Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Blaðsíða 4
★ Björn Kristjánsson, fyrrv. kaup- félagsstjóri eg alþingismaöur á Kópaskeri, er aö verða níræður. Hann á nú heinia á Grenimel 13 í Reykjavík. Þessi sískrifandi og sí- lesandi iðjumaður er nú hættur að lesa og skrifa, af Því að sjón- in brást honum fyrir einu til tveim árum. En fyrir hugskotssjónum hans svífa myndir frá liðnum tíma. Hann man vel árið 1890 og jafn- vel lengra aftur. Þegar Björn var enn ungur mað- ur á æskuheimili sínu, Víkingavatni í Keiduhverfi, fór fram útrýming- arherferð gegn fjárkláðanum um land allt. Björn kom þar mikið við sögu og fór tvisvar sinnum að vetrarlagi landveg um allar sýslur landsins, að undanteknum Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Þá var landið veglaust að kalla. Oft- Jón Sigurðsson forseti var skipað- ur til þess urn tíma, ásamt dönsk- um dýralækni, að hafa umsjón með kláðalækningum. Það mun hafa verið um 1860, og var talið, að starf þeirra hefði borið góðan árangur. Samt var fjárkláðinn hér við- loða öldina út og raunar lengur, einkum suðvestamlands og færð- ist öðru hverju í aukana. Greindi menn mjög á um það, sem kunn- ugt er, hvort vænlegra væri til árangurs niðurskurður eða lækn- ingar. Um síðustu aldamót var Páll Briem amtmaður norðan lands og austan. Hann var áhuga- samur framkvæmdamaður sem kunnugt er, og beitti sér mjög fyr ir því, að ráðið yrði niðurlögum fjárkláðans að fullu, ef unnt væri. Si^urður Sigurðsson, síðar búnað- armálastjóri, var þá við nám í Noregi, og að áeggjan amtmanns kynnti hann sér reynslu Norð- manna í kláðalækningum. Komst hann í kynni við norskan mann, Ole Myklestad, sem hafði langa reynslu á Þessu sviði og var grein um kláðalækningar eftir Myklestad Björn Kristjánsson Tvær hringferðir um landið fyrir sextíu og fimm árum ar en einu sinni hefur hann verið beðinn að láta birta eitthvað af Því, sem hann man um þessar lamg- ferðir fyrir 65 árum og viðureign- ina við fjárkláðann, en féllst loks á það nú í vetur, af sérstöku til- efni, að eiga við undirritaðan við- tal það, sem hér fer á eftir. — Hvernig stóð á þessari út- rýmingarherferð gegn fjárkláðan- um, sem þú tókst þátt í? — Þessi útrýmimgarherferð átti sér langan aðdraganda. Fjárkláð- inn barst hingað lil lands með ensku fé árið 1855 og breiddist hratt út um Suðvesturland, en síð- ar víðar um land. Fjárpest þessi olli miklu tjóni á sauðfé, og var reynt að vinna bug á henni, bæði með niðunskurði og lækningum. birti í Búnaðarriti 1901 að tilhlut- an amtmanns. Um þetta leyti setti Alþingi ný lög um útrýmingu f jár- kláðans með böðum og lagði fram fé í því skyni. Var Myklestad feng- inn hingað til lands haustið 1902 til að hefja rannsókn á kláðan- um og veita leiðbeiningar, en árið eftir ráðinn til að standa fyrir út- rýmingu fjárkláðans um land allt. — Hvernig atvikaðist það, að þú réðst til þessara starfa? — Það var á árinu 1903, þegar ég var tuttugu og þriggja ára gamall, að boð komu til sýslu- manna að leggja skyldi fyrir hreppsnefndir að nefna til tvo eða þrjá menn til að sjá um böðun 1 hverjum hreppi. Voru þeir kallað- ir baðstjórar, og skyldu vera við- staddir böðun á hverjum bæ. Við Björn Guðmundsson í Lóni, síðar hreppstjóri, vorum tilnefndir bað- stjórar í Kelduhverfi. Björn var frændi minn og nokkrum árum el'dri en ég. Um haustið voru okkur sendir stórir eirpottar, en í þeim átti að sjóða baðlyfið, sem voru stór tó- baksblöð, í tvser og hálfa til þrjár klukkustundir. Baðkerin sjálf voru úr tré og ásamt eirpottunum flutt á milli bæja. Snemma í nóvember átti böðun að hefjast. Við Björn vorum þá staddir í Ási í Keldu- hverfi, því að þar átti að baða fyrst. MyMestad kom þangað árla dags austan yfir Jökulsá, sem þá var óbrúuð, til að kenna okkur, hvernig framkvæma skyldi böðun Gísli Guðmundsson ræðir við Björn Kristjánsson frá Kópaskeri 100 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.