjuna og við hin fullorðnu komum með. Kór Laugarnes- kirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar organista. Hildur Eir Bolladóttir, Heimir Haraldsson og Þorvaldur Þorvalds- son stýra samverunni ásamt Bjarna Karls- syni sóknarpresti og Sigurbirni Þorkels- syni meðhjálpara. Messukaffi. Guðsþjónusta kl. 13 í Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni, Þorvaldi Halldórssyni og hópi sjálfboðaliða. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Færeyski drengjakórinn Undir Brúnni syngur. Kirkju- kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Org- anisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Barnastarf á sama tíma. Sögur, brúður og söngur. Öll börn fá kirkjubókina og límmiða. Kaffi, djús og spjall í safnaðarheimilinu eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Stundin sniðin að þeim yngri, sérstaklega fermingarbörnum. Þorvaldur Halldórsson leikur lofgjörðartónlist. Organisti Pavel Manasek. Prestur sr. Sigurður Grétar Helgason. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Minnum á æskulýðsfélagið kl. 20. Stofnfundur Listvinafélags verður haldinn í kirkjunni/safnaðarheimili nk. miðviku- dag 21. janúar kl. 20. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Laugardagur 17. jan: Fermingarstarf kl. 10 í safn- aðarheimilinu. Eftir fræðslu verður farið á skautasvellið í Egilshöll kl. 13. Fjölskyldur fermingarbarna hvattar til að koma með á skautasvellið. Sunnudagur 18. jan: Al- menn guðsþjónusta klukkan 11. Börn bor- in til skírnar. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra sérstaklega hvött til þátttöku. Allir velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Brúðuleikritið Steinn Bollason og fjaðrirnar fimm verður sýnt. Minnum á að nýjar möppur eru komnar og límmyndir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 11. Sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti: Peter Maté. Léttar veitingar í safn- aðarheimilinu að lokinni messu. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti: Bjarni Þ. Jónatansson. Kór Digra- neskirkju, A-hópur. Léttar veitingar í safn- aðarsal að messu lokinni (500 kr.). Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. (Sjá:nánar:www.digra- neskirkja.is). FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur: Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti: Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar syngur. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á sama tíma í umsjón Elfu Sifjar Jónsdóttur. Boðið upp á kaffi og svaladrykk í safnaðarheimilinu eftir guðs- þjónustu. Rúta ekur um hverfið í lokin. GRAFARVOGSKIRKJA: Messa kl. 11 í Grafarvogskirkju. Séra Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Önnu Sigríði Pálsdóttur. Kór Grafarvogs- kirkju syngur. Fiðla: Hjörleifur Valsson. Organisti: Hörður Bragason. Eftir guðs- þjónustuna verður fundur með foreldrum og fermingarbörnum í Folda-, Hamra- og Húsaskóla, þar sem verður meðal annars rætt um fermingarfræðsluna, ferminguna sjálfa og því sem henni tengist. Barna- guðsþjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón: Bryndís. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Borgarholts- skóla. Prestur séra Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Signý og Siffi. Undirleikari er Guðlaugur Viktorsson. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr Kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðju- dag kl. 18 (sjá einnig á www.hjalla- kirkja.is). Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn- aðarheimilinu Borgum kl. 11 í umsjón Dóru Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar. Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur pre- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs- kirkju syngur og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Julians Hewlett organista. Kaffi í Borgum eftir messu. Sr. Ægir Fr. Sig- urgeirsson. LINDAKIRKJA í Kópavogi: Guðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11. Sunnudagaskóli fer fram í kennslustofum á meðan á guðs- þjónustu stendur. Félagar úr kór Linda- kirkju syngja. Organisti Hannes Bald- ursson. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson sóknarprestur þjónar. SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Hressandi söngur, lifandi samfélag! Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kirkjukór Seljakirkju leiðir söng. Organisti Jón Bjarnason. Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist. Alt- arisganga. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð- sþjónusta kl. 11. Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Unnar Erlingsson kennir full- orðnum, og tekið verður í notkun nýtt fræðsluefni fyrir börnin. Samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Friðrik Schram predikar og Oddur C. Thor- arensen syngur einsöng. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ verður sýndur á Ómega kl. 13.30. