Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gunnar EinarLíkafrónsson var fæddur á Hrafns- fjarðareyri í Grunnavíkurhreppi í N-Ísafjarðarsýslu hinn 28. september 1934. Hann lést í Keflavík 4. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Líkafrón Sigurgarðsson, f. 12. júlí 1882, d. 4. maí 1968, og Bjarney Solveig Guðmunds- dóttir, f. 25. mars 1893, d. 12. maí 1974. Systkini Gunnar voru: Þor- björg samfeðra (látin), Sigurlaug (látin), Einar, Friðrika Beta, Guð- björg (látin), Sigurrós, Aðalheið- ur (látin), Sigurgeir, Jóhanna, Kristín, Hrefna og Katrín (látin). Hinn 26. desember 1961 kvænt- ist Gunnar Ásthildi Ásu Jónsdótt- ur, f. 23. júlí 1936, d. 27. júní 1993. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Dóra Fanney Gunn- arsdóttir, fædd 1962, gift Anneli Jóni Þorkelssyni og eiga þau fjögur börn, Bjarneyju Sólveigu, Gunnar Einar, Atla Þór og Annel Fann- ar. 2) Sigurlaug Kristjana Gunnars- dóttir, f. 1965, í sambúð með Daníel Eyþórssyni og eiga þau tvær dætur, Ásthildi Ásu og Tönju Mist. 3) Gunn- ar Þór Gunnarsson, f. 1966, og á hann tvær dætur, Birgittu Sif og Elínu Maríu. 4) Sævar Jósep Gunnarsson, f. 1972, í sambúð með Önnu Bragadóttur og á hann eina dótt- ur, Sigrúni Hrefnu. Dóttir Ást- hildar, sem Gunnar gekk í föð- urstað, er Dagfríður Guðrún Arnardóttir, f. 1958, gift Sigurvin Breiðfjörð Guðfinnssyni og eiga þau tvo syni, Guðfinn Guðjón og Rúnar Má. Gunnar starfaði lengst af sem sjómaður en frá árinu 1971 starf- aði hann að mestu við netagerð. Útför Gunnars verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Margs er að minnast og margs er að sakna. Við sitjum hér saman systkinin sorgmædd og látum hug- ann reika. Við stöldrum við síðustu mánuði sem voru föður okkar mjög erfiðir en æðruleysið sem hann sýndi á þessu tímaskeiði skilur okk- ur eftir orðlaus. Örlögum sínum tók hann af stillingu og hógværð. Hann kvartaði aldrei þó ærin ástæða væri til. Það sem var honum efst í huga var að vernda okkur. Það sem hjálpar okkur núna er það veganesti sem við fengum frá honum og móður okkar út í lífið. Þau lögðu mikla áherslu á kærleik- ann og það að við værum alltaf til staðar hvert fyrir annað. Eins var pabbi alltaf til staðar fyrir okkur og ef hann hafði minnsta grun um að eitthvað bjátaði á hjá einhverju okk- ar var hann kominn að bjóða fram aðstoð sína. Hann lagði ekki mikið upp úr veraldlegum gæðum og var alltaf lítillátur fyrir sjálfan sig, en hann notaði það sem hann átti til að hlaupa undir bagga með okkur ef á þurfti að halda. Þá munaði ekki síst um hinn andlega stuðning. Það gladdi hann hvað mest ef hann gat verið okkur innan handar. Nú er komið að kveðjustund. Hjarta okkar er fullt af trega og söknuði en við huggum okkur við það, elsku pabbi, að nú ertu kominn til mömmu sem þú saknaðir svo mikið. Við trúum því að það hafi ver- ið fagnaðarfundir. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Börnin. Í bernsku fór pabbi oft með mig í gönguferð niður á bryggju. Þetta var á þeim árum sem mikið líf var á bryggjupollanum og drekkhlaðnir bátarnir komu hver á fætur öðrum í land. Pabbi var sjálfur sjómaður en dálæti hans á hafinu var slíkt að þegar hann var í landi gat hann ekki stillt sig um að kíkja á bryggjuna til að fylgjast með hamaganginum. Þetta voru mér strákpjakknum eft- irminnilegar ferðir. Kallarnir á fullu að landa með hrópum og köllum og sumir gerðu að netum sínum á kant- inum. Lítið vissi ég þá að stórum parti af starfsævi minni ættum við pabbi eftir að eyða saman og það einmitt í sjávarútvegi. Það var gott að vinna með pabba en hann var mjög sam- viskusamur. Lagði áherslu á að menn vönduðu vel til verka, væru iðnir og