Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Blaðsíða 7

Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Blaðsíða 7
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 S ó 1 d í s. 1 sjávarins gröf er það grafið, Iþitt gull, sem er æfi vor hálf. Þú ert í ætt við hafið, sem ástagyðjan sjálf. Þú upp úr öklunum stígur, sem engill, með lieilaga ró, og hávaðalaust þú hnígur á liverjum degi í sjó. Þú lieilsar—og liressandi hlossi í hjörtunum vaknar og rís. Þú kveður—og lýkur með kossi upp kvöldhúmsins paradís. Þú lífgjafinn allra alda, sem öll hin sterkustu mögn, þarft ekki á hávaða að halda en heiminum stjórnar—í þögn. 1 ró, sem er rausn liins sterka, þitt raungildi kveður sér liljóðs, og vekur — til afreksverka og vaxtar, söngva og ljóðs. Kendu mér, Sóldís, liið sama: Að seiða fram bætur livers meins, og ná hinum fegursta frama í fórn, sem 'krefst ekki neins. Og þegar mér þrjóla ljósin, haf þá í hjarta mér töf sem kærleikans rauðasta rósin, er rís — af harmanna gröf. Já, rís úr brotsjóa bárum og blessaðu myrkursins fold. Fögnuður, fæddur af tárum, frjóvgaðu sérhverja mold. Grétar Fells. JUAN F. ASCARRATE, sendiherra, Mexico í Berlín. — Hann var sendur til Berlín til þess að greiða fyrir viðskiftum milli Mexico og Þýskalands. — Mexicobúar hafa næga olíu, sem Þjóðverjar þarfnast, og gela tekið þýskar iðnaðarvörur i staðinn. Nýja Bi6 Perlur ensku krúnunnar, I ensku krúnunni — „King’s State Cro\vn“ — lianga fjórar perlur, sem eru eins og perur í lögun .... Myndin er um þessar perlur og þrjár aðrar, sem voru alveg eins og þær. Efnið, sem hún er gerð eftir, nær alveg frá árinu 1518 og til vorra daga. Árið 1518 er Clemens 7. páfi og hjá honum dvelur frænka hans, Katrín af Medici. Ungur aðalsmaður við hirð páfa, Spanelli, elskar Katrínu, en hún er lofuð ríkiserfingja Frakk- lands, Frans I. Til þess að losna við Spanelli sýnir Clemens lionum tvær fagrar perlur, sem eru eins og perur i lögun og segir honum að útvega séf fimm perlur, alveg eins. Spanelli ferðast viða og er hann kemur lieim aftur, hefir Iiann gert eins og fyrir hann var lagt. Þá er hann sendur i klaustur. Svo líða mörg ár, en þegar Maria Stuart verður drotning Skota eignast hún perlurnar. Svo er Maria tekin af lifi, en meðan aftakan fer fram, er perlunum rænt úr herbergi hennar. Ræningjarnir, sem eru þrír, skifta þýfinu, fyrirliðinn fær þrjár perlur, en hinir tvær hvor. En tveir þeir siðarnefndu nást aftur og Elísabet geymir perlurnar fjórar. Árið 1887 finnur Viktoria þær. Hún gaf skipun um að þeim skuli komið fyrir í kór- ónunni og þar eru þær ennþá. En hvað varð af perlunum þrem, sem fyrirliði ræningj- anna tók? Myndin skýrir einnig frá því. Aðalleikandinn er Saclia Gui- try, sem hefir fjögur hlutverk á hendi. Ilann liefir séð um töku myndarinnar að öllu leyti. Hún er um óvenjulegt efni og er að öllu leyti vel úr garði gerð. „Heldurðu nú. að þú vitir nóg til þess að geta komið aÖ gagni hér“, sagði framkvæmdastjórinn við nýja skrifstofusendilinn. „Viti nóg? Og eg sem var látinn fara úr hinum staðnum, af því að húsbóndinn sagði, að eg. vissi of mikið.