Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2003, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2003, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 2003 13 EINAR Hákonarson opnar sýningu á 47 olíu- og past-elmyndum í Ketilhúsinu á Akureyri í dag kl. 15. „Þetta er í fyrsta sinn í meira en tuttugu ár að ég heldstóra sýningu fyrir norðan,“ segir listmálarinn. „Ég sýndi þarna dálítið á sínum tíma, þegar mikil vakning var í mál- verki. Það byrjaði með því að Guðmundur Ármann Sigurjóns- son kom heim frá Svíþjóð og svo var alltaf líf í kringum Gallerí Háhól sem Óli G. Jóhannsson rak. Þetta eru miklir hugsjóna- menn. Það verður gaman að sýna aftur á Akureyri eftir allan þennan tíma.“ Einar rekur nú galleríið Hús málaranna á Eiðistorgi í félagi við Óla G. og segir það hafa kveikt í sér löngun til að halda sýn- ingu nyrðra. „Þetta hefur verið hálfgert norður-suður-gallerí og margir Akureyringar sýnt hjá okkur. Það fer því kannski vel á því að ég sýni hjá þeim líka.“ Einar segir að sýningin sé yfirlit yfir verk sín á síðustu þrem- ur árum. „Þetta er allt frá því að ég var að mála trúarlegar myndir úti í Þýskalandi til portretta sem ég málaði af höf- uðskáldum íslensku þjóðarinnar, Einari Benediktssyni, Hall- dóri Laxness og Steini Steinarr. Þetta er mannlífið í allri sinni mynd. Mest af þessu hef ég sýnt fyrir sunnan en vona að Ak- ureyringar hafi gaman af því að sjá þetta líka.“ Einkasýning í Aachen Þótt langt sé um liðið gerir Einar ráð fyrir að Akureyringar séu ennþá móttækilegir fyrir málverki. „Ég held að Myndlist- arskólinn á Akureyri sé rekinn á klassískum nótum sem er fagnaðarefni enda er myndlist í þeirri mynd sem við þekkjum ekki kennd lengur á æðra stigi á Íslandi. Ég er persónulega mjög ánægður með þessar áherslur hjá norðanmönnum en ég átti á sínum tíma þátt í að koma fótunum undir þennan skóla þegar ég var skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Ég sé raunar ótvíræð sóknarfæri fyrir Akureyringa á þessu sviði. Háskólinn á Akureyri ætti að byrja að kenna myndlist á æðra stigi og veita Listaháskólanum þannig verðuga sam- keppni. Við sjáum hvað samkeppni á háskólasviðinu hefur auk- ist með tilkomu Samvinnuháskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík. Það er mjög jákvætt. Þetta er tákn um dýnamíkina í þjóðfélaginu – við Íslendingar erum nú einu sinni áhlaupa- menn.“ Það er skammt stórra högga á milli hjá Einari en 3. október næstkomandi opnar hann einkasýningu á um 30 málverkum í Stricker-galleríinu í Aachen í Þýskalandi. „Þessi sýning er afleiðing af því að ég sýndi í galleríi ágætra hjóna í Mönchengladbach árið 2001 en þau sýndu verk Gerðar Helgadóttur mikið á sínum tíma. Sú sýning vakti athygli gall- eristans í Stricker en þetta er stærsta einkarekna galleríið í Aachen. Þröskuldurinn inn á galleríin í Þýskalandi hefur oft verið býsna hár fyrir íslenska listamenn. Það er ekki hlaupið að því að komast inn á markaðinn. Þannig að þetta er mikill sigur fyrir mig. Þýskalandsmarkaður er einn sá öflugasti sem um getur og margir helstu málarar Norðurlanda hafa fengið sinn uppslátt í gegnum hann. Nefni ég þar Edvard Munch og Per Kirkeby. Nú er bara að sjá hvernig gengur.“ Menningarsögulegt slys Um þessar mundir eru fjögur ár frá því Listaskálinn í Hvera- gerði, sem Einar Hákonarson reisti og rak um tíma, var seldur á uppboði. „Þegar ég féll þarna fyrir austan með Listaskálann var vel flætt að mér á ýmsa vegu og ég varð að hugsa margt upp á nýtt. En upp skal hugann herða, eins og þar stendur, og sú saga er nú að baki. Mér hefur alltaf fallið betur að horfa fram veginn.“ Ein saga er þó ósögð. „Þegar uppboðið fór fram á sínum tíma kom boð frá öðrum aðila en þeim sem átti veðréttinn, sem var Lánasjóður Vestur-Norðurlanda, upp á 35 milljónir króna. En húsið var slegið sjóðnum á 40 milljónir. Boð þetta kom frá manni sem heitir Guðmundur Birgisson og ég vissi lítil deili á á þessum tíma. Var raunar kunnugt um að hann var að bjóða fyrir hönd annars aðila en ekki hver það var. Sá aðili var athafnakon- an Sonja Zorilla sem nú er látin. Hún var frænka Guðmundar.“ Einar komst ekki að þessu fyrr en nýverið og segir þetta stór- merkileg tíðindi. „Allnokkru áður en uppboðið fór fram hafði ég séð ljósmyndir af málverkum sem voru í eigu Sonju Zorilla en mig langaði að opna Listaskálann með sýningu á myndum úr þessu safni. Af því varð ekki. Þetta er stórkostlegt safn sem Sonja kom sér upp á mörgum áratugum. Það mætti byggja 10– 15 listaskála fyrir sum verkanna svo menn geri sér grein fyrir verðmætunum. Þarna eru verk eftir marga af helstu myndlist- armönnum heims á síðustu öld.