Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 31

Pressan - 27.05.1993, Blaðsíða 31
árg. |l§Íplplpj|a £JW g 4? Ch VIA !~r W^W% C-j SJJ B WMXZSS"** Wm mWl JHHHv ^bhHbUp^ Jv Hl HH HBhH án HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJOMAR A/ý leyniskjöl um hernaðaruppbygginguna í Búnaðarbankanum Vígbjóst til að yfir- taka stjórnkerfið Reykjavík, 26. maí. _______________ Bankaeftirlitið hefur fundið ný skjöl sem veita frekari upplýsingar um hergagnaviðskipti Búnaðar- bankans. Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR voru uppi ráðagerðir innan bankans um að vígbúast til að geta yfirtekið ís- lenskt stjórnkerfi ef EES-samning- amir kæmust í gegn og landbún- aðarkerfið væri í hættu. Heimir Hannesson hernaðarfulltrúi og Sólon Sigurðsson bankastjóri í inn- kaupaferð síðasta sumar. „Ég er illa að mér í herfræði en mér sýnist fljótt á litið að þetta séu nokkuð yfirgripsmiklar áætlanir," sagði Þórður Ólafsson, yfirmaður Bankaeftirlitsins. Hernaðaráætlun bankans byggðist á því að yfirtaka helstu opinberar byggingar og fjöl- miðla. í húsi bankans við Austur- stræti hafði verið komið fyrir stjómstöð og lágu þaðan leynigöng yfir í Alþingishúsið og Stjómarráð- ið. Tveir símar vom í byrginu; ann- ar beintengdur við Búnaðarsam- bandið, hinn á skrifstofu Fram- „Mun meðfærilegri en mjólkurbíll- inn,“ sagöi Guðni Ágústsson um nýju MT-6000-týpuna sem hann prófar hér á æfingasvæðinu í Flóan- um. sóknarflokksins. Til að hrinda þessu í framkvæmd var stofnuð vopnasöludeild innan bankans sem pantaði nokkurt magn af hergögnum frá Sovétríkj- unum fýrrverandi og geymdi þau á Brúnastöðum í Flóa, æskuheimili Guðna Ágústssonar bankaráðsfor- manns. „í sjálfu sér veit ég lítið um þetta en ég játa að lífið í bankanum hefúr komið mér mjög á óvart, enda ólíkt þvi sem ég kynntist hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Það var sérstaklega hin mikla bankaleynd, sem eftir á að hyggja var meira í ætt við hemaðar- leynd," sagði Guðni Ágústsson í viðtali við GULU PRESSUNA. Guðni sagði einnig að sér hefði komið hinn mikli agi sem ríkti í bankanum skemmtilega á óvart. „Mér fannst alltaf eins og það væm meiri fslendingar inni í bankanum en fýrir utan,“ sagði Guðni. Framtíðarferðir ekkh" iengur fulltrúar Domino do Sol Portúgalarnir hafa ekki undan Reykjavík, 27, maí. ______ Framtíðarferðir hafa hætt viðskiptum við portúgalska fýr- irtækið Domino do Sol, segir í fféttatilkynningu sem GP barst um helgina. Aðalástæðan er sögð sú hversu seinvirkt fyrir- tækið sé og viðskipti taki allt ol, langan tíma. „Við leggjum mikið upp úr því að starfsfólk okkar vinni hratt og ömgg- lega,“ sagði Erik Jensen, annar eigenda Framtíðarferða, í viðtali. „1 þeim tilgangi tókum við upp sérstakan bónus fyrir þá sölumenn sem tókst að fá ellilífeyrisþega til að skrifa undir á innan við tveimur tímum. Ef viðkomandi voru blindir og í hjólastól var gerð krafa um að samningur væri tii*K-í búinn á korteri. Það tókst í flest- um tilfellum. Portúgalarnir hafa ekki haft undan að afgreiða samninga frá okkur, en sein- virkni þeirra á ekki að vera hemill á árangur okkar. Það væri skidt,“ sagði Erik. Hinn eigandinn, Atli Berg- mann, tók fram að fjárfestingar fólks væru í öruggum höndum þrátt fyrir breytingarnar. „Pen- ingarnir eru á svissneskum bankareikningi sem enginn hefúr aðgang að nema við Erik og eng- in hætta á að þeir lendi í röngum höndum.