NT - 08.02.1985, Blaðsíða 19

NT - 08.02.1985, Blaðsíða 19
 Föstudagur 8. febrúar 1985 19 Utlönd fí,rorm Greiðir hann tekjuskatt? ■ Ríkasti hundur á Englandi, William ai Arethyn, er sagður eiga yflr 100.000 bresk pund (rúml. 4,5 milljónir ísj. kr.). VVilliam er gamall enskur fjárhundur sem hefur auðgast á verðbréfabraski í kauphöllinni. Kauphallarbraskarinn, Ro- bert Beckmann, hefur aðstoðað William við viðskiptin í ellefu ár með einstaklega góðum árangri. Bresk skattayfirvöld eru nú að kanna hvort hundur þurfi að greiða tekju- og eignaskatt. Símamyrid-PGLFOTO Breskt tölvufyr- irtæki í kröggum London-Reuter ■ Verðbréf í öðru stærsta smátölvufyrirtæki á Bretlandi, Acorn, féllu mikið í verði í þessari viku þegar fréttist að tap væri á rekstri fyrirtækisins að undanförnu. Acorn framleiðir meðal ann- ars hinar vinsælu BBC-heimilis- tölvur en um 70% allra tölva í breskum skólum eru af þessari tegund. Sala á nýrri og ódýrari smátölvu hefur hins vegar ekki gengið eins vel. Á síðasta ári var hagnaður Acorn-fyrirtækisins um 11 mill- jónir punda (um 500 milljónir ísl.kr.) Verðstríð á milli Acorn og Sinclair á Bretlandi hefur leitt til mikillar verðlækkunar á tölvum þessara fyrirtækja sem aftur hefur átt sinn þátt í því að Acorn er nú rekið með tapi. Japan: 11,1% f ramleiðslu aukning í iðnaði ■ Iðnaðarframleiðsla Japana jókst um ll,l prósent á síðasta ári sem er mesta aukning frá því árið 1973 þegar iðnaðarfram- leiðsla þeirra jókst um 17,5 prósent. Ein helsta ástæðan fyrir þess- ari miklu aukningu iðnaðar- framleiðslunnar er sögð vera mikill útflutningur til Banda- ríkjanna. Til samanburðar má nefna að iðnaðarframleiðsla í Bandaríkjunum jókst um sjö prósent á síðasta ári og í ríkjum Efnahagsbandalags Evrópu jókst framleiðslan um aðeins 2,4 prósent. Nicaragua: Efnahagskreppa og verðhækkanir °rsök unrsvif 01 u//ða Managua-Reuter ■ Stjórnvöld í Nicar- agua tilkynntu í gær verðhækkanir á mat- vælum um allt að 110%. Nicaragua- menn glíma nú við einhverja mestu efna- hagskreppu frá því Sandinistar tóku völdin. Viðskiptaráðuneytið til- kynnti að kjöt og mjólk myndi hækka’ í verði um 100% egg um 110% og kjúklingar uni 50%. Á undanförnum dögum hafa staðið yfir háværar þingdeilur vegna frumvarps um hækkun launa um 47%-60%, þ.e. mun lægri kauphækkanir en verð- hækkanir viðskiptaráðuneytis- ■ Forseti Nicaragua, Daniel Ortega. Skemmdarverk og hernaður skæruliða, studdra at' Bandaríkjunum, eru meginorsakir efnahags- vandans í Nicaragua. Nicaraguanienn vilja taka upp friðarviðræður að nýju við Bandaríkjamenn. Kólombía: Blaðaf ulltrúi forsetans kókaínsmyglari? ■ Blaðafulltrúi forseta- embættisins í Kólombíu hefur verið handtekinn vegna gruns um aðild hans að kókaínsmygli til Spánar með diplómatapósti. Blaðafulltrúinn. Rom- an Medina, var handtek- inn fyrir tveimur dögum eftir að 2,7 kíló af kókaíni fundust í innsigluðum kössum sem voru sendir til kólombíska sendiráðs- ins í Madrid í desember síðastliðnum. Diplómatar í Managua segja efnahagskreppuna stafa af auknum kostnaði vegna barátt- unnar við skæruliða sem njóta stuðnings Bandaríkjamanna. Meiri ógnun frá herjum ná- grannalandanna hefur einnig kallað á aukin umsvif hersins. í fjárlögum fyrir 1985 er gert ráð fyrir að 40% útgjalda fari til hersins. Þessi miklu útgjöld skerða verulega þróunarmögu- leika efnahagslífsins en auk þess hafa gjaldeyristekjur lands- manna minnkað vegna skemmd- arverka skæruliða á kaffi- og kakóframleiðslu Nicaragua- manna. í vikunni var varaforseti Nic- aragua, Sergio Ramirez, í London á fundum með breskum ráðamönnum. Hann fór fram á að Bretar þrýstu á Bándaríkja- mcnn að hefja friðarviðræður um Mið-Ameríku. Howc, utanríkisráðherra, hefur ckkcrt látið uppi um við- ræður lians og Ramirez. Tals- menn utanríkisráðuneytisins hafa sagt að Bretar styðji tillög- ur Contadora-ríkjanna. Conta- dora-ríkin eru fjögur ríki í róm- önsku Ameríku scm sctt hafa fram friðartillögursem m.a. fela í sér að allir erlendir herir hverfi frá Mið-Ameríku. Ramirez sagði á blaðamanna- fundi að Bandaríkjamenn hafi rofið friðarviðræður viö Nicar- aguamcnn og liafi hundsaö frúmkvæði Contadora-ríkj- Kína: Hætt við lífstíðar- ráðningu forstjóra ■ Fostjórar í kínversk- um ríkisfyrirtækjum eru ekki lengur ráðnir til lífs- tíðar heldur eru þeir ráðn- ir til fjögurra ára í senn. Þessar nýju reglur um ráðningu forstjóra og ann- arra yfirmanna ríkisfyrir- tækja gengu í gildi 1. janú- arsíðastliðinn. Samkvæmt þeim geta forstjórar feng- ið endurráðningu í annað ráðningatímabil standi þeirsig vel ístarfisínu. En þeir geta þó aldrei haldið stöðu sinni Iengur en þrjú ráðningatímabil eða í 12 ár samfleytt. BLAÐBERA VANTAR Grafarvoginn, Lerkihlíð, Beykihlíð, Fiskakvisl og Granda. EINNIG VANTAR BLAÐBERA A BIÐLISTA Fljót og góð þjonusta. Hrísmýri 2A Pósthólf 206-802 Selfossi Sími 99-2040 Síðumúli 15. Sími 686300

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.