Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 2002 HVERGI, EN MEÐ LOFTBÓLUM: Úti á meðal allra þeirra auðgandi og mestmegnis tómu hvergja* sem fyrirfinnast á Íslandi, eru heitu laugarnar. Laugarnar verða til þess að stað er ljáð ending, svo maður gefur honum þann gaum er leyfir hvergjum að þrífast. Þar sem maður situr í þessari tilteknu laug í Vatnsfirði (sem hér sést á fjöru) er maður staddur á stað sem er á stöðugri hreyfingu með hafinu og einbeittum vindinum. Hér hef ég upplifað sjálfa mig eins og ég væri á miðpunkti, kannski ekki heimsins, heldur staðar sem er í senn afmarkaður og í jafnvægi, opinn og umlykjandi. Kitlandi, mjúk áhrif koltví- sýringsmettaðs vatnsins leiða til þess að sýn manns á himininn, hafið og veðrið virðist ótakmörkuð; blautur hiti vatnsins og kaldar hviður vindsins renna saman í líkama mín- um. Að nóttu til er snúningur jarðar, markaður með breytingum stjörnumerkjanna, sú hreyfing sem er auðveldast að koma auga á. Að degi til er það blástur vindsins yfir víð- áttu hafsins, í gegnum loftið, um vallendið og meðal villtra blómanna, sem gerir alla hluti í kringum mig sjáanlega með ólíkum hætti. *Sjá t.d. 10. og 11. hluta Iceland’s Difference (Sérkenna Íslands), Lesbók, 15. og 22. júní 2002. Þetta er sextándi hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljósmynd, 1991, fyrir hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.