Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Blaðsíða 2
ur og skyldurækinn i öllum slnum störf- um. Margar hamingjustundir mun Björn hafa átt, er hann sinnti slnum áhugamál- um, sem lágu utan viö llfsstarfiö. Hann hafði yndi af tungumálum og bókmennt- um. Hann lék sér aö þvi aö yrkja bæöi I bundnu og óbundnu máli á Islensku og dönsku og var ritfær I besta máta. Hann las heimsbókmenntirnar á ensku og var mikill fagurfræöingur. Eftir aö hann lauk slnu skólanámi, hélt hann sleitulaust áfram aö fullnægja sinum fróöléiks- Ja-oska. Varö hann fjölmenntaöur og margfróöur. Björn var mjög hógvær og yfirlætislaus maður, og lét lltiö yfir kunnáttu sinni. En I góöum félagsskap komst hann ekki hjá þvi að miöla öörum af sinni miklu þekk- ingu. Nokkrar greinar hafa birst eftir hann I blöðum og tlmaritum, og má þar m.a. nefna frásagnir I timariti Ferðafé- lags Akureyrar, sem heitir Ferðir. A yngriárum haföi Björn mikinn áhuga fyr- ir feröamálum og kynnisferöum um okk- ar fagra ættarland. Kynning okkar Björns hófst er viö vor- um ungir námsmenn á hinum forna Hóla- staö. Viö uröum strax góöir vinir. Hann var glaöur og hugljúfur félagi. Nokkrum árum slöar áttum viö ánægjuleg sam- skipti er viö dvöldum báöir I Danmörku. Hann var þá sem fyrr hinn káti og hressi lagsbróöir. „Ort hvikar æö um unglingsdaga þá er oss létt I lund”. (Svb. Egilsson). Þegarég kom heim til islands, eftir nokk- urra ára útivist, hittumst viö á ný á Siglu- firöi. Var hann þá hinn bjartsýni og glaði nýstúdent sem stráði birtu I kringum sig eins og sólskinsdagur. Slðan áttum viö margar samveru- og ánægjustundir á heimili hans. Á vettvangi hins daglega llfs og I góðra vinahópi. A okkar vináttu sló aldrei neinum fölskva. Er vegir skiljast er gott aö minnast sllkra vina og þakklæti og söknuöur fylla hugann. Björn var gæfumaöur um sina lifs daga. Hann kvæntist þánn 9. mal 1942 eftirlif- andi eiginkonu sinni Þyrl Eydal tónlistar- kennara. Ungu hjónin byggðu sér glæsi- legtheimili á Gilsbakkavegi 7á Akureyri. Þar rlkti ástúö, gagnkvæm viröing, gest- risni og glaöværö. Þyrl og Björn eignuö- ust tvær dætur. Eldri dóttirin Ellnborg er gift og búsett I Svlþjóö. Maöur hennar er Lars-Erik Shilling verkfræðingur. Yngri dóttirin Þyrl Guöbjörg stúdent er í heima- húsum og starfar á skrifstofu K.E.A. Björn var heilsuhraustur þar til fyrir tveimur árum aö hann kenndi nokkurrar vanheilsu. Þá missti hann heyrn aö mestu, en fékk þó aftur nokkra bót á þeim sjúkdómi. Um slöustu áramót ágeröist sjúkdómur hans. t janúar var hann sjúklingur á Landspitalanum og hresstist nokkuö eftir þá dvöl. Var gleöi hans ein- læg aö fá aö koma aftur á sitt kæra heimili. Hann reyndi aö halda áfram störfum sinum, meöan kraftur entist en þrekiö var litiö og sjúkdómurinn ágeröist. Dvaldi hann þó á heimili sínu undir umsjá sinnar ágætu konu og dóttur sem spöruöu hvorki umhyggju né erfiöi til þess aö létta honum þrautirnar I þungum sjúkdómi. Þann 2. júnl var hann fluttur helsjúkur á Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri og þar lést hann 9. júli. Jaröarförin fór fram þann 16. júli, aö viöstöddu fjölmenni. Vlgslubiskup Norö- lendinga flutti hugnæma kveöjuræöu yfir vini slnum, og þar hljómuðu fagrir tónar héraössöngs Skagfiröinga, sem kveðja ættarbyggöarinnar. Góöur drengur er genginn allrar veraldar veg. Samferöa- mennirnir þakka góö kynni.Viö geymum góöar minningar og trúum þvl aö „Vort líf sem svo stutt og stopult er það stefni á æöri leiöir.” (E. Ben.) Ég og fjölskylda min vottum ástvinum og ættingjum Björns heitins Bessasonar okkar innilegustu samúö i sorg þeirra og söknuöi Ég og fjölskylda min vottum ástvinum og ættingjum Björns heitins Bessasonar okkar innilegustu samúö I sorg þeirra og söknuöi. Þ. Ragnar Jónasson Meö Gunnlaugi Karlssyni er genginn mætur maöur. Hann var fæddur aö Draflastööum í Fnjóskadal 15. aprll 1915 og andaöist 3. júli 1979, eftir þungbær veikindi. Foreldrar hans voru Karl Ágúst Sigurðsson og Jónaslna Dómhildur Jóhannsdóttir er þar bjuggu, og var hann næst yngstur 11 barna þeirra. Gunnlaugur er aöeins 6 ára gamall þegar sorgin knýr dyra aö Draflastööum. Þá andast móöir hans 35 ára gömul. Þaö varð heimilinu mikiö reiðarslag, og þá féll þaö I skaut eldri systranna, einkum Ingibjargar og Helgu, aö veita heimilinu forstööu. Gunn- laugur hændist mjög aö fööur slnum og mikill kærleikur var meö þeim feögum alla tiö síöan. Kynni okkar hófust fyrir röskum 20 árum er éghófstörfviösláturhús K.S.Þ. á Svalbarðseyri sem dýralæknir. Þaö var dag einn síöla sumars aö ég gekk á fund hans. Ha nn var dökk ur á brún og brá, þreklega vaxinn, vel meöalmaöur áhæö og haföi raunar suðrænan blæ yfir sér aö mér fannst. Handtakiö var þétt og hlýtt. Einhverra hluta vegna festist þessi fyrsti fundur okkar mér mjög í minni. Ungur fór hann I vegavinnu eins og þá var titt og viö þau störf vann hann hvert sumar allt til ársins 1954. Verklagni hans og útsjónarsemi ásamt miklu vinnuþreki leiddi til þess, aö óvenju ungum vaf honum falin verkstjórn, sem hann haföi á hendi i fjölda ára. 26 ára gamall varö hann fastur starfsmaöur hjá Kaupfélagi Svalbaröseyrar sem verk- stjóri, og haföi jafnframt á hendi gæöa- mat á garðávöxtum. Þá var nýráöinn kaupfélagsstjóri Finnur Kristjánsson frændi hans. Samvinna þeirra varö meö ágætum og brátt tók kaupfélagiö mikinn f jörkipp, og mikil uppbygging hófst. Allt frá 17 ára aldri haföi Gunnlaugur íslendingapæim Peir sem skrifa minningar- eða afmælisgreinar í íslendingaþætti, eru eindregið hvattir til þess að skila vélrituðum handritum, ef mögulegt er i----------------------------------

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.