Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 55 DAGBÓK Sumir hagnast svona NÝLEGA þurfti ég á þjónustu að halda í einni af verslunum BYKO. Hún fólst í því að láta saga fyrir mig efni sem ég hafði keypt þar. Um leið og ég greiddi fyrir efnið greiddi ég fyrir vinnuna við sögunina og spurði ég sölumanninn hversu langan tíma hann ætlaði að láta mig greiða fyrir þessa sögun. 20 mín. var svarið og þótti mér vel í gefið, hann jánkaði án þess svo mikið sem að velta því fyrir sér hvort hér væri ekki helst til drjúgur tími reiknaður. Fyrir 20 mín- útur átti ég að greiða krónur 2.700 og sem sæmilega vanur maður í trésmíði setti ég skeiðklukku símans í gang um leið og tækin voru ræst. Þegar slökkt var að nýju og verkinu var lok- ið taldi síminn 6 mín. og 58 sekúndur. Fór ég til baka og sýndi fram á þessi mistök. Mismunurinn var end- urgreiddur en ekki svo mikið sem minnsta afsökun kom, sem mér þótti þó tilefni til, enda búinn að gera at- hugasemdir áður og þóttist vita betur en þessi „vani“ sölumaður. Smá yfirsjón getur verið dýrkeypt og að vera árvökull getur borgað sig. Árni Stefán Árnason, Ölduslóð 38, Hafnarf. 75 þúsund aðra leiðina til London ÉG sendi jólapakka til Lundúna um daginn. Vissulega engin frétt í sjálfu sér, hitt eru aftur tíðindi að ef ég hefði orðið að greiða undir mig sjálf- an eftir pakkasendingarverðinu til London, þá hefði það orðið kr. 75.000. 750 kr. kostar undir hvert kíló í flugi. Nú spyr ég forstjóra Íslandspósts; hvernig stendur á þessum gífurlega verðmun? Og ég sem hélt í minni ein- feldni fólk dýrmætara en pakka. „Dýr myndi Hafliði allur, ef svo skyldi hver limur.“ Sem sagt 150.000 kr. báðar leiðir upp á vatn og brauð, í lest. Sigurður Sigurðarsson, Lækjarbergi 6, Hafnarf. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Svartar sparidragir Opið í dag sunnudag kl. 13-18 • Leiðandi sérverslun í góðum vexti. Ársvelta 420 m. kr. • Traust iðnfyrirtæki með 200 m. kr. ársveltu. • Rótgróið innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Velta 360 m. kr. • Iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu og öruggan markað. 90 m. kr. ársvelta. • Húsgagnaverslun í góðum rekstri. • Iðnfyrirtæki í plastframleiðslu. Gæti hentað til flutnings út á land. • Þekkt sportvöruverslun í miðbænum. Mjög góður rekstur. Mikill sölutími framundan. • Íþróttavöruverslun með þekkt merki og sérvörur. Góð viðskiptasambönd. Sami eigandi í 20 ár. Hagstætt verð. • Ferðaþjónustufyrirtæki miðsvæðis á Norðurlandi. Veitingar og gisting. • Ein þekktasta barnafataverslun landsins. Ársvelta 85 m. kr. • Stór trésmiðja með sérhæfða framleiðslu. Mjög tæknivædd. Mikil verkefni og góð af- koma. • Lítil húsgagnaverslun. Auðveld kaup. • Gott fyrirtæki í ferðaþjónustu. • Þekkt undirfataverslun í stórri verslunarmiðstöð. • Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr. .• Þekkt barnafataverslun í Kringlunni. • Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði á góðum stað. • Brautarnesti í Reykjanesbæ. Góður söluturn í eigin húsnæði. Spilakassar og Lottó. • Söluturninn Miðvangi. Gott tækifæri fyrir einstakling, sem vill hefja eigin atvinnurekstur. • Lítil sápugerð með góðar vörur. Hentugt fyrirtæki til flutnings. • Lítil tískuvöruverslun í Kringlunni. Auðveld kaup. • Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr. . • Rótgróinn veitingastaður, söluturn og ísbúð. Ársvelta 36 m. kr. Góður rekstur. • Salon Nes, góð hárgreiðslustofa á Seltjarnarnesi. • Lítið garðvinnufyrirtæki. Gott fyrir einyrkja sem vill vinna sjálfstætt. • Tveir söluturnar í 101 Reykjavík. Hentugur rekstur fyrir hjón eða fjölskyldu. • Skemmtileg gjafavöruverslun í Kringlunni. • Rótgróin brauðstofa í eigin húsnæði. Vel tækjum búin - gott veislueldhús. Mikil föst við- skipti. • Glæsileg ísbúð, videó og grill á einstaklega góðum stað í austurbænum. Mikil veitinga- sala og góð framlegð. • Lítill söluturn í Háaleitishverfi. