Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 28

Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 28
28 vtsm hvaö, hvar...? Tónabló sýnir nú gaman- myndina Joseph Andrews með Ann-Margret og Peter Firth i aðalhlutverkum. Gamanið 1 myndinni er heldur af grófara taginu mikiö um barsmiöar, tilraunir til nauögana, barnsrán og þjófnaöi. Söguþráöurinn er hins vegar I alla staöi svo ýktur og ævintýralegur aö grodda- skapurinn veröur á stundum sprenghlægilegur. Sagan um Joseph Andrews gerist á þeim tlma sem karlmenn gengu allir meö hár- kollur og konur strekktar i lif- stykki og beinstifar krinólinur. Búningar leikaranna eru ýmist frámunalega grófir eöa of- skreyttir og lýsir þaö nokkuö anda myndarinnar sem kalla má hreinan farsa. Gloriai Stjörnubióigreinir frá þaulreyndri glæpakvensu sem lendir I þvi aö vernda sex ára gamalt skotmark Mafiunnar. Gena Rowlands leikur Gloriu og gerir þessa super-konu sem er eins og nýsloppin út úr teikni- myndasögu bara nokkuö sannfærandi. John Adames leikur strákpattann, skjól- stæöing Gloriu, og þau mega án efa teljast meö óvenjulegri pör- um sem sjást á hvíta tjaldinu... Háskólabió sýnir Geimstriö (Star Trek), kvikmynd, meö sömu persónum og veriö hafa tiöir gestir á sjónvarpsskjánum vestur i Bandarikjunum, þeim Kirk og Spock. Góö mynd fyrir þá sem hafa gaman af visinda- skáldsögum i teiknimyndastil... Gamla bió sýnir myndina Börnin frá Nornafelli.Hún segir frá tveim krökkum, Tiu og Tony, en þau lenda i kasti viö ákaflega illa þenkjandi visinda- mann, Dr. Gannon (Christopher Lee), og félaga hans Lethu (Bette Davis). Skötuhjúin eru fégráöug I meira lagi og hyggj- ast aubgast á yfirnáttúrulegum hæfileikum Tonys. Myndin hef- ur fengið sæmilega dóma erlendis, en þykir ekki eins góö og fyrri myndin um Tony og Tiu... Fjalakötturinn er nú aö fara af staö meö fyrstu sýningarnar á nýju starfsári og I starfi klúbbsins er nú fitjað upp á margháttuðum nýjungum. Framfara hefur lengi verið þörf I sýningaraðstöðu klúbbsins og nú er sýningarstaðurinn Tjarn- arbió ekki lengur með öllu sam- ur við sig. Fjalakötturinn hefur efnt sér upp nýrri sýningarvél, bæði fyrir 16 mm og 35 mm koplur og ættu myndgæðin nú að verða allt önnur og betri en á fyrri starfsárum. önnur meginbreyting á hög- um Kvikmyndaklúbbs fram- haldsskólanna er breytt sýning- arfyrirkomulag. Fjalakötturinn starfarnúáttamánuöi ársins en tekur sér fri i desember, febrú- ar, mai og ágúst. Aöstandendur Kattarins segja i upplýsinga- plakati um starfsemi sina aö fá- ir hafi komist á sýningar klúbbsins i desember og mai á undanförnum árum og aö i ágúst sé upplagt aö taka sumar- fri. Febrúarfriið stafar hins vegar af þvi aö í þeim mánuöi er jafnan efnt til kvikmyndahátiö- ar á vegum Listahátiöar. 1 hverjum sýningarmánuði stendur dagskráin i niu daga i senn en sýningardagarnir niu eru oftast einhversstaöar i kringum miöbik hvers mánað- ar. 1 hverja dagskrá verður reynt að velja saman myndir sem hafa einhvern rauðan þráð sameiginlegan þó slikt sé stund- um vandkvæðum bundið vegna erfiöleika i öflun myndanna. Eins og fyrr er hægt að kaupa skirteini sem gildir á allar sýn- ingar Fjalakattarins en nú er jafnframt tekin upp sú ný- breytni aö selja félagsskirteini en meb það skirteini undir hönd- um er unnt aö kaupa aðgöngu- miba inn á einstaka dagskrá, David Bennent I hlutverki Oskars Matzer- ath, stráksins með tintrommuna. Kötturinn lcggur til atlögu nokkurskonar mánaðarkort. an, byggb á samnefndri sögu Veröi skirteina hjá Fjalakettin- Gúnter Grass, undir leikstjórn um er enn sem fyrr stillt mjög i Volker Schlöndorff. Myndin hóf og þau eru seld i Tjarnarbiói þykir mikiö snilldarverk og fyrir sýningar svo og i fram- hafa margir undrast hversu vel haldsskólunum. tókst til viö aö færa hina frægu Septemberdagskráin hefst 20. sögu Grass i kvikmyndabúning. önnur mund eftir Benegal er á dagskrá i september og ber hún nafniö Junoon. Fjóröa myndin er áströlsk og heitir Ódýrskitur. Hún greinir frá námavinnslu