Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.05.2004, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14|5|2004 | FÓLKIÐ | 5 Heimurinn dýrkar gáfur. Mér hefur alltaf fundist skrítið hvað fólk leggur mikið uppúr gáfum. Það er sífellt verið að verðlauna gáfur. Gáfaður maður fær alls staðar mikla aðdáun. Fólk vill eignast gáfuð börn. Hvað með góð börn? Mér finnst góð- mennskan miklu meira virði en gáfur. Best er náttúrlega þegar þetta tvennt fer saman. Gáfur án góðmennsku eru ávísun á hrylling. Verstu illmenni sög- unnar eru og hafa verið gáfaðir menn. Mestu glappaskot mannkynssögunnar eru gerð þegar gáfurnar taka stjórnina og mannkærleikurinn gleymist því í augum gáfnanna er Guð ekki til. Allt er útskýrt á vísinda- legan hátt, manneskjan er bara vetni, kolefni og súrefni og Jesú er ekki meira til en hægt er að sanna með fornleifafræði og vísindum. Heilinn er eina líffæri mannsins sem er algjörlega til- finningalaust. Og hvað græðir maður á því að vera ríkasti og gáfaðasti maður í heimi ef mað- ur fyrirgerir sálu sinni? Heimurinn er ekkert sér- staklega hrifinn af góð- mennsku. Öll framúrskarandi góðmenni eru undantekning- arlaust drepin; Jesú, Gandhi, Lennon, Kennedy og Martin Luther King. Nelson Mandela slapp með skrekkinn, það hefur verið reynt að drepa páfann og Dalai Lama þurfti að flýja land. Illmenni virðast komast upp með allt. Hitler fékk að halda áfram nær endalaust. Hann var einmitt eldklár, snyrtilegur og kurteis og kunni að koma fyrir sig orði. Það eina sem vantaði uppá var að hann væri gull- fallegur. Þá hefði hann verið fullkominn. En hann átti engan mannkærleika til. Og hérna er kannski komin ágætis lýsing á djöflinum. Ég vantreysti öllu fólki sem hefur ekki í sér kærleika til ann- arra. Mér er alveg sama hvað það er gáfað. Læknar eru gott dæmi. Ég þurfti einu sinni að gangast undir meðferð hjá skurðlækni. Hann kom fram við mig eins og slátrari sem skoðar kindaskrokk, af fumlausu og ís- köldu öryggi. Það var engin hlýja, engin virðing, engin um- hyggja. Mér finnst ég heyra þetta oft hjá fólki. Bandarískir tollverðir horfa á mann, með samblöndu af áhugaleysi og andúð. Dyraverðir eiga líka til þetta augnaráð. En þegar lækn- ir er kominn með þennan augn- svip þá er eitthvað að. Þá fær maður á tilfinninguna að hann hafi ekki farið útí skurðlækn- ingar til að hjálpa fólki heldur til að græða peninga á því að skera í sundur skrokka. Ég held að heimurinn væri miklu betri staður ef við legðum meiri áherslu á góðmennsku og minni á gáfur. Hjartað er merki- legra en heilinn. Hvað með góð- mennskuverðlaun Nóbels? En kannski er þetta bara svona í þessum heimi. Kannski byrjar hið raunverulega líf ekki fyrr en eftir dauðann. Ég trúi því. Jón Gnarr Hugrenningar alþýðumanns Gáfur Ég sá í vikunni viðtal í Íslandi í bítið við einn af þjónustufulltrúum Landsbankans. Lýsti sá ágæti fulltrúi þar yf- ir að Íslendingar væru lélegir í að spara. Ís- lendingar eyða um efni fram, misþyrma vísa- kortinu í tíma og ótíma og hugsa ekki um sparnað fyrr en nánast þegar á grafarbakkann er komið. Margur gæti haldið Íslendingar væru almennt óskynsöm þjóð og get ég að nokkru tekið undir slíkt – að sjálfri mér undanskilinni auðvit- að. Ég kann svo