“ Einar segir að Sonja hafi haft hugmyndir um að varðveita safnið og sýna í Listaskálanum í Hveragerði. Þess vegna hafi hún boðið í húsið. „Ég er að segja frá þessu núna vegna þess að ég tel þetta mikið menningarsögulegt slys. Þarna höfðu Íslend- ingar tækifæri til að eignast alþjóðlegt safn listaverka. Allir þekkja Sonju Henie-safnið í Ósló og þótt það hafi orðið til með öðrum hætti hefði þetta safn getað þjónað sama tilgangi hér á landi. Ég hitti Sonju Zorilla einu sinni eða tvisvar. Þetta var bráðvel gefin kona og vel að sér í samtímalistum. Lærði mynd- list sjálf á yngri árum. Minningu hennar hefði verið þarna mikill sómi sýndur.“ Einari er ekki kunnugt um hvað verður um safn Sonju Zorilla en reiknar með að verkin verði boðin upp og ágóðinn renni í sjóð sem Sonja stofnaði til styrktar börnum. „Auðvitað er það gott málefni en hefðu menn ekki átt að nýta tækifærið til að halda þessu safni saman?“ Einar Hákonarson listmálari sýnir verk sín á Akureyri eftir meira en tuttugu ára hlé Mannlífið í allri sinni mynd Morgunblaðið/Kristinn Einar Hákonarson listmálari opnar sýningu í Ketilhúsinu á Ak- ureyri í dag og í galleríi í Aachen í Þýskalandi eftir tvær vikur. 47. STARFSÁR Kammermúsíkklúbbsins hefst annað kvöld. Fimm tónleikar verða í vetur í Bústaðakirkju. Annað kvöld leikur Eþos-kvartettinn Strengjakvartett nr. 2 eftir Jón Ásgeirsson, Strengjakvartett í c-moll K. 406 eftir Mozart og Píanókvintett í A-dúr op. 81 eftir Dvorák. Eþos-kvartettinn skipa Auður Hafsteins- dóttir, fiðla, Greta Guðnadóttir, fiðla, Guð- mundur Kristmundsson, víóla, og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló. Gestir hópsins eru Mona Sandström píanóleikari og Þórunn Ósk Marinósdóttir víóuleikari. Á öðrum tónleikum vetrarins, 19. október, leika Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dub- ik, fiðlur, Helga Þórarinsdóttir, víóla, og Sig- urgeir Agnarsson, selló, strengjakvartetta eftir Erik Mogensen, Bartók og Beethoven. Þriðju tónleikarnir verða 23. nóvember. Þá koma fram Einar Jóhannesson, klarín- etta, Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dub- ik, fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla, Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló, Richard Korn, bassi, Jósef Ognibene, horn, og Rúnar Vilbergsson, fagott. Á efnisskrá eru Kvintett fyrir klarínettu og strengi í A-dúr K. 581 eft- ir Mozart og Oktett í F-dúr D. 803 eftir Schu- bert. Á fjórðu tónleikunum, 25. janúar, leikur Camerarctica Strengjakvartett nr. 8 í c-moll op. 110 eftir Shostakovitsj og Píanótríó í a-moll op. 50 eftir Tsjajkovskíj. Á lokatónleikum starfsársins, 22. febrúar, leika Martial Nardeau, flauta, Greta Guðna- dóttir og Zbigniew Dubik, fiðlur, Guð- mundur Kristmundsson og Þórunn Ósk Marinósdóttir, víólur, Hrafnkell Orri Eg- ilsson og Sigurgeir Agnarsson, selló. Á efnis- skrá eru Kvintett fyrir flautu og strengi í A- dúr op. 51 nr. 3 eftir Kuhlau, Fúga nr. 8 úr Das Wohltemperierte Klavier eftir Bach, umskrifuð fyrir stengjatríó af Mozart og Sextett fyrir strengi í B-dúr op. 18 eftir Brahms. Tónleikarnir hefjast allir kl. 20. Kammermúsíkklúbburinn hefur sitt 47 starfsár í Bústaðakirkju Eþos ríður á vaðið Morgunblaðið/Jón Svavarsson Eþos-kvartettinn: Bryndís, Greta, Auður og Guðmundur. Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins fara eins og undanfarin ár fram í Bústaðakirkju. OPNUÐ verður sýning á verkum Guð- mundar Thoroddsen í sal SÍM, Hafnarstræti 16, á laugardag kl. 16.00–18.00 Guðmundur Thoroddsen myndlist- armaður lést árið 1996. Á sýningunni verða nokkur verk sem hann vann að síðustu árin sem hann lifði. Sýningin er haldin í minn- ingu Guðmundar í tilefni af fimmtugs- afmæli hans sem var á síðasta ári. Jafn- framt verður endurútgefin á markaðinn fyrsta hljómplata Diabolus In Musica á geisladisk, en Guðmundur var píanóleikari í þeirri hljómsveit og inniheldur platan m.a. tónverk hans. Hljómplatan kom út fyrst ár- ið 1976 og bar nafnið Hanastél á Jóns- messunótt. Með Guðmundi í hljómsveitinni voru; Aagot V. Óskarsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Jón Sigurpálsson, Jóna Dóra Óskarsdóttir og Páll Torfi Önundarson. Sýningin stendur til loka september. Guðmundar Thoroddsen minnst RÉTTINDASTOFA Eddu hefur gengið frá samningum um útgáfu á þremur íslenskum barnabókum í Taílandi og komu þær nýverið þar á markað. Þetta eru Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, Peð á plánetunni jörð eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur og Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Bækurnar komu út hjá Image Publishing í samstarfi við Dhamrongchaitaham Foundation. Eru bæk- urnar til sölu á almennum markaði en fleiri þúsundum gjafaeintaka hefur að auki verið dreift í taílenska skóla. Íslenskar barna- bækur í Taílandi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.