NT - 14.04.1985, Blaðsíða 18

NT - 14.04.1985, Blaðsíða 18
Sunnudagur 14. apríl 1985 18 Sagt frá ótrú- legum hörmungum íbúanna í Leningrad vetur- inn 1941-1942 Birgdabíll kemur til borgarinnar eftir hættulega og erfiða ferð vfir Ladogavatn. Teikningin er gerð meðan á umsátrinu stóö. ■ Þann 27. janúar 1944 klukkan átta um kvöldið hljómuðu 24 skot úr 324 byssum í Leningrad. Þessi skothríð var í tilefni af því að aflétt hafði verið 900 daga umsátri um borgina. En þessi viðburður markaði ekki aðeins tímamót á austurvígstöðvunum, heldur vakti hann vonir í brjóstum fólks í stríðshrjáðum löndum alls staðar í Evrópu, t.d. skrifaði breska blaðið „Star“ við þetta tækifæri: „Allar þær þjóðir sem eru frjálsar og þær þjóðir sem eru undir oki fasista skilja hversu mikilvægur sigurinn yfir Þjóðverjum við Leningrad var. Bardaginn við Leningrad vakti ótta hjá Þjóðverjum. Þeir skynjuðu þá að þeir ríktu aðeins um stundarsakir í París, Brussel, Amsterdam, Yarsjá og Osló.......“ UMSÁTRIÐ New York Times sagði: „Það er varla hægt í sögunni að finna slíkt úthald eins og það sem Leningradbúaí sýndu á þessu langa tímabili. Dáð þeirra verður skráð í annála sögunnar sem hetjusaga....“ Innrásin Pað var 22. júní 1941 að Þjóðverjar hófu innrás sín í Sovétríkin. Sókn herja þeirra gekk svo vel í byrjun að Hitlcr áléit að scnn mætti draga úr hergagnaiðnaði og einbeita kröftunum að flota og flugher, svo reka mætti smiðshöggið á stríðið gegn Bretuin. í sept- emberlok sagði hann herráð- inu að búast til að leysa upp fjörutíu fótgönguliðsdeildir. svo hægt yröi að auka mann- skap við iðnaðarframleiðsl- una. Pýski foringinn sá ekki betur en tvær stærstu borgir Rússa, Moskva og Leningrad, væru að falla. Síðla í september gaf hann út ákveðnar skipanir: „Þótt Moskva og Leningrad bjóði uppgjöf, þá skal ekki að því gengið." En hvað átti að verða um þessargömlu borgir? Það var útskýrt fyrir herfor- ingjum þann 29. september: „Foringinn hefur ákveðið aö St. Pétursborg (Leningrad) verði þurrkuö út af yfirborði jarðar. Þegar Sovét Rússland hefur verið lagt að velli er engin þörf á að borgin sé til framar.... Ætlunin er að um- lykja borgina og útmá hana með aðstoð stórskotaliðs og loftárása. Beiðnum um að borgin verði hertckin ber að synja, því oss er enginn akkur í því að takast á hendur að sjá íbúunt þessarar stóruborgar fyrir nauðsynjum. Þetta er stríð unt það hver eftir lifir...." Eftir að Orel, sem er borg rétt sunnan við Moskvu, var fallin. sendir Hitler blaðafull- trúa sinn frá vígstöðvunum til Berlínar og þar sagði hann blaðamönnum hvaðanæva úr heiminum að síðustu heillegu herir Sovétríkjanna væru búnir að vera. Búiö væri að um- kringja lið Timoshenko við Moskvu. en dreifa liði Búden- nýs. Loks væri lið Vorishilovs umkringt hjá Leningrad. Umkringd borg Leningrad og landræman milli ltafs og Ladogavatnsins voru nú einangruð á alla vegu. sums staðar af óvinaher, en annars staðar af legi. Frá 8. september voru engar út- gönguleiðir frá borginni nema í lofti eða yfir vatnið. Mikill viðbúnaður setti svip sinn á borgina. enda höfðu borgarbúar undirbúið harðsnú- ið viðnám í tvo mánuði. Þar sem flestir vopnfærir karlar höföu verið kvaddir í herinn kom það í hlut kvenna að reisa virki, grafa skriðdrekagildrur og fella stór tré á ökuleiðir inn í borgina. í ágúst var búið að koma upp loftvarnarbyrgjum handa 918 þúsund manns og grafnar skortgrafir handa 672 þúsundum. Sem nærri má geta fór margt úrskeiðis þegar öllu átti að bjarga á síðustu stundu og ekki gekk sá hluti vígbúnaðar- ins best sem fara varð skrif- stofuleiðina. í eitt skiptið tafð- ist framleiðsla á bensín- sprengjum, vegna þess að verksntiðjan sern þær bjó til þurfti að bíða eftir leyfi frá Moskvu til þess að mega skipta uni gerð á flöskum. Ekki bitn- aði ringulreiðin minnst á börn- um sem send voru frá Lenin- grad til borga í suðvestri. Þar voru þau einmitt komin í sókn- arleið Þjóðverja og var gripið til þess ráðs að senda þau rakleitt til Leningrad á ný. Oft töfðust lestirnar döguni saman á hliðarsporum og höfðu for- eldrar hinar mestu áhyggjur af hvar börnin mundu vera niður- komin. Margar hviksögur voru á ferli. Sovéski herinn hafði fundiö gashylki í herfangi frá þýska hernum og óttuðust menn að þessum óhugnanlegu vopnum ætti að beita á Lenin- gradbúa. Tókst að útvega gas- grímur handa þorra íbúanna. Ráðamenn óttuðust líka ákaf- lega að upp yrði komið „fimmtu herdeild" innan borg- arinnar og var ekki undarlegt að menn þóttust sjá flugumenn í hverju horni. Sumir þóttust sjá ljósmerki er þessir útsend- arar skutu upp til þess að leiðbeina flugvélum Þjóð- verja, en þetta voru raunar loftvarnarskot Rússa sjálfra.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.