duglegir. Hann var veru- lega góður leiðbeinandi. Síðar gerðum við út saman trillu til nokkurra ára. Á þessum tíma vörðum við hverri vökustund saman og varð samstarf okkar til að styrkja enn frekar okkar sterku bönd. Við pabbi deildum mörgum áhugamálum og vorum um margt líkir. Okkar fannst gaman að fylgj- ast með íþróttunum í sjónvarpi og voru formúlan og boxið þar efst á blaði. Einnig fannst okkur gaman að rökræða stjórnmál og alltaf fór það þannig að lokum að við náðum sam- eiginlegri lendingu. Síðasta ferðalagið sem við pabbi áttum saman mun lifa lengi í minn- ingunni. Það var í byrjun júlí í fyrra sem við fórum með dætur mínar, Birgittu Sif og Elínu Maríu, í sum- arbústað í Ölfusborgum. Það var skemmtileg ferð en við fórum í heita pottinn, á hestbak og keyrðum um sveitirnar. Það kórónaði alveg ferð- ina fyrir dætrum mínum að hafa afa sinn með en hann var í miklu uppá- haldi hjá þeim. Pabbi ljómaði alla ferðina en það var svo gaman að gleðja hann. Til að mynda voru öll matarboð stórveislur í hans huga og hann furðaði sig alltaf á því hversu mikið væri fyrir sér haft. Það þurfti svo sannarlega lítið til að ylja hon- um um hjartaræturnar en hann var alltaf mjög aðhaldssamur við sjálfan sig en örlátur við aðra. Faðir minn var mér alla tíð mikill stuðningur og ef ég var í erfiðleikum gat ég alltaf treyst á að pabbi vísaði mér rétta leið. Það verður söknuður að því að geta ekki hringt og spjall- að hvenær sem er eins og við oft gerðum. Það er þó viss blessun í því að hafa getað kvatt hann vel þessa síðustu mánuði en á þeim tíma átti hann aðdáun mína óskipta. Hann yf- irgaf þennan heim með alþýðlegri reisn umvafinn ást sinna nánustu. Ég þakka þér samfylgdina, elsku pabbi minn, og hafðu eilíft þakklæti fyrir allt sem þú varst mér í gegnum árin. Gunnar Þór Gunnarsson. Lítill drengur situr á eldhúsborð- inu hjá ömmu sinni og afa. Nýlagað kaffi er sett á borð. Skyndilega hleypur ærslagangur í drenginn og hann fer að hossa sér með þeim af- leiðingum að rjúkandi heitt kaffið skvettist í kjöltu afans. Mikið man ég hvað ég grét þegar ég áttaði mig á því hvað ég hafði gert. Afi kippti sér lítið upp við atvikið. ,,Svona elska, þetta er nú ekkert til að gráta yfir. Þetta jafnar sig.“ Sama gilti ef ég fór í eldhússkúffuna, át klein- urnar sem afi átti að fara með í vinnuna og fékk ákúrur fyrir hjá móður minni. ,,Láttu ekki svona, eins og þessi elska megi ekki fá sér kleinu? Ég kaupi bara nýjar,“ var viðkvæðið. Það var allt leyfilegt hjá afa og ömmu. Ekkert sem ég gerði gat reitt þau til reiði eða valdið þeim vonbrigðum. Ást þeirra var skilyrð- islaus og óbrigðul eins og sólin. Ég naut þess að dvelja hjá Gunna afa og ömmu Ástu sem barn, en þar var ég í pössun á meðan foreldrar mínir unnu. Heimili þeirra var þá, og alla tíð, mín friðarhöfn. Alltaf var hægt að finna sér eitthvað til dund- urs. Tjútta við ömmu, spjalla við afa, hræra í búðing, skoða myndir. Við höfðum ævinlega nóg fyrir stafni. Öryggi og hlýja þess tíma veita nú krömdu hjarta líkn með þraut. Eina fjölskylduhefð átti afi einn og stakur en það var pönnuköku- kaffið á sunnudögum. Þá safnaðist fjölskyldan öll saman og naut sam- vistanna við hlátur og gleði. Önnur fjölskylduhefð er skötustappan á Þorláksmessu en enginn úr okkar röðum leggur sér skötu til munns nema stappaða að hætti afa. Jólin eru okkar tími í fjölskyld- unni. Öllum aðfangadagskvöldum vörðum við hjá ömmu og afa, og svo með afa eftir að amma dó árið 1993. Afi gætti þess vel að nóg væri til af sælgæti og það átti að borða en var ekki til að horfa á! Í eftirrétt var ávallt ís með ávöxtum en Gunni afi fór alltaf í sérstakt hátíðarskap þeg- ar hann bar hann fram