Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. JANÚAR 2004 13 unum: meðvitund og hugi.“ Fyrirbæratil- veran, er orð sem Einar Þorsteinn notar mikið. „Í minni vinnukenningu höfum við fyrirbæraheim andstæðnanna; – gott og vont, heitt og kalt, plús og mínus, en í þess- um fyrirbæraheimi andstæðnanna rýmast þrjár víddir okkar í einni.“ Við tölum gjarnan um líkama og sál, hug og hönd, andlega tilveru og veraldlega, – og teljum okkur þá vera að tala um okkur sjálf sem heild tveggja þátta. Því kemur á óvart að Einar Þorsteinn skuli segja að við lifum í þremur víddum en ekki tveimur. „Jú“, segir hann, „við gerum það.“ Holdið er augljós- lega ein þessara vídda; – líkamlega víddin, – sem við köllum stundum hulstur, eða jafnvel farartæki. Þetta er það sem við sjáum. En hulstur utan um hvað? Við tölum um hug, meðvitund, persónuleika, greindarvitund, þegar við tölum um það sem innra með okk- ur býr. Þar spila saman líkaminn sjálfur, og eitthvað sem við köllum tilfinningar eða kenndir. En erum við meira en þetta? Einar Þorsteinn kallar til sögunnar, auk sýnilegu líkamlegu víddarinnar tvær órýmisvíddir. Þegar víddirnar þrjár koma saman í einni manneskju kallar Einar Þorsteinn það fjöl- víddatilveru. „Í innsta kjarna fyrirbæra- heims andstæðnanna rýmast þessar þrjár Þ etta er bók sem hefur þann hæfileika að geta lesið sig sjálf fyrir þig; bók Einars Þor- steins, arkitekts og framúr- stefnu-vísindamanns, gefin út af honum sjálfum, á geisla- diski. Og titillinn, – einkar áhugaverður: Dauði þinn, mun breyta lífi þínu ... Bókin kemur út á ensku og íslensku, og bráðum á þýsku líka. Það er enska útgáfan sem les sig sjálf með þar til gerðu forriti, en enn er einhver bið á því að tölvan ráði við íslenskuna, en að því er unn- ið grimmt, vestur á fjörðum. Einar Þorsteinn bauð til blaðamannafund- ar á i8 um daginn, til að kynna bókina, og þar sátum við og spjölluðum um þessa heima og geima sem honum eru augljóslega afar hugleiknir. „Vísindin hneigjast til þess að hegða sér eins og trúarbrögð,“ segir Ein- ar Þorsteinn. Jú, nýr „sannleikur“ er algild- ur þar til annar betri fæst, þótt stundum virðist okkur þeir vera allt of fáir vísinda- mennirnir sem virðast hafa tækifæri til að helga sig gagnrýnni hugsun og leita nýrra sanninda til að útskýra margt skringilegt í hegðun okkar mannanna. Einar Þorsteinn nefnir stríðin. Öll viljum innst inni að friður ríki alls staðar, og að við getum lifað í sátt hvert við annað, en samt berumst við á banaspjótum, enn þann dag í dag, þótt við kunnum svo margt og vitum svo margt og getum svo margt; – við förum meira að segja bráðum til Mars. Við virðumst skelfi- lega ófullkomin að svo mörgu leyti. Hvar týndum við þræðinum, – hvar fórum við framúr sjálfum okkur? Vísindin eins og maurar í tré „Það má kannski líkja þessu við maura í tré. Mér finnst eins og vísindin hafi komist hálfa leið upp tré, eftir stórum bolnum, – en á einhverjum tímapunkti er eins og þau hafi sveigt af leið, og farið út á einhverja grein- ina, í stað þess að halda áfram upp eftir stofninum. Eftir því sem lengra er haldið út á greinarnar verða þær smærri og smærri og um leið viðkvæmari. Kannski þurfum við hreinlega að bakka, og finna aftur leiðina upp stofninn,“ segir Einar Þorsteinn. En um hvað er tölvubókin? Einar Þor- steinn segir í eins konar formála á baksíðu diskpésans: „Með þessari skýrslu er gerð al- varleg tilraun til þess að leggja undirstöðu undir nýjan skilning þess hver við í rauninni erum, á auðskildu máli. Ástæða þessara bakþanka er staða heimsmálanna, en hún kemur mönnum helst til að álykta sem svo, að eitthvað sé verulega rangt við það hvern- ig við sjáum sjálf okkur. [...] Fræðilegur grunnur umfjöllunarinnar hér er annars vegar möguleiki fjölvíddartilveru fyrir alla fyrirbæra-raunveruleika og á hinn veginn endurkynning á fyrirbæralausum greindar- kjarna, þ.e. á mannlegri sál, inn í mann- legan veruleika. Þannig kemur smátt og smátt í ljós víddarvíkkuð eðlisfræði, sem nýr viðmiðunarrammi okkar. Ein afleiðing þessa er sú að rýmisvídd okkar getur ekki verið grunnur tilveru okkar, heldur einungis ein af fleiri víddum sem við notum. Né held- ur eru orkuform þeirrar vel þekktu víddar grunnur sjáanlega alheimsins en öllu heldur annað „orkuform“ sem er blanda af hugtök- víddir okkar sem ein, – það erum við. Þar fyrir utan er sálin. Þá erum við komin að óhlutlægum veruleika okkar, sem tengist þessu sterka afli, sem sumir kalla guð, en ég kalla grunninn að öllu. Í þeirri skynjunartil- vist er allt eitt. Í gömlum fræðum er þetta kallað Nirvana. Þar er allt eitt.