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk sem vill komast í eigin rekstur. • Smáskór - rótgróin sérverslun með fallega barnaskó. Eigin innflutningur að stórum hluta. Hentugt fyrirtæki fyrir tvær smekklegar konur eða sem viðbót við annan rekstur. • Falleg, lítil blómabúð í miðbænum. • Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Einstakt tækifæri fyrir duglegt fólk. Leiga möguleg fyrir réttan aðila. • Glæsileg efnalaug í góðu hverfi. Eigið húsnæði. • Sérverslun í Kópavogi með raftæki o.fl. Auðveld kaup. • Rótgróið fyrirtæki í álsmíði og viðgerðum. Traust föst viðskipti. Tilvalið sem viðbót við vélsmiðju eða skyldan rekstur. • Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Rekstrarhagnaður 30 m. kr. á ári. Hentugt til sameiningar við svipað fyrirtæki. • Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyrir „saumakon- ur“ með góðar hugmyndir. • Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagn- aður 11 m. kr. á ári. • Þekkt lítið framleiðslufyrirtæki í matvælageiranum. Hentugt til sameiningar. • Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Meðeign kemur til greina. Gagnlegur fróðleikur sjá: www.kontakt.is Hlíðasmára 11, Kópavogi sími 517 6460 www.belladonna.is Réttu stærðirnar Ný sending af peysum næstum engar tvær eins! Opið mán.-föst. 11-18 • laug. 11-15 Laugavegi 54, sími 552 5201 Kápur Ný sending Verð frá kr. 7.990 Opið í dag frá 13-17 Félagsstarf Félag eldri borgara Reykjavík | Dansleikur kl. 20, Caprí–tríó leikur fyrir dansi. Síðasti dansleikur fyrir jól. Félagsstarf Gerðubergs | Fim. 16. des. kl. 14, jólahelgistund í samstarfi við safnaðarstarf Fella- og Hólakirkju, fjölbreytt dagskrá nánar kynnt síðar. Umsjón sr. Guðmundur Karl Ágústs- son og sr. Svavar Stefánsson. Hátíð- arveitingar í Kaffi Berg. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf. Soffía Jakobsdóttir er alla mánudaga í Listasmiðju Hæðargarðs með leið- sögn í framsögn, framkomu og upp- lestri. Fyrri hópur kl. 9–12 seinni hóp- ur frá kl. 13–16. Næsti fundur í Bókmenntahópi Háaleitishverfis er 19. janúar 2005. Gestur kvöldsins Silja Aðalsteinsdóttir. Norðurbrún 1 | Þriðjudaginn 14. des- ember verður farið á Hellu og jóla- markaður skoðaður, farið að Hest- heimum til Ástu Beggu og Gísla þar sem verður jólahlaðborð, lagt af stað kl. 12.30 frá Norðurbrú og síðan teknir farþegar í Furugerði skráning í síma 568 6960. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Jólafundur Æsku- lýðsfélags kl. 20. Grafarvogskirkja | Grafarvogskirkja kl. 16, Barna– og unglingakór og Kór Grafarvogskirkju syngja jóla– og að- ventulög. Stjórnendur: Hörður Braga- son og Oddný J. Þorsteinsdóttir. Söngkonan Magga Stína kemur. Hljóðfæraleikarar: Hörður Bragason orgel / píanó. Hjörleifur Valsson fiðla. Birgir Bragason bassi. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 09–17 í síma 587 9070. Selfosskirkja | Í dag kl. 15 verða haldnir aðventutónleikar í Selfoss- kirkju. Fjölmargir kórar og aðrir flytj- endur koma fram. Kvenfélag Selfoss- kirkju selur laufabrauð eftir tónleikana. Sr. Gunnar Björnsson. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 80 ÁRA afmæli. Í dag, 12. desember, verður áttræð Sigrid Toft húsmóðir, Selási 11, Egilsstöðum. Eigin- maður hennar er Magnús Pálsson. Þau eru að heiman í dag. Árnaðheilla dagbók@mbl.is ORGEL Seljakirkju verður í aðal- hlutverki á aðventustund í kirkjunni kl. 20 í kvöld, en orgelið verður nú tekið aftur í notkun eftir gagngera viðgerð. Á dagskránni verða aðventu- og jóla- orgelforspil úr Orgelbuchlein eftir Jó- hann Sebastian Bach. Jón Bjarnason organisti flytur átta orgelforspil eftir Bach og kirkjukór Seljakirkju mun syngja alla sálmana sem forspilin eru skrifuð um. Einnig munu prestar kirkj- unnar lesa upp úr ritningunni viðeigandi texta þar sem sálmarnir eru skrifaðir útfrá því efni. Einnig verða stuttar kynningar á orgelinu og orgelforspilum á milli. Morgunblaðið/Jim Smart Orgelvígsla í Seljakirkju HLJÓMSVEITIN Tend- erfoot heldur útgáfu- tónleika kl. 21 í kvöld á Hótel Borg í tilefni af útkomu plötunnar „Without Gravity“. Sveitin hefur vakið töluverða athygli síð- ustu misseri, m.a. á Iceland Airwaves tón- listarhátíðinni og einnig með útgáfu sinni af laginu „Over the Rainbow“, úr Galdra- karlinum í Oz. Tónlist Tenderfoot má flokka undir svonefnda „alt-country“ stefnu, lágstemmd órafmögnuð tónlist undir áhrifum frá sveita- og þjóðlaga- tónlist og blús. Útgáfutónleikar Tenderfoot á Borginni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.