við fögnuð okkar krakkanna. Næstu jól verða skrýtin nú þegar afi er líka farinn. Í mínum huga er þó andi ömmu og afa samofin anda jólanna og á þann veg munu þau alltaf koma aftur með sitt ástríki í hjarta mitt þegar klukkan slær sex á aðfangadag. Mér er sér- staklega minnisstæður útskriftar- dagur minn frá Menntaskólanum á Akureyri þann 17. júní 1999. Ekki síst fyrir þær sakir að þá gerði afi, sem sjaldan fór í langferðir, sér ferð norður yfir heiðar. Við deildum her- bergi í orlofsíbúð þessa síðustu daga fyrir útskrift. Að kvöldi 16. júní hafði ég næturljósið kveikt og pár- aði í myrkrinu. Afi fór að forvitnast um það hvað ég væri að skrifa. ,,Æi, bara minnispunkta fyrir morgun- daginn, hvað ég þarf að gera og svona,“ svaraði ég. Lítið vissi hann að ég var að skrifa ræðuna sem ég átti að flytja fyrir hönd útskriftarár- gangsins daginn eftir. Sá gamli ljómaði af stolti og tár blikaði á hvarmi þegar ég fór með kveðjuna til skólans. ,,Var það þá þetta sem hann var að skrifa í gærkvöldi?“ sagði hann og brosti blíðlega til mömmu. Í útskriftargjöf gaf hann mér gamaldags vasaúr sem í voru grafnir upphafsstafirnir mínir. Í slíkt úr hafði mig lengi langað. Dag- arnir á Akureyri með afa eru mér afar kærir og ég veit að það voru þeir honum líka. Amma og afi voru tilgerðarlaust og hógvært íslenskt alþýðufólk. Um þau verða seint rit- aðar bækur en engu að síður tóku þau með lífsviðhorfi sínu mörgu stórmenninu fram. Þau skilja eftir sig sterka og samheldna fjölskyldu sem er hverjum þeim sem henni til- heyrir bakland í gleði og sorg. Arf- leifð Gunnars Einars og Ásthildar Ásu er kærleikurinn, æðruleysið, mannúðin, lífsgleðin og kátínan sem hvert og eitt okkar tekur nú með sér áfram út í lífið. Slíkur arfur er þegar öllu er á botninn hvolft sá dýrmæt- asti sem mannlegri veru getur hlotnast, og alls ekki sjálfsagður. Ég kveð þig, elsku afi minn, með söknuði og tárum. Það veitir huggun harmi gegn að vita ykkur ömmu saman á ný en ég veit hversu heitt þið söknuðuð hvort annars. Hafið bæði frá mínum dýpstu hjartans rótum þökk fyrir allt og allt. Nú eigum við sem eftir stöndum okkar friðarhöfn á himnum með Guði. Lítinn sælureit hjá ömmu og afa. Þangað munum við öll safnast saman í fyllingu tímans. Þar verður okkar staður til eilífðar í fullkominni hamingju og ást, eða líkt og Laxness segir í Heimsljósi; ,,Þar mun feg- urðin ríkja ein.“ Guðfinnur Sigurvinsson. Öllum okkar er afmörkuð ákveðin stund hér á jörðu, hin ógnvænlega nálægð dauðans verður öllum ætt- ingjum og ástvinum erfið. Enda er dauðinn það eina örugga sem við vitum að við þurfum að gjalda fyrir með lífinu. Í dag kveð ég minn ást- kæra tengdaföður minn Gunnar E. Líkafrónsson, sem nú hefur kvatt þetta jarðlíf eftir erfið veikindi við hinn illvíga sjúkdóm krabbamein. Fyrstu kynni mín af Gunnar og Ástu konu hans voru fyrir um það bil 26 árum þegar ég var að gera hosur mínar grænar fyrir dóttur þeirra hjóna Dóru. Ég fékk fljótt að vita það hjá tilvonandi tengdaföður mínum að hún væri frumburður hans og að ég skyldi passa vel upp á hana, enda góðum feðrum eðlislægt að hafa rétt mátulegt horn í síðu þess sem sækir að ungviði þeirra. Tengdafaðir minn missti Ástu konu sína fyrir 11 árum síðan, en hún hafði þá átt í nokkurn tíma við erfið veikindi að stríða. Þessir missir var tengdaföður mínum þungbær enda voru þau hjónin afar samrýnd. Tengdafaðir minn var mikill hörku- kall til vinnu, enda fékk ég að heyra það frá þeim sem til hans þekktu að hvað sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem var til sjós eða til lands, þá gerði hann þá hluti með þvílíkri prýði að eftir því var tekið. Tengdafaðir minn bar velferð barna og