sannarlega að spara … það líður reyndar ekki sá dagur að ég hugsi ekki um sparnað! Hins vegar tel ég vert að benda á að sparnaður minn er um margt nýstár- legri en sá sparnaður sem banka- mannafulltrúinn taldi gildan. Auðvit- að er það góðra gjalda vert að leggja alltaf ákveðna summu á mánuði inn á einhvers konar nískureikning þar sem féð ávaxtast um eina krónu á ári eða svo, en til eru aðrar leið- ir sem ég tel heppilegri og hafa reynst mér nokkuð vel. Ég get nefnt hversdagsleg dæmi bankamönnum til upp- lýsinga og yndisauka. Sparnaðarleið 1: Ég versla aldrei í stórmörk- uðum – það er mjööög óhagkvæmt. Ástæða þess að ég versla ekki í stórmörkuðum er sára- einföld. Stórmarkaðir eru ekki gerð- ir fyrir einbúa. Ég hef stundum reynt að vera vísitölukona og birgt mig upp af alls kyns hollustu og gúmme- laði í stórmörkuðum en pening- unum mætti allt eins henda út um gluggann. Þegar heim er komið er vörunum raðað fallega inn í tóman ísskápinn … en það næsta sem gerist er að ég opna ísskápinn tveimur vikum síðar og fleygi 80% af því sem ég keypti! Allir með ágæta rökhugsun hljóta að sjá þetta er mjög óhagstætt fyrir þjóðarbúið, arðsemi eigin fjár og fyrir öll þessi óskiljanlegu bankamannahugtök um sparnað. Ég hef lært af reynsl- unni og fer því alltaf út að borða. Er þá engum peningum sóað heldur fer hver einasta króna beint ofan í mig og spara ég þar með dágóðan skildinginn. Sparnaðarleið 2: Ég kaupi alltaf tvöfaldan gin í tónik í stað einfalds þegar ég bregð undir mig betri fæt- inum – það er svo hagkvæmt sjáið til. Á stundum hefur það þó ekki reynst mjög líkamlega hagkvæmt en það fé sem verður eftir í budd- unni þegar ekki þarf að kaupa tvo einfalda drykki hlýtur að vera af hinu góða. Auk þess fæ ég sama magn áfengis út úr einum tvöföldum drykk og tveimur einföldum … en það góða er líka að ég fæ minna gos – enda eru sykursætir gosdrykkir ekki af hinu góða. Með þessu móti spara ég bæði pening og forða mér frá aukakílóum – tvær flugur í einu höggi. Ótrúleg hagkvæmni hér á ferð. Sparnaðarleið 3: Fáðu þér kær- asta. Þessi leið hefur reyndar reynst mér nokkuð torveld en ég er þó alltaf að vinna í henni – batnandi mönnum er best að lifa og allt það. Svo að við konurnar náum að spara af einhverju viti er fátt betra en sí- nöldrandi kærasti sem hótar öllu illu ef heim er komið með nýja skó eða ógeðslega flottar (og dýrar) gallabuxur. Mér þykir það reyndar átakanlegt að enn á 21. öldinni skilja menn ekki hvers konar dem- antur það er fyrir þjóðarbúið að hafa konur með kaupsýki. Hugsið ykkur allt það unga fólk sem væri á at- vinnuleysisbótum ef við konurnar sæjum búðum ekki fyrir klínki í kassann! … en já, aftur að áð- urgreindum sparnaði … það er sem sagt ótrúlega hagkvæmt að eiga eitt eintak af kærasta sem hefur ekki smekk eða nef fyrir tísku. Að þessum þremur sparnaðar- leiðum virtum má glögglega sjá að unnt er að spara með öðrum leiðum en nískuleið bankamanna. Þeim sem vilja frekari sparnaðar- ráðleggingar Járnskvísunnar er bent á að finna mig á veitingastöðum, börum eða í tískuvöruverslunum. Gleðilegan sparnað. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Splunkunýjar sparnaðarleiðir JÁRNskvísan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.