NT - 15.10.1985, Blaðsíða 15

NT - 15.10.1985, Blaðsíða 15
Nú sjást þau í fyrsta skipti saman á hvíta tjaldinu Jack Nicholson og Anjelica Huston undir stjórn Johns Huston \ Heiður Prizzis ■ Eftir margra ára samsafn af misheppnuðum kvikmynd- um hefur leikstjóranum John Huston tekist að sanna enn einu sinni, að þó að honum séu mislagðar hendur, eru það þó fáir sem standast honum snún- ing þegar honum tekst best upp- Það er kvikmyndin „Prizzi’s Honor” (Heiður Prizzis), sem hefur sannað það enn einu sinni að John Huston, sem nú er orðinn 78 ára gamall, getur enn gert myndir á borð við Afnkudrottninguna og Möltu- fálkann, sem hann á heiðurinn af. Heiður Prizzis með þeim Jack Nocholson og Anjelica ■ Jack Nicholson var áður fyrr mikið upp á kvenhöndina og voru margar fagrar og þekktar konur bendlaðar við hann. Þ.á m. má nefna (t.f.v.) Diane Keaton, Faye Duna- way, Karen Black, Jessica Lange og Candice Bergen, auk þeirra Margaret Trudeau og Karólínu Mónakóprinsessu (í efri röð). Huston, dóttur leikstjórans, hefur að undanförnu farið sig- urgöngu í bandarískum kvik- myndahúsum og nú eru hafnar sýningar á henni hér á landi. Það hefur áreiðanlega ekki skaðað myndina, að þessi „þrí- hyrningur", John, Jack og Anjelica á sér langa og sant- ofna sögu. Anjelica var að vísu ekki nema 7 ára gömul, þegar foreldrar hennar skildu, en hún hefur alltaf séð pabba sinn í hálfgerðum dýrðarljóma og átt við hann samstarf fyrr. Og samkomulag þeirra Johns og Jacks hefur verið með ágætum þau 12 ár, senr náið samband .lacks og Anjelicu hefur staðið. Virðing þeirra er gagn- kvæm og John sér enga ástæðu til að setja það fyrir sig að þau Jack og Anjelica hafi enn ekki séð ásætæðu til eða fundið sér tíma til að fá opinbera blessun á samband sitt. „Það er sjaldgæft að sjá tvo einstaklinga virða hvor annan eins mikið og þau gera. Þau gera það bæði í einkalífi og eins kemur það fram í kvik- myndinni. Þau erú nú þegar búin að þola saman sætt og súrt í heil 12 ár. Það er lengri tími en nokkurt þessara fimm hjónabanda sem ég var í entist!” segir John Huston. í fáum orðum sagt er sögu- þráðurinn í Heiður Prizzis á þá leið að Mafíumaður nokkur (Jack Nicholson), sem vílar ekki fyrir sér að sjá sér far- borða með manndrápum og öðrum skuggaverkum, gengur að eiga fagra konu, sem stund- ar sömu atvinnugrein í lausa- mennsku (Kathleen Turner). Þau komast fljótlega að því að meðal samningsbundinna verkefna þeirra er að sjá um að hjónabandið leysist upp - á ítalska vísu! Anjelica fer hins vegar með hlutverk Mafíu- prinsessu sem leggur ofurást á Jack, en hefur ekki erindi sem erfiði í viðureigninni við fyrr- greint atvinnukvendi. Þau Anjelica Huston og Jack Nichoíson þykja líkleg til að verða tilnefnd til Óskars- verðlauna fyrir leik sinn í Heiður Prizzis. Þriðjudagur 15. október 1985 15 flokksstarf Akranes Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna á Akranesi verður haldinn miðvikudaginn 16. okt. n.k. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu, Sunnubraut 21, Akranesi. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga 1986. 3. Önnur mál Stjórnin Konur Árnessýslu Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu verður haldinn að Flúðum fimmtudaginn 17. október og hefst hann kl. 21.00. Framsöguerindi: Drífa Sigfúsdóttir, ræðir um framboðsmál. Kosnar verða konur á kjördæmisþing. Nýir félagar velkomnir. Mætum allar eldhressar. Stjórnin. Seltjarnarnes Aðalfundur framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn í sal tónlistarskólans fimmtudaginn 17. okt. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Bæjarmál. Félagar fjölmennið, nýir félagar velkomnir. Stjórnin Framsóknarfélag Miðneshrepps Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 17. október kl. 8.30 í Verkalýðshúsinu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþingið 19. október 3. Sveitastjórnarmál 4. Önnur mál. Stjórnin. Fulltrúaráðið í Kópavogi Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Kópavogi verður haldinn fimmtudaginn 17. okt. kl. 20.30 í Hamraborg 5. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Kjördæmisþing á Reykjanesi Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi verður haldið í Garðaholti laugardaginn 19. okt. Dagskrá auglýst síðar. Stjórnin. Húnvetningar - miðstjórnargestir FUF A-Hún. heldur upp á 45 ára afmæli sitt laugardaginn 2. nóvember kl. 21 í Félagsheimilinu Blönduósi, dagskrá: 1. Kaffiveitingar 2. Ávörp, Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólfsson formaður SUF. 3. Jóhann Már Jóhannsson syngur við undirleik Sigurðar Daníelssonar 4. Óvæntar uppákomur o.fl. Veislustjóri verður Björn Magnússon, bóndi Hólabakka, hljómsveitin Rót frá Sauðárkróki leikur fyrir dansi. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Stjórn FUF A-Hún. Gjaldkeri Gjaíakera vantar nú þegar eða í síðasta lagi 15. nóvember. Æskilegt er að viðkomandi hafi verslunarmenntun og/eða reynslu í skrif- stofustörfum. Allar nánari upplýsingar um starfið gefur aðalgjaldkeri eða kaupfélags- stjóri. Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.