barnabarna sinna fyrir brjósti enda voru þau honum allt í lífinu, hann var þessi drauma pabbi og afi sem maður vill alltaf hafa hjá sér og vita af. Í þessum erfiðum veikindum hans kom berlega í ljós hve sterk og samheldin börn hans og barnabörn reyndust vera, enda naut hann ástúð þeirra og um- hyggju þar til yfir lauk. Kæri tengdafaðir, nú er komið að leiðarlokum, ég tel það mikla gæfu að hafa átt þig bæði sem tengda- föður og að vera afa barna minna. Englar guðs lýsi leið þína á því ferð- arlagi sem þú leggur nú upp í, sem síðan mun að endingu færa þig í hlýjan faðm hennar Ástu þinnar. Þinn tengdasonur Annel Jón Þorkelsson. Elsku afi, það er ótrúlegt hvað það hrannast upp margar góðar minningar á svona tímum sem hjálpa manni að komast í gegnum þessa miklu sorg að þurfa að kveðja þig. Vinir mínir hafa ávallt talið mig eitthvað ruglaðan að vera með dellu fyrir volvo-bílum, sérstaklega svona gömlum eins og þú áttir, en þannig var það bara að ég leit upp til þín í einu og öllu sem þú gerðir og geri enn. Þú varst fyrirmyndar, afi, og ekki er hægt að biðja um skemmti- legri og fyndnari afa sem alltaf vildi gera allt fyrir mann. Mér er það minnisstætt um jólin 2002 að ég (nafni) vildi auðvitað fá að sitja á horninu hjá höfðingjanum, og það var eitthvað sem þú sagðir sem fékk mig og Atla bróður til að hlæja svo mikið að restin af fjölskyldunni var farin að líta okkur hornauga þar sem við hlógum svo mikið að tárin féllu. En þetta er bara ein af ótal- mörgum góðum minningum sem ég á um þig og er fínt að geyma þær í hjartanu um ókomna tíð ásamt því að vita af þér núna við hlið ömmu. Ég gleymi þér aldrei. Gunnar Einar (Nafni). Elskulegur afi minn, Gunnar, lést 4. júní síðastliðinn eftir skamma en erfiða baráttu. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að þetta sé búið og að við sem eftir sitjum fáum ekki að hafa þig lengur hjá okkur. En svona er þetta víst. Afi Gunnar var mjög hlédrægur maður fyrir þá sem þekktu ekki vel til en fyrir mér var hann allt annað en það. Kímnigáfan hans var einstök og henni glataði hann ekki í veikindum sínum. Það eru ófáar gleðistundirnar sem afi skilur eftir hjá okkur fjölskyldunni. Þó skarð afa verði aldrei fyllt mun- um við sem eftir erum, gera allt sem við getum til að halda minningu hans í heiðri. Margar minningar reika um hugann og reynist mér erfitt að setja þær niður á blað. Að- fangadagskvöld var kvöldið hans afa. Á þeim tíma naut hann þess að vera með fjölskyldunni. Stemmning- in sem myndaðist á hverju ári eftir GUNNAR EINAR LÍKAFRÓNSSON Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KNÚTS ÁRMANN rafvirkjameistara, Breiðvangi 8, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Kristín J. Ármann, Valdís Erla Ármann, Guðbjörn Ólafsson, Kristín Björk Guðbjörnsdóttir, Brynjólfur Ásþórsson, Ólafur Þór Guðbjörnsson, Halla María Helgadóttir, Valdimar Björn Guðbjörnsson, Soffía Dögg Garðarsdóttir, Júlíus Jens Ármann, Knútur Rafn Ármann, Helena Hermundardóttir, Einar Helgi Ármann, Júlíus Rafn Ármann og langafabörn. Hugheilar þakkir til þeirra sem sýndu vináttu sína og samhug við andlát og útför elsku- legrar frænku okkar, GUÐRÚNAR J. GUÐMANNSDÓTTUR frá Snæringsstöðum, Mánagötu 22, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Kristínar Árnadóttur og alls annars starfsfólks 3. hæðar á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir ástúð og hlýju ásamt frábærri umönnun þann tíma sem hún dvaldi þar. Guðrún Jónsdóttir, Margrét Lovísa Jónsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Benedikt Sv. Steingrímsson, Guðmann Steingrímssson, Þorbjörn Steingrímsson. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.