Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 19.08.1962, Blaðsíða 20
Lífið í síkiitu — FramHald af 581. síðu. fljúga að í öllum áttum. Af og til myndast litlir hringir á yfirborði vatnsins eða þá, að lítil gára fellur að blöðum vatnaplantnanna: Einhver íbúi síkisins er annað hvort að sækja sér loft eða veiða. 1 „frumskógi" vatnaplantnanna við bakka síkisins er grannvaxinn „Hydroma" (vatna- maur) á ferð og fylgir annarri af sömu tegund, sem hreyfir sig líflega eftir vatnsfletinum. Þeir mæta eitr- aðri kónguló, sem teygir langa eitur- krókana upp fyrir vatnsborðið og rannsakar með ákefð stóra vatna- trjátítlu, sem hefur setzt á vatnið skammt frá henni. En kóngulóin er allt of seinfær til þess að trjátítlunni stafi nokkur hætta af henni, og bíð- ur því eftir, að eitthvert annað skor- dýr komi í höggfæri. Rétt í þessu syndir salamandra eftir yfirborðinu með þokkafullum hieyfingum og litla vatnaflugan, sém var'ð óvart á vegi hennar, endar lífdaga sína í gininu á henni, því að það eru lögmál lífsins og dauðans, sem gilda á þessum stað, — að éta og verða étinn er það „rnottó", sem gildi í hverju síki og hverri tjörn, jafnt á botni sem yfir- borði. Hér á síðunni sést, hvernig þetta lögmál er útfært í reynd. í eiðrétting:: í greininni 'um Miklabæjar- Sólveigu í 23. tölublaði Sunnu- dagsblaðsins er sú skekkja, að, sóra Jón Hallsson hafi verið prestur á Miklabæ, þegar Eng- lendingurinn Howell drukknaði í Héraðsvötnum og var grafinn i Miklabæjarkirkjugarði. Eins og kunnugir vita var séra Björn Jónsson þá prestur þar, en ekki sóra Jón. Lirfa drekaflugunnar er hræðileg á aö lífa í þessari stærð, enda er hún vig vel. í litlu þorpi á Lithaugalandi bjó skyldurækinn og einfaldur kjöt- kaupmaður, er hafði þann sið að telja peninga á hverju kvöldi, þeg- ar hann hafði lokað búð sinni, og iáta þá í skrín. Maður, sem átti heima hinum megin við þilið, hafðl oft heyrt hann telja peningana upphátt. Maður þessi var fégjarn og ekki vandur að virðingu sinni. Hann boraði .gat á þilið, fór sið'an til lög- reglunnar og sagði, að frá sér hefði verið stolið sömu fjárhæð og hann heyrði kjötkaupmanninn telja um kvöldið. Maðurinn fullyrti, að kjötkaup- RABBININN VITRI maðurinn hefði stolið peningunum og lögregla gerði leit í híbýlum kaupmannsins. Þar fann hún það, sem hinn blendni nábúi þóttist hafa misst. Lögreglan taldi aug- Ijóst, að kjötkaupmaðurinn væri sekur, en hún gat með engu móti knúð fram játningu hans. í neyð sinni leitaði kjötkaupmaðurinn á náðir rabbína í þorpinu. Rabbín- inn kvaddi kjötkaupmanninn, lög- reglufulltrúann og þann, sem þótt- ist hafa misst peningana, á sinn fund. Þegar þeir höfðu sagt honum alla málavexti, svo sem þeir töldu þá vera, hver um sig, bað rabbín- inn um s'kál með vatni. Þegar skál- in hafði verið borin inn, mælti hann: — Fleygið peningunum í vatn- ið. Það var gert. Að lítilli stundu liðinni brá fyrir fitubrák á vatn- inu. — Kjötkaupmaðurinn á þessa peninga, sagði rabbíninn. Hneppið hinn manninn í varðhald, því að hann er sekur. 596 T í M I N N SUNNUDAGSBLAS

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.