“ Kenningarnar mátaðar við hversdaginn Einar Þorsteinn segir að í vísindum og listum sé talað um að ekkert gagn megi vera af þeim. Þess vegna sé nytjalist til dæmis aðgreind frá annarri list, og margir vísindamenn sem leggi okkur til hávísinda- legar uppgötvanir telji sig þrátt fyrir það ekki hafa fundið neitt gagnlegt. „En þó get- ur orðið gagn af hvoru tveggju. Tökum þessa bók sem dæmi. Ef þú getur sam- samað raunvitund þína, eða raunsæja hugs- un, sem við höfum öll frá barnæsku þessum kenningum, þá um leið ertu kominn með lausn á mörgum málum, jafnvel þótt þú samþykkir kenningarnar ekki, en ert tilbúin til að taka þær til athugunar. Næstsíðasti kaflinn í bókinni fjallar einmitt um það. Þar tek ég fyrir, – samkvæmt þessum kenn- ingum, hvað það er sem gerist við morð, – eða sjálfsmorð; – í peningamálum og fleiri þáttum daglegs lífs, sem skipta okkur máli.“ Einar Þorsteinn vinnur að því að vinna hugmyndum sínum brautargengi í þýskum skólum, en þar býr hann. „Í Austur-Þýska- landi var fólk alið upp án trúarbragða. Það fólk sem bjó við trúarbragðaleysi í fjörutíu ár, og þeirra börn, hafa stofnað með sér samtök um að börnin læri ekki trúarbrögð í skóla, heldur læri það sem þeir kalla lífs- leikni, og er svolítið annað en sú lífsleikni sem kennd er hér og fer dýpra. Ég held að þessar upplýsingar nái betur til barna og unglinga, því þú þarft ekki að trúa neinu, bara að læra eðlisfræðina þína.“ Einar Þorsteinn segir Kóreumenn, Kín- verja og Japana tilbúnari en aðra til að tak- ast á við nýjar hugmyndir af þessum toga. „Þessar þjóðir hafa tekið inn á sig nýjar upplýsingar og ný trúarbrögð, þannig að þeim hefur verið bætt við það sem fyrir er. Þeir nota jafnvel mismunandi trúarbragðas- iði eftir því um hvers konar athöfn er að ræða. Sama var þegar vestræn vísindi bár- ust þangað; þá tóku þeir þau upp á þeim sviðum sem það hentaði, en ýttu ekki öðru út í staðinn, eins og gömlu læknisfræðinni.“ En nú hafa Íslendingar líka tækifæri til að kynna sér hugmyndir Einars Þorsteins um tilvist okkar og tilveru. Bókina má fá í galleríi i8 á Klapparstíg. Við erum þrjár víddir í fyrir- bæraheimi andstæðnanna Morgunblaðið/Þorkell Útlínur nýrrar og víðari eðlisfræði dregnar í samhengi við fjölvíddartilveru mannlegs lífs. RICHARD Wagner-fé- lagið á Íslandi mun á næstu vikum sýna óper- urnar fjórar úr Niflunga- hring Wagners af DVD- mynddiskum í Norræna húsinu. Fyrsta sýningin verður á morgun kl. 13 á Rínargullinu. Richard Wagner sótti söguefni sitt í Niflungahringnum að verulegu leyti til íslenskra fornbókmennta, einkum Eddukvæða og Snorra-Eddu. Rannsóknir Árna Björnsson- ar um tengsl Niflungahringsins og íslenskra bókmennta birtust árið 2000 í bókinni Wagner og Völsungar, sem út kom hjá Máli og menningu og hefur nú einnig verið gefin út í þýskri og enskri þýðingu. Sýndar verða upptökur af uppsetningu franska leikstjórans Patrice Chéreau, sem valinn var ásamt hljómsveitarstjóranum, Pierre Boulez, til að setja upp afmælissýn- inguna í Bayreuth árið 1976, á aldarafmæli hátíðarinnar. Upptökurnar voru gerðar árið 1980. Í helstu hlutverkum eru m.a. Donald McIntyre, Gwyneth Jones, Peter Hofman, Manfred Jung, Jeanine Altmeyer, Matti Salminen og Heinz Zednik. Sýningunni verður varpað á veggtjald og er með enskum skjátexta. Aðgangur ókeyp- is. Niflungahringurinn í heild Richard Wagner

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.