Pressan - 12.03.1992, Side 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992
9
Sighvatur Blöndhal Magnússon
MSMIIII
ÆIIKMK
VIIIMRSI9
ÍIHUjniR
Sighvatur Blöndahl Magnús-
son hefur verið dæmdur í átta
mánaða fangelsi, þar af þrjá
óskilorðsbundið, í Sakadómi
Kópavogs. Er hann dæmdur
fyrir að hafa falsað nöfn ætt-
ingja og vina á samtals 19 við-
skiptabréf og með því svikið út
rúmlega átta milljónir króna.
Dóminn kvað upp Ólöf Péturs-
dóttir héraðsdómari.
Sighvatur, sem vann á Stöð
2 og sá meðal annars um þátt
um fjármál ásamt Ólafi H. Jóns-
syni, hóf skjalafals sitt árið 1987
og stóð það til 1990. Virðist
hann með þessu hafa náð að
velta á undan sér nokkrum fjár-
munum, en hluti af skjalafalsinu
var til að framlengja eldri skuld-
ir.
FALSAÐINÖFN ÆTT-
INGJA OG VINA
Ríkissaksóknaraembættið
höíðaði mál gegn Sighvati með
tveimur ákæruskjölum, dagsett-
um 14. ágúst og 4. desember
1991. Voru málin rekin sameig-
inlega.
I fyrra ákæruskjalinu var
Sighvatur ákærður fyrir að hafa
falsað 11 skuldabréf og 6 víxla
að nafnverði samtals 7.117.000
krónur en eitt bréfanna var án
fjárhæðar. Nöfnin sem hann
notaði við falsanimar voru nöfn
eiginkonu hans, Sólveigar B.
Aðalsteinsdóttur, föður hans,
Magnúsar Blöndahl Kjartans-
sonar, tengdamóður, Helgu
Bjargmundsdóttur, og vina og
kunningja eins og Jóns Gunn-
arssonar, Ólafs H. Jónssonar,
Ólafs Jóhannssonar, Gríms Lax-
dal, Sigrúnar Eddu Karlsdóttur,
Eggerts Jóhannessonar og Guð-
rúnar Brynjólfsdóttur.
Seinna ákæruskjalið felur í
sér fals á einu skuldabréfi og
einum víxli — þar eru sömu
nöfn notuð.
Fölsuðu nöfnin vom notuð
sem sjálfskuldarábyrgðaraðilar,
vitundarvottar, útgefendur og
framseljendur á skuldabréfun-
um og víxlunum.
REYNDIAÐ LÍKJA EFTIR
SKRIFTINNI
Sighvatur var yfirheyrður
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna þessara mála í nokkur
skipti á ámnum 1990 og 1991.
fHann viðurkenndi þegar við
yfirheyrslu þá skjalafölsun sem
á hann var borin. Kom það hon-
um að sjálfsögðu til refsilækk-
unar. Einnig hafði það áhrif á
refsingu hans að hann hafði ekki
verið sakfelldur áður.
Við yfirheyrslur kom einnig
fram að hann hafði reynt að
líkja eftir skrift tveggja þeirra
sem hann falsaði nöfnin á,
þeirra Guðrúnar Brynjólfsdóttur
og Eggerts Jóhannssonar. Öðr-
um nöfnum sagðist hann ekki
hafa reynt að líkja eftir.
Söluandvirði þeirra skulda-
bréfa og víxla sem hér um ræðir
segist Sighvatur fyrst og fremst
hafa notað til að greiða af hús-
eign sinni við Fögmbrekku 31 í
Kópavogi. Einnig notaði hann
fjármunina til að greiða af inn-
búi, svo sem eldhúsinnréttingu,
og borga upp skuldir.
FRAMLENGDIVÍXIL í
NOKKUR SKIITI OG
ALLTAF MEÐ FÖLSUN
Þá viðurkenndi Sighvatur
við yfirheyrslu að hafa fram-
lengt víxil með nafni Gríms
Laxdal í nokkur skipti. Var
Grímur útgefandi og framselj-
andi en Sighvatur samþykkj-
andi. Sagði Sighvatur að Grím-
ur hefði skrifað upp á víxil að
fjárhæð ein milljón króna í des-
ember 1989, en þegar Sighvatur
var búinn að framlengja hann í
nokkur skipti, og falsaði ávallt
nafn Gríms, var hann kominn
upp í tvær milljónir króna með
gjalddaga 2. nóvember 1990.
Víxillinn hafði ávallt verið sam-
þykktur í Búnaðarbanka Islands.
Búnaðarbankinn tapar
reyndar töluverðu á þessum við-
skiptum við Sighvat vegna þess
hvemig bankinn stóð að kröfu-
gerð sinni. Kröfum bankans upp
á 2.769.000 krónur var vísað frá
vegna þess að hann hafði ekki
lagt fram frumrit af víxlunum
sem kröfumar vom byggðar á.
Aðrar bankastofnanir sem
hlut áttu að máli vom Iðnaðar-
bankinn og síðar Islandsbanki,
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis og greiðslukortafyrir-
tæki.
Sigurður Már Jónsson
I nýlegum dómi fyrir Sakadómi Kópa-
vogs hefur Sighvatur Blöndahl Magn-
ússon verið sakfelldur fyrir að falsa
nöfn ættingja og vina á fjölda skulda-
bréfa og víxla. Á fjögurra ára tímabili
sveik hann með þessu móti út rúmlega
8 milljónir króna. Þá er skiptameðferð
á þrotabúi Sighvats lokið og fundust
engar eignir í búinu en kröfur voru upp
á 7,7 milljónir króna.
SKIPTAMEÐFERÐ LOKIÐ
OG EKKERT FÉKKST UPP
í 7,7 MILLJÓNA KRÓNA
KRÖFUR
21. febrúar síðastliðinn lauk
skiptameðferð í þrotabúi Sig-
hvats, sem hófst 16. október
1991. Engar eignir fundust í bú-
inu en lýstar og óafturkræfar
kröfur námu 7.684.680 krónum.
Það er því ljóst að Sighvatur
mun ekki borga mikið af þeim
skaðabótakröfum sem féllu á
hann í sakamálinu, en þar var
honum einnig gert að greiða all-
an sakarkostnað.
Sighvatur Blöndahi Magnússon sá um þátt um fjármál á Stöð 2 á sínum tíma. Hann hefur nú veriö dæmdur fyrir að falsa nöfn
ættingja og vina á skuldabréf og víxla.