“ ¥ „Þetta er sá skemtilegasti stúku- fundur, sem eg hefi verið á,“ sagði Jón Jónsson við konu sína, er hann kom heim. „Og hvað var til skemtunar, góði minn ?“ „Hm! — Ræðuhöld — og ég talaði þrisvar." * Það er nokkurn veginn örugt, að maður, sem skopast að konum fyr- ir að vera allan daginn í búðum, án þess að versla, er ókvæntur. * „Jæja, Mumm!i,“ sagði kenslu- konan, „ef ellefu kindur væru i kvíunum og sex hlypu út úr þeim, hvað væru margar eftir?“ „Engin.“ „Geturðu ekki dregið 6 frá n?“ „Jú, en eg hefi verið í sveit og þekki rollurnar." * Stúlka, sem bar skauta, kom inn í strætisvagn, og var ekkert sæti laust. Maður nokkur stóð upp og bauð henni sæti sitt. „Þalcka yður fyrir,“ sagði stúllc- an, „en eg hefi verið að læra á skautum í allan dag.“ * „Þér ætlið þó ekki, að gestir mín- ir taki regnhlífarnar með sér, er þeir fara?“ spurði enskur aðals- maður skoskan þjón sinn, en hann hafði mætt honum í forsalnum með allar regnhlifar, sem til voru á heimilinu, rétt áður en von var mik- ils fjölda gesta í miðdegisverðar- boð. „Nei,“ svaraði Skotinn, „en þeir kynnu að þekkja þær.“ * Sveitadrengur horfði undrandi á borgarsnáp nokkurn, er var á sum- arferðalagi í sveitinni, bera ilmvatn í hár sitt, er hann hafði þvegið sér og rakað, burstað tennur sínar og snyrtað neglur o.s.frv. Loks stóðst drengurinn ekki mátið og sagði: „Gerirðu sjálfum þér svona mik- iÖ ónæði á hverjum degi?“ ¥ „Verðum við að bíða mikið leng- ur eftir möminu ?“ sagði lítill dreng- ur, sem stóð fyrir utan búðarglugga með föður sínum. „Nei,“ var svarið. „Afgreiðslu- stúlkan var að taka seinasta hatt- inn úr glugganum.“ —• Það er furðulegt, að allar leik- konur segjast vera innan við þri- tugt. — Enn furðulegra er þó, að flestar stúlkur halda, að þær séú efni í leikkonur — fram undir þrí- tugt. * — En hvað mér þykir leitt að frétta, Mabel, sagði skosk stúlka við vinstúlku sína, að hann Donald skyldi segja þér upp. Deilduð þið? — Nei, hann kyntist stúlku frá Aberdeen, sem á afmæli á jólunum. * William Howard Taft Banda- rikjaforseti var gildvaxinn mjög og þungur. Eitt sinn er Taft var súð- ur í ríkjum á skemtiferðalagi, sendi hann Theodore Roosevelt bréf- spjald, hvar á stóð: Reið 15 mílur í dag á múlasna. Roosevelt svaraði uin hæl: Hvernig líður múlasnan- um? — Báðir voru þeir hnittnir í svörum, Taft og Roosevelt. Hinn síðarnefndi ákafamaður, en Taft gæflyndur. — Einu sinni, er Taft var i kosningaleiðangri, gisti hann hjá bónda nokkrum í vesturríkjun- um. Er hann bar að garði, var hon- um boðið til stofu og settist Taft í hægindastól, en stuttri stundu síð- ar heyrðist brak mikið og brestir, og er bóndinn kom inn til þess að sjá hvað um væri að vera, lá Taft á gólfinu og stóllinn mölbrotinn undir honum. „Hvað er um að vera?“ spurði bóndinn. „Ekkert alvarlegt," sagði Taft, „en ef þið getið ekki fundið mig í fyrramálið, skuluð þið leita mín í kjallaranum.“ * Dr. J. S. Turner, sem er pró- fessor í jurtafræði við háskólann í Melbourne í Ástralíu hefir fundið upp aðferð til að sjóða blóm nið- ur. Geta þá menn sent „stúlkunni sinni“ eina dós af rósum.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.