NT - 21.07.1984, Blaðsíða 31

NT - 21.07.1984, Blaðsíða 31
Norðurlandamót drengjalandsliða fyrir norðan ■ Á mánudaginn hefst á Ak- ureyri, Húsavík og Sauðár- króki Norðurlandamót drengja- landsliða í knattspyrnu. Mótið verður sett á aðalleikvangi Ak- ureyrarbæjar kl. 16:30 og á eftjr verður fyrsti leikurinn. Þá eigast íslendingar og Svíar við og hefst leikurinn kl. 18:15. Síðar um kvöldið verða tveir leikir, á KA-velli keppa Finnar og Færeyingar og á Þórs-velli eigast Danir og Norðmenn við. Danir eru núverandi Norður- landameistarar. Er allt knatt- spyrnuáhugafólk hvatt til að mæta á völlinn og fylgjast með. Landslið íslands hefur þegar verið valið og skipta það eftir- taldir piltar: Eiríkur porvarðarson UBK Svcinbjörn Allansson í A Alexander Högnason - IA BjarkiJóhannesson ÍA Haraldur Hinriksson ÍA Örn Gunnarsson ÍA Þorsleinn Guðjónsson KR Heimir Guðjónsson KR Rúnar Kristinsson KR Steinar Ingimundarson KR Arnljótur Davíðsson Fram Páll Guðmundsson Sclfossi Yngvi R. Gunnarsson Þrótti Lúðvík Bragason Víkingi Björn Einarsson Víkingi EinarTómasson Val Þjálfari er Lárus Loftsson. Eins og sjá má eru flestir piltana frá Akranesi og allir koma strákarnir úr 1. deildar- liðum nema leikmaðurinn stórsnjalli, Páll Guðmundsson, sem leikur á Selfossi og er nú þegar fastamaður í aðalliði Selfyssinga sem leikur í 3. deild. Derwall til Tyrk- lands ■ Jupp Derwall, fyrrum þjálfari V-Þýska landsliðs- ins í knattspyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari hjá tyrkneska félaginu Galatas- aray. Derwall skrifaði und- ir tveggja ára samning og mun fá sem svarar um 700 þúsund króna auk bónusa, bíls og húss. Þá bauðst honum einnig að gerast þjálfari tyrkneska lands- liðsins en að sögn Derwalls þá eru þær umræður á byrjunarstigi. Honum hafði áður boðist starf hjá Barcelona á Spáni en afþakkaði það. ■ Á fimmtudagskvöldið héldu átta fatlaðir íþróttamenn til Englands þar sem þeir munu taka þátt í síðari hluta Ólympíuleika fatlaðra í Stoke-Mandeville. Þeir sem fara eru Elsa Stefánsdóttir, Guðný Guðnadóttir, Viðar Guðnason, Andrés Viðarsson, Baldur Guðnason og Reynir Kristófersson. Á leikunum keppa eingöngu mænuskaddaðir sem bundnir eru við hjólastóia. Keppendur verða um 1200 frá um 50 löndum. I Stoke-Mandeville eru allar aðstæður hinar bestu. NT-mynd Ari Slæmt ástand ■ Slæmt ástand valla og lítið framboð á knattspyrnuskóm og búningum er að byrja að fæla krakka frá því að byrja að æfa knattspyrnu í Sovétríkjunum að sögn málgagns kommúnista- flokksins. Blaðið segir að ekki verði mikil framför í knatt- spyrnumálum og að sovétríkin muni ekki eignast mikið af heimsklassa leikmönnum verði ekki bætt úr núverandi ástandi. í Moskvu er ástand þeirra 400 knattspyrnuvalla senr í borginni eru, orðið mjög slæmt. Þeir eru harðir sent malbik og ójafnir. Þá er skortur á góðum knattspyrnuskóm og eru krakkarnir oftast nteð sár á fótum eftir hvern leik. Annar galli á aðstæðum í Moskvu er sá að félög eiga erfitt að útvega yngri krökkum far á leiki, sem þau eiga að spila annars staðar í borginni, og þurfa þau því oft að fara af stað eldsnemma með strætisvögnum til að komast á leiki. Fer blaðið hörðum orðum um hve lélegt ástandið í þessum málum sé og segir að úrbóta sé þörf hið bráðasta ef ekki eigi að fara illa í framtíðinni hjá so- véskum knattspyrnumönnum. Sovétmenn halda stórmót eftir 01 ■ Sovétmenn munu Italda heilmikið íþróttamót í Moskvu strax eftir Ólympíuleikana í Los Angeles. Mótið er aðallega ætlað þeim þjóðum sem skrópa munu á Ólympíuleikunum, en það er þó ekki algilt. Sovétmenn hafa boðið Japönum að vera með að því er Kyodo-fréttastofan