Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 40
© DARGAUD
Bubbi og Billi
Grettir
Grettir
Smáfólk
GEISP!
ROP!
ÞÚ HEFUR SLÆM ÁHRIF Á
MEINDÝRIN
HA!
HENTIRÐU TYGGJÓINU
ÞÍNU GRETTIR? NEI
ÉG ER AÐ GEYMA ÞAÐ Í SAMLOKUNNI
ÞINNI ÞANGAÐ TIL EFTIR MAT
GOTT HJÁ ÞÉR! ÞAÐ ÞURFA ALLIR
HRÓS VIÐ OG VIÐ
PABBI, ER ÞAÐ EKKI RÉTT AÐ ERFÐABREYTT
GRÆNMETI GETI VERIÐ HÆTTULEGT?
JÚ, FRÆÐILEGA SÉÐ ÞÁ
GETUR ÞAÐ... EN...
ÉG HELD AÐ VIÐ HEFÐUM EKKI ÁTT AÐ GEFA
KARÓLÍNU ALLT ÞETTA BREYTTA SALAT
AF HVERJU
EKKI?
ER HÚN VEIK?
KOMDU
BARA AÐ
SJÁ!
AAAAA!!
KARÓLÍNA!
ÓTRÚLEGT ER
ÞAÐ EKKI?
HEYRÐU BUBBI, ERTU ENNÞÁ AÐ
NOTA GALAPAGOS-SKJALDBÖKUNA?
VIÐ ÞURFUM HANA Í ATRIÐIÐ
OKKAR
KOMDU
ESMERALDA!
VIÐ
SJÁUMST
BUBBI!
SEINNA...
FARIÐ ÞRJÁ HRINGI Í
VIÐBÓT Í KRING UM
HVERFIÐ!
ERTU EKKI ALLT OF STRANGUR?
ÉG SEM VILDI BARA BÆTA
MATARÆÐIÐ MITT
Dagbók
Í dag er laugardagur 31. júlí, 213. dagur ársins 2004
Víkverji getur stund-um verið óþol-
inmóður. Þessa dag-
ana hefur reynt
sérlega mikið á þol-
inmæði Víkverja við
vinnu. Ástæðan er sú
að hálf þjóðin virðist
vera í sumarfríi. Ekki
það að Víkverji hafi
neitt á móti sum-
arfríum, en þegar Vík-
verji þarf að ná í fólk
vegna fréttaskrifa er
afar þreytandi að fá sí-
fellt þau svör að þessi
og hinn sé í fríi.
x x x
Viðmót gagnvart blaðamönnum erafar misjafnt. Víkverji finnur
stundum fyrir því að í stað þess að
vera fúst til að veita upplýsingar þyk-
ir starfsfólki ýmissa stofnana það
vera truflun að fá símtal frá blaða-
manni. Þetta þykir Víkverja baga-
legt, sérstaklega þegar um er að
ræða stofnanir ríkisins, sem skatt-
borgarar standa undir rekstri á.
Í barnaskap sínum hélt Víkverji að
flestir væru farnir að átta sig á hlut-
verki fjölmiðla í samfélaginu. Hlut-
verki þeirra sem sagnaritara samtím-
ans, sem aðhaldstækis við stjórnvöld,
upplýsingagjafa fyrir almenning
o.s.frv. Víkverji er far-
inn að efast um að allir
hafi kveikt á þessu.
Meira að segja ráðu-
neyti, sem þó ættu að
hafa mikla reynslu af
því að taka við fyr-
irspurnum fjölmiðla,
eru erfið viðfangs.
Þannig er t.d. öllum
blaðamönnum sem
hringja í dóms-
málaráðuneytið gert að
ræða fyrst við ritara
ráðherra sem ber er-
indið undir ráðherra,
áður en viðkomandi
getur fengið að ræða
við starfsmann sem getur svarað fyr-
irspurn, hversu einföld og ómerkileg
sem hún kann að vera. Raunar lenti
Víkverji í því um daginn að fá ekki að
tala við starfsmann, heldur var hon-
um gert að senda póst og bíða svo
þolinmóður eftir svari. Það skal tekið
fram að erindinu var svarað fljótt og
vel. En ástæða þess að Víkverji fékk
ekki að tala strax við starfsmanninn
var ekki sú að hann væri í fríi, heldur
sú að hann gæti ekki rætt við Vík-
verja fyrr en erindið hefði verið borið
undir ráðherra. Víkverja þykir slík
miðstýring upplýsinga ekki gefa til-
efni til að ætla að mikill skilningur sé
hjá ráðuneytinu á hlutverki fjölmiðla.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Flutningar| Nýlistasafnið stendur í flutningum um þessar mundir og liggur
skilti þess nú fyrir framan ný húsakynni safnsins að Laugavegi 26, þar sem
unnið er hörðum höndum við að innrétta sýningarrýmið. Safnið mun opna á
nýja staðnum þann 14. ágúst næstkomandi, með sýningu sem heitir
ALDREI –NIE – NEVER en þar sýna saman íslenskir og þýskir listamenn
undir listrænni stjórn Hlyns Hallssonar myndlistamanns.
Á menningarnótt þann 22. ágúst stendur síðan til að opna langþráða sýn-
ingu á verkum úr eigu safnsins, en þar kennir eins og flestir vita margra og
mjög forvitnilegra grasa.
Morgunblaðið/Eggert
Nýlistasafnið fært um set
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda
í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef
sagt yður. (Jh. 14, 26.)