i Ástraliu frá mörgum sjónar- hornum, en efnið er Islending- um ekki með öllu óviðkomandi þvi hráefnið til álversins i Straumsvik kemur einmitt frá Astraliu. Fimmta myndin er svo Jane Austen in Manhattan og greinir frá ólikum sjónar- miðum á uppsetningu á v'erki eftir Jane Austen. Loks er vert að geta þess að hver kvikmynd er sýnd þrisvar og aðeins einu sinni hvern sýningardag. — SKJ dag mánaðarins meö sýningu indversku myndarinnar Bhum- ika en leikstjóri hennar er Shy- am Benegal. Næstu átta daga veröa svo sýndar sex myndir alls. Sú þekktasta er Tintromm- Sólveig K. Jónsdóttir. skrifar Laugardagur 19. september 1981 Myndlist Listaskáli ASt 1 listaskálanum opnar i dag sýning Verslunarmannafélags Reykjavikur á nær 80 verkum, sem félagsmenn þess hafa gert. Sýning- inerhaldin i tilefni 90ára afmælis V.R., og er ætlað aö gefa nokkra inn- sýn i tómstundastörf félagsmanna. Alls sýna 20 manns á sýningunni Listaskálinn er opinn um helgina frá kl. 14-22 bæöi laugardag og sunnu- Norræna Húsið: I anddyri Norræna Hússins stendur enn yfir sú færeyska bátasýning sem Báröur Jákupsson gerði og er nú á ferð milli Norðurlandanna. I sýningarsal Norræna Hússins stendur yfir sýning á verkum álenskra listamanna, og kennir þar margra góöra grasa. Asmundarsalur: t Asmundarsal sýnir Valgerður A. Hafstað málverk og vatnslita- myndir. Sýning hennar stendur til 21. sept. og er opið virka daga 16-22, en 14-22 i dag og á morgun. Listmunahúsið: Nú er siöasta sýningarhelgi á sýningu þeirra Tove Ólafsson, Kristjáns Daviössonar og Þorvaldar Skúlasonar. Sýningin er opin um helgina frá 14-18. Rauða húsiö — Akureyri: t dag opna samsýningu þau Kristján Guömundsson og Sigrföur Guö- jónsdóttir. Sýningin er opin daglega frá kl. 16-20 og stendur til 27. september n.k. Listsýningarsalur Myndlistarskólans á Akureyri: 1 dag hefst sýning á Akureyrarljósmyndum Gunnars Rúnars Ólafs- sonar i Listsýningarsalnum aö Glerárgötu 34. Sýningin er á vegum Ljósmyndasafnsins hf., og mun standa fram til 27. sept. Hún er opin milli kl. 15-22um helgar, en alla virka daga frá kl. 20-22. Kjarvalsstaðir: I vestursal: Septem ’81. Kristján Daviðsson, Þorvaldur Skúlason, Valtýr Pétursson, Guðmunda Andrésdóttir, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran og Sigurjón Ólafsson. A vesturgangi: Asa ólafsdóttir sýnir myndvefnaö. Á austurgangi: Yfirlitssýning á verkum Hallsteins Sigurössonar. 1 austursal: Vinnustofa Kjarvals.Kjarvalsstaöir eru opnir daglega frá kl. 14-22. Eden, Hveragerði: Þar stendur yfir sölusýning Haröar Ingólfssonar, myndlistarkenn- ara. Menningarstofnun Bandarlkjanna / Nesveg: Sýningu Gunnars I. Guöjónssonar lýkur nú um helgina. Mokka café: Karen Cross sýnir akrýl- og vatnslitamyndir. Djúpið: Hreggviður Hermannsson sýnir tússteikningar. Torfan: Ljósmyndir úr sýningum Alþýðuleikhússins. Galleri Langbrók: Griski myndlistarmaðurinn Sotos Michou sýnir verk sin. Sýningin stendur fram á mánudag. Höggmyndasafn Asmundar Jónssonar: Opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga 14-16. Listasafn tslands: Opiö um helgina 13.30-16.00. Listasafn Einars Jónssonar: Opið sunnudag 13.30-16.00. Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74: Opiö sunnudag_ 13.30-16.00. Tónlist Tónlistarfélagið: Ólöf K. Harðardóttir og Dr. Eric Werba halda tónleika i dag, laugar- dag kl. 14.30 I Austurbæjarbiói. Leiklist Alþýöuleikhúsið: I dag kl. 17.00 verður frumsýnt leikritið Sterkari en Súperman, eftir Roy Klift i leikstjórn Thomasar Ahrens. Grétar Reynisson gerir leik- mynd. önnur sýning verður á morgun kl. 15.00. Leikfélag Reykjavikur: 1 kvöld kl. 20.30: Rommi. Fáar sýningar eftir. Sunnudagskvöld kl. 20.30: Jói. Uppselt. Nemendaleikhúsið: Vegna gifurlegrar aösóknar veröa tvær aukasýningar á leikritinu, Sorglaus konungsson, á sunnudag: kl. 15.00 og 17.00. Miöasala veröur laugardag milli kl. 15-17 og sunnudag frá kl. 13.00. Og þetta veröa allra siöustu sýningar!!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.