í Tokíó sagði í vikunni. Sovétmenn buðu Japönum að vera með í sex greinumí Moskvu, en Japanir hafa enn ekki svarað þessu boði. Japanir þurfa að borga ferðir sínar en Sovétmenn sjá um uppihaldið. Japanir halda að þeir íþróttamenn þeirra sem keppa í Los Angeles muni ekki geta farið. Verkefni fyrir kvennalandsliðið ■ Stjórn KSÍ mun reyna að útvega íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu landsleik í Skotlandi í haust, og koma síðan liðinu í næsta Norðurlandamót í knattspyrnu þar sem liðið mun síðan taka þátt áfram, að því er Ellert B. Schram formaður Knattspyrnusambands íslands sagði í samtali við NT í gær. Þá munu þau Sigurður Hannesson og Svanfríður Guðjónsdóttir, sem sögðu sig úr kvennanefnd KSÍ, eftir að ákvörðun var tekin um að kvennalandsliðið muni ekki taka þátt í UEFA-keppni kvennalandsliða í knattspyrnu, taka sæti í nefndinni aftur. „Stjórn KSÍ tók þá ákvörðun fyrr í sumar að tilkynna ekki þátttöku í UEFÁ-keppni kvennalandsliða í knattspyrnu. Út af því urðu bæði upphlaup og leiðindi, og þau sögðu sig úr kvennanefnd KSÍ, Svanfríður Guðjónsdóttir og Sigurður Hannesson. Eftir að ég kom heim erlendis frá var málið tekið upp aftur og ég tók að mér að tala við þau, með það veganesti að stjórn KSÍ ætlaði síður en svo að hætta að útvega verkefni fyrir kvennalandsliðið í knattspyrnu, þó að af öðrum ástæðum væri ekki talið stætt á því að fara í UEFA-keppni kvennalandsliða. Það er stefnt að því að reyna að útvega leik í Skotlandi í haust, og koma íslandi inní Norðurlandakeppnina á næsta ári og næstu árum,“ sagði Ellert B. Schram. Ellert sagði að stjdrn Knattspyrnusambandsins væri ljóst að mikið væri að gerast í kvennaknattspyrnunni, mikil gróska, og í mörg horn væri þar að líta. „Niðurstaðan er sem sagt sú að þau Sigurður og Svanfríður hafa bæði dregið úrsagnir sínar til baka, og fullar sættir hafa tekist í málinu,“ sagði Ellert. „Þetta er nokkur sárabót, og við komum inn í nefndina aftur þar sem greinilegt er að um verkefni verður að ræða. Hins vegar verð ég aldrei sáttur við þá ákvörðun að taka ekki þátt í Evrópukeppninni, og hef megnustu andúð á þeirri ákvörðun sem slíkri,“ sagði Sigurður Hannesson í samtali við' NT eftir að niðurstaða stjórnar KSÍ varð ljós. Júkki til Þórs Ve. FráSigfúsi Guðmundssyni í Eyjum. ■ 1. deildar lið Þórs Vestmannaeyjum í handknattleik hefur ráðið margreyndan landsliðsmann frá Júgóslavíu, Petar Eror að nafni, sem þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Petar þessi, er reyndur landsliðsmaður og hefur leikið 264 leiki fyrir heimaland sitt. Þá þjálfaði hann Partisan Belgrade sem er eitt besta lið í Júgóslavíu. Auk þess hefur hann þjálfað drengjalandslið Júgóslavíu. Hann er því margreyndur leikmaður og þjálfari og því feitur biti fyrir Þórara sem ætla sér stóra hluti í 1. deild á næsta ári. Petar mun auk þjálfunar í 1. deildarliðinu þjálfa 2. flokk og hafa yfirumsjón með öllum yngri flokkum félgsins. Jóhann Ingi Gunnarsson var Þórurum innan handar í samningunum við Petar. Samningurinn er til eins árs. Núfæröu á myndböndum ánæstuOlú stöð Við höldum áfram þar sem frá var horfið í sjónvarpinu í vetur sem leið. imú eru fjórir þættir komnir í dreifingu, sá fimmti kemur í byrjun ágúst og síðan kemur nýr þáttur í hverri viku. Fjölmargir hafa beðið eftir framhaldi sögunnar af olíufjölskyldunni — það er mörgum spurningum ósvarað. Hvernig reiðir fjölskyldunni af? — Sundrast hún? Eða stenst hún álagið? SVO MIKIÐ ER VÍST AÐ STORMASAMT ER FRAMHALDIÐ. EIIMKAUMBOÐ: BORGFILM DREIFINC: STÖÐVARIMAR UMALLTLAND

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.