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp: Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð- un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam- koma á morgun kl. 16. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Bænastund kl. 19.30. Kl. 20 hjálpræð- issamkoma. Umsjón Fanney Sigurð- ardóttir og Guðmundur Guðjónsson. Mánudagur: Kl. 15 heimilasamband. Elsabet Daníelsdóttir talar. Allar konur vel- komnar. FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma sunnudag kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar. Lofgjörð og fyr- irbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. Alfa-námskeiðið hefst 22. janúar kl. 19. Um er að ræða tíu vikna námskeið, einu sinni í viku, þar sem á einfaldan og þægi- legan hátt er fjallað um kristna trú. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17. „Viltu fyrirgefa mér?“ Ræðumaður Kjartan Jónsson, Missionsfarar segja frá. Fræðsla fyrir börnin í aldurskiptum hóp- um. Matur á fjölskylduvænu verði eftir samkomuna. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Snorri Óskarsson. Mikil lofgjörð í umsjón Gosp- elkórs Fíladelfíu. Fyrirbænir. Allir hjart- anlega velkomnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 6. www.gospel.is KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm- kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa kl. 18. Á laugardögum: Barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Kirkjan er öllum opin á daginn frá kl. 8 til 18.30. Miðvikudaginn 21. janúar kl. 20: Bænastund í tilefni alþjóðlegrar bænaviku fyrir sameiningu kristinna manna. Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel. Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi. Sunnudaga: Messa kl. 16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Messa kl. 18.30. Karmelklaustur. Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Alla fimmtu- daga: Rósakransbæn kl. 20. Akranes, kapella sjúkrahúss Akraness: Sunnudaginn 18. janúar: Messa kl. 15. Stykkishólmur, Austurgötu 7. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður. Sunnud: Messa kl. 11. Flateyri. Laugard: Messa kl. 18. Bolungarvík. Sunnudaga kl. 16. Suðureyri. Sunnud: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11 fh. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11: Sunnudagaskóli í Landakirkju. Mikill söngur og mikil lofgjörð. Biblíusaga, bibl- íukerti og brúðuheimsókn. Sr. Fjölnir Ás- björnsson og barnafræðararnir. Kl. 14: Messa í Landakirkju. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar H. Guð- jónssonar. Fermingarbörn lesa ritning- arlestra. Prestur sr. Þorvaldur Víðisson. Aðalfundur safnarins í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Kl. 20.30: Æskulýðs- fundur í safnaðarheimili Landakirkju hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju og KFUM&K. Esther Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Jón- as Þórir. Sunnudagaskóli í safnaðarheim- ilinu kl. 13. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Antonia Hevesi. Kór: Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju. Prestur sr. Gunnþór Ingason, sókn- arprestur. Sunnudagaskólar í kirkju, Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Ljósa- messa sunnudag kl. 11. Barnastarfið er hafið aftur eftir jólafrí. Börnin fá nýjar bækur og nýjar myndir. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar. www.vidistadakirkja.is FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Umsjón hafa Edda, Örn og Hera. Góð stund fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Fríkirkjunnar leiðir söng. Kórstjóri er Örn Arnarson og organisti er Skarphéðinn Hjartarson. Prestar: Einar Eyjólfsson og Sigríður Krist- ín Helgadóttir. ÁSTJARNARSÓKN: Barnaguðsþjónusta sem vera átti á sunnudag í samkomusal Hauka á Ásvöllum fellur niður. Jafnrétt- isguðsþjónusta sunnudag kl. 20. Prestur sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Ponzý, ung- lingastarf, á mánudögum kl. 20–22. KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru- Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15. VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11. Sunnu- dagaskólinn á sama tíma. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún, djákni, þjóna. Boðið upp á léttan málsverð sem Lionsmenn annast að messu lokinni. Við minnum á skráningu á Alfa-námskeið sem hefst á miðvikudag. Kirkjuganga er hvetjandi. Allir velkomnir. Prestarnir. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn í sal Álftanesskóla kl. 11. Ásgeir Páll og Kristjana stjórna. Nú er komið nýtt og spennandi efni. Foreldrarnir eru velkomnir með börnunum, en allir eru hvattir til að mæta. Prestarnir. Guðspjall dagsins: Brúðkaupið í Kana. (Jóh. 2). Morgunblaðið/Kristinn Bessastaðakirkja. KIRKJUSTARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.