Morgunblaðið - 21.02.2004, Blaðsíða 28
ÁRBORG
28 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hveragerði | Valdimar Haf-
steinsson, framkvæmdastjóri hjá
Kjörís í Hveragerði, heimsótti nem-
endur og starfsfólk Garðyrkjuskól-
ans á Reykjum nýverið. Í heimsókn-
inni sagði hann frá starfsemi
fyrirtækisins og þróun þess. Kjörís
fagnar 35 ára starfsafmæli 31. mars
næstkomandi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú fjöru-
tíu og sex starfsmenn. Ísnum er
dreift um allt land í átta ísbílum. Þá
er einn starfsmaður á Akureyri.
Valdimar fékk fjölmargar spurn-
ingar að loknu erindi sínu og að
sjálfsögðu bauð hann öllum við-
stöddum upp á Kjörís.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Góður: Ísinn smakkaðist sérlega
vel, hér er Guðrún Þórðardóttir á
bókasafni skólans með ísinn sinn.
Kjörís í 35 ár
Selfoss | Gunnar B. Guðmundsson kaup-
maður og Helga Jónsdóttir kona hans
hafa selt Samkaupum verslunina Hornið
á Selfossi sem þau hafa rekið í fjórtán
ár. Nýir eigendur taka við rekstrinum
næstkomandi fimmtudag og munu fyrst
um sinn reka verslunina undir sama
nafni. Kaupverð er trúnaðarmál en allt
starfsfólk Hornsins mun halda störfum
sínum.
Kaupfélag Suðurnesja er stærsti eig-
andi Samkaupa en hluthafar eru samtals
260. Samkaup reka 25 matvöruverslanir
víðs vegar um landið. Hornið er önnur
verslun keðjunnar á Suðurlandi en Sam-
kaup rekur verslunina Strax á Flúðum.
Gervigrasvöllur lagfærður | Bæj-
arráð Árborgar samþykkti á fundi sínum
19. febrúar tillögu framkvæmdastjóra
framkvæmda- og veitusviðs um að fjar-
lægja kantstein, um viðbótarlýsingu og
ný mörk á gervigrasvöll við Vallaskóla.
Ábendingar hafa komið frá íþrótta-
félögum um slíkar endurbætur. Bæj-
arráð heimilaði fjárveitingu að fjárhæð
kr. 900.000 til viðbótarframkvæmda við
völlinn. Fjármögnun verður mætt við
endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Starfshópur | Bæjarráð samþykkti 19.
febrúar stofnun 12 manna starfshóps um
þróun Vallaskóla samfara flutningi nem-
enda í Suðurbyggðarskóla.Deildarstjóri
grunnskóla- og menningardeildar mun
stýra hópnum. Skólanefnd mun eiga 2
fulltrúa í hópnum og bæjarráð/bæj-
arstjórn 2 fulltrúa. Bæjarráð tilnefnir
eftirtalda af sinni hálfu til setu í hópnum:
Gylfa Þorkelsson og Þorvald Guðmunds-
son.
Draga gamlan herbíl | Fimleikastúlk-
ur á Selfossi munu draga gamlan hert-
rukk í gegnum bæinn í dag, laugardag,
af því tilefni að starfsemi bensínstöðvar
Orkunnar hefst á Selfossi. Bæjarbúar
eru hvattir til að leggja stúlkunum lið við
að draga trukkinn en fimleikadeildin fær
greitt fyrir þá vegalengd sem næst að
draga trukkinn.
Vonbrigði með UMFÍ | Mikil vonbrigði
eru á Selfossi og í Þorlákshöfn yfir
ákvörðun stjórnar Ungmennafélags Ís-
lands að Landsmót UMFÍ árið 2007
verði haldið í Kópavogi og 2009 á Ak-
ureyri. Sveitarfélagið Ölfus og Árborg
höfðu lýst áformum sínum um uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja en í Árborg voru
áætlanir um nær 200 milljóna króna upp-
byggingu. Við þá áætlanagerð var gert
ráð fyrir a.m.k. 50 milljóna króna fram-
lagi frá ríkinu til framkvæmdanna á
sama hátt og er við framkvæmdir fyrir
landsmót á Sauðárkróki.
Í umfjöllun um málið í Sunnlenska
fréttablaðinu á Suðurlandi kemur fram
að mjög langt sé nú í að Sunnlendingar
fái það verkefni að halda landsmót, það
verði í fyrsta lagi 2012. Forystumenn
sveitarfélagsins Árborgar segja að áætl-
anir um uppbyggingu íþróttaleikvangs
verði endurmetnar og haft er eftir for-
ystumanni bæjarstjórnar Ölfuss að þessi
ákvörðun hafi einhver áhrif á forgangs-
röðun verkefna næstu árin en íþrótta-
aðstaða í Þorlákshöfn væri góð og hefði
gert sveitarfélaginu kleift að sækjast eft-
ir að halda mótið. Í umræðum kemur
fram að margir óttast að ekki náist sama
stemmning á landsmóti sem haldið er á
höfuðborgarsvæðinu en ekki megi þó af-
skrifa það alveg.
Hornið selt
Samkaupum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfoss | Stofnfundur Vinafélags heim-
ilisfólks á hjúkrunardeildinni Ljósheimum á
Selfossi verður haldinn sunnudaginn 22.
febrúar næstkomandi í setustofu Ljósheima
kl. 14. Undirbúningshópur aðstandenda og
stjórnenda Heilbrigðisstofnunarinnar á Sel-
fossi stendur að stofnun félagsins. Megintil-
gangur með stofnun félagsins er að standa
að bættum aðstæðum heimilisfólks á Ljós-
heimum í tómstundum og afþreyingu og
auka möguleika þess á meiri tilbreytingu en
ella væri. Félagið mun leggja ríka áherslu á
bættar aðstæður heimilisfólks Ljósheima,
fræðslu um sjúkdóma og áhersluþætti,
ásamt því að standa vörð um hagsmuni þess.