“ «*->, ívari Haukssyni meinað að verða vinur Hafnarfjarðar „Þorum e að eiga svona v' - segir Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri Ivar Hauksson: Grunaöur um að ekki spurt neinn að því. Allt frá því ég vann á Morgunblaðinu hef ég átt mjög auðvelt með að afla mér vina og á nú fleiri vini en vilja það,“ sagði fvar í samtali við GP. „Hann kom hér á skrifstofuna og lét dólgslega," sagði Guðmund- ur Ámi. „Ég var búinn að gefa líf- vörðunum frí það sem eftir var dagsins, en sem betur fer átti ritar- inn minn ónotaða insúlínsprautu í skúffúnni hjá sér. Þegar við veifúð- um henni framan í fvar varð hann ljúfur sem lamb. Við hentum sprautunni út um gluggann og hann stökk á eftir. Ég hef ekki heyrt í honum síðan.“ Arnold Schwarzenegger, í starfskynningu Á óþekktum slað, 26. mai.______ „Jú, það er rétt, við þorðum ekki annað en meina fvari inn- göngu. Reynsla Amar Karlssonar sýnir að það er ákveðin áhætta að eiga svona vini,“ sagði Guðmund- ur Árni Stefánsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, í samtali við GP. Nú er komið í ljós að Hafnar- fjarðarbær hefur meinað hinum kunna handaflsmanni ívari Haukssyni að gerast „vinur Hafn- arfjarðar". Samkvæmt heimildum blaðsins sótti fvar um að vingast við Hafnfirðinga og var það hluti af markaðsátaki hjá skrifstofú hans. „Þetta er auðvitað algert kjaft- æði, ef ég hefði ætlað mér að vin- gast við Hafnfirðinga þá hefði ég Síðasti fjármálaráðherrann FRIÐRIK FLÚIIMIM ÚR LAIMDI Tók með sér varasjóðinn, en skildi skuldirnar eftir Reykjavík, 27. maí._________________ I gærmorgun sá ljósmyndari GP óvænt til ferða Friðriks Sophus- sonar í Leifsstöð. Hann var afar flóttalegur á svip og tók til fótanna þegar hann kom auga á ljósmynd- arann. Eftirgrennslan leiddi í ljós að Friðrik hefur flúið land í kjölfar kjarasamninga og dvelur nú á ónefndri eyju í karabíska hafinu. Samráðherrar Friðriks, sem GP ræddi við, sögðu að þetta kæmi ekki á óvart í ljósi niðurstöðu kjara- samninga. „Hann var eitthvað svo undarlegur og fölur síðustu daga,“ sagði Þorsteinn Pálsson. „Við héld- um að þetta væri bara flensa, en hann fór allur í keng í hvert skipti sem minnst var á tveggja þrepa virðisaukaskatt. Þegar svo kom í ljós hver fjárlagahallinn verður á næsta ári hljóp hann út af fúndi og hefur ekki sést síðan.“ „Mín versta martröð er orðin að veruleika," sagði Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri. „Þegar ég kom í vinnuna í gærmorgun og opnaði ríkiskassann var ekkert í honum nema gluggapóstur og tilkynningar um gjaldfallnar greiðslur af ríkis- skuldabréfum. Hann hefur tekið með sér nokkrar milljónir sem við geymdum í leynihólfi í kassanum. Þær voru varasjóðurinn okkar og ætlaðar til kaupa á væntanlegum kvikmyndum Hrafns Gunnlaugs- sonar. Davíð verður brjálaður þegar hann kemst að þessu.“ „Við erum að kanna málið,“ sagði Davíð Oddsson þegar GP spurði hann um hvarfið á Friðriki og peningunum. „Það er eitt að missa fjármálaráðherra — það má alltaf fá fleiri slíka, sérstaklega af kal- íberi Friðriks," sagði Davíð og þyngdist á honum brúnin. „Það er hins vegar alvarlegra ef peningamir hans Krumma eru horfnir. Það vita allir að hann hefúr ekki í önnur hús að venda ef við sjáum ekki fýrir honum." „Ég bara trú’ess’ekki,“ sagði Sig- riður Dúna Kristmundsdóttir þegar GP sagði henni af ferðum Friðriks. „Hann fór í vinnuna í gær og sagð- ist koma í kvöldmat. Ég kippti mér ekki upp við það þótt hann kæmi ekki heim. Hann er oft úti heilu næturnar, hann Friðrik minn.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.