Stofnun félagsins og starfræksla þess er
samfélagsverkefni sem felur það í sér að
laða þarf til starfsins fólk sem hefur áhuga
á að sinna slíku verkefni. Fyrir liggur að
starfsemin verður ekki nema að litlu leyti
starfrækt með launuðum starfskröftum. Í
drögum að skipulagsskrá félagsins er lögð
áhersla á mikilvægi þess að skipulag á
starfsemi félagsins sé í föstum skorðum og í
góðum takti við starfsemina á Ljósheimum.
Tómstundastarfsemi hjúkrunardeild-
arinnar á Ljósheimum mun skerðast vegna
hagræðingar sökum fjárvöntunar til rekst-
urs Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.
Mikill vilji er innan HSS til að leita leiða svo
tómstunda- og afþreyingarstafsemi fyrir
heimilisfólk geti haldið áfram innan stofn-
unarinnar. Ábending er um það frá stofn-
uninni að áhuga- eða félagssamtök haldi ut-
an um þetta verkefni og sæju um
fjármögnun þess. Stofnunin mun geta lagt
starfinu lið með fagþekkingu á aðstæðum
heimilisfólks og að einhverju leyti gagnvart
aðföngum til starfseminnar. Stofnunin vill
eiga gott samstarf við mögulegt áhugafélag
um þetta verkefni.
Stofnfundurinn er opinn öllu áhugafólki
um velferð heimilisfólks á hjúkrunardeild-
inni. Þeir sem vilja leggja málefninu lið með
sjálfboðinni vinnu eða félagsþátttöku eru
hvattir til að mæta á fundinn.
Vinafélag heimilisfólks
á Ljósheimum stofnað
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Á Ljósheimum: Hjúkrunardeildin á Selfossi er starfrækt í gömlu húsi við Austurveg.
Þorlákshöfn | Portland ehf. í Þorlákshöfn hefur fest
kaup á 200 brúttólesta dragnótaskipi sem hlaut nafnið
Klængur ÁR 20. Klængur hét áður Bervík SH, smíð-
aður í Noregi 1964 en endurnýjaður og yfirbyggður
hér heima 1987. Eigendur Portlands eru bræðurnir
Hjörleifur og Magnús Brynjólfssynir.
Hjörleifur Brynjólfsson sagði að þeir hefðu fest
kaup á skipinu um áramótin, síðan er búið að skipta um
spilkerfi og fara yfir og lagfæra marga hluti, skipið er
nú tilbúið til dragnótaveiða. Bergvík hefur ekki sótt sjó
í tvö ár.
„Við hjá Portlandi erum bjartsýnir á starfsemina en
til að tryggja hráefni var ákveðið að kaupa skip og gera
út sjálfir. Yfir vetrartímann hefur verið einna erfiðast
að ná í flatfisk til vinnslu í fyrirtækinu. Við höfum verið
og erum með báta í föstum viðskiptum, einnig hefur
verið keypt hráefni á mörkuðum,“ sagði Hjörleifur.
Í Portlandi hafa verið unnin um 4500 tonn af flatfiski
árlega undanfarið og hafa verið um og yfir 80 manns í
fastri vinnu hjá fyrirtækinu. Skipstjóri á Klæng verður
Gissur Baldursson, vélstjóri Jón Baldursson og stýri-
maður Stefán Pétursson. Klængur heldur til veiða ein-
hverja næstu daga.
Nýtt drag-
nótaskip til
Þorlákshafnar
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Til veiða: Klængur ÁR 20, nýtt dragnótaskip í eigu Portlands ehf., kom til Þorlákshafnar um síðustu helgi.
Í brúnni: Hjörleifur Brynjólfsson, annar eigandi
Portlands, og Gissur Baldursson, skipstjóri á Klæng.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
HNLFÍ
Hveragerði | Ólafur Sigurðsson við-
skiptafræðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri við Heilsustofn-
un Náttúrlækningafélagsins. Ólafur
var valinn úr hópi fimmtíu umsækj-
enda.
Ólafur er fæddur og uppalinn á
Þingeyri við Dýrafjörð. Eftir stúd-
entspróf frá Verslunarskólanum
nam Ólafur við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn og hefur þaðan
meistaragráðu í stjórnun alþjóðafyr-
irtækja. Ólafur hefur í dag yfirum-
sjón með starfsmanna- og fjármálum
EFTA í Brussel og Genf.
Vegna núverandi starfs getur
Ólafur ekki hafið störf strax, en hann
mun hefja störf sem framkvæmda-
stjóri 15. maí næstkomandi.
VIÐ Ölfusárbrú við Selfoss
fyllir áin vel í farveginn án
þess þó að hætta sé á flóði.
Ástæðan er sú að farveg-
urinn er íslaus og hvergi
stífla í ánni. Hvítá rennur
kyrrlát og vatnsmikil í far-
vegi sínum þessa dagana
enda voru leysingar á vatna-
svæðinu í vikunni. Hún fyllir
vel út í farveginn og er víða
sem hafsjór yfir að líta en
þar sem þrengir að, svo sem
við brúarstæði, er mikið flug
og straumur. Morgunblaðið/Sigurður Jóns
Ár víða
vatns-
miklar